Morgunblaðið - 22.05.1988, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
15
mína svona fallegar, en mig svona
ljóta." Pabbi svaraði alltaf því sama:
„Elskan mín, við gerðum þinn innri
mann svo fagran." En þegar ég sá
þessa mynd sem tekin var af mér
í Camigie Hall í New York þá
fannst mér allt í einu að ég stæði
fyllilega jafnfætis systrum mínum
hvað útlit snerti og það gladdi mig
þó ég hefði fyrir löngu sætt mig
við að vera aðeins fögur hið innra.
Þegar ég var á himnum var ég
glæsilega klædd og leit út eins og
ég gerði þegar ég var 26 ára. Ég
lít ekki þannig út núna, en mér
fínnst samt að ég geri það, og það
gerir mér stundum erfítt fyrir þegar
ég kaupi mér föt. í þessu sambandi
vil ég gjaman beina því til fólks
að það geymi með sér glæsilega
sjálfsímjmd og sé ávallt reiðubúið
til þess að mæta konunglegum há-
tignum. Ég var sem betur fer reiðu-
búin til slíks þegar ég hitti Jesú
Krist.
Jákvæð sjálfsímynd tengist því
atlæti sem fólk býr við í bamæsku.
Þegar ég var bam átti ég miklu
ástríki að fagna. Foreldrar mínir
gáfu mér ást og enn meiri ást. Ég
heyrði þau aldrei mæla styggðar-
yrði hvort til annars. í borðstofunni
okkar vom fallegir stólar úr kirsu-
beijaviði og þar sátum við saman
fjölskyldan og ræddum saman. Þeg-
ar ég svo hitti Jesúm Krist þá komu
stólamir frá bemskuheimili mínu
allt í einu til okkar og ég settist í
minn stól og Jesús í stól föður míns
og svo sátum við hvort á móti öðm
í sex klukkustundir og ræddum
saman. Tíminn er að vísu ekki til
á himnum en þegar ég kom til
sjálfrar mín í herberginu þar sem
mér hafði verið haldið fanginni og
pyntuð f tíu daga, og ég var lögð
inn í eftir morðið á mér, þá sá ég
á ljósaskilti fyrir utan gluggann að
liðið höfðu sex tímar frá því ég var
færð inn í herbergið þar sem ég
fékk raflostið og þar til ég snéri
aftur til jarðar á ný. Ræningjamir
höfðu einu sinni áður reynt að gefa
mér raflost en það mistókst, raf-
magnið fór af. Það tel ég að hafi
verið verk Jesú. Þegar ég kom til
sjálfrar mín þá fann ég fljótlega
að ég var mjög hungmð. Ég dróst
því að dyrunum og barði á þær og
bað um mat. Þú hefðir átt að sjá
framan í ræningjann sem opnaði
hurðina. Svipurinn á andliti hans
var fullur af hryllingi, hann leit á
mig eins og draug. Matinn fékk ég
samt og þá hélt ég eftir skeið sam-
kvæmt fyrirmælum Jesú sem lagði
á ráðin hvemig ég mætti bjargast
út. Ég faldi skeiðina og nokkm
seinni sagði Jesú mér að skrúfa
stóran plastglugga, sem festur var
með 200 skrúfum, af og hoppa
síðan út um gluggann sem var á
þriðju hæð. Jesú gaf mér afl til
þess að skrúfa skrúfumar af, þó
sumar væm ryðgaðar, og síðan að
lyfta glugganum sem einn fanga-
varðanna sagði síðar fyrir rétti að
hann teldi sex menn þurfa til gera,
að öðra jöfnu. Að þessu loknu sagði
Jesú mér að hoppa út og ég gerði
það. Ég kom niður í mnna og gat
hlaupið í burtu. Seinna tók við mik-
ill þjáningatími, ég var sett á geð-
sjúkrahús m.a. fyrir tilstilli sonar
•míns Péturs, sem ræningjamir
höfðu náð tangarhaldi á. En dóttir
mín Kimberli og systur mína hjálp-
uðu mér. Það var framkvæmda-
stjórinn minn, kona sem ég hafði
treyst mjög vel, sem stóð að baki
ráninu og morðinu. Hún var háð
eiturlyfjum og maðurinn sem hún
hélt við var stór skuldugur. Þess
vegna ákváðu þau að ræna gullgæs-
ina, sem var ég. Þau hirtu næstum
allar eigur mínar með ýmiskonar
folsunum og tóku út vömr fyrir
æfíntýralegar fjárhæðir á krítar-
' kortin mín. En Jesús sagði við mig:
„Allt sem þú gefur færðu seinna
aftur tvöfalt." Þetta hefur gengið
eftir í mínu lífí. Þegar ég var mest
þurfandi kom til mín fólk sem ég
hafði eitt sinn hjálpað og það endur-
greiddi mér í orðsins fyllstu merk-
ingu tvöfalt til baka það sem ég
hafði gefið því, þannig gekk það
oft og mörgum sinnum.
