Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.05.1988, Blaðsíða 48
»48 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988 Minning: Gísli Bjarnason frá Aðalvík Fæddur 13. maí 1910. Dáinn 27. apríl 1988 Frændi minn, æskuvinur og náinn samstarfsmaður í meira en 40 ár, Gísli Bjamason, Efstalandi 8, hér í Reykjavík, verður kvaddur hinstu kveðju frá Bústaðakirkju í dag. Hann andaðist að kvöldi 27. apríl, eftir langa og erfiða sjúkdómslegu í Hátúni 10B. Með Gisla er genginn óvenjulega heilsteyptur og sérstæður persónu- leiki, svo að þeir mörgu, sem höfðu af honum nokkur kynni, munu á einu máli um, að skarð það, sem verður nú við fráfall hans, mun vand- fyllt. Gísli fæddist í Görðum í V-Aðalvík hinn 13. maí 1910, og var hann því nær 78 ára, þegar hann féll frá. Foreldrar hans voru Bjargey Sigurð- ardóttir, Gíslasonar hreppstjóra og formanns á Látrum, og Bjami Dósó- þeusson, útvegsbóndi frá Görðum. Þau hjónin fluttu að Látrum, þegar Gísli var íjögurra ára, og byggðu sér fbúðahús í túninu hjá foreldrum sínum. Milli bæjanna rann bæjarlæk- urinn, sem bæði heimilin höfðu af- not af. Gísli var sjá sjöundi í röð tíu al- systkina, en áður hafði móðir hans átt þrjár dætur með fyrra manni sínum, sem hún missti eftir stuttan hjúskap. Faðir Gísla var ekkjumað- ur, þegar hann gekk að eiga Bjarg- eyju, en hann hafði átt tvo syni með þeirri konu sinni. Komst annar þeirra til fullorðinsára, en fórst með mb Rask frá ísafirði haustið 1924. Þegar foreldrar Gísla voru flutt í nábýli við okkur að Látrum, var heimili þeirra mitt annað heimili og þó sérstaklega, þegar ég hafði misst ömmu mína sex ára gamall. Ég umgekkst Gísla og systkini hans nær daglega, og ef eitthvað fór úrskeiðis hjá mér, gat ég alltaf geng- ið að því vísu, að Bjargey, móðir Gísla, væri heima við og ég gat þá leitað til hennar, ef móðir mín var í önnum við heyskap eða aðra úti- vinnu. Bjargey var að jafnaði bundin heima við vegna hins stóra bama- hóps síns, og einnig af því að móðir hennar, sem var orðin ekkja, bjó á heimilinu. Þótt Gísli væri 3 árum eldri en ég, varð það samt að ráði, að hann yrði mér samtímis í framhaldsskól- anum á Isafirði, og þangað fórum við haustið 1929. Hann bjó þar hjá móðursystur sinni, Sigríði, og Jó- hanni Einarssyni kennara, manni hennar, en mér var komið fyrir hjá vandalausum. Ég lagði því eðlilega oft leið mína til Gísla eftir skóla- tíma, en Jóhann Einarsson hafði auk þess rejmst mér góður vemdari, þeg- ar ég kom, uppburðarlítill útnesja- drengur, í bamaskólann á ísafirði 1923, þá 9 ára gamall. En foreldrar mínir urðu þá að flytja til ísafjarð- ar, þar sem Sameinuðu ísl. Verslan- imar tóku jarðarpart þeirra og hús upp í útgerðarskuld. Þetta var í eina skiptið, sem faðir minn vann við útgerð annarra og þá frá ísafirði. Gísli reyndist góður námsmaður, enda þroskaðri en við, flestir skólafé- lagar hans. Vegna góðrar ástundun- ar hans var okkur leyft að tak ; pr •; á einum degi fyrir páska, svo að við gætum mætt við vorróðra strax eft- ir hátíðina, en þá hófst vorvertíð hjá okkur í Aðalvík. Að vorvertíð lokinni sumarið 1930 héldum við Gísli til Siglufjarðar í atvinnuleit. Við höfðum heyrt, að þar væri von um að fá vel borgaða vinnu, en síldin hefur löngum verið duttlungafull, kom ekki í þetta sinn