Morgunblaðið - 22.05.1988, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
il&Burfciu
IIMWM Bmíift*'
íi^ftfcíi**** L
PwltóBW'toalwSiiBSb'W (b»WW 5ftw
fcW**«>Óáí|fS3iV.’. W
■.*.*<?& Íí-li-fcft. fufJS-lfejl i
.MtoSVua wi-sWiwi Ufttosþ ._ ^
3-QySgíCXC, WM,»!**il,Íi«U'!* nœisr u^**íi&hv*Wj\rn *s=
t\.i~±r,yzjnxr‘!* _ v».kU**>«"■' (V»tv
OFHCÍftL EfíTHY, EH RECTÖR51 FORT tííGHT, CANfÆS íty F£STOL’88
Slagorð Sigurjóns
Sighvatssonar og félaga
í kvikmyndabransanum
vestanhafs
frjálsum heimi
Vekja athygli í Hollywood — nú liggur leiðin til Cannes
mörgnm sviðum, getum við boðið
leikstjórunum okkar upp á fjöl-
breyttari verkefni."
Risarnir sýna áhuga
Kvikmyndadeild Propaganda
hefur framleitt tvær kvikmyndir.
Sú fyrri, Private Investigations,
var framleidd í samvinnu við stór-
fyrirtækið Polygram. Margir ís-
lendingar hafa séð þessa mynd,
en hún var sýnd í Laugarásbíói á
síðasta ári. Stuttu eftir að tökur
myndarinnar hófust, sýndu stór-
fyrirtækin í kvikmyndaiðnaðinum
vestra henni áhuga og vildu fá að
kaupa dreifingarréttinn. Sigurjóni
og Golin tókst að selja réttinn áður
en tökum var lokið fyrir hærra
verð en nam framleiðslukostnaði
myndarinnar og kaupandinn var
enginn annar en Samuel Goldwyn
og MGM/UA. Polygram sá að
þama voru komnir menn með fjár-
málavit, auk þess að kunna að búa
til bíómyndir, og samdi um frekara
samstarf. Hin nýja mynd þeirra
félaga, The Blue Iguana, er gerð
í samvinnu við Polygram og verður
dreift af Paramount og Twentieth
Century Fox. Fyrirtækið hefur á
pijónunum að gera tvær myndir
til viðbótar á þessu ári og þijár á
því næsta.
Gamli þrillerínn
endurvakinn
Að sögn Johns Lafia, leikstjóra
The Blue Iguana, fær myndin mik-
ið að láni frá gömlum, sígildum
þrillerum á borð við A Touch of
Evil. Myndin fjallar um Vince
Holloway, sem Dylan McDermott
leikur. Hann hefur það að atvinnu
að elta uppi eftirlýsta flóttamenn,
en gengur ekki of vel og flestir
týna þeir lífí áður en honum tekst
að hafa hendur í hári þeirra. Hann
fær það verkefni að endurheimta
20 milljónir stolinna dollara í Mex-
íkönskum bæ að nafni Diablo. Þar
er kráin The Blue Iguana, sem
myndin dregur nafn sitt af. Nán-
ast allir þorpsbúar virðast vera á
höttunum eftir sömu fjárfúlgunni
og spæjarinn, og það veldur honum
ólýsanlegum vandræðum.
Aðalleikarar í myndinni auk
McDermotts eru Jessica Harper,
James Russo og Pamela Gidley.
Yfirkvikmyndatökumaður er Ro-
dolfo Sanchez, sem meðal annars
kvikmyndaði „Koss kóngulóarkon-
unnar". Myndin hefur víðast hvar
hlotið góða dóma í bandarískum
blöðum og gagnrýnendum kemur
saman um að andi gamalla og
góðra vestra og glæpamynda sé
endurvakinn á eftirminnilegan
hátt, auk þess sem myndin sé bráð-
fyndin. Forráðamenn Cannes-hát-
íðarinnar virðast hafa staðfest
þetta álit með því að velja mynd-
inga til sýningar. Þess verður svo
væntanlega ekki langt að bíða að
myndin verði sýnd hér á landi, og
íslendingar fái hlutdeild í „sýn
handa fijálsum heimi“.
MARGFRÆG kvikmyndahátíð í
Cannes í Frakklandi hófst hinn
ellefta þessa mánaðar. Margir
af þekktustu kvikmyndafram-
leiðendum og leikstjórum heims
keppa um hinn eftirsótta gull-
pálma, en Cannes er einnig vett-
vangur fyrir unga og lítt þekkta
listamenn, sem oft komast þar
í fyrsta sinn i hið alþjóðlega
sviðsljós. Á „Directors’ Fort-
night“ eða „hálfum mánuði leik-
stjóranna" eru sýndar fjórtán
myndir eftir unga og efnilega
framleiðendur, og er þá yfirleitt
um að ræða fyrstu eða aðra
mynd þeirra. Ein myndanna,
sem nú verður sýnd á „Direct-
ors’ Fortnight" er The Bluelgu-
ana eða Bláa eðlan. Leikstjóri
er John Lafia en framleiðend-
umir eru Steve Golin og Sigur-
jón Sighvatsson. Þeir eiga eitt
öflugasta myndbandafyrirtæki
í Hollywood, Propaganda Films,
en hyggjast snúa sér að kvik-
myndagerð í ríkari mæli. Fyrir-
tæki þeirra félaga hefur vaxið
hratt og getið sér orð fyrir
dirfsku og frumleg vinnubrögð.
