Morgunblaðið - 22.05.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
Níelsína H. Hákon -
ardóttir— Minning
Fædd 6.júni 1907
Dáin 11. mai 1988
Löngu sjúkdómstríði er lokið,
Ninna, eins og systir mín, Níelsína
Helga Hákonardóttir, er ég hér
minnist, var kölluð, fékk heilablóð-
fall 28. maí 1978 og missti þá málié
og mátt að miklu leyti, en fylgdist
með öllu, hlýtur það að vera hræði-
legt hlutskipti að geta ekki tjáð sig.
Ninna fæddist 6. júní 1907 í Al-
bertshúsi á Akranesi, einkabarn
hjónanna Hákonar Halldórssonar,
skipstjóra, og fyrri konu hans, Þóru
Níelsínu Helgu Níelsdóttur. Foreldr-
ar Hákonar voru hjónin Halldór
Ámason, sjómaður, og Guðrún Há-
konardóttir, bæði frá Akranesi, en
foreldrar Þóru voru hjónin Níels
Magnússon, útvegsmaður, og Helga
Bjamadóttir, einnig frá Akranesi.
Foreldrar Ninnu létu byggja húsið
Hofteig á Akranesi, sem enn stend-
ur, og flutti í það 1908. Hákon
stundaði sjó frá 15 ára aldri, þá á
útvegi Nielsar er síðar varð tengda-
faðir hans, og formaður frá 18 ára
aldri. Síðar var hann hjá Lofti Lofts-
syni og Þórði Ásmundssyni, sem
vom með útgerð frá Akranesi, og
meðeigandi þeirra að Svani I og
Svani II, sem hann var formaður
á, var hann harðduglegur sjósóknari
og aflamaður mikill.
Þóra, móðir Ninnu, stundaði
bamakennslu á Akranesi um árabil,
kenndi einnig hannyrðir. Ninna erfði
góða kosti foreldra sinna, myndar-
skap móður sinnar og dugnað og
viljafestu föður síns. Hún lærði fata-
saum og saumaði hún marga flíkina
á okkur hálfsystur sínar, sem var
ómetanleg hjálp fyrir móður okkar.
Þóra, móðir Ninnu, lést haustið 1916
á heimili Áslaugar Guðmundsdóttur
í Mjóstræti 4, Reykjavík, sem var
frændkona móður minnar, Petrínu
Narfadóttur, en Áslaug og hennar
maður, Vigfús Jósefsson skipstjóri
frá Akranesi, vom góðir vinir Þóm
og Hákonar og lá hún þar banaleg-
una að eigin ósk fremur en að fara
í sjúkrahús. Eftir lát Þóm seldi
Hákon húseign sína á Akranesi og
keypti efri hæð hússins Kárastíg 14,
Reykjavík, en neðri hæðina keyptu
Áslaug og Vigfús. Fór þá móðir mín
ráðskona til hans og var þetta sem
ein fölskylda í húsinu, en miklir
kærleikar vom ætíð með þeim
frændkonum. Tókust fljótt miklir
kærleikar neð Ninnu og móður
minni, sem haldist hefur óslitið og
gengið í arf til afkomenda Ninnu,
sem öll hafa ávallt sýnt móður minni
mikinn hlýhug og virðingu. Foreldr-
ar mínir gengu í hjónaband 16. apríl
1922 og eignuðust þau fjögur böm:
Harald, f. 19.7. 1923, Herdísi, f.
17.7. 1924, Þóm, f. 16.5. 1926, og
undirritaða f. 18.8. 1927.
Ninna dvaldist mörg sumur eftir
að hún fluttist til Reykjavíkur, hjá
Helgu móðursystur sinni og hennar
manni, Kristmanni Tómassyni, á
Akranesi, en dætur þeirra, Kristín
og Helga, vom á líkum aldri og
Ninna og vom þær frænkur mjög
samrýndar. Helga og Kristmann
urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa
dætur sínar uppkomnar og dóttur-
bam með stuttu millibili. Bar faðir
minn ávallt mikinn hlýhug til þessa
tengdafólks síns.