í því magni, sem venja var, og þar var því enga vinnu að fá. Við héldum þá til Sauðárkróks í von um einhverja vinnu þar. Förinni var heitið þangað, af því að við átt- um víst athvarf hjá Ólöfu systur Gísla, sem bjó þar, gift Haraldi Sig- urðssyni verslunarmanni. Þar voru engin uppgrip, en Gísli fékk þó fljót- lega vinnu við hafnargerðina. Vann hann aðallega á „rammbúkka", miklu tæki, sem notað er til að reka niður stálþil í hafnarmannvirki. Varð sumarkaup beggja rýrt og mátti heita, að við færum heim með tómar pyngjur um haustið. Þetta varð til þess, að Gísli gat ekki sest í annan bekk um haustið og fór til sjós. í framhaldi af þvi tók hann hið minna vélstjórapróf á ísafirði og gerðist vélstjóri á ms Fagranesi, sem annaðist fólks- og vöruflutninga um Vestfirði og Strandir. Til Reykjavíkur hélt Gísli svo árið 1943, og var þá ætlunin að leggja í meira vélstjóranám, en hann veikt- ist hins vegar snemma árs 1944 og varð þá að slá frekari námi á frest. Þegar hann fór að hressast, kom hann til mín til að þreifa fyrir sér um vinnu. Ég hafði þá fyrir nokkrum árum hafíð innflutning á vélum og varahlutum í félagi við annan. Ég var því feginn, að Gísli skyldi koma til mín þessara erinda, því að engum treysti ég betur en honum til að taka að sér umsjón varahluta- þjónustunnar. Hóf hann störf hjá mér strax í febrúar 1944 og varð ekki úr því, að hann tæki aftur til við námið í Vélskólanum, heldur afréð hann að gerast starfsmaður minn og var það síðan í fjóra ára- tugi, eða meðan heilsan leyfði. Um störf Gísla hjá Vélasölunni mætti skrifa langt mál, en það rúm- ast ekki í þessari minningargrein. Þekking hans óx samfara umsvifum fyrirtækisins. Hann varð vinur og hjálparhella viðskiptavinanna, sem gátu alltaf leitað til hans, ef þá van- hagaði um eitthvað. Þekking hans á sérsviði hans var einstök. Gísli hafði slíkt stálminni — sem kannski ætti að kalla tölvuminni á rafeindaöld — að honum var oftast nóg að vita, hvenær menn höfðu keypt tiltekna vél, til að geta leið- beint þeim í vanda þeirra. Við sögð- um stundum, að honum nægði að vita, með hvaða lit vél hefði verið, þá lægi allt opið fyrir honum. Þessi dagfarsprúði og hugljúfi vinnufélagi, sem aldrei skipti skapi, þótt á móti blési, varð svo vinsæll meðal vinnufélaga og viðskiptavina, að slíks munu fá dæmi. Við, sem unnum með honum, trú- um því ekki, að tölvur nútímans nái þeirri snilli að geta leyst vanda véla- eigenda eins auðveldlega og Gísli frændi minn gerði, enda ávann hann sér traust og virðingu allra, sem áttu við hann einhver viðskipti. Eins og ég nefndi, hóf Gísli störf hjá Vélasölunni í febrúar 1944, og þar starfaði hann óslitið til 1984, en þá var heilsu hans þann veg far- ið, að hann varð að leggjast á sjúkra- hús. Var hann síðan meira eða minna á sjúkrahúsum, uns hann lést að kvöldi 27. apríl sl. á sjúkradeildinni í Hátúni 10B, þar sem hann dvaldi síðustu þijú árin. Vil ég í því sam- bandi færa starfsfólki sjúkradeildar- innar sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun allan þann tíma, sem Gísli dvaldist þar. Gísli kvæntist eftirlifandi konu sinni, Laufeyju Ámadóttur, útvegs- bónda í Teigi í Grindavík, hinn 17. apríl 1954, og var sambúð þeirra einkar góð. Var okkur vinum Gísla það mikil ánægja að sjá, hversu hlý- legt