Jesús hjálpaði mér svo að stíla
bréf þar sem ég sagði lánardrottn-
I---------------------------------------
Southwest-sjúkrahúsið í Houston þar sem Dr. Petti Wagner var
haldið fanginni i tíu daga við miklar hörmungar og síðan veitt raflost.
Petti Wagner ásamt Bush vara-
forseta skömmu áður en henni
var rænt.
unum mínum að ég myndi greiða
þeim til baka innan árs þrátt fyrir
að ég hefði ekki stofnað til þeirra
skulda sem þama var um að ræða.
Mér tókst þetta. Ég hafði ekki til
einskis gengið undir gælunafninu:
„Stúlkan með gullnu hendurnar."
Ég hef alltaf átt með eindæmum
létt með að þéna peninga eins og
raunar öll mín fjölskylda. Við höfum
öll gott verslunarvit. Ég byijaði á
því sem komung stúlka í skóla að
fínna upp aðferð til að útbúa kalt
permanet og varð milljónamæring-
ur á þeirri uppgötvun. Seinna seldi
ég það fyrirtæki. Enn seinna setti
ég upp hjúskaparmiðlun fyrir
Houston-borg þegar skilnaðartíðni
var orðin ógnvænleg í borginni að
mati yfírvalda þar. Ég er sálfræð-
ingur og læknir að mennt og ég
var kölluð til aðstoðar þegar þetta
var. Mér tókst að koma fólki saman
sem átti saman og afleiðingin varð
að hjónaskilnuðum í Houston fækk-
aði mjög mikið, úr því að vera hvað
flestir i Bandaríkjunum til þess að
komast niður í fímmtánda sæti.
Mér tókst þó ekki eins vel upp þeg-
ar ég gifti mig sjálf. Ég átti líka
erfiðan mann. Ég sá að vísu ekki
þá hlið á honum fyrr en of seint
en ég var vömð við, ég tók bara
ekki mark á þeim viðvörunum frem-
ur en ástfangið fólk gerir yfírleitt.
En maðurinn minn var mjög mynd-
arlegur, ég hef varla séð eins mynd-
arlegan mann. Við eignuðumst
saman tvö börn en skildum þegar
þau vom lítil. Ég taldi að sú lausn
væri best fyrir mig og bömin.
Um tíma hafði ég svo mikið
umleikis I viðskiptum að ég hafði
5.000 manns í vinnu, mér datt
margt í hug að það varð allt að
peningum í höndum mínum. En ég
gaf líka mikið og hjálpaði mörgu
ungu fólki til náms. Mér þótti óneit-
anlega óréttlátt og hart að missa
mestan hluta eigna minna fyrir tii-
verknað illra manna en Jesús lét
mig fyrirgefa þeim svo ég æli ekki
með mér beiskju. Það fór líka þann-
ig að þetta fólk fékk flest makleg
málagjöld. Þrír ræningjanna dóu á
leið sinni til að greiða lækninum
sem gaf mér raflostið. Einn dó í
bflslysi, annar í flugslysi og sá þriðji
af heilablóðfalli. Konan sem sveik
mig dó af of stómm skammti af
eiturlyfjum. Seinna þurfti ég að
ganga í gegnum margvísleg réttar-
höld m.a. gegn sjúkrahúsinu þa.r
sem mér var haldið fanginni. Ég
gekk með sigur af hólmi í öllum
þessum málaferlum.