Siguijón Sighvatsson er eini ís-
lendingurinn, sem hefur fengist
að nokkru ráði við kvikmynda-
framleiðslu í þeim fræga stað
Holljrwood. Hann er fæddur á
Akranesi og varð heimsfrægur á
íslandi fyrir leik sinn í ýmsum
frægum popphljómsveitum, þar á
meðal Flowers, Þokkabót og
Brimkló. Siguijón hélt síðan utan
til náms við kvikmyndadeild Suð-
ur-Kalifomíuháskóla og lauk það-
an prófi í leikstjóm með glans.
Hann stefndi þó alltaf á að gerast
framleiðandi og sneri sér alfarið
að þeirri grein að námi
loknu. í árslok 1986 stofnaði hann
svo Propaganda Films ásamt fyrr-
um skólafélaga sínum, Steve Golin,
sem reyndar er kvæntur íslenskri
konu.
í hópi fimmtíu efnilegustu
Propaganda Films hefur vakið
athygli í Hollywood fyrir vandaða
vinnu og frumleg vinnubrögð. Eitt
þekktasta kvikmyndatímarit vest-
an hafs, Millimeter, valdi þá Sigur-
jón og Golin í hóp fimmtíu efnileg-
ustu kvikmyndaframleiðenda í
Bandaríkjunum á síðasta ári. Fyr-
irtækið hefur marga leikstjóra á
sínum snærum, sem flestir eiga
það sameiginlegt að þeir voru
orðnir leiðir á gamla starfinu og
vildu reyna eitthvað nýtt. í viðtali
^erki A.
riálaut» óandf* ei°»
’ 8iar
gorð
„Hér er allt einhvers virði - nema líf þitt.“ Auglýs-
ingaspjald The Blue Iguana
við Millimeter segir Siguijón:
„Flest kvikmyndafyrirtæki eru
byggð upp í kring um einn frægan
leikstjóra. Með þvi hins vegar að
hafa marga leikstjóra, getur hver
og einn einbeitt sér á sínu áhuga-
sviði og verið vandlátari á verkin,
sem hann tekur að sér.“
Fyrirtæki Siguijóns og Golins
er nú stærsti framleiðandi tónlist-
armyndbanda í Hollywood. Þeir
framleiddu 150 myndbönd á
síðasta ári, meðal annars fyrir stór-
stimi á borð við Bruce Spring-
steen, Sting, Rick Springfield, U2,
Johnny Hates Jazz, Loverboy og
Jodie Watley. „Myndbandið er op-
inn, skapandi miðill," segir Sigur-
jón. „Handritið er skrifað á sömu
stundu og myndin er tekin upp —
og við hjálpum til við að skrifa
það. Þegar þessi iðnaður verður
eldri í hettunni munu plötufyrir-
tæki og peningamenn eflaust
krefjast þess að fá að hafa hönd
í bagga með framleiðslunni, en sem
stendur býður myndbandaiðnaður-
inn upp á dásamlegt frelsi til sköp-
unar.“
Sýn handa frjálsum heimi
Siguijón og Golin hafa lagt
mikla vinnu í að skapa sér nafn
og auglýsa vörumerki sitt, enda
hefur það unnið til verðlauna og
menn segja að þeir félagar hafi
dottið ofan á rétta slagorðið: „Sýn
handa fijálsum heimi", enda fari
orðstír þeirra nú víða og þeir opni
nýjar víddir í myndbandagerð.
Mörg fyrirtæki í leit að ferskari
ímynd hafa leitað til Propaganda
um auglýsingagerð, og má þar
nefna Fabergé, Coca Cola og Sev-
en-Up.
Siguijón segir að velgengni
Propaganda sé engin tilviljun.
„Hún byggist á góðu orðspori.
Mörg vandamál í myndbandaiðn-
aðinum voru meðal annars tilkom-
in vegna þess að þar voru of mörg
„neðanjarðarfyrirtæki". Við
ákváðum að tilheyra ekki þeim
hópi. Framleiðsla á tónlistarmynd-
böndum er ekki skæruliðahemaður
lengur. Við vitum öll að þetta er
harður bransi, minna fé úr að
moða og styttri tími til að vinna.
Siguijón Sighvatsson
Hins vegar er hægt að nýta eðl-
isávísunina og taka áhættu með
nýju fólki. Ef það gengur ekki upp
í framleiðslu eins myndbands, er
það enginn heimsendir. í bíómynd
getur slíkt þýtt milljónatap. Tón-
listarmyndbönd eru ágætur æf-
ingavöllur fyrir óþekkt hæfileika-
fólk, og í því er starf mitt raunar
fólgið — að fínna og hlú að ungu
fólki með hæfíleika. Við viljum
taka áhættu með því að nota
áhugavert fólk, en ekki bara stór-
stirni," segir Sigutjón í nýlegu við-
tali við tímaritið Film & Video
Production.
Propaganda þykir óvenjulegt
fyrirtæki vegna þess að það hefur
myndbandaframleiðslu- sem aðal-
grein en framleiðir auk þess kvik-
myndir. „Að búa til bíómynd getur
tekið eitt eða tvö ár af lífí manns,"
segir Siguijón. „Þess vegna er
kjörið að vinna líka við tónlistar-
myndbönd og auglýsingar, vegna
þess að þau taka stuttan tíma í
framleiðslu og maður sér árangur
erfiðis síns fljótt. Það heldur manni
í formi, og með því að vinna á
Propaganda-menn við upptökur. Þeir Siguijón og
Golin segjast gera miklar kröfur til starfsfólksins
og sjálfra sin og vila ekki fyrir sér að vinna um
helgar og fram á nætur til þess að ljúka verkefnum.