og myndarlegt heimili þeirra var að Stórholti 19, þar sem þau hófu búskap, og hversu Gísli naut þess að verða heimilisfaðir. Þau eignuðust tvö efnileg böm. Eyjólfur Bjami fæddist 13. septemb- er 1954, og er kona hans Mary Jane. Þau búa í Middelfart í Danmörku og eiga þrjú böm. Bjargey Gígja fæddist 12. janúar 1958. Hún var gift Ágústi Karlssyni, en er nú í sambúð með Einari Sigurðssyni, Kópavogi. Hún á líka þijú böm. Stjúpböm Gísla frá fyrra hjóna- bandi Laufeyjar, sem hann ól upp sem sín eigin böm, eru Ingveldur, gift Sverri Elentínussyni, Keflavík, Helena, gift Finni Eydal Akureyri, og Eygló, sem var gift Bimi Emils- syni, Reykjavík. Við, sem áttum samleið með Gísla og unnum með honum í áratugi, eig- um honum mikið að þakka á kveðju- stundu. Hann var ógleymanlegur félagi, hjálpfús og öruggur á hveiju sem gekk og tilbúinn að leysa hvers manns vanda, ef hann átti þess kost. Hann missti aldrei stjóm á skapi sínu og vissi ég þó, að hann var skapmaður, svo sem forfeður hans höfðu verið. En svo vel hafði hann agað þennan eiginleika, að hann hélt alltaf ró sinni, þótt misjöfnu væri að honum vikið eins og geng- ur, enda hafði hann þann starfa mestan hluta ævinnar að leysa úr vandamálum — til dæmis bráðlátra bátaeigenda, en þeir eiga oft lífsaf- komu sína og sinna undir því, að allt gangi snuðrulaust og atvinnu- tæki þeirra stöðvist ekki á miðri vertíð, en slíkt getur bakað tjón, sem vart verður bætt. Þann l.maí sl. lést á Borgarspítal- anum í Reykjavík, Finnbogi Laxdal Sigurðsson, fv. sjómaður frá Seyðis- firði, stundum kenndur við Berlín, er góðkunningjar og vinir kölluðu oftast Dalla eða Dalla Tollu. Þótt Finnbogi léti sig landsmál litlu skipta síðari árin, stóð baráttudagur verka- lýðsins huga hans nær, og því öðrum dögum betri til upphafs fararinnar yfir móðuna miklu, eftir erfiða en skamma sjúkdómslegu. Hann verður jarðsettur frá Seyðisíjarðarkirkju 7. maí. Finnbogi fæddist 14. desember 1901 í Berlín á Seyðisfírði, sonur hjónanna Sigurðar Eiríkssonar, sjó- manns og útvegsbónda frá Mjóafirði og Guðrúnar Lilju Finnbogadóttur, ættaðri frá Rifstað í Laxárdal í Vest- ur-Húnavatnssýslu. Börn þeirra auk Finnboga voru Sigurlín, Gunnar og Steinunn, sem er ein eftirlifandi þeirra systkina, búsett í Reykjavík. Eina uppeldis- systur áttu þau, Guðmundu Guð- mundsdóttur, sem var bróðurdóttir móður þeirra og var henni komið í fóstur misseris gamalli hjá Guðrúnu Lilju. Hún er búsett á Seyðisfírði. Sigurður, faðir Finnboga, var tví- giftur, með fyrri konunni átti hann fimm böm sem öll eru látin. Þau voru Anna, Elín, Einar, Sóla og Svana. Eins og alsiða var á uppvaxtar- árum Finnboga byijaði hann að létta undir við þau verk er til féllu á heim- ilinu um leið og gagn mátti hafa af bamshöndinni. Þrettán ára réðst hann upp á hálfan hlut við útgerð föður síns, Sigurðar er var nóta- bassi og rak nótabrúk á Seyðisfírði með góðum árangri um árabil. Síldveiði með þessum hætti var innleidd af Norðmönnum á íslandi, m.a. fyrir forgöngu Ottós Wathne o.fl. sem Seyðfirðingum er enn af góðu kunnur. Ber bærinn þessara umsvifa ára mörg merki enn í dag með sérstæðum fögrum húsum með norsku svipmóti. Norsk umsvif voru mikil fyrir aldamótin og upp úr þeim. Hingað komu frá Mandal og Haugasundi síldarspekulantar og