Morgunblaðið - 06.05.1988, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
13
Nýtt húsnæðiskerfi?
eftir Ásmund
Stefánsson
Auknar lánveitingar
Jafnframt nýja húsnæðislána-
kerfinu var aflað mjög aukins fjár
frá lífeyrissjóðunum til Byggingar-
sjóðs ríkisins. Sú aukning gerði
kleift að næstum því tvöfalda verð-
mæti útlána í samanburði við árið
1985 þrátt fyrir að ríkisframlagið
hafi á sama tíma verið skorið niður
um einn þriðja.
A næstu tveimur árum verða
tekin lokaskref að því að lífeyrisið-
gjald verði greitt af öllu kaupi. Sú
breyting mun auka ráðstöfunarfé
lífeyrissjóðanna og þar með Hús-
næðisstofnunar verulega. Ávöxtun
lífeyrissjóðanna er nú með því allra
besta sem hún hefur verið í sögu
almenna lífeyrissjóðakerfisins. Það
eykur einnig ráðstöfunarfé sjóð-
anna og Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins.
Þrátt fyrir auknar lánveitingar
er langur biðtími eftir húsnæðis-
lánum. Að meðaltali er hann um
32 mánuðir. Það þýðir að for-
gangshópar bíða í tvö ár, en þeir
sem ekki eru í forgangshópi gætu
búist við að þurfa að bíða í á fjórða
ár. Flestir virðast sammála því að
þetta sé of langur biðtími og því
sé óhjákvæmilegt að breyta kerf-
inu.
Hvernig má stytta
biðtímann?
í fyrsta lagi væri hægt að lækka
lánin. Þá mundi sama fjárhæð
skiptast á fleiri lántakendur og
biðtíminn þar af leiðandi styttast.
Einhveijir mundu ekki ráða við
íbúðarkaup ef lánin lækkuðu og
yrðu því að hætta við.
í öðru lagi mætti hækka vexti.
Þá mundu lánin verða dýrari og
hópur fólks mundi hætta við lán-
töku. í þeim hópi mundu ekki vera
aðeins þau sem eftir vaxtahækkun
teldu að það borgaði sig ekki leng-
ur að taka lánin. Þau sem réðu
ekki við íbúðarkaup eftir vaxta-
hækkun mundu bætast í hóp þeirra
sem færu úr biðröðinni. Vaxta-
hækkun er skömmtunarkerfi. Hún
er skömmtunarkerfi markaðarins.
Skömmtunarkerfi markaðarins
veldur því að þeir tekjuminnstu
mundu enn frekar en nú verða að
bíða lausnar í félagslega íbúðakerf-
inu.
í þriðja lagi má leysa vandann
með því að afla aukins íjár til kerf-
isins. Aukið fé veldur óhjákvæmi-
lega aukinni þenslu á fasteigna-
markaðinum. Á það ber þó að líta
að þrátt fyrir allt hefur fasteigna-
verð að undanförnu ekki hækkað
umfram það sem búast mátti við
í hinni almennu þenslu sem gengið
hefur yfir. Fleiri og hærri lán hafa
ekki ráðið úrslitum um að sprengja
markaðinn.
í fjórða lagi kemur til greina
að takmarka lánsréttinn og útiloka
hluta umsækjenda eða skerða rétt
þeirra. Með lagabreytingu á liðnum
„Þrátt fyrir auknar lán-
veitingar er langur bið-
tími eftir húsnæðislán-
um. Að meðaltali er
hann um 32 mánuðir.
Það þýðir að forgangs-
hópar bíða í tvö ár, en
þeir sem ekki eru í for-
gangshópi gætu búist
við að þurfa að bíða í á
fjórða ár. Flestir virð-
ast sammála því að
þetta sé of langur bið-
tími og því sé óhjá-
kvæmilegt að breyta
kerfinu.“
vetri var tekið skref í þessa átt.
