Morgunblaðið - 06.05.1988, Side 46

Morgunblaðið - 06.05.1988, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 Verjendur í kaffibaunamálinu; Óvenjuleg og flókin viðskipti AÐ lokinni sóknarræðu vararík- issaksóknara, Braga Steinars- sonar, fyrir Hæstarétti í gær hófu verjendur ákærðu ræður sínar og í gær töluðu þeir Jón Finnsson, hrl., verjandi Erlendar Einarssonar og Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl., verjandi Hjalta Pálssonar. Jón Finnsson krafðist sýknu fyrir hönd umbjóðanda síns, Erlendar. Hann sagði að hann fengi ekki séð að vararíkissaksóknari hefði sýnt fram á að framin hefðu verið um- boðssvik og þar af leiðandi hefði ekki heldur verið um refsiverða launung að ræða. Ekki hefði heldur verið sýnt fram á að tengsl Erlend- ar við málið hefðu verið þannig að refsivert væri. Þá mótmælti hann að brotnar hefðu verið siðareglur með því að leggja fram sem gögn í málinu skjöl um O.Johnson & Kaaber og kvaðst ekki skilja slíka fullyrðingu. Hann sagði einnig, að svo væri að skilja á niðurlagi sókn- arræðunnar, að ákærðu væru fyrir dómi vegna fjársvika við almenn- ing, en það væri ekki raunin og skipti þetta engu um úrlausn sakar- efna. Jón reifaði gang viðskiptanna og sagði að sú skoðun hefði verið ríkjandi hjá stjóm SÍS að um um- boðsviðskipti væri að ræða. Ekki hefði það þó verið rætt til hlítar, enda viðskiptin um margt óvenjuleg vegna viðskiptahátta Brasilíu- manna og í raun gerólík venjulegum umboðsviðskiptum. Þá hefði hlut- verk SÍS verið allt annað en tíðkaÖT ist í vipskiptum óskyldra aðila, þar sem SÍS hefði tekið lán fyrir kaup- unum. Síðar hefði afsláttur vegna viðskiptanna verið endurgreiddur Kaffibrennslunni að fullu og í sam- ráði við skattayfirvöld. Þá hefði málinu átt að vera lokið. Ekki hefði verið ástæða til útgáfu ákæru og ekki hefði verið um fjárhagslegan ávinning ákærðu að ræða. Ef SÍS hefði neitað að greiða Kaffibrennsl- unni hefði sá ágreiningur verið á sviði einkaréttar. Vandséð væri hvaða opinberu hagsmunir krefðust þess að starfsmenn SÍS stæðu frammi fyrir ákæru um íjársvik. Verjandinn sagði, að lítið væri að finna í málinu, sem hægt væri að byggja á svo alvarlegar ásakan- ari á hendur Erlendi. SÍS væri mjög stórt fyrirtæki og forstjórinn gæti ekki haft yfírsýn yfir alla starfsemi hinna fjölmörgu deilda, enda væru framkvæmdastjórar og deildastjór- ar mjög sjálfstæðir í starfi. Ekkert í málinu tengdi Erlend við skjala- lega meðferð málsins, hvorki varð- andi tvöfalt reikningskerfí eða ann- að. Það yrði að teljast sannað að hann hafi ekki vitað um fram- kvæmd viðskiptanna, en tekið skyldi fram að með þessu væri ekki verið að fullyrða að þau hefðu ver- ið refsiverð. Jón vék lítillega að eðli viðskipt- anna og sagði að héraðsdómur hefði komist að þeirri niðurstöðu, að um umboðsviðskipti væri að ræða. Það væri rökstutt með því, að kaffi- brennslan hefði greitt SÍS umboðs- laun. Þessu hefði vararíkissaksókn- ari líka haldið fram. Þá hefði verið fullyrt, að þar sem SÍS sendi Kaffi- brennslunni ekki reikninga þýddi það að SÍS hefði ekki verið kaup- andi vörunnar. Jón benti á, að vara frá Brasilíu gæti skipt oftar en einu sinni um eigendur áður en komið er á áfangastað. Hann sagði, að eðli viðskiptanna hefði breyst, þeg- ar SÍS fór að taka lán í London og greiða fyrir kaffið. Kaffíbrennslan hafi ekki haft bolmagn til slíks. Jón sagði að Erlendur hefði verið sýknaður í héraðsdómi, svo sem hlaut að verða. Hann gagnrýndi þó mjög