Morgunblaðið - 20.05.1988, Page 24
VfS/QSd
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1988
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
VEIÐIHJOL OG
STANGIR
Fást f nœstu sportvöruverslun.
Jmuu£STun£
STÓRFELLD WERÐLÆKKUN
á nvium sumarhjólbörðum!
Vegna tollalækkunar um áramótin og hagstæöra magninnkaupa
getum viö nú boðið hina þekktu BRIDGESTONE sumarhjólbaröa á
ÓTRÚLEGU VERÐI.
Dæmi um verö:
Stærð Verð
155 SR 13 Kr. 2.600.-
165 SR 13 Kr. 2.900.-
175SR14 Kr. 3.800.-
175/70 SR 13 Kr. 3.900.-
185/70 SR 14 Kr. 4.200.-
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR FRÁ OFANGREINDUM VERÐUM ER 7%
en að auki getum við boðiö mjög hagstæð greiöslukjör:
VILDARKJÖR VISA eða EUROKREDIT: Lág eða engin útborgun
— og jafnar mánaðarlegar greiðslur allt upp í 8 mánuði!
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Stuðlaðu að öryggi þínu og þinna í umferðinni í sumar — nýttu þér
hagstætt verð okkar greiðsluskilmála og kauptu NÝJA úrvals
BRIDGESTONE hjólbarða undir bllinn!!
DEKKJAMARKAÐURINN
FOSSHÁLSI 13—15
(vestan við nýja Bílaborgarhúsið)
SÍMI 68-12-99
Sinf óníuhlj óms veitin:
25 tónleikar og
ferðir um landið
NÆSTA starfsár heldur Sin-
fóníuhljómsveit Islands 25 tón-
leika auk þess sem hún gerir
víðreist um landið og leikur bæði
á Norðurlandi og á Austfjörðum.
Næsta vetur verður lögð áhersla
á flutning íslenskra tónverka. Þá
verða allir einleikskonsertar Beet-
hovens fluttir næsta vetur og auk
þess sinfóníur nr. 5 og 6. Vínartón-
leikar verða haldnir og einir tónleik-
ar helgaðir tónlist úr amerískum
söngleikjum.
íslensku tónverkin sem flutt
verða eru: Damaskus eftir Leif
Þórarinsson sem flutt verður á
fyrstu áskriftartónleikunum 6. okt-
óber; Flautukonsert eftir Þorkel
Sigurbjömsson, 20.október; Imp-
romptu eftir Askel Másson, 19.jan-
úar; “Nóttin á herðum okkar“ eftir
Atla Heimi Sveinsson, 2.febrúar;
Lilja eftir Jón Asgeirsson, 16. mars
og píanókonsert nr. 5 eftir Magnús
Bl. Jóhannson. Þá verða haldnir
tónleikar utan áskriftar þann
13.október í samvinnu við einsöngv-
ara. Stjómandi á þeim tónleikum
verður Páll P. Pálsson. Tónleikarnir
eru haldnir til styrktar byggingu
tónlistarhúss.
Ráðinn hefur verið nýr aðal-
stjómandi við Sinfóníuhljómsveit
Islands, Petri Sakari, en hann hefur
unnið við hljómsveitastjóm í heima-
landi sínu, Finnlandi, í vetur.
Hljómsveitin er ekki enn fullskip-
uð og er ætlunin að prófa umsækj-
endur hérlendis og erlendis í júní.
Sýnt þykir að nokkuð verði um að
erlendir hljóðfæraleikarar ráðist til
starfa þar sem skortur er á hljóð-
færaleikurum hérlendís.
Morgunblaðið/Silli
Þátttakendur i Landsbankahlaupinu á Húsavík voru um áttatíu talsins.
Landsbankahlaupið
Um áttatíu þátttak-
endur á Húsavík
Húsavík.
Landsbankahlaupið fór fram í
hinu fegursta veðri á Húsavík
og voru þátttakendur um áttatíu
og mikil keppnisgleði. Sumir
yngstu keppendurnir mættu
klukkustundu fyrir keppni til að
hita sig upp.
Sigurvegarar vom Katla Skarp-
héðinsdóttir í yngri stúlknaflokki,
Skarphéðinn Ingason í yngri
drengjaflokki, Auður Þorgeirsdóttir
í eldri stúlknaflokki og Illugi Már
Jónsson í eldri drengjaflokki.
Unnsteinn Tryggvason, sem varð
í þriðja sæti í eldri drengjaflokki,
hefur verið á verðlaunapalli í öll
skiptin sem hlaupið hefur verið og
sigurvegari í fyrsta hlaupinu.
Kjörbókina samkvæmt útdrætti
hlaut rásnúmer 24, Sigfús Sigfús-
son, Húsavík. Að lokinni keppni
vom verðlaun afhent og þáðar veit-
ingar, pylsur og gosdrykkir. Þetta
er orðinn árviss og mjög vinsæll
viðburður.
- Fréttaritari
KFUM og K:
Sumarbúðir við Hóla-
vatn opna brátt
BRÁTT hefja sumarbúðirnar við
Hólavatn starfsemi sína og bjóða
drengi og stúlkur velkomin. Fyr-
ir 30 árum hófu nokkur ung-
menni frá Akureyri framkvæmd-
ir við byggingu sumarbúða á
Hólavatni í Eyjafirði og hafa
hörn dvalið þar frá árinu 1965.
Innritun í dvalarflokka sumarsins
stendur yfir á skrifstofu sumarbúð-
anna, sem er í félagsheimili KFUM
og K, Sunnuhlíð 12, frá kl. 17 til
18. Sími þar er 96-26330. Innritun
utan skrifstofutíma fer fram hjá
Önnu í síma 23923, Björgvin í síma
23698 og hjá Hönnu í síma 23939.