Morgunblaðið - 22.05.1988, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
39
björgu Sigurðardóttur og Ásbjörg,
gift Bimi Einarssyni, innanhússarki-
tekt. Þessum vinum öllum vottum
við Dóra og böm okkar hugheila
samúð í dag. Jafnframt þökkum við
gengnar gleðistundir og biðjum þess,
að enn megi sól skína yfír bjartar
leiðir allra, sem eftir lifa.
Ninna og Magnús voru í hópi land-
nema í Laugameshverfí. Þar hófust
þau handa um húsbyggingu árið
1945 í samfélagi við áðumefnt
tengdafólk. Sú kynslóð, sem þama
skaut rótum í nýjum jarðvegi var
þróttmikil, áræðin og bjartsýn. Slíkir
eðliskostir einkenndu Níelsínu Helgu
Hákonardóttur og alla hennar
heimamenn. Fjölskyldulífíð var inni-
legt, vinatengslin traust og óbrigð-
ul, framfarahugurinn eindreginn.
Við hjartarætur þessara nýju borg-
arbúa lifði jafnframt arfleifð eldri
tíma. Sveitin blessuð og þorpið áttu
heimkynni í hugskoti þeirra. Gildis-
mat umliðinna ára í gleði og sorg
var leiðarhnoða, er lá til gmndvallar
viðbrögðum öllum, — þaulræktað
lífsviðhorf, sem aldrei brást.
Níelsína Helga fæddist 6. júní
1907 á Akranesi. Hún var dóttir
hjónanna Hákonar Halldórssonar
skipstjóra og Þóm Níelsínu Helgu
Níelsdóttur, en Þóra var kennari,
og vom hún og Hákon bæði upp-
mnnin á Akranesi.
Þóra Níelsdóttir féll frá árið 1916,
og flutti Hákon Halldórsson þá til
Reykjavíkur með dóttur sína og sett-
ist að á Kárastíg 14. Réðist nú
Petrína Guðrún Narfadóttir til Há-
konar sem bústýra, og gengu þau í
hjónaband fáum ámm síðar. Petrína
kom Ninnu í móður stað, og var eink-
ar kært með þeim stjúpmæðgum
ætíð síðan. Petrínu og Hákoni varð
fjögurra bama auðið, og reyndist
samfélag þeirra Haraldar, Herdísar,
Þóm, Önnu Soffíu og Ninnu ætíð
svo sem bezt má verða í systkina-
hópi.
Hákon Halldórsson efndi til út-
gerðar og reri ámm saman á eigin
báti frá Sandgerði. Petrína var því
löngum ein með heimilið og bömin
á Kárastíg 14. Varð Ninna stjúp-
móður sinni og systkinum þá hin
styrkasta stoð í dagsins önn. Á ungl-
ingsámm lærði Ninna fatasaum og
vann hún meðal annars með eigin
höndum allan fatnað á yngri bömin
fjögur, unz þau komust á legg.
En leiðimar lágu víðar. Á summm
dvaldi Ninna iðulega sem bam og
unglingur hjá Helgu móðursystur
sinni í Lambhúsum á Akranesi.
Einnig festi Ninna rætur á Valda-
stöðum í Kjós, á heimili Halldóm
föðursystur sinnar, sem gift var
Þorkeli Guðmundssyni bónda þar.
Sumardagar í Kjós réðu örlögum
Ninnu og brugðu birtu yfír ævidag
hennar þaðan í frá. Magnús Ólafsson
frá Fossá varð á vegi hennar. Þau
felldu hugi saman og gengu í hjóna-
band haustið 1934.
Magnús og Ninna vom mjög jafn-
aldra. Hann var fæddur árið 1908,
sonur Ólafs bónda á Fossá, Matt-
híassonar og konu hans Ásbjargar
Tómasdóttur. Þegar þau Ninna
kynntust hafði Magnús stundað sjó
ámm saman, en nú ráku þau um
hríð félagsbú á Fossá ásamt Hall-
dóm og Þórhalli, sem að framan
getur. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur
og áttu íjölskyldumar tvær nábýli
við Njálsgötuna, unz landnámið í
Laugameshverfí hófst. Um sömu
mundir varð Magnús fastur starfs-
maður Reykjavíkurborgar. Gegndi
hann þeim verkum allt til ársins
1975, er hann fyrst kenndi þess sjúk-
leika, sem dró hann til dauða árið
1982.
