Morgunblaðið - 06.05.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988
43
Afmæliskveðia:
Guðlaug Einarsdóttir
„Hafðu þökk fyrir allt“ segir Jón-
as Hallgrímsson í kvæði til vinar
síns. Ljóðasetning þessi er mér og
fjölskyldu minni efst í huga þegar
við sendum nokkur orð, við merk
tímamót til „Guðlaugar á Bifröst",
eins og við köllum hana gjama í
okkar hópi.
Guðlaug Einarsdóttir er fædd 3.
maí árið 1918 á Akranesi, dóttir
Einars Jónssonar vegavinnuverk-
stjóra og konu hans Guðbjargar
Kristjánsdóttur. Hún ólst upp f stór-
um systrahópi, en alls voru systum-
ar níu. Eflaust hefur hún kynnst,
strax í æsku þeirri baráttu sem háð
var fyrir lífínu í sjávarþorpi og því
þjóðfélagi sem þá var bændaþjóð.
En hún hefur einnig fengið að lifa
þá tíð er brotist var úr torfkofum
í steinhús, vegir lagðir, ár brúaðar,
hafnir byggðar og vélknúin skip
sigla að landi í stað kúttera.
Guðlaug fæddist inn í vorið og
hefur séð og lifað það í íslensku
þjóðlífí. Lýðveldisárið hefur hún
sjálfstætt vor í lífi sínu, þegar hún
Reykjanesskóli:
Emþáttung-
ur sýndur
á árshátíð
fsafirði.
gengur í heilagt hjónaband 15. apríl
1944 með æskuunnusta sínum, sr.
Guðmundi Sveinssyni, núverandi
skólameistara Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Ungu prestshjónin setj-
ast að á Hvanneyri í Borgarfírði
og eignast dætur sínar þijár: Guð-
björgu, Þórfríði og Guðlaugu. Hús-
móðurstörfín og það að vera prest-
frú í sveit hafa eflaust tekið á, auk
þess sem hún hefur veitt bónda
sínum skjól, sem ekki einungis þjón-
aði söfnuði sínum heldur kenndi, las
og skrifaði, sífellt í leit að meiri
menntun og þekkingu hérlendis og
erlendis. Tíminn á Hvanneyri hefur
verið tími ástkærrar móður til bama
sinna og manns, en þó aldrei því
gleymt að lífinu skyldi lifa lifandi.
Þáttaskil verða í lífí Qölskyldunn-
ar er hún flytur að Bifröst í Norður-
árdal, árið 1955, að taka við og
móta skóla samvinnumanna er flyst
úr borg í sveit. Húsbóndinn sem
skólastjóri, húsfreyjan sem húsmóð-
ir skólans. Segja má með sanni að
Guðlaug skapaði þar með manni
sínum ógleymanlegt skólaheimili,
sem trúlega verður aidrei til aftur
í íslenskri skólasögu. Þar var starf
hennar, hugsjón og fóm. Bifrastar-
árin vom Guðlaugu tfmi vorsins,
en þótt uggur og vetrarkvíði sæktu
að, á stundum, varð hrifningin yfír
lífínu, sumargrænni jörð, dýrð sól-
arinnar og hljómfalli náttúrannar,
til að auka á starfsorkuna og stað-
urinn varð hennar paradís.
Eftir nær aldarfjórðung er Sam-
vinnuskólinn Bifröst kvaddur. Hald-
ið er til stórra verkefna, stofnaður
er Fjölbrautaskólinn í Breiðholti,
sem verður fjölmennasti framhalds-
skóli landsins á örfáum áram. Hús-
bóndinn vinnur að undirbúningi og
stofnun skólans og er skipaður
skólameistari. Guðlauger samt ekki
langt undan, hún fylgir manni
sínum með sama krafti og áður og
gerist forstöðumaður skrifstofu
skólans. Enn lifir Guðlaug vorið,
þó sjálfsagt með öðrum hætti, en í
íslenskri sveit. Hún hrífst með upp-
byggingu Breiðholtshverfís, hinu
margbreytilega mannlífi hinnar
ungu byggðar og skóla í mótun.
Hún er þar í starfi — sverð og
skjöldur og vinnur af hugsjón og
fóm.
