Morgunblaðið - 06.05.1988, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
Hálfmara-
þonhlaup og
skemmti-
skokk
MEISTARAMÓT íslands í hálf-
maraþonhlaupi karla og kvenna
fer fram á Akureyri á morgun,
sunnudaginn 8. maí. Hlaupið hefst
kl. 12.00 við Ráðhústorgið og end-
ar þar einnig. Hlaupnir verða tveir
hringir i bænum. Auk verðlauna-
peninga í fyrstu þremur sætunum
verða veittir 15.000 króna æfinga-
styrkir fyrir fyrsta sætið hjá báð-
um kynjum og 7.500 krónur fyrir
annað sætið.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist skrifstofu UMSE, í síma
96-24011, í síðasta lagi í dag. Þátt-
tökugjald er 200 krónur.
Þá fer fram skemmtiskokk í þrem-
ur flokkum karla og kvenna, 14 ára
og yngri, 15-34 ára og öldungaflokki
35 ára og eldri. Hlaupið hefst á sama
stað á sama tíma. Hlaupið verður
Drottningabrautina, beygt inn á Að-
alstræti við skautasvellið, síðan Hafn-
arstræti og endað við Ráðhústorgið.
Verðlaunapeningar verða veittir fyrir
þrjú efstu sætin í hverjum flokki. Auk
þess verða dregin út 8-10 aukaverð-
laun, sportvörur að verðmæti 2.000
til 4.000 krónur hver úttekt.
Skráning þátttakenda verður á
Ráðhústorginu kl. 10.45' til 11.45
fyrir hlaupið. Þátttökugjald er 100
krónur. Framkvæmdaaðilar eru
UMSE og HSÞ.
Krossanesverksmiðjan bræddi 45.000 tonn
Fiskimjölsverksmiðjan í Krossanesi var meðal þeirra verksmiðja, sem tóku á móti mestu af loðnu á nýlokinni vertíð. Alls voru brædd
tæplega 45.000 tonn, en 7 verksmiðjur bræddu meira. Tæpalega 21.000 tonn voru brædd fyrir áramót og 24.000 tonn seinni hluta
vertíðarinnar.
Glugginn:
Einar Hákon-
arson sýnir
Einar Hákonarson myndlistar-
maður opnar málverkasýningu í
Glugganum, Glerárgötu 34, Ak-
ureyri, í kvöld, föstudagskvöld,
kl. 21.00.
Hann stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1960-1964 og framhaldsnám í Val-
ands-listaháskólanum í Gautaborg
.1964-1967. Einar hélt sína fyrstu
einkasýningu í Bogasalnum 1968
og hefur sýnt reglulega síðan. Þetta
er þrettánda einkasýning Einars
sem samanstendur af rúmlega
þtjátíu olíumálverkum frá síðustu
þremur árum.
Sýningin verður opnuð í kvöld
og stendur til sunnudagsins 15.
maí. Glugginn er opinn daglega frá
kl. 14-18 en lokað er á mánudögum.
Gamli-Lundur;
Myndlistar-
sýning
Guðrún Pálína Guðmundsdótt-
ir og Joris Rademaker opna
myndlistarsýningu í Gamla-
Lundi á Akureyri á morgun,
laugardag, kl. 17.00.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 16.00 til 21.00 til 15. maí. Guð-
rún Pálína er fædd á Akureyri og
hefur stundað myndlistamám í
Hollandi síðan 1982 en Joris er
hollenskur myndlistarmaður. Þau
hafa bæði tekið þátt í sýningum í
Hollandi á síðustu árum.
Toto og Viking Band
á útihátíð í Evjafirði
Einar Hákonarson.
Bandaríska hljómsveitin Toto
mun að öllum líkindum halda
tónleika á útihátíð, sem haldin
verður að Melgerðismelum í
Eyjafirði, seinnihluta sumars.
Nýstofnað fyrirtæki, Fjör hf.,
hefur undanfarnar vikur unnið
að þvi að fá hljómsveitina til
landsins, og að sögn Ómars Pét-
CAD/CAM-festi-
vagn í hringferð
NÝLEGA kom til landsins á veg-
um Iðntæknistofnunar íslands
þrettán metra langur festivagn
með fullkomnu CAD/CAM-kerfi.
Hringferð verður farin um
landið til að kynna þessa tækni.
Hugtakið CAD/CAM, tölvuvædd
hönnun og framleiðsla, er orðið
nokkuð þekkt hérlendis og nokkur
fyrirtæki hafa tekið þessa nýju
tækni í notkun. Mörg fyrirtæki
nota tölvur við gerð teikninga og
nokkur hafa tekið í notkun tölvu-
stýrðar framleiðsluvélar. Samteng-
ing milli hönnunar og framleiðslu
er þó enn óalgeng hér á landi og
möguleikar tölvuhönnunar eru lítið
nýttir nema til teikningagerðar.