dugmiklir sjó- menn er innleiddu nýja verkmenn- Mikið hefur verið lagt á þau hjón- in í langvarandi veikindum Gísla, þar eð hann var að mestu í sjúkra- húsum síðustu 4 árin. Hann sýndi á þeim tíma mikla hugprýði og æðru- leysi og kvartaði aldrei, þótt hann væri oft sárþjáður. Við félagar og vinir Gísla sjáum glöggt, er við lítum yfir lífshlaup hans, hve heilsteyptur þrekmaður hann var, og við munum hann sem glöggt dæmi þess, hveiju viljaþrek og þrautseigju fá áorkað. Gísli ólst upp í fjölmennum syst- kinahóp í litlum torfbæ við kröpp kjör, þar sem Vetur konungur barði á bömum sínum nær 9 mánuði á ári hveiju, og margt var að óttast af hans völdum. I fyrsta lagi að fenna í kaf í stórhríðum vetrarins, í annan stað að hrapa ekki fram af móðnum, sem myndaðist rétt fyrir neðan túnin og gat orðið ein til tvær mannhæðir á hæð, þegar linnulaus hríð var af norðri svo vikum skipti, en þá gróf sjórinn sig inn undir þessa skafla, svo að þeir gátu hrunið í hyldýpi, ef einhver var þar á ferð. Og loks er að geta óttans við bjarg- arskort, ef ekki gaf á sjó langtímum saman í óveðursköflunum. Um lækn- ishjálp var vart að ræða, þótt slys eða sjúkdóma bæri að höndum. Við slíkar aðstæður ólst Gísli upp, og þær mótuðu skapgerð hans og lífsviðhorf á margan hátt. Við samstarfsmennimir fundum, hve heilsteyptan mann hið óblíða umhverfí æskuáranna hafði mótað. Það átti sinn þátt í, að hann lagði sig fram um að hjálpa hveijum þeim, sem hann átti samskipti við. Hann var frábær vinur og félagi, sem við söknum öll. Laufeyju þökkum við einstaka umhyggju og umönnun árin öll, sem ingu og siði er tóku hug ungra manna fanginn. Finnbogi réðst 19 ára á farskipið Fridu frá Bergen. Sigldi það héðan með fullfermi af saltfíski og hreppti versta veður í hafi. Til Skotlands komst skipið eft- ir langa og stranga útivist og var þá allt brotið sem brotnað gat um borð. Farmurinn ónýttist því allar lestir fylltust af sjó. Þannig vom fyrstu kynni Finnboga af far- mennsku. Þrátt fyrir allt, lét hann ekki deigan síga, við illan leik og langar tafír komst hann að lokum til Noregs og dvaldi með Norðmönn- um í tvö og hálft ár. Tvö úthöld fór hann með þeim til selveiða í norður- höfum m.a. við Jan Mayen og síðar á síldveiðum við Norður-Noreg. Þessi ungdómsár vom Finnboga alla tíð mjög hugfólgin og minntist hann þeirra oft og lá honum gott orð til Norðmanna. Hann kom heim reynslunni ríkari, sigldur maður eins og það hét þá, eftir 3 ára uthald. Skömmu síðar giftist hann Kapítólu Sveinsdóttur, ættaðri frá Borgarfirði eystra, en hún lést fyrir 12 ámm. Áttu þau 11 böm og em 9 þeirra lifandi. Lilja, búsett á Gmndarfirði, gift Gísla Kristjánssyni, Sveinn, búsettur á Seyðisfirði, í sambúð með Vilborgu Sigurðardóttur, Finnbogi, búsettur á Seyðisfirði, í sambúð með Guðrúnu Andersen, Kolbrún, búsett í Reykjavík, gift Gunnari Gunnars- syni. Alda, búsett í Hafnarfírði, gift Sigurbimi Torfasyni, Sigurður, bú- settur á Seyðisfirði, kvæntur Elsu Gjöverá, Nanna, búsett á Selfossi, gift Þóri Siggeirssyni, Hrefna, bú- sett í Reykjavík og Elva, býr í Kópa- vogi. Eftir að Finnbogi stofnaði til hjú- skapar vann hann ýmis störf til lands og sjávar. Réðst hann síðar í útgerð og átti Ásu um árabil og gerði hana út frá Seyðisfirði. Við nótabrúki föð- ur síns og starfi