Það er óljóst hve margir misstu
eða munu missa lánsrétt við þá
Ásmundur Stefánsson
breytingu. En það er ljóst að þeir
sem af einhveijum áistæðum fá
ekki úthlutað láni geta náð í lán
með því að kaupa íbúðir með
áhvílandi láni. Á sama hátt gátu
þeir sem ekki fengu lán samkvæmt
eldra kerfi „keypt sér lán“. Fólk
án lánsréttar gat áður og getur
nú óhindrað yfirtekið lán. Lánin
fylgja nefnilega íbúðinni en ekki
einstaklingnum sem tók lánið.
Ég ætla ekki að fjölyrða um
allar þær aðferðir sem til greina
koma. Ekki heldur um kosti þeirra
og galla. Heldur vil ég gera ör-
stutta grein fyrir einni aðferðinni
sem var til umræðu Alþýðusam-
bandshópsins við undirbúning
kerfisins 1986.
Persónubundið lán
með breytilegum endur-
greiðslutima
Forsenda þess að hægt sé í
reynd að útiloka ákveðna hópa frá
því að fá eða yfirtaka lán úr kerf-
inu er að lánin séu veitt einstakl-
ingum og fylgi þeim en ekki íbúð-
inni. Þá hlið ætla ég hins vegar
ekki að ræða hér, heldur hitt,
hvemig hægt er að tengja persónu-
bundið lán misjöfnum tekjum og
lánstíma. Með öðrum orðum hvem-
ig endurgreiðsla lánsins verður
hraðari hjá tekjuhærri hópum.
Á myndinni er sýnt dæmi þar
sem greidd er aukaafborgun sem
nemur 10% álagi á staðgreiðslu-
skattinn, þ.e. 3,52% af tekjum
umfram skattleysismörk. Við 100
þúsund króna mánaðartekjur væri
lánstíminn kominn niður í 21 ár
miðað við 1 milljónar króna lán, í
27 ár m.v. 2 m.kr. lán og í 30 ár
m.v. 3 m.kr. lán. Við 150 þ.kr.
mánaðartekjur væri lánstíminn
kominn niður í 16 ár m.v. 1 m.kr.
lán, 22 ár m.v. 2 m.kr. lán og 25
ár m.v. 3 m.kr. lán.
Með aukaafborgun tengdri tekj-
um, sem þá í reynd er eins konar
skylduspamaður, styttist meðal-
lánstími verulega. Lánin endur-
greiðast hraðar og Byggingarsjóð-
ur fær aukið fé til nýrra lánveit-
inga.
Vaxtaniðurgreiðslan verður í
heildina minni. Lánstími styttist í
hlutfalli við það sem tekjur vaxa.
Vaxtaniðurgreiðslan minnkar þar
af leiðandi eftir því sem tekjur lán-
þegans eru meiri. Það má því segja
að þessi aðgerð sé ígildi vaxta-
hækkunar á lán þeirra tekjuhærri.
Höfundur er forseti Alþýðusam-
bands tslands.
Karl Kvaran sýnir í
GaQerí Svart á hvítu
SÝNING á verkum Karls Kvar-
ans verður opnað á morgun,
laugardaginn 7. maí, í Gallerí
Svart á hvítu. Á sýningunni
verða verk sem öll eru unnin
með blýanti á pappír á árunum
1969—1975. Karl Kvaran hefur
ekki áður sýnt verk unnin með
þessari tækni en hann er Iöngu
þekktur fyrir olíu- og gvass-
myndir sínar.
Karl fæddist 1924. Hann nam
við einkaskóla Marteins Guð-
mundssonar og Björns Björnsson-
ar 1939-1940 og 1941-42 í
einkaskóla Jóhanns Briem og
Finns Jónssonar. 1942—45 var
hann við nám við Handíða- og
myndlistaskólann í Reykjavík og
síðan við Listaakademíuna í
Kaupmannahöfn 1945—48.