CAD/CAM-festivagninn, sem farið
verður með um landið, er fenginn
frá IVE í Gautaborg. Hann er eins-
konar verkstæði á hjólum með
tveimur grafískum vinnustöðvum
og tölvustýrðri fræsivél.
Tvö námskeið verða haldin á
Akureyri í dag og á morgun, föstu-
dag og laugardag, hvom dag frá
kl. 8 til 16. Námskeiðin eru einkum
ætluð stjórnendum og starfsmönn-
um iðnfyrirtækja svo og tækni-
mönnum og kennurum fjölbrauta-
og verkmenntunarskóla. Hámarks-
fjöldi er tólf manns á hvort nám-
skeið. Enn eru nokkur sæti laus
seinni daginn. Tveir Svíar og tveir
starfsmenn Iðntæknistofnunar
verða með í förinni og sjá um nám-
skeiðin. Festivagninn verður stað-
settur við slökkvistöðina/bæjar-
ráðshúsið. Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar hefur séð um undirbúning
komu vagnsins til Akureyrar.
urssonar, eins sexmennmganna,
sem standa að fyrirtækinu, á
aðeins eftir að staðfesta samn-
inginn. „Við viljum fá þá og þeir
vilja koma til okkar og því teljum
við undirskriftina eina eftir.“
Auk Ómars standa þeir Pétur
Bjamason, Jón Bjamason, Sveinn
Rafnsson, Haukur Sveinsson og
Gunnar Sigtryggsson að Fjöri hf.
Ekki vildi Omar ræða um kostnað
af komu hljómsveitarinnar, en þeir
félagamir þurfa að greiða fýrir flug,
gistingu og uppihald fyrir 16 manna
lið, en hingað kemur hljómsveitin
frá Los Angeles. Hún verður á tón-
leikaferðalagi um Bandaríkin í júlí-
mánuði og má því búast við að
þeir geti komið hingað í byijun
ágúst.
Ómar sagði að þeir sexmenning-
amir tækju Melgerðismela á leigu
til að halda þar útihátíð og í leið-
inni tryggðu þeir ýmsum félaga-
samtökum fjármagn með því, svo
sem hestamannafélögum, ung-
mennafélögum og skátunum, svo
eitthvað sé nefnt. Þá mun Bíla-
klúbbur Akureyrar sjá um sand-
spyrnukeppni, sem vera á liður í
Islandsmeistaramóti sandspymu-
manna og verður sú keppni haldin
niður við á. Ómar sagði að fær-
eyska hljómsveitin Viking Band
kæmi einnig á Melgerðismela og
léki fyrir dansi öll kvöldin, en hún
er hvað þekktust fyrir flutning sinn
á Lónlí blú bojs-lögunum. Þá sagð-
ist Ómar jafnframt vera í viðræðum
við nokkrar af stærstu hljómsveit-
unum hér á landi, en ekki væri
búið að ganga frá samningum við
neina þeirra.
Hingað til hafa Melgerðismelar
verið að mestu notaðir undir hesta-
mannamót og ungmennafélagsmót,
en útihátíðir hafa ekki tíðkast þar
að ráði. „Við þurfum auðvitað mik-
inn fjölda gesta á útihátíðina svo
að þetta ævintýri beri sig og erum
við mjög bjartsýnir á að það takist.
Allir vita hversu gott veðrið er hér
á sumrin og finnst mér að Sunn-
lendingar geti alveg eins skroppið
norður eins og við Norðlendingar
suður," sagði Ómar. Lög hljóm-
svéitarinnar Toto eru eflaust mörg-
um kunn, en á meðal þeirra eru
lögin „Hold the Line“, „Africa“ og
„Stranger in Town".
Zebra býð-
ur verk-
fallsfólki
Veitingastaðurinn Zebra,
Hafnarstræti 100, ætlar að bjóða
öllu því verslunar- og skrifstofu-
fólki, sem hefur i verkfalli und-
anfarna daga, að njóta veitinga
í Zebra annað kvöld, laugardags-
kvöld.
Húsið verður opnað klukkan
22.00 og fyrir utan aðgangseyri
verður boðið upp á drykk og nasl.
Þeir, sem ætla að sýna samstöðu
með því að mæta, eru beðnir að
hafa samband við Zebra í síma
25500 og fá þeir þá boðsmiða senda
heim til sín.
íf
UW)CMK
ALLTAF A UPPLEIÐ
Landsins bestu .. 9’?nuL!?,Lt'í1'T,L
__r_r_TT opið um helgar frá kl 11.30 - 03.00
rljL/jlJK Virkadagafrákl. 11.30-01.00