orðalag dómsins, til dæmis Sambandshúsið við Sölvhólsgötu Málflutningur í kaffibaunamáli fyrir Hæstarétti: Skólabókardæmi um fjársvik - sagði vararíkissaksóknari í lok sóknarræðu sinnar Málflutningi í kaffibaunamál- inu var fram haldið fyrir Hæsta- rétti í gær. Þá Iauk Bragi Stein- arsson, vararíkissaksóknari, sóknarræðu sinni. Að henni lok- inni talaði Jón Finnsson, hrl., veijandi Erlendar Einarssonar og síðan Guðmundur Ingvi Sig- urðsson, verjandi Hjalta Pálsson- ar. Þegar Bragi Steinarsson hélt ræðu sinni áfram í gær byijaði hann á að Qalla um skýrslu Guð- mundar Einarssonar, verkfræðings. Skýrslu þessa vann Guðmundur að beiðni SIS og rekur í henni feril kaffíbaunaviðskiptanna. Þessa skýrslu hafa veijendur lagt fram í Hæstarétti og er nánar íjallað um efni hennar á öðrum stað á síðunni. Bragi sagði hana ranglega unna, þar sem aðallega væri Qallað um samskipti SÍS við seljendur kaffis- ins í Brasilíu, en allar upplýsingar um þá hlið málsins lægju þegar fyrir. Fremur hefði jþurft að feril- greina viðskipti SIS við Kaffi- brennslu Akureyrar. Skýrsluhöf- undur viki hins vegar ekki orði að þeim hluta málsins og hefði skýrsl- an ekkert gildi varðandi úrlausn sakarefna. Bragi ræddi nokkuð um verklag skýrsluhöfundar. Hann sagði ljóst, að höfúndur hefði sett upp ákveðin dæmi um viðskipti með þeim hætti, að þegar þau voru borin undir ýmsa aðila, svo sem tollayfirvöld, ríkis- endurskoðun og fleiri, hafi hann fengið þau svör sem honum hafi verið þóknanleg. Hins vegar sé nú látið sem þessi skýrsla væri einhver stóri sannleikur í málinu. Skýrslu- höfundur fullyrti að Rannsóknar- lögregla ríkisins hefði ruglað skeyt- um, en það gætu allir séð, sem kynntu sér málsskjöl, að þar væri ekki endilega raðað í tímaröð. Þessu næst vék Bragi að því, að skjöl vegna rannsóknar á fyrirtæk- inu O.Johnson & Kaaber hefðu ver- ið lögð fram sem gögn í málinu. Hann sagði það vera brot á siðaregl- um að leggja málsskjöl annars máls fram, en eins og varnir væru fluttar í þessu máli teldist víst til- efni til þess. Hins vegar hefði kom- ið fram í því máli að um bein kaup og sölu hefði verið að ræða og við- skiptin bókuð sem slík. Stjómir fyr- irtækjanna í því máli, þ.e. heildsöl- unnar og kaffíbrennslunnar, hefðu komist að samkomulagi um skipt- ingu afsláttargreiðslna. Um aug- ljóst verðlagsbrot hefði verið að ræða, með því að geta ekki um þessar greiðslur, en það brot hefði verið fymt. Bragi fjallaði nokkuð um hug- lægar refsiforsendur í máli þessu. Hann sagði að spyija yrði hveijir ættu að bera refsiábyrgð, en spum- ingin væri síður hvort brot hefðu verið framin. Þegar brot væru framin í þágu ópersónulegs aðila væri tilhneiging til að víkja sér undan með vísan til starfssviðs. Hér væri slíkt þó skýrt markað og þeir fimm menn, sem ákærðir eru, væru sóttir til saka á grundvelii starfs- og valdssviðs þeirra, Erlendur og Hjalti sem aðalmenn, en hinir þrír, sem framkvæmdu brotin, sem hlut- deildarmenn vegna starfs og valds- sviðs hvers og eins þegar brotin voru framin. Þáttur hlutdeildar- mannanna væri þegar kominn ríku- lega fram og væri tímabært að víkja að aðalmönnunum. Um Erlend Einarsson sagði Bragi að hann hefði verið yfirmaður Lundúnaskrifstofu SÍS, sem sá um kaffiviðskiptin. Vorið 1981 hefði hann sannanlega vitað af miklum tekjum SIS vegna viðskiptanna. Þá hefði verið tekin sú ákvörðun að endurgreiða Kaffíbrennslunni, en jafnframt að halda því fé, sem þeg- ar var í sjóðum SÍS. Þá hafi Erlend- ur