Morgunblaðið - 22.05.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sölustörf
Atvinnurekendur
Sölumaður
Ungt fólk óskast til sölustarfa. Góðir tekju-
möguleikar fyrir duglegt fólk.
Upplýsingar í síma 54548.
Prófarkalestur
Stórt bókaforlag í Reykjavík óskar eftir vön-
um prófarkalesurum sem geta tekið að sér
verkefni í aukavinnu.
Umsóknum fylgi upplýsingar um nám og
reynslu viðkomandi við prófarkalestur.
Umsóknir merktar: „L - 16“ leggist inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir miðvikudaginn 25.
maí.
Úrvalsritari
Lögmannsstofa í Reykjavík óskar eftir að
ráða ritara. Starfið er fólgið í venjulegum rit-
arastörfum, svo sem vélritun, símavörslu og
skjalaumsjón. Æskilegt er að umsækjendur
séu ekki yngri en 30 ára.
Starfsreynsla í ritarastörfum er nauðsynleg.
Byrjunarlaun eru kr. 70.000,-
Umsóknir skilist á auglýsingadeild Mbl. fyrir
28. maí merkt: „Ritari - Lögmenn".
Öllum umsóknum verður svarað.
Skrifstofustarf
Við óskum eftir að ráða starfskraft til al-
mennra skrifstofustarfa frá 1. ágúst í sumár.
Staðan er 80% starf. Góð kunnátta í málum,
bókhaldi og vélritun er nauðsynleg. Nokkur
þekking á notkun tölva við skrifstofustörf er
æskileg.
Upplýsingar veitir Agnar Erlingsson í síma
14150/15150.
Skriflegar umsóknir berist okkur fyrir 28.
maí 1988.
Det Norske Veritas,
Hafnarhvoli, Tryggvagötu,
101 Reykjavík.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða starfsfólk til eftirtalinna
afgreiðslustarfa:
1. Afgreiðslumann í kjötiðnaðarstöð við
afgreiðslu á unnum kjötvörum.
2. Starfsmann á kassa í verslun. Vinnutími
eftir hádegi.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna-
stjóra, sem veitir upplýsingar.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
SAMBANDSHÚSINU
Sumarið er komið!
Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna á
nýjum sumartíma.
Opiðfrá kl. 9.00-15.00.
Barnfóstrur
Okkur vantar á skrá gott fólk sem vill gæta
barna í sumar. Um margvíslegan vinnutíma
er að ræða og allir aldurshópar koma til
greina. Gott sumarstarf.
VETTVANGUR
STARFSMIÐLUN
Skóiavörðustíg 12, sími 623088.
Starfskraftur á þrítugsaldri óskar eftir starfi
við tölvuvinnslu og bókhald. Hefur mikla og
góða reynslu. fíóð meðmæli. Upplýsingar í
síma 75476 milli kl. 13.00-16.00.
Heildverslun - Lager
Óskum eftir að ráða starfskraft til afgreiðslu
af snyrtivörulager. í starfinu felst auk af-
greiðslu nótugerð, símavarsla o.fl.
Viðkomandi þarf að vera töluglöggur, skipu-
lagður og hreinlegur. Um er að ræða hluta-
starf 60-70% vinnu t.d. 3 daga í viku.
Umsóknir og upplýsingar sendist fyrir 1. júní
til: *
TERMASF.ÉT
TERMA5F. BOX4241. 124 RETKJAVÍK. ICELAND
Fulltrúi
framkvæmdastjóra
Viðskiptafræðingur/verkfræðingur
framhaldsnám erlendis æskilegt
Stórt þjónustufyrirtæki hér í borg vill ráða
fulltrúa til starfa fyrir framkvæmdastjóra
þess. Starfið er laust strax.
Kröfur um menntun eru þær að viðkomandi
sé viðskiptafræðingur eða verkfræðingur og
æskilegt að hann hafi lokið framhaldsnámi
erlendis.
Einhver starfsreynsla í viðskiptalífinu kæmi
sér vel, en er þó ekki skilyrði, til greina kem-
ur að ráða aðila sem er að Ijúka námi.