Það er komið yfir miðnætti þegar
Dr. Patti Wagner hefur lokið frá-
sögn sinni. Það var síður en svo
að það þyrfti að toga út úr henni
orðin, mér gafst þvert á móti sjaldn-
ast færi á að koma að spumingum
svo mikill var krafturinn í frásögn
Dr. Wagners. Áður en við stóðum
upp frá borðinú gaf Dr.Wagner mér
leyfí til að birta myndir af hringum
skreyttum höndum hennar gegn því
að fram kæmi að hringamir em
hver og einn gjöf frá fólki sem tel-
ur sig standa í þakkarskuld við Dr.
Wagner vegna hjálpar hennar á
ýmsum sviðum, t.d. í trúmálum.
Einn af hringunum hafði forrík
kona gefíð söfnuði sínum. Fólkið í
söfnuðinum kom sér saman um að
gefa Dr. Wagner hring þennan í
þakklætisskyni fyrir þá miklu hjálp
sem Dr. Wagner hafði veitt ungu
fólki í söfnuði þessum sem ient
hafði í klóm eiturlyfja. Einn af
hringunum er gjöf frá Nancy Reag-
an og nokkrir þeirra em gjafir frá
öldungadeildarþingmönnum og
konum þeirra.
Þegar ég ætlaði að fara að kveðja
spurði Dr. Wagner hvort ég hefði
meðtekið Jesúm. Ég neitaði því. Þá
var ekki við annað komandi en ég
tæki í hönd dr. Wagner og hefði
yfír ýmsar trúaijátningar sem hún
fór með af sama ákafa og hún hafði
sagt fram sögu sína. Aður en ég
vissi af hafði hún blessað mig og
umfaðmað og jafnframt heillað með
sínum sterka persónuleika. Það er
ekki hægt annað en hrífast af dugn-
aðinum, kraftinum og lífsorkunni
sem streymir frá þessari lágvöxnu
hnellnu konu með hringum skreytta
fíngur og gulljaxla. Hún sagði mér
að hún flygi aldrei svo með flugvél
að hún færi ekki fram í til flugstjór-
anna og bæði þá að meðtaka Jesúm
og: „Enginn hefur ennþá neitað,"
segir hún og hlær og hristir hönd
mína. „Það er gott að fljúga með
mér í vél, því heilir herskarar af
englum halda þeirri flugvél uppi,“
segir hún og með það kveð ég Dr.
Petti Wagner, þessa 72 ára gömlu
konu sem var myrt, talaði við Jesúm
í sex klukkutíma, en sneri síðan
aftur til þessa jarðlífs og er þrátt
fyrir þessa reynslu hlaðin af meiri
lífsorku en flest fólk í blóma lífsins
getur með nokkurri sanngimi stát-
að af.
TEXTI: GUÐRÚN
GUÐLAUGSDÓTTIR
SÍÐDEGISFUniDUR
- íleiðínni heim -
I tilefni þeirrar umræðu sem verið
hefur undanfarið um þátttöku er-
lendra aðila í rekstri íslenskra fyrir-
tækja gengst Stjórnunarfélag íslands
fyrir síðdegisfundi um efnið:
ÍSLENSK FYRIRTÆKI -
ERLENT FJÁRMAGN
ÁVINNINGUR OGÁHRIF
FRUMMÆLANDI: Jón Sigurðsson forstjóri
íslenska járnblendifélagsins hf.
FUNDARSTJÓRI: Jón Asbergsson forstjóri
Hagkaups.
Fundurínn verðurhaldinn kl. 16.00þriðjudaginn
24. maínk. íÁnanaustum 15, 3. hæð.
Þátttaka tilkynnist í síma 62-10-66.
Stjórnuriðrfélag íslands
! Ánanaustum 15 Sími 6210 66
SÝNDU
FYRIRHYGGJU
SKÓLABÓK
STYRKIR DIG
í NÁMI
Meö sparnaði á Skólabók ávaxtar þú
sumarlaunin og ávinnur þér um leið lánsréttindi.
Hringdu eða líttu inn og kynntu þér
möguleikana sem hún gefur þér.
■
SAMVINNUBANKINN
Þjónusta í þína þágu