Morgunblaðið - 22.05.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
55
Sveinbjörn Frið-
finnsson - Minning
Fæddur 28. nóvember 1891
Dáinn 16. maí 1988
Þann 16. maí sl. andaðist á
Hrafnistu í Reykjavík Sveinbjöm
Friðfinnsson, sem áður bjó á Hrísa-
teig 22. Hann var fæddur 28. nóv-
ember árið 1891 í Haga í Vopnaf-
irði. Foreldrar hans voru hjónin
Guðrún Ólína Sveinbjamardóttir og
Friðfinnur Kristjánsson og voru
böm þeirra alls níu talsins. Eftirlif-
andi era Olgeir, sem dvelur á heim-
ili aldraðra í Borgamesi og Þór-
hallur sem búsettur er í Reykjavík.
Á unga aldri fluttist hann með for-
eldram sínum að Borgum í Vopna-
fírði og þar ólst hann upp ásamt
systkinum sínum. Fyrir utan þá
skólagöngu sem böm fengu á þess-
um áram þá lauk hann námi við
Bændaskólann á Eiðum.
Sveinbjöm var tvíkvæntur, fyrri
kona hans var Guðrún Guðmunds-
dóttir frá Hellatúni í Rangárvalla-
sýslu. Þau gengu í hjónaband árið
1920. Böm þeirra vora fjögur, elst
er Þórann, f. 1921, húsmóðir í
Reykjavík, Guðmundur Borgar, f.
1924t klæðskeri í Reykjavík, Guð-
rún Olína, f. 1925, en hún dó að-
eins eins árs 1926 og yngstur var
Garðar, f. 1928, en hann dó 1971.
Auk þess ól hann sonardóttur sína
upp, Guðrúnu Guðmundsdóttur,
sem býr í Reykjavík. Hjónaband
Sveinbjamar og Guðrúnar varði í
47 ár eða þar til hún lést árið 1967.
Afkomendur þeirra munu vera hátt
á fjórða tug. Arið 1973 giftist hann
alnöfnu fyrri konu sinnar, Guðrúnu
Guðmundsdóttur frá Ingjaldssandi
við Önundarfjörð (móður undirrit-
aðs), hún lést 31. janúar 1986.
Sveinbjöm var mikill bókamaður,
enda var hann vel fróður um marga
hluti. Hann fékkst meðal annars
við bamakennslu á áranum
1921-’23 austur í Fljótshlíð. Einnig
vann hann lengi við húsasmíðar eða
þar til hann setti á stofn Gúmmí-
fatagerðina Vopna. Rak hann það
fyrirtæki fram á níræðisaldur, en
þá seldi hann fyrirtækið.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóra úr lífi Sveinbjamar enda af
nógu að .taka á langri og farsælli
ævi. En það sem ég minnist sérstak-
lega af okkar kynnum var hversu
geðgóður og hjartahlýr hann var
við alla þá sem hann þekkti. Ég og
fjölskylda mín voram þeirrar gæfu
aðnjótandi að koma oft inn á heim-
ili hans og móður minnar. Þar ríkti
oftmikil gleði og kátína, þó sérstak-
lega þegar böm áttu í hlut, því
bamgóður var hann með eindæm-
um. Móðir mín sagði mér oft hversu
mikið lán það hefði verið fyrir sig
að kynnast honum, því hann var
henni alveg sérstaklega umhyggju-
samur og hjálpsamur og þó eftir-
minnilega í hennar veikindum, enda
vora þau mjög samrýmd.
í aprflmánuði 1984 komust þau
að á Hrafnistu í Reykjavík og eyddu
saman síðustu ævikvöldunum þar.
Síðustu þrjú árin var Sveinbjöm á
hjúkranardeild 2G í umsjá alveg
sérstaklega elskulegs starfsfólks
sem reyndist honum alveg einstak-
lega vel í veikindum hans. Öllu
þessu starfsfólki era hér færðar
góðar kveðjur með kæra þakklæti
fyrir ósérhlífni í hans garð. Svein-
björn var alla tíð mjög hraustur
maður nema síðustu árin var sjónin
farin að gefa sig.
Þessi minningabrot era fátækleg,
en ég vona að þau lýsi einhverju
úr lífí Sveinbjamar. Ég og fjöl-
skylda mín sendum öllum ættingj-
um hans og vinum okkar innileg-
ustu samúð'árkveðjur. Ég þakka
honum samfylgdina, hans miklu
góðmennsku, skyldurækni og
tryggfyndi og allt það sem hann
var móður minni og bið honum
blessunar Guðs í nýjum heimkynn-
um.
Utför Sveinbjarnar verður gerð
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24.
maí kl. 10.30.
Birgír G. Ottósson
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960
Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjof um gerð og val legsteina. \ -
1 S.HELGASQN HF STEINSMIÐJA SKEKlWUÆGi 46 SÍMI 76677
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Augfýsingastofa
ErnstJ. Backman
Ertu á réttri hillu?