Starfið felst m.a. í ýmsum þróunarverkefnum
sem fyrirtækið vinnur að, áætlanagerð,
samningar við erlenda aðila, verkefnastjórn-
un og skyld verkefni.
Fyrirtækið er mjög tölvu- og tæknivætt, góð
vinnuaðstaða er fyrir hendi og góð laun eru
í boði fyrir réttan aðila.
Allan nánari fyrirspurnir eru veittar á skrif-
stofu okkar í fullum trúnaði.
Fresturtil að skila umsóknum ertil 30. maí nk.
QiðntTónsson
'RÁÐGJÖF &RÁÐN1NGARÞJÓNUSTA
' TÚNGÖTU 5, 101 REYRJAVfK - PÓSTHÓLF 693 StMI 621322
Fóstrur - takið eftir!
Kópavogsbær rekur tíu dagvistarheimili fyrir
börn, á þeim starfa nú 64 fóstrur. Markmið
okkar er að bjóða börnum uppá þroskandi
uppeldisstarf á vel búnum dagvistarheimilum.
Við höfum þörf fyrir fleiri áhugasamar fóstrur
í lausar stöður á eftirfarandi heimilum:
1. Dagvistarheimilinu Kópasteini, sími
41565.
2. Leikskólanum Fögrubrekku, sími 42560.
3. Dagheimilinu Furugrund, sími 41124.
4. Dagvistarheimilinu Efstahjalla, sími 46150.
5. Skóladagheimilinu Dalbrekku, sími 41750.
6. Dagvistarheimilinu Marbakka, sími 641112.
7. Dagvistarheimilinu Grænatúni, sími 46580.
Hafið samband við forstöðumenn og kynnið
ykkur aðstæður og nýfrágengna kjarasamn-
inga.
Einnig veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar um
störfin í síma 45700.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
23 ára gamall sölumaður með 4ra ára reynslu
óskar eftir vel launuðu starfi. Getur unnið
sjálfstætt. Hefur bíl til umráða.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Sölumaður - 2763“.
Atvinnurekendur
Viðskiptafræðinemi, sem er að Ijúka fyrri
hluta náms, óskar eftir vel launuðu framtí-
ðarstarfi. Sumarvinna kæmi einnig til greina.
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og þó
nokkur reynsla af tölvum.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„A - 4971“ fyrir 28. maí.
Viltu breyta um
starf?
Óskum eftir röskum og samviskusömum
starfskrafti til sendiferða og innheimtustarfa
(ekki sumarstarf). Þarf að hafa bíl til um-
ráða. Kunnátta í gerð tollskýrslna æskileg.
Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf sem
fyrst.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „G - 5096“ fyrir 1/6.
Fiskeldi
Silfurgen hf. óskar að ráða fólk í eftirtalin
störf í strandeldisstöð fyrirtækisins á Reykja-
nesi:
- Einn eldismann, menntun og/eða
reynsla áskilin.
- Tvo eða fleiri vaktmenn til að annast
alla næturvörslu.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist, fyrir 3. júní
nk., til Silfurgens hf., b.t. Sigurður Magnús-
son, Sundaborg 7, 104 Reykjavík.
m
STEYRA
SEM STEIMST
Steypuverksmiója
Vélvirki - rafvirki
Vegna stækkunar verksmiðjunnar óskum við
eftir að ráða vélvirkja og rafvirkja í viðhalds-
deild fyrirtækisins að Suðurhrauni 2,
Garðabæ. Góð vinnuaðstaða og fjölbreytileg
störf, góð laun.
Upplýsingar veitir Georg, í síma 651444
þriðjudaginn 24. maí og föstudaginn 27. maí
frá kl. 10.00-12.00.
Meiraprófsbflstjórar
óskast
BM Vallá hf. óskar að ráða meiraprófsbíl-
stjóra sem vanir eru stórum bílum. Aðeins
traustir og samviskusamir bílstjórar koma til
greina
Upplýsingar veitir Magnús Benediktsson í
símum 67 38 28, 7 31 19 og 985-24301.
B.M. VALLAf