Morgunblaðið - 22.05.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
Hólar í Hjaltadal:
Bein frá 17.
ogl8. öld
grafin upp
VIÐ uppgröft á Hólum í Hjalta-
dal í síðustu viku, fannst kista,
sem í voru líkamsleifar fimm
manna. Talið er líklegt að þarna
sé um að ræða m.a. bein Gisla
Þorlákssonar, biskups á Hólum
1657—1684 og Björns Þorleifs-
sonar, sem var biskup þar frá
1697-1710.
Mjöll Snæsdóttir, fomleifafræð-
ingur, sem stjómaði uppgreftrin-
um, sagði beinafundinn hafa komið
þannig til að við endurbætur á
kirkjunni á Hólum hefði verið graf-
ið í gólfíð og þar undir hefði verið
kista, með lfkamsleifum fímm
manna. Hefðu menn greinilega
rekist á kistuna við byggingu kirkj-
unnar og þá verið safnað í hana
beinum úr nærliggjandi gröfum. í
kistunni vom einnig leifar af niu
skjöldum utan af kistum og vom
þrír þeirra áletraðir. Á einum var
áletmnin GTD og ártalið 1660, og
taldi Mjöll hann geta verið af kistu
Gróu Þorleifsdóttur,_ fyrstu konu
Gísla Þorlákssonar. Á öðmm skildi
er áletmnin HGTS, sem Mjöll sagði
líklega vera upphafsstafí Gísla. Á
þriðja skildinum er eingöngu ártal-
ið 1710, en það, er dánarár Bjöms
Þorleifssonar. Skildir vom einnig
utan á kistunni sem fannst, en á
þeim em engar áletranir.
Mjöll sagði þetta merkilegan
fund, ekki að það væri meira virði
að fínna bein biskupa en annarra,
heldur gerðu skildimir það að verk-
um að hægt væri að leiða getum
að því hverra bein þetta væm og
tímasetja þau þannig.
Vantar upplýsingar
um gjaldeyriskaup
fyrir 1400 milljónir
- Möguleiki á birtingu nafnanna
kannaður segir fjármálaráðherra
SEÐLAB ANKINN hefur sent fjár-
málaráðherra nöfn 243 aðila sem
keyptu gjaldeyri fyrir meira en
eina miiyón króna þijá síðustu
dagana fyrir gengisbreytingu. í
fréttatilkynningu frá Seðlabank-
anum segir að skráin hafi verið
send ráðherra sem trúnaðarmál
„eins og landslög áski|ja“. Jón
Baldvin Hannibalsson, fjármála-
ráðherra, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að hann myndi kanna
möguleikana á því að birta listann
og á almennum fundi í Reykjavík
f gærmorgun sagði hann, að listi
Seðiabankans næði aðeins til um
1100 miUjjóna króna og vantaði
því upplýsingar um 1400 milljónir,
sem Seðlabankinn segði gjaldeyr-
isyfirfærslur banka og peninga-
stofnana. Sagðist Jón ætla að
skrifa Seðlabankanum eftir hvfta-
sunnuna og spyija hvort gengis-
fellingin hefði verið á misskilningi
byggð.
1 fréttatilkynningu ftá Seðlabank-
anum segir að síðla þriðjudags hefði
viðskiptaráðuneytið haft samband
við gjaldeyriseftirlit Seðlabankans og
spurst fyrir um það hvaða upplýsing-
ar lægju frammi um þessi viðskipti.
Hefði forstöðumaður eftirlitsins
svarað því að upplýsingamar væru
tiltækar og væri verið að vinna úr
gögnum málsins. í samtalinu hefði
engin beiðni verið lögð fram um af-
hendingu gagna til ráðuneytisins.
Sfðastliðið þriðjudagskvöld og
miðvikudag hefðu birst í fjölmiðlum
fréttir um að viðskiptaráðuneytið
hefði óskað eftir skýrslu frá gjald-
eyriseftirliti Seðlabankans um hvaða
aðilar hefðu keypt gjaldeyri fyrir
meira en 1 milljón króna næstu daga
fyrir gengisbreytingu. Þar sem engin
slík beiðni hafði borist gjaldeyriseft-
irlitinu frá viðskiptaráðuneytinu,
hefði Seðlabankinn haft samband við
viðskiptaráðuneytið og óskað eftir
því að fá skriflega beiðni um hvaða
upplýsingar ráðherra óskaði að fá.
