Morgunblaðið - 22.05.1988, Síða 27
Evrópudómstóllinn
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
27
Belgar
tapa tveim-
ur málum
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Evrópudómstóllinn, sem hefur
aðsetur í Lúxemborg, felldi ný-
lega úrskurði i tveimur kæmmál-
um gegn belgískum stjórnvöld-
um. DómstóUinn, sem er ofar
lögum aðildarríkja Evrópu-
bandalagsins, dæmir um það
hvort aðildarríkin teljast hafa
brotið ákvæði Rómarsáttmálans
á einhvern hátt. Hvort heldur er;
einstaklingar, fyrirtæki eða
þjóðriki geta kært mál til dóm-
stólsins.
Þau mál sem höfðuð voru á hend-
ur Belgum voru annars vegar um
rétt hollensks kennara til að stunda
kennslu við belgískan skóla og hins
vegar um heimild yfirvalda til að
leggja sérstakt skólagjald á há-
skólastúdenta frá öðrum EB-ríkjum
sem stunda nám við belgíska há-
skóla.
Samkvæmt belgískum lögum er
einungis heimilt að ráða belgíska
þegna til kennslustarfa við skóla
sem reknir eru eða styrktir af því
opinbera. Kæran til dómstólsins var
lögð fram af hollenskum kennara
sem hafði belgísk kennararéttindi
og sótti um kennslu við belgískan
skóla. Menntamálaráðuneytið féllst
að lokum á ráðningu kennarans á
þeirri forsendu að enginn hæfur
Belgi hefði fengist í starfið. Þessi
túlkun ráðuneytisins var kærð. í
niðurstöðum dómsins segir að sú
afstaða belgískra stjómvalda að
kennsla og skólastarf séu ekki
rekstur af sama tagi og fyrirtæki
og falli þess vegna utan ákvæða
Rómarsáttmálans sé röng og þess
vegna hafi stjómvöld ekki heimild
til að mismuna þegnum EB-land-
anna eftir þjóðerni við ráðningar í
kennarastöður.
Pyrr á þessu ári tapaði belgíska
menntaráðuneytið öðru máli í Lúx-
emborg en það fjallaði um sérstök
skólagjöld sem lögð voru á útlend-
inga við belgíska háskóla. Dómar-
inn komst að þeirri niðurstöðu að
nám á háskólastigi jafngilti starfs-
þjálfun og þess vegna giltu um það
sömu reglur. Belgum væri því
óheimilt að mismuna þegnum frá
öðmm EB-löndum. Jafnframt
áminnti dómurinn belgísk stjóm-
völd um að endurgreiða það sem
þegar hefði verið innheimt á þessum
forsendum.
Landakotsspítali:
Minningarkort
Styrktarsjóður barnadeildar
Landakotsspítala hefur látið
hanna minningarkort fyrir sjóð-
inn.
Sigríður Bjömsdóttir myndlista-
maður og kennari teiknaði flögur
mismunandi kort, sem eru seld á
eftirtöldum stöðum:
Apóteki Seltjamamess, Vestur-
bæjarapóteki, Hafnarfjarðarapó-
teki, Garðsapóteki, Holtsapóteki,
Mosfellsapóteki, Arbæjarapóteki,
Lyfjabúð Breiðholts, Reykjavík-
urapóteki, Háaleitisapóteki, Kópa-
vogsapóteki, lyfjabúðinni Iðunni. í
blómaverslununum; Burkna, Borg-
arblómi, Melanóru Seltjarnamesi
og Blómavali í Kringlunni. Einnig
eru þau seld á skrifstofu og barna-
deild Landakotsspítala.
(Fréttatílkynning)
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
YLJAR YKKUR ALLT ÁRID
Á Majorku eru sólskinsdagar að
meðaltali 27 í maí, 28 í júní, 30 í júlí, 30 í ágúst
og26 í september. íþriggja vikna Úrvals Majorku-
ferð eru því margir sólskinsdagar. Hafið það í
huga þegar þið pakkið niður.
Sa Coma á austurströnd eyjunnar er vinsæl-
asti staðurinn okkar á Majorku. Þar er ströndin
breið og hrein, sandurinn mjúkur og sjórinn hlýr.
Þið getið t. d. farið á sjóskíði, lœrt á seglbretti, synt
og svamlað í sjónum milli þess sem þið baðið
ykkur í sólinni.
Royal Mediterraneo íbúðahóteiið íSa
Coma er gististaður í sérflokki. Og staðsetningin
gœti ekki verið betri því úr hótelinu er gengið
beint út á ströndina, engin gata á milli. Það er
kostur sem barnafólk kann að meta. Royal
Mediterraneo er meðal gististaða okkar í Sa
Coma.
Sa Coma er rólegt þorp en aðeins
tekur 5-10 mínútur að aka til Cala Millor. Þar er
fjörugra skemmtana- og nœturlíf og fjöldi góðra
veitingastaða. Og aðeins 5 km frá Sa Coma er
diskótekið DRAAH, stœrsta diskótek eyjunnar og
undir berum himni. Örstutt frá þorpinu er 9 holu
golfvöllur.
Á Majorku er fleira en sól, sjór
og sandur. Náttúrufegurð er mikil og
margir staðir sem verterað skoða. Drekahellarn-
ir frœgu eru aðeins steinsnar frá Sa Coma, höfuð-
borgin Palma er skemmtileg blanda af gömlu og
nýju og upp til fjalla eru falleg smáþorp sem
gaman er að heimsækja. Fararstjórar Úrvals, þau
Kristinn R. Ólafsson og Rebekka Kristjánsdóttir,
skipuleggja skoðunarferðir um eyjuna.
Og eftir að heim er komið yija
minningarnar úr Úrvals Majorkuferðinni ykkur
allan veturinn - alltþar til þið farið að hlakka til
næstu Úrvalsferðar.
FCRÐASKRIFSTOFAN ÚRVAl
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13.Sími 26900
mmmmmmœm
mmimmsimsems