Níelsína Helga Hákonardóttir var
skömleg húsmóðir og einkar vel
verki farin. Heimilið á Hofteigi 6
var ævinlega fágað og prýtt og hátíð
þangað að leita. Hjónin vom svo
samhent, að eftirminnilegt verður
öllum þeim, er við þau kynntust.
Hitt gleymist eigi fremur, hve bam-
góð Ninna var og hlý í viðmóti. Einu
mátti gilda, hvort í hlut áttu böm
hennar og bamaböm ellegar annað
það ungviði, sem rann upp í skjóli
hennar og næsta nágrenni. ÖIl nutu
bömin sömu alúðarinnar. Móðureðlið
var Ninnu í blóð borið, ásamt kyrrl-
átri íhygli og kímni, sem virtist leysa
allan vanda.
Yfír hamingjuhús þeirra Magnús-
ar og Nfelsínu brá myrkum skugga
þegar Magnús missti heilsuna fyrir-
varalaust og í raun enn á bezta
aldri. Þaðan í frá reyndi meir á
Ninnu en nokkm sinni fyrr. Nú lifði
hún fyrir eiginmann sinn sjúkan, —
meðan hennar eigin kraftar entust.
Sjálf veiktist hún skyndilega í maí-
mánuði 1978 og var rúmföst og afl-
vana þaðan í frá, fyrst á Borgar-
sjúkrahúsinu, síðan í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavíkur, unz yfír lauk fyrir
fáum dögum.
Andspænis síðustu tíu æviámm
Níelsínu Helgu Hákonardóttur setur
hvem mann hljóðan. Heilsubrest
sinn bar hún með því þolgæði, sem
ætíð hafði verið hennar sterkasti
eiginleiki. Krossferillinn varð langur.
En umhyggja bama og annarra ást-
vina tendraði ljós við rökkvaðan
sjúkdómsbeðinn. Það ljós dapraðist
aldrei. Samheldni, sem einkennt
hafði heimilislífíð á Hofteigi 6, birt-
ist nú í nýrri mynd. Trúin greri einn-
ig við hjartarætur. Þar hafði hún
raunar átt sér griðland frá önd-
verðu. Engu var líkara en orð hins
foma sálmaskálds hljómuðu yfir og
allt um kring; „Jafnvel þótt ég fari
um dimman dal, óttast ég ekkert
illt, því að þú ert hjá mér.“
Það er táknrænt, að Níelsína
Helga Hákonardóttir fæðist inn í
æðra ljós um þær mundir-sem við
fögnum uppstigningu frelsarans og
sendingu heilags anda af himnum
ofan til þeirra, sem trúa. Við kveðj-
um hana í þökk og biðjum þess, að
Guð um alla eilífð veiti henni þá
elsku og umhyggju, sem hún ævi-
langt lét öðmm í té á jörðu.
Heimir Steinsson
BENZ 260 E ’87- 6 CYL
Ekinn 35 þús/km. Innfluttur í mars ’88. Einn með öllu og í topp-
standi. Verð kr. 1.950.000 (nýr kostar kr. 3.200.000).
Upplýsingar í síma 41187 - Hrafn.
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN
AFMÆLISTILBOÐ
Stórvirkar ^ beltagröfur
á stórkostlegu tilboðsverði!
Tilboð sem ekki verður endurtekið
Vegna 25 ára samstarfsafmælis Globus
og JCB verksmiðjunnar bjóðum við til af-
greiðslu strax 2 beltavélar, sem voru not-
aðar sem sýningarvélar af verksmiðjunni
í 100-200 klukkustundir.
Beltagröfurnar eru af gerðinni 818(19-20
tonn). Verðið er ca kr. 4.800.000.- og kr.
4.900.00.- (gengi 20/5 ’88). Látið ekki
happ úr hendi sleppa. Hafið sámband
strax við iðnaðar- og útvegsdeild okkar.