nótabassa tók hann 1928 og rak það til ársins 1935 en þá lagðist þessi atvinna af. Silfur hafsins gat verið brellið við- ureignar. Margar minningar átti Finnbogi frá þessum ámm og flestar tekur hann með sér, til skaða fyrir sögu byggðarinnar. Minning: Finnbogi L. Sigurðs- son frá Seyðisfirði Gísli átti í átökum við langvarandi sjúkdóm sinn, og nú að leiðarlokum sendum við henni, sem og bömum þeirra, stjúpbömum, tengdabömum, bamabömum og öðmm ættingjum hugheilar samúðarkveðjur. Gunnar Friðriksson Vinur okkar Gísli Bjamason fyrr- verandi verzlunarstjóri, Efstalandi 8, Reykjavík andaðist í langlegu- deild Landspítalans Hátúni 10B að kvöldi 27. apríl sl. eftir langvarandi veikindi. Gísli fæddist í Aðalvík í Sléttuhreppi 13. maí 1910 og var því tæplega 78 ára er hann lést. Hann stundaði búskap og sjó- mennsku og var vélstjóri á bátum þar vestra, en þegar Sléttuhreppur lagðist í eyði uppúr 1944 fluttist Gísli suður til Reykjavíkur og stund- aði eftir það verslunarstörf fyrir Vélasöluna hf. hjá Gunnari Frið- rikssyni sveitunga sínum og frænda. Þeir vom mjög samrýndir og reyndist Gunnar honum hin mesta hjálparhella. Gísli vann hjá Vélasölunni hf. svo lengi sem kraftar leyfðu og síðustu árin sem verzlunarstjóri. Þegar hann hafði starfað í 40 ár var hann heiðraður sérstaklega. Gísli mat Gunnar frænda sinn mjög mikils og mun sú virðing þeirra frænda hafa verið gagn- kvæm. Gísli kvæntist 17. apríl 1951 Laufeyju Ámadóttur frá Teigi í Grindavík, en hún var þá ekkja eft- ir Eyjólf Steinsson járnsmið. Sam- búð þeirra Laufeyjar og Gísla var góð og farsæl og eignuðust þau tvö böm, Eyjólf Bjarna, sem dvalist hefur í Danmörku að undanfomu og Bjargeyju Gígju, sem býr í Reykjavík. Fyrir átti Laufey dæt- Bestu miðin vom undir Háubökk- um og bestu veiðina fékk hann, •1000 tunnur, 5. maí 1930 á fæðing- ardegi fyrsta bams síns. Síldin var geymd lifandi í nótinni í 2—3 vikur og seld eftir hendinni til beitu. Hver nót var 80—150 faðmar að lengd og 12—20 faðmar að dýpt. Auk þess var önnúr minni úrtökunót til veiða í þeirri stærri og var hún 25 faðmar að lengd og fimm faðma djúp. Eftir að Finnbogi hætti útgerð var hann til sjós meðan heilsa og kraft- ar entust sem háseti eða matsveinn og var heiðraður á sjómannadaginn á Seyðisfirði 1984 fyrir giftudijúgt ævistarf. Svipull er sjávarafli, það máttu Norðmenn reyna er síldin brást þeim við ísland 1885 með þeim afleiðingum að flölmargir einstakl- ingar og félög fóm á höfuðið. Árið 1880 gerðu Norðmenn út 75 skútur til síldveiða við ísland með 28 nóta- brúk þar af 18 á Seyðisfirði. Þessa veiði stunduðu 578 menn og var veiði 115 þúsund tunnur eða 198 tunnur á veiðimann. Fimm ámm síðar eða 1885 sendu Norðmenn hingað 83 veiðiskip með 56 nótabrúk og 802 veiðimenn en aflinn varð aðeins 24.600 tunnur eða 31 tunna á mann. Lagðist þessi veiði þá af að mestu. Þegar best lét stóð síldin í firðinum í 5 mánuði á ári frá maí til september. Seyðisfjörður hefur aldrei farið varhluta af þessum svift- ingum á sjávarafla. Á ámnum 1960—1970 hvarf síldin að mestu frá landinu með sömu afleiðingum og áður. Spekúlantar og spákaup- menn byggðu fjörðinn og settu svip sinn á umhverfi hans. Bræðslur og síldarplön vom byggð alls staðar, r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.