Morgunblaðið - 22.05.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
GJvarahlutir
HamarQhhfAa 1
Hamarshöfða 1
Simar 36510 og 83744
NÝIR MINJAGRIPIR
Peysufatakerlingar
eftirSigrúnu Eldjárn
og margt annað nýtt í úrvali okkar af
minjagripum fyrir ferðamenn og þá sem
vilja gleðja vini og kunningja erlendis.
=RIGQHFTO8g
ÆTLARDU AÐ HJAKKA
ENDALAUSTISAMA
LJÓSRITUNARFARINU ?
Þetta er örstutt kynning á hinni nýju FT-4480
Ijósritunarvél frá RICOH. Það má segja að hún
dragi að sér athygli fyrir allt nema stærðina.
FT-4480 býr yfir ýmsum sérstökum
möguleikum og kostum. Stýrikerfið sparar
tíma. Tími, sem áður fór í að standa yfir verki,
nýtist nú til annars eftir að búið er að velja og
ýta á takka. Sjálvirk staekkun og minnkun og
sjálfvirkt papplrsval. Hægt er að stækka að
óskum eftir þremur leiðum. Auðveldir valkostir
við frágang og útlit gera öllum unnt að setja
fagmannlegan svip á árangurinn.
Slðast en ekki sist: hæfni RICOH hvílir á
traustum grunni langrar reynslu sem notendur
í 130 löndum hafa sannprófað.
IID@®C0
acohf
SKIPHOLT117
105 REYKJAVlK
SlMI: 91 -2 7333
Kasparov vann Karpov
á skákmóti í Hollandi
Skák
Margeir Pétursson
Nú stendur yfir í Hollandi
mjög athyglisvert skákmót með
aðeins fjórum keppendum,
tveimur Sovétmönnum og tveim-
ur Hollendingum. Sovétmennirn-
ir eru engir aðrir en þeir Gary
Kasparov, heimsmeistari í skák,
og fyrirrennari hans, Anatoly
Karpov. Heiður heimamanna
veija þeir Jan Timman, sem um
nokkurt skeið hefur verið talinn
öflugasti skákmaður Vestur-
landa og hinn ungi ög sókndjarfi
John Van der Wiel. Mótið er nú
hálfnað, tefldar hafa verið sex
umferðir af tólf og er heims-
meistarinn efstur með fjóra vinn-
inga, en Karpov hefur hálfum
vinningi minna. Timman hefur
hlotið þijá vinninga, en Van der
Wiel rekur lestina með einn og
hálfan vinning.
Það skipti sköpum á mótinu þeg-
ar Kasparov vann Karpov í fímmtu
umferð eftir æsilega baráttu.
Heimsmeistarinn leyfði sér að fóma
bæði riddara og biskup fyrir sókn
að kóngi Karpovs. Brátt kom í ljós
að fómimar stæðust ekki ströng-
ustu kröfur, en Karpov slakaði á
klónni og ósköpin enduðu með því
að Karpov féll á tíma áður en hann
náði að leika sínum 39. leik. Þetta
var í fyrsta skipti sem Karpov bíður
ósigur þegar hann verst með svörtu
í Caro-Kann-vöm. Hann byijaði að
tefla þá vöm í einvíginu gegn Sok-
olov fyrir rúmu ári og hún hefur
reynst honum mjög vel.
Timman hefur staðið sig vel gegn
Sovétmönnunum, hefur gert tvíveg-
is jafntefli við hvom þeirra. Hann
vann fyrri skákina af landa sínum,
en tapaði þeirri seinni. Van der
Wiel hefur lítið markað á Sovét-
mennina, hefur aðeins náð einu
jafntefli við Kasparov, en tapað hin-
um þremur skákum sínum gegn
þeim. Van der Wiel er greinilega
ekki í góðu formi, báðar tapskákir
sínar gegn Karpov tefldi hann mjög
illa.
Það má búast við afar spennandi
seinni hluta mótsins í Hollandi, en
það er ljóst að Karpov á á brattan
að sækja, eftir tapið fyrir heims-
meistaranum. Sjöunda umferð
mótsins verður tefld á sunnudaginn,
en því lýkur laugardaginn 28. maí.
