Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
9
IL.LL. --■ ------------
WANG
Heimilistæki hf, Sætúni 8,105 Rvík
__ Sími: 91-6915 00 __
Síðumúla 33
símar 681722 og 38125
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
V Hverfisgðlu 33, slmi: 62-37-37
Þ j ónustumiðstöð
skrifstofunnar.
eykjavíkur.
bílastæði við Klapparstíg.
Tugir tegunda
reiknivéla
OfTlROn
V
Tvískinnungur á Alþingi
Þingmenn eru sumir þeim ókosti gæddir
að vilja gera ógrynnin öll af góðverkum
, en láta aðra um að fjármagna þau. Sýnd-
armennska og tvískinningur í þessum
efnum sem öðrum er of áberandi. Hér
verða rakin nokkur dæmi.
Samkynja
Suður-Afríku
Eitt skýrasta dæmið
um tviskmnung1 á yfir-
standandi þingi er frum-
varp um viðskiptabann á
Suður-Afríku og
Namibíu sem þingmenn
leggja nú kapp á að verði
að lögum fyrir þingslit.
Aðskilnaðarstefna
stjómvalda í Suður-
Afríku er viðbjóðsleg en
þvi miður em slik mann-
réttindabrot sem þar
tíðkast ekkert einsdæmi.
Steingrímur Hermanns-
son, utanríkisráðherra,
einn helsti hvatamaður
tillögunnar, staðfesti það
raunar i eldhúsdagsum-
ræðunum á Alþingi
siðastliðinn þriðjudag.
Þar sagði ráðherrann:
„í raun er framferði
ísraelsmanna gagnvart
Palestíniunönnum á
hemumdu svæðunum
sama eðlis [og stefna
Suður-Afriskra stjóm-
valda]. Þar er um að
ræða kynþáttaofsóknir,
sem geta ekki staðist til
lengdar og munu fyrr
eða siðar leiða til tortím-
ingar Ísraelsríkis." Ut-
anríkisráðherra nefnir
eitt dæmi og mætti tina
til tugi annarra. Ef al-
þingismenn vilja vera
samkvæmir sjálfum sér
hljóta flutningsmenn
frumvarpsins um við-
skiptabann á Suður-
Afríku að flytja sams-
konar frumvörp gagn-
vart þeim ríkjum þar sem
mannréttindabrot „sama
eðlis“ og í Suður-Afríku
em stunduð. Annað væri
hræsni.
Hver á að
borga
brúsann?
Þingmenn Borgara-
flokksins fluttu fyrir
skömmu tillögu um bygg-
ingu leiguíbúða. Segja
þeir öllum vera [jóst að
mikill skortur er á leigu-
íbúðum hér á landi og á
sama tima séu leigukjör
svo óhagstæð að veiyu-
legt launafólk geti ekki
staðið undir húsaleigunni
einni af tekjum sinum.
Vilja þeir að ríkisstjóm-
inni verði falið að hefja
þegar i stað undirbúning
að byggingu 1050 leigu-
ibúða sem reisa skuli á
árunum 1989-1996. En
biðum við. Ef lesið er
aðeins lengra má sjá
þessa gullvægu setningu:
„Rfldsstjómin geri tillög-
ur um fjármögnun“.
Borgaraflokkurinn vill
sem sagt að rikisstjómin
sjái um að gera tfllögur
um hvernig fjármagna
eigi góðu hugmyndimar
þeirra. Sama ríkisstjóm-
in og þingmenn Borgara-
f lokksins lýstu vantrausti
á í síðustu viku!
Baraorð?
Stefán Valgeirsson
hefur í vetur gerst tals-
maður lágiaunafólks i
landinu og einn helsti
hatursmaður hárra vaxta
á Alþingi. Hann er einnig
formaður bankaráðs
Búnaðarbankans og einn
hæstlaunaði þingmaður
íslands. Þær em ófáar
ræðumar sem Stefán
hefur flutt um lágu laun-
in og háu vextina. En
hvemig hagar Stefán
Valgeirsson sér þegar
hann stigur niður úr
ræðustólnum við Austur-
völl og tekur tíl hend-
inni? Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, vakti at-
hygli á þvi á Alþingi fyrr
í vetur eftir að Stefán
hafði flutt eina af þessum
ræðum: „Ég minni Uka á
að það er ekki eins og
ákvörðunarvaldið sé i
höndum einhverra óval-
inna manna. Bankaráð
rikisbankanna t.d. em i
reynd sá aðili sem ákveð-
ur vextina að réttum lög-
um, þeim lögum um við-
skiptabanka og spari-
sjóði sem samþykkt vom
1985. Það er þess vegna
næsta kyndugt að hlusta
hér á formann bankaráðs
eins stærsta ríkisbank-
ans, Búnaðarbankans,
beija sér yfir háum vöxt-
um. Hann hefur ákveðið
þá sjálfur. Hann hefur
líka talað hér af miklurn
sldlningi á kjörum hinna
lægst launuðu. Ég er
honum sammála um það
að við þurfum að bæta
kjör þess fólks. Hann
hefur sýnt að hann er svo
mikill jafnréttismaður að
hann hefur enn betri
skilning á kjörum hinna "
hæst launuðu þvi hann
hefur sem formaður í
bankaráðinu hækkað
kaupið hjá þeim sem
hæst hafa launin I hinu
opinbera kerfl. Þannig
er viðsýnið fyrir norðan.
Þannig er skilningurinn
á kjörum fólks í landinu.
Ég get ekki látið þjá liða
að segja eitthvað tun
þessa endalausu hræsni
sem hér veður uppi i
þingsölum."
Hér hafa verið nefnd
þrjú nýleg dætni nm skin-
helgi þingmanna, ráð-
herra og jafnvel heilu
þingflokkanna, en þau
em þvi miður miklu
miklu fleiri. Við af-
greiðslu fjárlaga em á
ári hveiju fluttur fjöld-
inn allur af brt* ytingurt.il-
lögum við fjárlagafrum-
varpið. Samþykkt slíkra
tillagna þýðir að sjálf-
sögðu aukin útgjöld rflds-
sjóðs en sjaldan svara
flutningsmenn breyting-
artillagna þvi hvar eigi
að ná í tekjur upp í auka-
kostnaðinn sem þeir
leggja tíl. Ætlast væntan-
lega til að „rfldssijórain
geri tíllögur um fjár-
mögnun“ þvi ekki vijja
þingmenn hallarekstur
rfldssjóðs. Þjóðin sér
auðveldlega i gegnum
þennan tviskinnung
stjómmálamanna þó að
þeir virðist halda að þessi
tíllöguflutningur auki
vinsældir þeirra.
Ef þingmenn vilja
vinna sér inn traust fólks
og endurreisa virðingu
Alþingis verða þeir að
láta af þessum vinnu-
brögðum. Orð verða að
fylgja gjörðum og sam-
kvæmni að vera í tillögu-
flutningi. Ef menn viþ'a
aukin útgjöld eða lægri
skatta verðar þeir að
segja til um hvar pening-
ana eigi að taka.
Brúðkaupsgjafir
sem þú velur fyrir vini þína og þá sem þér þykir vœnt um-* J
studio-line