„Bréf. ráðherra barst forstöðu-
manni gjaldeyriseftirlitsins heim
seint á miðvikudegi og hefur gjald-
eyriseftirlitið verið að vinna úr tölvu-
skrám nöfn 243 aðila, sem keypt
höfðu gjaldeyri fyrir meira en 1 millj-
ón króna þrjá síðustu daga fyrir
gengisbreytingu, og hefur ráðherra
verið send sú skrá nú að sjálfsögðu
sem trúnaðarmál eins og landslög
áskilja", segir í frétt Seðlabankans.
Drög að reglugerð um einnota umbúðir:
Míða að aukinni endurnýtmgn og
umgengni
Áætluð gosdrykkjasala um 30 milljónir áldósa á ári
DRÖG að nýrri reglugerð um einnota umbúðir fyrir öl, gos og svala-
drykki liggja nú fyrir stjórn Hollustuverndar ríkisins og eru drögin
byggð á tillögum samstarfsnefndar, sem Hollustuvernd rikisins,
Landvemd og Náttúruvemdarráð mynduðu með sér síðastliðið vor
til að fjalla um þetta mái og finna leiðir til úrbóta. Með tilkomu
pökkunarvéla fyrir öl og gosdrykki í áldósir er gert ráð fyrir að
notkun slikra einnota umbúða stóraukist á næstunni og talið að ár-
leg sala á gosdryklgum verði um 30 milljónir áldósa, sem samsvarar
hátt í 400 tonnum af áli. í tillögunum er meðal annars gert ráð fyrir
að ákveðnum hluta af prentuðum umbúðum verði varið til kynning-
ar á endurgreiðslugjaldi og áróðurs fyrir bættri umgengni og hreinu
landi.
í flestum nágrannalöndum okkar
hafa verið settar reglur um notkun
Dóms að
væntaí
okurmáli
STYTTAST fer í dóm í máU
Hermanns Gunnars Björgvins-
sonar, sem var ákærður fyrir
stórfellda okurstarfsemi. Málið
var dómtekið á mánudag hjá
sakadómi Kópavogs.
Hermann var ákærður um mitt
árið 1986 og gefið að sök að hafa
tekið rúmar 20 milljónir króna í of
háa vexti af lánum. Þá voru um
leið ákærðir 123 menn aðrir, fyrir
að hafa tekið samtals nærri 42
milljónir króna f of háa vexti. Málið
hefur hins vegar breyst frá því að
ákæra var gefín út, þar sem Hæsti-
réttur íslands komst að þeirri niður-
stöðu í desember 1986 að hámarks-
vextir hefðu ekki verið auglýstir
með réttum hætti af Seðlabanka
íslands á tímabilinu ágúst til des-
emberloka árið 1984.
einnota umbúða, endumýtingu
þeirra og t.d. hvaða efni megi nota
í slíkar umbúðir. Áldósir eru til
dæmis bannaðar í Danmörku sem
öl og gosdrykkjaumbúðir. Hér á
landi eru engar reglur um fram-
leiðslu né notkun einnota umbúða
fyrir umrædda vöruflokka.
í tillögum samstarfsnefndarinnar
er gert ráð fyrir að slík regiugerð
ljdi meðal annars að markaðs- og
framleiðsluleyfí, það er gerð og
efnisinnihaldi umbúða með tilliti til
tæknilegra þátta, hráefnisnotkun í
umbúðir og umhverfísþætti. Endur-
notkun umbúða, til dæmis gler-
flöskur. Endurvinnanlegar umbúð-
ir, það er álumbúðir og að ein-
hveiju leyti pappa- og plastumbúð-
ir. Þá er gert ráð fyrir ákvæði um
merkingar á umbúðum, meðal ann-
ars að um 10% af flatarmáli prent-
unar á umbúðum sé varið til kynn-
ingar á endurgreiðslugjaldi og 10%
af flatarmáli verði varið til áróðurs
fyrir umgengni og hreinu landi. Á
umbúðum sem hvorki eru til endur-
notkunar né endumýtingarkerfi
fyrir hendi sé 20% af flatarmáli
prentunar á umbúðir varið til upp-
lýsinga um umgengni og hreinna
land.
Ennfremur er gert ráð fyrir
ákvæði um skilagjald endumotkun-
ar umbúða og kerfi sem framleið-
endur stæðu að vegna endumotk-
unar, til dæmis glerflaskna, og sé
skilagjald um 20% af útsöluverði.
Ákvæði verði um endurvinnslu,
skilagjald og kerfi sem hvetjandi
væri fyrir endurvinnslu, til dæmis
áldósa. Skilagjald sé einhig um 20%
af útsöluverði. Komið verði á fram-
leiðslugjaldi sem að hluta gæti stýrt
því hvaða umbúðir væru hag-
kvæmar markaðslega séð og væru
þá umbúðir sem eru endumotaðar
gjaldfríar, en gjald á plastflöskur
og plastdósir verði 30% af jöfnunar-
útsöluverði, svo dæmi séu tekin.