Ninna giftist 28. september 1934
Magnúsi Olafssyni frá Fossá í Kjós,
f. 4. júlí 1908. Foreldrar hans vom
Ásbjörg Tómasdóttir og olafur Matt-
híasson, þá ábúendur á Fossá. Ninna
og Magnús bjuggu ásamt Halldóm,
systur Magnúsar, og Þórhalli Þor-
kelssyni, hennar manni, um eins og
hálfs árs skeið að Fossá. Síðar leigðu
þau á Njálsgötu 50, Reykjavík, en
árið 1945 réðust þau í að byggja sér
hús ásamt Halldóm og Þórhalli á
Hofteigi 6, Reykjavík. Magnús fór
jafnan á kvöldin og um helgar á
reiðhjóli sínu til að vinna að hús-
byggingunni, því að þetta var löngu
áður en hann eignaðist bíl. Bjuggu
þau þar til þess að Ninna veiktist
1987 og Magnús síðan ásamt Þóm
dóttur sinni og Guðbrandi manni
hennar. Magnús varð fyrir því að
fá heilablóðfall 1975 en náði sæmi-
legri heilsu aftur. Ninna og Magnús
eignuðust 3 böm. Þau em, talin í
aldursröð: Þóra Kristín Helga, f.
25.6. 1934, hennar maður er Guð-
brandur Valdimarsson, starfsmaður
hjá Sambandinu, Hákon Svanur, f.
24.6. 1939, verkstjóri hjá Flugfragt,
kvæntur Svanhildi Guðbjörgu Sig-
urðardóttur, þejrra böm em 3 og
bamabömin 2, Ásbjörg, f. 9.2. 1945,
gift Bimi Einarssyni innanhússarki-
tekt, þeirra böm em 4. Einnig ólust
upp á heimilinu böm Þóm dóttur
þeirra, Magnús til fullorðinsaldurs
og Ólöf Ásbjörg, sem var aðeins 8
ára þegar amma hennar veiktist.
Þóra átti ávallt heimili með foreld-
mm sínum.
Fannst mér áberandi eindrægnin
á heimilinu, kom það ekki síst fram
hjá þeim systkinum eftir að foreldrar
þeirra veiktust, hvemig þau skipu-
lögðu heimsóknir til þeirra þannig
að aldrei féll úr dagur, mættu marg-
ir taka það sér til fyrirmyndar, suma
heimsóknartíma hrúgast fólk til
sjúklinga, aðra tíma kemur enginn.
Það var mikil risna á heimili Ninnu
og Magnúsar, minnist maður hlað-
borðsins þar um helgar, enda var
þar ávallt margt um manninn. Ninna
var ákaflega iðjusöm, man ég ekki
eftir að hafa séð hana öðruvísi en
sístarfandi, enda em mörg stykkin
sem eftir hana liggja, svo sem út-
saumaðar myndir, svo eitthvað sé
nefnt, fyrir utan allar þær flíkur,
sem hún saumaði, bæði fyrir sitt
heimili og ótalmarga aðra.
Kom þá fram hennar mikli vilja-
styrkur, því hún bjó við fötlun frá
unglingsámm, vegna læknisaðgerð-
i ar, sem framkvæmd var á röngum
tíma, en hún heyrðist aldrei kvarta
°g uppgjöf var ekki til í hennar
huga. Magnús var einnig ákaflega
vinnusamur og vildi allt það besta
fyrir heimili sitt.
Ég vil fyrir hönd móður minnar
og systkinanna flytja Ninnu okkar
innilegustu þakkir fyrir allt sem hún
var okkur frá fyrstu ttð.
Vottum við aðstandendum öllum
samúð, jafnframt þvf sem við gleðj-
umst yfir að hún er laus úr sjúk-
dómsviðjum. Jarðsett verður frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. maí
kl. 13.30.
Anna
Þriðjudaginn 24. maí verður til
moldar borin Níelsína Helga Hákon-
ardóttir, en hún andaðist einum degi
fyrir uppstigningardag eftir langa
og ólýsanlega sjúkdómsraun. Við
brottför Níelsínu af þessum heimi
opnast stór og smá leynihólf innst
í hjörtum gamalla vina hinnar látnu
og flölskyldu hennar. Minningamar
setja þing í hugskotinu. Ljúft er að
dvelja við þær liðnu stundir.