Karl var einn af frumkvöðlum
geómetrískrar abstraktsjónar á
Islandi á sjötta áratugnum og
hefur síðan unnið í anda þessarar
stefnu og á grundvelli hennar
þróað persónulegan og sjálfstæð-
an stíl.
í texta sýningarskrár fyrir
„Norræna konkretlist" sem á
næstunni verður sett upp í Lista-
safni íslands, segir Halldór Bjöm
Runólfsson listfræðingur m.a. um
Karl Kvaran:
„Sá þeirra sem merkastar
ályktanir dró af hinni nýju list og
varðveitti áhrifin til frambúðar
var Karl Kvaran. Hann var jafn-
framt sá eini sem aldrei hafði
dvalið við nám í París né drepið
þar niður fæti. En hann var ein-
staklega skarpskyggn og gáfaður
málari, sem leit á konkretlistina
sem kröfu um algjöra hreinsun
myndmálsins. Slík ögun leiddi
hann snemma á vit ákveðinnar
naumhyggju, sem hann, einn
sinnar kynslóðar aldrei hvarflaði
frá. Þessi sparsemi kom þegar
fram í fyrstu flatverkum hans frá
1952. Þar er þegar áberandi sú
tilhneiging Karls að halda sig við
ákveðna Iiti og kanna í þaula
virkni þeirra sem forma á fletin-
um. Slík áhersla á rannsóknir,
fremur en beint fagurfræðilegt
takmark, leiddi Karl til syrpu-
kenndra vinnubragða. Gagnrýn-
endum hans fannst sem hann
væri sífellt að mála sömu mynd-
ina. En þijátíu og fimm árum
síðar sjáum við glöggt að fram-
vinda sögunnar hefur verið honum
í vil. Eftir fyrstu sporin, þar sem
hann kannaði flatakennda virkni
einfaldra litforma, sneri hann sér
að láréttum litböndum sem nánast
útrýmdu formbyggingu á kostnað
litarins. Einnig vann hann einfald-
ar og tvflitar gouachemyndir, þar
sem svartar grindur eru burðarás
formbyggingarinnar. Á seinustu
áratugum hefur myndbygging
Karls orðið lífrænni og stórbrotn-
ari, án þess að bijóta í bága við
kröfur konkretlistarinnar um
sléttmáluð litform á tvívíðum
fleti."
Um feril Karls Kvarans segir
Bera Nordal forstöðumaður Lista-
safns íslands m.a. í sýningarskrá:
„Ef litið er á heildarferil Karls
Kvarans er augljóst að hann hefur
sett list sinni afar þröngar skorð-
ur og er slíkt einstigi næsta vandr-
atað en innan þessara marka hafa
verk hans verið rökræn í þróun í
átt að mýkri formum og meiri
hreyfingu. Jafnframt eru þau
frekar innhverf og lokuð og öðl-
ast næstum táknrænt gildi og trú-
arlegt inntak. Þau eru aldrei af-
leiðing ytri aðstæðna heldur ætíð
innri þarfar. Þær breytingar sem
orðið hafa á verkum hans eru aldr-
ei byltingarkenndar heldur leiðir
hvert tímabil af öðru á markvissan
hátt. Hann vinnur að sömu hug-
myndinni í mörgum myndum,
endurtekur, breytir og myndar
þannig síbreytileika, hrynjandi
þar sem engu er ofaukið. Karl er
óvenju kröfuharður listamaður og
gagnrýnir sífellt verk sín. List
hans hefur verið stöðug þróun
Karl Kvaran
rannsókna og uppgötvana og hver
sigur hefur leitt til nýrrar sóknar."
Sýning Karls Kvarans í Gallerí
Svart á hvítu á Laufásvegi 17
stendur frá 7.-22. maí og er opin
alla daga nema mánudaga frá kl.
14 til 18.
(Fréttatilkynning)