minnst þess við yfirheyrslur að hafa tekið þátt í að Dráttarvélar hf. fengu 120 milljón gamlar krón- ur, sem greiddar voru úr sjóðum Lundúnaskrifstofunnar. Hins vegar hafi hann ekki hugleitt hvers vegna skrifstofan var aflögufær. Þá hafí Erlendur sagt, að hann hafi ekki vitað um samninga SÍS við NAF (Norræna Samvinnusambandið) vegna kaffikaupa. Hann hafí þó setið í stjóm NAF og helsta vam- arástæða hans væri að hann hefði talið að afsláttur vegna_ viðskip- tanna ætti heima hjá SÍS vegna aðildarinnar að NAF. Þá sagði Bragi, að Erlendur hafi borið að framkvæmdastjóri Lundúnaskrif- stofunnar hafí séó um framkvæmd viðskiptanna og sagði vararíkissak- sóknari að þar væri enn dæmi um að yfírmenn vörpuðu sökum á und- irmenn sína. Stjórnunarleg ábyrgð „Erlendur ber við minnisleysi um gang mála og verður ekki sakfelld- ur á grundvelli eigin játningar," sagði Bragi. „Mörkin milli löglegra viðskipta og flársvika kunna stund- um að vera óljós, en ekki hér. Þessi viðskipti em skólabókardæmi um fjársvik." Hann bætti við að það dygði ekki til sýknu að segjast ekki vita eða minnast. Erlendur hefði verið sá aðili, sem bar stjómunar- lega ábyrgð. Það kæmi víða fram að hann hefði komið við sögu í við- skiptunum. Hann hefði tekið stærri ákvarðanir, svo sem að flytja tekjur Lundúnaskrifstofu heim og um ráð- stöfun hluta teknanna til Dráttar- véla hf. Hann hefði samþykkt gerð- ir innflutningsdeildar, þ.e. að jafn- vel þótt afsláttur næmi 60-70% af kaffíverði, þá skyldu tekjumar telj- ast eign SlS. Þá hefði hann, þegar tekjumar voru óeðlilegar og miklar og endurskoðandi SÍS hefði talið að þær ættu betur heima hjá Kaffí- brennslunni, ákveðið að hluti þeirra skyldi greiddur þangað, en hinn hlutinn yrði áfram hjá SÍS. „Erlend- ur hlýtur að bera ábyrgð,“ sagði Bragi. Um Hjalta Pálsson sagði vararík- issaksóknari að hann hefði verið yfirmaður þeirrar deildar, sem sá um kaffíviðskiptin og yfirmaður meðákærðu, þeirra Amórs Val- geirssonar og Sigurðar Áma Sig- urðssonar. Það hafi verið á hans valdsviði að taka meiriháttar ákvarðanir um framkvæmd inn- flutningsins og skiptin við Kaffi- brennsluna. Fjármunir hefðu verið hafðir af Kaffíbrennslunni og end- anlega af neytendum. Þetta hefði þessum sérfróðu mönnum í við- skiptalífinu átt að vera ljóst. „Það lýsir siðblindu þegar Hjalti Pálsson leitast við að réttlæta tilkomu tekna vegna innflutningsins hjá SÍS og að SÍS eigi þetta fé,“ sagði Bragi. Bragi sagði að með viðskiptum þessum hefði verið brotið gegn sam- félaginu í heild. Það byggðist á réttum uppjýsingum, til dæmis um vömverð. Á grundvelli slíkra upp- lýsinga byggðust margir reikning- ar, til dæmis vísitölur, en þær gætu síðan haft áhrif á kjör almennings. Refsiverð fjársvik væm réttlætt af sumum ákærðu með því, að varan hefði verið seld hér á samkeppnis- hæfu verði. Þau rök réttlættu ekki fjársvik. Að þessum orðum töluðum lagði vararíkissaksóknari málið í dóm og ítrekaði gerðar dómkröfur um þyngingu refsingar þeirra Hjalta Pálssonar, Amórs Valgeirssonar, Sigurðar Áma Sigurðssonar og Gísla Theódórssonar og sakfellingu Erlendar Einarssonar, sem var sýknaður í héraðsdómi. rma -1 inm. Opid hús hjá slökkviliðunum Á morgun, laugardaginn 7. maí, verður opið hús hjá slökkviliðum landsins. Þá gefst almenningi kostur á að kynna sér útbúnað slökkviliða og almennt starf þeirra. Grunnskólanemendur eru sérstaklega velkomnir. BRUNAMALASTOFNUN RIKISINS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.