Lagt er til að framleiðslugjald þetta
verði notað til umhverfísmála, nátt-
úru- og landvemdar ásamt úrbótum
og fyrirbyggjandi aðgerðum f
mengunarmálum.
íslandslax
byggir kyn-
bótastöð
Grindavík.
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur
samþykkti á sfðasta fundi að veita
íslandslax hf. leyfi til að byggja
160 fm kynbóta- og klakstöð á
athafnasvæði sfnu auk þess sem
reist verða útiker við stöðina,
hvert um sig tólf metrar í þver-
mál.
Að sögn Jóns Þórðarsonar, fram-
leiðslustjóra íslandslax hf., er þetta
liður í uppbyggingu fyrirtækisins því
mjög brýnt er að koma undaneldis-
fiskinum í sérstaka stöð fyrir haustið
en þá verður hann kreistur.
„Nú lokum við hringnum og verð-
um hér eftir sjálfum okkur nógir
enda lá það beinast við þar sem við
höfðum ekki lengur innflutningsleyfi
fyrir hrogn frá Noregi og sóttum
ekki um það frekar. Við eigum nú
16 tonn af undaneldisfiski sem hefur
verið tvö ár f sjó hér í útistöðinni og
er hver einstaiklingur orðinn um 7
kg en við reiknum með að fá um
tuttugu milljónir hrogna strax í
haust. Kynbætur á laxi verða hluti
f framleiðsluþáttum fyrirtækisins þvf
ég tel að það eigi að vera í höndum
fiskeldisstöðvanna sjálfra," sagði
Jón.
Tilboð í stöðina verða opnuð á
næstunni og sfðan verður byggingu
hraðað í sumar svo að hún verði tilbú-
in f haust.
- Kr.Ben.
Varnarliðið:
M-hátíð á Sauðárkróki:
Nýtt hús Tónlistar-
skólans tekið í notkun
Sauðárkriki. Frá Urði Gunnandóttur, blaðamanni Horgunblaðsins.
ÞRIGGJA daga M-hátíð á Sauð- Þorsteinssonar, rithöfundur.
Lögbann á útboð fhitn-
inga enn framlengt
LÖGBANN á útboð flutninga-
deildar Bandaríkjahers á flutn-
ingum fyrir varaarliðið milli
Bandarfkjanna og íslands, hefur
verið framlengt um óákveðinn
tíma eða þar til dæmt hefur ver-
ið i málinu.
Flutningamir vorú boðnir út í
mars sfðastliðnum og átti að skila
tilboðum f lok aprfl. Rainbow Na-
vigation kærði útboðsgögnin þar
sem stjómendur fyrirtækisins efast
um lögmæti þeirra, en skipafélagið
hefur annast 35% flutninganna og
Eimskipafélag íslands 65% þeirra,
frá þvf í maí 1987. Samningstíma-
bilið rann út 30. aprfl síðastliðinn.
árkróki lauk með hátíðardagskrá
í íþróttahúsinu klukkan 14 i
gær, laugardag, undir stjórn
Hjálmars Jónssonar prófasts. í
gær var tekið í notkun nýtt hús
Tónlistaskólans á Sauðárkróki
er skólaslit fóru fram. Þá voru
einnig skólaslit í Fjölbrautaskóla
Sauðárkróks.
Á dagskrá hátíðarinnar vom
ávörp Birgis ísleife Gunnarssonar,
menntamálaráðherra og forseta
bæjarstjómar Sauðárkróks, Þor-
björnB Amasonar. Erindi Haraldar
Bessasonar, forstöðumanns Há-
skólans á Akureyri, Gísla Magnús-
sonar, cand. mag. og Indriða G.
Af
tónlistarefni var á dagskránni
píanóleikur Sigurðar Marteinssonar
og söngur Jóhanns Linnet og einnig
áttu kirkjukórar úr Skagafírði að
syngja undir stjóm Rögnvaldar
Valbergssonar.
Á föstudag var haldin menning-
arkvöldvaka í félagsheimilinu Bif-
röst, sem félagar í Leikfélagi Sauð-
árkróks önnuðust ásamt Friðbimi
G. Jónssyni söngvara. Flutt var
dagskrá í tali og tónum, sem tengd-
ist Skagafirði og Skagfirðingum
fyrr og síðar. Var meðal annars
lesið úr ljóðum eftir skagfirsk skáld
frá Bólu-Hjálmari til Gyrðis Elías-
sonar, en Hávar Siguijónsson tók
dagskrána saman og leikstýrði.