Ertu orðin(n) leið(ur) á starfinu eða náminu,
hefur þú á tilfinningunni að það sé til eitt-
hvað annað sem henti þér betur, án þess
að vera viss um hvað það er? Markmið náms-
og starfsráðgjafar Ábendis sf. er að aðstoða
þig við að finna það starf eða nám sem hent-
ar þér og er líklegt til að veita þér ánægju.
Tímapantanir í síma 689099 frá kl. 9-15 alla
Vlrka daaa' Abendi sf.
Auglýsing
um starfslaun til listamanna
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar
auglýsir eftir umsóknum um tvenn starfslaun
til listamanna.
Annars vegar eru starfslaun til 12 mánaða
hið lengsta og fer úthlutun þeirra fram í júní-
mánuði en hins vegar eru starfslaun til
þriggja ára og fer úthlutun þeirra fram hinn
18. ágúst.
Þeir einir listamenn koma til greina við úthlut-
un starfslauna sem búsettir eru í Reykjavík
og að öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir úthlut-
un, sem ekki geta stundað listgrein sína sem
fullt starf.
Listamenn skulu skuldbinda sig til þess að
gegna ekki fastlaunuði starfi meðan þeir
njóta starfslauna.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 1988.
Menningarmálanefnd Reykja víkurborgar,
Austurstræti 16.
Frá Stálvík hf.
sala skipa erlendis
Höfum erlenda kaupendur að tveimur
400-500 brúttó lesta togurum og 14 bátum
10-30 tonna. Uppl. í síma 51900.
stálvíkhf G,
skipasmiðastöð
húsnæði óskast
1-2ja herbergja íbúð
Höfum verið beðnir að útvega 1-2 herb. íbúð
á Stór-Reykjavíkursvæðinu til leigu fyrir einn
af starfsmönnum okkar til eins árs, sem allra
fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Thulin Johansen í
síma 686700.
BOft? MQim&WtBKW & ©©«
íbúð óskast - áríðandi
Dr. Wolfgang Edelstein frá Max-Planck-
stofnuninni í Vestur-Berlín óskar eftir ca. 4ra
herb. íbúð (með húsgögnum) í Reykjavík mán-
uðina ágúst og september nk.
Til greina kemur leiga eða íbúðarskipti.
Þeir sem hafa áhuga geta haft beint samband
sem fyrst við Wolfgang í síma 9049-30-82995-
306 (vinnusími) og 9049-30-8312843 (heim-
asími) eða við Guðríði Sigurðardóttur heim-
asími 28707.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði Hafnarfirði
Fyrirhugaðri vorferð 28. maí nk. er frestað til hausts.
Nánar auglýst síðar.
Stjómin.
Aðalfundur
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Isafirði
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, 2. hæð,
þriðjudaginn 24. mai kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Matthias Bjarnason alþingismaður ræð-
ir stjórnmálaviðhorfin.
3. Önnur mál.
Siglfirðingar
- sjávarútvegsmál
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Siglufirði heldur almennan fund
um sjávarútvegsmál á Hótel Höll fimmtudaginn 26. mai kl. 20.30.
Dagskrá:
Ávarp: Pálmi Jónsson alþingismaður.
Fræðslumál í fiskiönaði: Ágúst H. Elíasson framkvæmdastjóri.
Möguleikar i sjávarútvegi á Siglufirði: Róbert Guðfinnsson fram-
kvæmdastjóri.
Gjaldeyrismál: Vilhjálmur Egilsson varaþingmaður.
Fundarstjóri: Ómar Hauksson framkvæmdastjóri.
Aliir velkomnir.
Fulltrúaráðið.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Þuríður sundafyllir
Bolungarvfk
heldur fund á Völusteinsstræti 16, þriðjudaginn 24. mai kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Starfsemi félagsins.
2. Bæjarmál í Bolungarvík. Frummælandi Ólafur Kristjánsson
bæjarstjóri.
3. Önnur mál.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Vestmannaeyjar
Sjálfstæðiskvennafélagið Eygló heldur almennan fund fimmtudaginn
26. mai í Munanum, Vestmannabraut 28. Fundurinn hefst með borð-
haldi kf. 20.00.
Dagskrá:
1. Bæjarmál í brennidepli.
2. Hvaö gerðist á Hvolsvelll?
3. Önnur mál.
4. Sitthvaö í léttum dúr.
Gestur fundarins veröur Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi, fundarstjóri
Helga Jónsdóttir.
Þátttaka tilkynnist í sima 1826, skóbúðinni og 1167, verslun Ingibjarg-
ar Johnsen. Mætið vel og hafiö með ykkur gesti.
Sjálfstæðiskvennafélagið Eygió.