Mótið er einnig hugsað sem
landskeppni á milli Hollands og
Sovétríkjanna. Vegna slakrar
frammistöðu Van der Wiel virðast
úrslitin í henni ráðin, staðan er 5'/2
v. gegn 2V2, sovézku stórmeistur-
unum í vil. Verðlaun eru einnig
veitt fyrir dirfsku og er staðan í
dirfskukeppninni þannig: 1. Kasp-
arov 15 stig, 2. Van der Wiel 13
stig, 3. Karpov 12 stig og 4. Tim-
man 11 stig. Það eru þekktir skáks-
érfræðingar sem meta það hvort
dirfska eða bleyðimennska ráði
ferðinni hjá meisturunum.
Skák mótsins fram að þessu er
að sjálfsögðu sigurskák Kasparovs
gegn Karpov. Eftir 120 einvígis-
skákir þeirra, sem sumar hveijar
voru daufar og báðir reyndu að
forðast að taka áhættu, er það
nærri því ótrúlegt að þeir tveir skuli
hafa leikið aðalhlutverkin í þessari
sýningu:
Hvitt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kann-vörn
1. e4 - c6 2. d4 - dð 3. Rd2 -
dxe4 4. Rxe4 - Rd7 5. Rf3
Tízkuleikurinn í stöðunni er 5. Rg5,
sem Karpov svaraði á nokkuð ný-
stárlegan hátt gegn Van der Wiel,
fyrr á mótinu: 5. — Rb6!? 6. Rlf3
- g6 7. c3 - Bg7 8. Db3 - Rh6
9. Be2 - 0-0 10. 0-0 - Rf5 og
Karpov jafnaði taflið og vann eftir
slaka taflmennsku Hollendingsins.
5. - Rgf6 6. Rg3
Þessi leikaðferð var í tízku fyrir
20-30 árum, en hefur sjaldan sézt
upp á síðkastið.
6. - e6 7. Bd3 - Be7 8. 0-0 - c5
9. De2 - 0-0 10. Hdl - Dc7 11.
c4 - cxd4 12. Rxd4 - a6 13. b3
- He8 14. Bb2 - b6 15. Rh5 Bb7
Kfg
Ekki 17. - Kh8? 18. Df7! - Rxh5
19. Dxh5 - Rf8 20. Df7, eða 18.
- Hg8 19. Bxf6! - Bxf6 20. Rxf6
og vinnur.
18. Bxh7 - Rc5!
Svartur gat þvingað fram drottn-
ingakaup með því að leika 18. —
Dc6, en það er samt ljóst að hvítur
má mjög vel við una eftir 19. Rf4!
- Dxe6 20. Rxe6+ - Kf7 21.
Rg5+ — Kf8 22. Bg6. Nú verður
hvítur að láta annan mann af hendi,
því ekki gengur 19. Df5? — Be4!
19. Dh3 - Rxh7 20. Bxg7+ -
Kg8 21. Bb2
21. - Dc6
Þetta er athyglisverð staða. Hvítur
hefur fómað tveimur mönnum fyrir
Qögur peð og honum hefur tekist
að opna kóngsstöðu svarts upp á
gátt. Það er þó Ijóst að hann hefur
Dvalarheimilið
Hellu:
Vistmaður
gaf nýja
þvottavél
Selfossi.
EINN vistmanna á dvalar-
heimilinu Lundi á Hellu af-
henti þvi fyrir skömmu að
gjöf stóra þvottavél. Vélin
kemur sér vel í þeirri upp-
byggingu sem á sér stað á
dvalarheimilinu.
Það er Kristján Magnússon frá
Drangshlíð í Austur-Eyjafjalla-
hreppi 0g oddviti þar 1969—1978
sem gaf þvottavélina og afhenti
hana Jóni Þorgilssjmi, sveitar-
stjóra á Hellu.
Kristján dvelur á Lundi og sagð-
ist vona að þvottavélin mætti þjóna
dvalarheimilinu vel og lengi.„Það
er gott að búa hér hjá góðu fólki,"
sagði Kristján þegar hann hafði
afhent vélina.
Þvottavélin tekur tólf kfló af
þvotti og kemur í góðar þarfír að
sögn starfsfólks. Nú er í byggingu
þjónustuálma við dvalarheimilið
sem mun bæta úr brýnni þörf þeg-
ar hún kemst í gagnið.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónason
Jón Þorgilsson sveitarstjóri og Kristján Magnússon fyrir framan
nýju þvottavélina.