Morgunblaðið - 22.05.1988, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Undirritaður hefur haft tölu-
vert samband við breska
stjömuspekinga og á dögun-
um (18. mars) fékk ég sent
bréf frá einum þeirra. Þetta
bréf fjallar um væntanlegt
fullt tungl 31. maí næstkom-
andi og hugsanleg áhrif þess
á stjömukort íslenska lýðveld-
isins. Til að gefa innsýn í
vinnubrögð breskra stjömu-
spekinga ætla ég að birta úr-
drátt úr þessu bréfi.
Kraftmikill tími
„Tímabilið í kringum fullt
tungl 31. maí virðist merki-
' legt. Það em aðallega fjögur
atriði sem ég skoða: 1. Tungl-
myrkvinn sjálfur er í 9. húsi
á Merkúr/Úranus samstöð-
unni (í korti íslands). 2. Merk-
úr/Venus framvinda á S61 (ís-
landskortsins). 3. Rfsandi
merki á íslandi á fulla tungl-
inu, 26 gráður í Ljóni, er í
samstöðu við Júpíter. 4. Júpít-
er í framvindu hefur nýlega
farið yfír Tunglið í korti Is-
lands.“
Fceðing
Hann segir síðan: „Þessi stöð-
uga áhersla á Merkúr/Júpít-
er/3. hús/9. hús gefur augljós-
lega til kynna margs konar
myndir af tjáskiptum og ferða-
t lögum sem og ákveðnar hug-
myndir um það að „fæða“.
Júpíter er reyndar á mið-
punkti Sólar/Júpfters í korti
Islands, sem oft tengist fæð-
ingu, velgengni og jákvæðum
tilfínningum o.þ.h. f korti ein-
staklings. Það virðist sem ein-
hver stór áform sem hafa með
fjölmiðlun/ferðamál að gera
séu að ná hámarki, kannski
fjármagnað erlendis frá og
drifið áfram af miklum krafti.
(Mars er fljótlega á eftir á
miðpunkti Sólar og Tungls.)
Það er einnig tæknileg afstaða
f kortinu, t.d. innflutningur á
nýrri tækni (Tungldrekinn er
að fara yfir Satúmus/Úranus)
og einnig dettur mér í hug að
nú fari Satúmus/Úranus
(kerfisbreytingar/uppstokk-
un/barátta) á Satúmus í korti
íslands að ná hámarki. Tengsl
tungldrekans gefúr til kynna
að ytri áhrif muni ýta á að
það gerist."
Byggingar
Svo mörg voru þau orð. í bréf-
inu er einnig talað um Mars
í samhljóma afstöðu við Mið-
himinn úr 5. húsi og er sagt
að það ásamt Merkúr/Venus
á Sól geti gefíð til kynna at-
'ourði tengda byggingu á
lista/skemmtimiðstöð sem
gæti tengst rafeindatækni.
Þar sem Júpíter er að fara
yfir Tungl og Venus tengist
peningum er því varpað fram
hver eigi peningana sem þess-
ar firamkvæmdir muni kosta
og hvort við höfum eftú á
þeim. Hann talar sfðan einnig
um byggingariðnaðinn og bið-
ur undirritaðan að athuga
hvað gerðist á þvf sviði fyrir
tólf ámm.
Fullt ognýtt tungl
Aðferðin sem þessi breski
stjömuspekingur notar er sú
að draga upp kort fyrir ná-
kvæma stund þegar tunglið
er fullt og leggja það síðan
ofan á kort íslands. Þetta er
einnig gert fyrir þá stund þeg-
ar tunglið er nýtt. Ef engar
sérstakar afstöður myndast á
milli tveggja korta þá er talað
um rólegan tíma, annars ekki.
Þensla
Og hvemig metum við aðstæð-
ur útfrá framangreindu? Ég
tel að samkvæmt þessu sé nið-
urstaðan heldur jákvæð þó
greinilegt sé að um þenslu er
að ræða. (Ef þessi aðferð er
rétt, en undirritaður hefur
ekki sannprófað hana, sem að
sjálfsögðu er mikilvægt.)
Hvað sem öllu líður er a.m.k.
athyglisvert að á þessum dög-
um þegar við erum að beijast
við verðbólgu er Júpíter
(þensla) að fara yfir Tungl í
korti íslands og er áberandi á
væntanlegu fullu tungli.
a nni 1D
CaARPUR
DÝRAGLENS
UOSKA
L-UTTT . 1 LZaaX.
FERDINAND
2z—— r i —v v— \ j i u<y r
SMÁFÓLK
50 l‘M THINKIN6 MAVBE
I 5H0ULP RUN FOR A
PLACE ON THE
CITT COUNCIL...
Ég hef verið að hugsa um
að komast í framboð til
bæjarstjórnar___
Mér sýndist að þú ætlaðir
að fara að klappa fyrir
mér...
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Hindmnarsögn austurs leiddi
sagnhafa á rétta braut i spilinu
hér að neðan.
Vestur gefur: enginn á hættu.
Norður
♦ 643
¥82
♦ ÁG2
♦ Á10964
Austur
„n,i ^G9
il T G107
♦ 85
♦ KDG872
Suður
♦ K102
¥ ÁKD653
♦ 10963
♦ -
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 3 lauf 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Pass Pass
Pass
Útspil: lauffimma.
Sagnhafí á átta slagi og von
um hina tvo i tígli og spaða.
Hann henti spaða í laufásinn og
tók þrisvar tromp. Spilaði svo
tígli.
Vestur gerði rétt í því að láta
litinn tígul. Ella fengi sagnhafi
þrjá slagi á litinn. Gosinn í blind-
um átti því slaginn, nú var tími
til að staldra við.
Opnun austurs benti til að
vestur ætti spaðaásinn, svo það
var tilgangslítið að spila spaða
á kóng. Það var einnig hæpið
að hægt yrði að fría einn tígul-
slag í viðbót, því vestur átti að
öllum líkindum fjórlit hið
minnsta. En innkast var sterk-
lega inni í myndinni.
Sagnhafi trompaði næst lauf
og tók þannig útgönguspil vest-
urs í þeim lit. Spilaði svo tígultíu,
kóng og ás, og meiri tígli.
Vestur fékk tvo slagi á tígul
og varð síðan að spila frá spaða-
ásnum.
Vestur
♦ ÁD875
¥94
♦ KD74
♦ 53
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti sem nú stend-
ur yfir í Hollandi kom þessi staða
upp í skák þeirra Gary Kasp-
arovs, heimsmeistara, sem hafði
hvítt og átti leik, og heimamanns-
ins John Van der Wiel.
26. Rb5+! - axb5 27. cxb6 -
Ra5? (Flýtir fyrir úrslitunum, en
27. — Rd8 28. Hc4 var heídur
ekki glæsilegt) 28. Rxa5 — bxa5
29. Hxc5! - dxc5 30. Dxd7 -
Dxf4 31. Hd6 og svartur gafst
upp.