Guðlaug Einarsdóttir er enn ung
kona þó sjötug sé að aldri. Og hver
er ástæðan fyrir því að hún eldist
svo seint og heldur sér syo ungri,
þrátt fyrir mikil störf. Ástæðuna
er að fínna í því að hún hefur átt
sér lífshugsjónir að vinna fyrir, í
huga hennar og sálu hefur hvorki
smámunasemi eða öfund ríkt, sem
grefur um sig í sálum fjölda manna
og spillir lífí og æskueðli.
Kæra Guðlaug, við þökkum þér _
vináttu og samvinnu, megi vorið
ætíð fylgja þér.
„Hafðu þökk fyrir allt."
Guðný, Goði og dætur
Sérðu
líkíuna þínum
fyrir nægu kíilki til að
varðveiti burðarþol hans?
ÁRSHÁTÍÐ Héraðs- og grunn-
skólans á Reykjanesi var haldin
fyrir stuttu. Nemendur Héraðs-
skólans settu þar á svið einþátt-
unginn „Hinn eini sanni Seppi“
eftir Tom Stoppard i þýðingu
Guðjóns Ólafssonar mennta-
skólakennara á ísafirði.
Beinin eru máttarstoðir líkamans. Þessi
mikilvægu líffæri þurfa nóg af kalki sem
er helsta byggingarefni þeirra. Kalk er
einnig nauðsynlegt fyrir tennur, hár og
neglur og eðlilega starfsemi tauga og
vöðva.
hvítuefnum, en þau fylgja oftar en ekki
með í kalkríkri fæðu. Magna-kalk er því
eðlilegt svar við nýjum neysluháttum þar
sem neytendur vilja sjálíir ráða samsetn-
ingu fæðunnar.
Æfíngar á leikritinu stóðu yfir í
tæpa tvo mánuði undir sijóm Halls
Karlssonar kennara við Héraðsskól-
ann og var mikil vinna lögð í sýning-
una. Leikurinn fékk góðar undir-
tektir gesta á hátíðinni.
Grannskólinn sýndi staðfærða
uppfærslu á Öskubusku. Tóku allir
nemendur skólans þátt í sýningunni
og fóru þar á kostum. Hátíðinni
lauk síðan með dansleik þar sem
hljómsveitin Lottó frá Hnífsdal lék
fyrir dansi en meðlimir hennar era
á aldrinum 13 til 16 ára.
Svo illa vildi þó til að söngvarinn
komst ekki með og var þá gripið
til þess ráðs að efna til látúns-
barkakeppni. Fjórir nemendur og
einn kennari tóku þátt í keppninni
við mikinn fögnuð viðstaddra en
hlutskarpastur varð Ingimar Hall-
dórsson frá Súðavík. Var hann
óspart hylltur sem verðandi popp-
stjama.
í Héraðsskólanum era 32 nem-
endur í vetur og hefur skólastarf
gengið þar mjög vel.
Líkaminn framleiðir ekki kalk. Þess
vegna verðum við að sjá honum fyrir því.
Magna-kalk er hreint og ómengað og
hentar þeim sérstaklega vel sem kæra sig
ekki um aukaskammt af fítu og eggja-
Konur á meðgöngu eða með barn á
brjósti þurfa ríflegan skammt af kalki.
Einnig fólk um og yfír fimmtugt, einkum
konur, til að hamla gegn beinþynningu.
Mest er um vert að byggja upp kalkforð-
ann strax í móðurkviði og viðhalda hon-
um alla ævina.
Magna-kalk. Hreint og styrkjandi.
- Björg
SeHjamames:
Tónleikar
Tónlistar-
skólans
VORTÓNLEIKAR og skólasUt
Tónlistarskóla Seltjarnarness
fara fram i Neskirkju laugardag-
inn 7. maí kl. 16.00.
Nemendur úr öllum deildum skól-
ans koma fram, auk Qölda samspils-
hópa. Prófskírteini verða afhent
stigsprófsþegum og viðurkenningar
veittar þeim sem lokið hafa stærri
áfóngum í náminu.
(Fréttatilkynning")
ARGUS/SlA