Senn eru þrír tugir ára frá því
að ég kynntist Níelsínu eða „Ninnu,"
eins og hún venjulega var nefnd.
Um þær mundir stóð hagur hennar
með miklum blóma. Þau bjuggu á
Hofteigi 6 í Reykjavík hjónin Ninna
og Magnús Ólafsson. Eg átti því
láni að fagna að njóta nágrennis við
þau um fimm vetra bil, ásamt konu
minni, sem er systurdóttir Magnús-
ar, og syni okkar hjóna. Náin frænd-
semi var milli þeirra Magnúsar og
Níelsínu og tengdaforeldra minna,
Halldóru Ölafsdóttur og Þórhalls
Þorkelssonar, en þau bjuggu einnig
á Hofteigi 6. Gott var að gerast
meðlimur í því bræðralagi. Um það
eiga allir óskilið mál, ekki sízt böm
Níelsínu og Magnúsar, en þau eru:
Þóra Kristín Helga, gift Guðbrandi
Valdimarssyni, starfsmanni hjá
Sambandi íslenzkra samvinnufélaga,
Hákon Svanur, verkstjóri hjá Flug-
leiðum, kvæntur Svanhildi Guð-
NÍóNUSTA
OPIÐ A ÞRIÐJUDOGUM
& FIMMTUDÖGUM
TIL KLUKKAN NIU A
Ný og betri þjónusta
Næstu fjórar vikurnar* höfum við opið til
kl. 21:00, þriðjudags- og fimmtudags-
kvöld. Aðra virka daga er opið til kl.
17:30 og á laugardögum frá kl. 10:00 til
12:00.
Þekking og reynsla
Hjá ferðaskrifstofunni Sögu starfar sam-
stilltur hópur fólks sem hefur að baki
langa reynslu í ferðaþjónustu. Hug-
myndir okkar um sérhæfða og góða
þjónustu, opna þér nýja og hagstæða
ferðamöguleika og gildir einu hvort þú
ferðast á eigin vegum, í hópferð, erlendis
eða innanlands. Við leggjum áherslu á
persónuleg samskipti - og þjónusta okk-
ar nær alla leið.
Costa Del Sol - Spánn
2-3 vikur, dagflug, afsláttarkoft,
íslenskur fararstjóri.
Verð frá 32.800 kr.**
4 í íbúð 41.000 kr.
2 í íbúð 47.000 kr.
Hnokkaferðir - Costa Del Sol
Sérstakar fjölskylduferðir, 40% barnaaf-
sláttur, fyrsta flokks gististaðir. Brottfarir
16. júní - 2 vikur, 30. júní - 3 vikur.
Kýpur - nýr áfangastaður
2-3 vikur, áætlunarflug um Amsterdam
íslenskur fararstjóri.
Lauflétt spurningakeppni - ókeypis bila-
leigubíll í eina viku á Kýpur.
Verð frá 45.300 kr.**
4 í íbúð 53.500 kr.
2 í íbúð 57.000 kr.
Flug & bíll
Amsterdam, Hamborg, Kaupmanna-
höfn, London, Luxembourg, Salzburg og
Mílanó, á ákveðnum brottfarardögum.
Verð frá 18.900 kr.
(5 í bíl í eina viku).
»17/5 - 14/6
**Hjón með 2 börn 0-12 ára
KVÖLDIN.
Sérferðir
Indland
„Landið sem allir menn þrá að sjá".
Brottför 5. nóvember, íslenskur farar-
stjóri, 19 eða 24 dagar.
Verð frá 148.300 kr.
Kína
„Hin lengsta ferð hefst með einu skrefi".
Brottför 7. október, íslenskur fararstjóri,
24 dagar.
Verð frá 197.600 kr.
Thailand
„Lystisemdir Bankok og paradísareyjan
Ko Samui".
Brottfarir vikulega, 14 dagar.
Verð frá 81.100 kr.
Karabíska hafið
„Paradísarferð í kjölfar Kólumbusar".
Brottför 21. október, íslenskur fararstjóri,
15 dagar.
Verð frá 132.300 kr.
FERDASKRIFSTOFAN