Morgunblaðið - 22.05.1988, Page 57
57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1988
Valentínus Jóns-
son íRéttarholti
Vinur okkar og næsti nágranni
til allmargra ára Valentínus í Rétt-
arholti hefur yfirgefið sviðið. Valli,
eins og hann var jafnan nefndur,
verður öllum minnisstæður, sem
honum voru samferða um lengri eða
skemmri tíma. Þó hann væri borinn
og bamfæddur Reykvíkingur var
hann fyrst og sfðast sveitamaður
og bar svipmót þess umhverfis.
Lífíð tók Valia engum vettlinga-
tökum. Hann missti foreldra sina
bamungur og var þá komið fyrir á
sveitaheimili, fyrst í Ölfusinu en
lengst af í Flóanum. Þar var hann
fram yfír fermingu hjá vandalaus-
um. Vinnan var hans skóli og bless-
aðar skepnumar, einkum sauðkind-
in, kenndu honum að meta og skilja
hjartsiátt sköpunarverksins.
Þar var í Reykjaréttum, sem
þáttaskil urðu í iífi Valla. Þar hitti
hann Ágúst í Ásum og þeir gengu
frá því, að .Valli kæmi til hans í
vinnumennsku. Frá þeirri stundu
var Gnúpveijahreppur í Ámessýslu
heimabyggð hans. Hann var í Ásum
í tíu ár, önnur tíu ár var hann á
Stóra-Núpi, en flutti þá til hjónanna
í Skaftholti. Hann var víðar í sveit-
inni um skemmri tíma. Alls staðar
naut hann sjálfstæðis, átti sinn eig-
in fénað og sinnti honum auk þess
sem hann vann húsbændum sínum
eins og hann sjálfur ætti í hlut.
Hann átti góðar og bjartar minning-
ar um öll þessi heimili. Á vinnu-
mannsámm sínum fór Valli til sjós,
í togarapláss með bróður sínum,
sem var vélstjóri. Einnig vann hann
tímabundið á vefrum sem birgða-
stjóri f ísbiminum.
Þegar Haildór í Skaftholti brá
búi varð vinnumaðurinn að bónda.
Valli festi kaup á jörðinni og það
var ekki lítið afrek hjá manni, sem
hafði verið fátækur, umkomulítill
drengur f Flóanum, að verða eigin
herra í uppsveitunum. Síðar átti
hann eftir að selja hluta Skaftholts-
jarðarinnar og stofna í landi þess
nýbýlið Réttarholt. Um nokkurra
ára bil var hann í fæði og húsnæði
hjá systkinunum f Lækjarbrekku
og þáði þar heimilishlýju.
Valli bjó með kindur í vfðtækasta
skilningi. Hann innréttaði sér iitla
fbúð í hluta fj árhúsbyggingarinnar,
sem hann reisti. Það var honum líkt
að deila lqörum með þessum fer-
fættu vinum sínum enda fóm þar
saman áhugamál hans og lífsfyll-
ing. Valli hafði einnig mikið yndi
af hestum og átti marga úrtöku-
gæðinga.
Stórviðburður í lífi Valla vom
kynni hans af Peter Scott fugla-
firæðingi, þeim kunna vísindamanni
og sjmi landkönnuðarins heims-
fræga. Scott dvaldi hér við rann-
sóknir á heiðagæsinni í Þjórsárver-
um og Valli var honum til aðstoð-
ar. Vfst var að Scott kunni að meta
Valla og var það gagnkvæmt. Hann
bauð honum margoft til utanfarar,
en sá sem gætir sauða sinna á erf-
itt með að koma slíku við. En söm
var gjörðin og mikið giaddi það
hjálparmanninn þegar þessi önn-
umkafni ffæðimaður gaf sér tíma
til að slá á þráðinn til að segja fá-
ein orð úr fjarlægu landi og heyra
í honum hljóðið. Þá talaði hver sitt
tungumál og allt komst til skila,
sem skipti máli.
Það sem auðkenndi Valla öðm
fremur var glaðlyndi og bjartsýni
og ánægja með eigið hlutskipti.
Drægi upp óveðursbliku, þá var það
jafnan fyrirheit og tákn um betri
tíð. Eða eins og Heiðrekur Guð-
mundsson skáld segir á einum stað:
Hann spáði jafnan hláku í hríðar-
gjósti, og höpp sín taldi fram en
ekki gjöld. Við getum tekið undir
með Heiðreki þar sem hann heldur
áfram og segir:
Er suraarblómin voru að fölna og falla,
og flæddu regn, svo draup í húsum inni,
en fulgur stóðu í vatni út um engið,
og ekki nokkur sál með gleðibrag,
ég gekk í hlað og heyrði bóndann kalla
með hlýjum rómi út úr smiðju sinni:
Hve gott er nú að geta næði fengið,
að gera loks við amboð sín í dag.
Ein minning frá sólríkum sumar-
degi í Gnúpveijahreppi er okkur
ofarlega í huga. Valii var að bregða
búi og það var ekki sársaukalaust.
Þá afhenti hann Bjamheiði kannski
það sem honum var einna dýrmæt-
ast, markið sitt, sem hafði tilheyrt
honum áratugum saman og var eitt
besta markið í sveitinni. Markinu
fylgdu mórauð ær og móflekkótt
lamb. Þessari dýru gjöf gleymum
við aldrei.
Valli var ákaflega bamgóður.
Það var jafnan hátíð, þegar krakk-
amir okkar fóru til hans í heim-
sókn. Þau snéru aftur heim sæl og
glöð, nestuð rúsínum og öðru góð-
gæti í miklum mæli. Valli kunni að
næra ímyndunaraflið og spennandi
furðusögur lágu honum á vömm,
enda varðveitti hann vel bamið í
sjálfum sér.
Og nú er hann horfinn héðan,
þrotinn af kröftum. Hvíldin var
honum kærkomin að loknum löng-
um og ströngum degi. Það var hon-
um líkt að staldra við og hverfa
ekki af vettvangi fyrr en sauð-
burðurinn var hafinn. Við sjáum
hann fyrir okkur halda á vit nýrra
verkefna glaðan á svip og með blik
í auga. Biessuð veri minningin um
Valla í Réttarholti. Samúðarkveðjur
til sonar hans og systur og annarra
vina og vandamanna.
Bjamheiður og Sigfinnur
+
Ástkaer móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma,
LÁRA JÓH ANNSDÓTTIR,
Stórageröi 9,
veröur jarösungin frá Frikirkjunni miövikudaginn 25. maí kl. 15.00.
Þórir Óskarsson,
Láretta Bjarnadóttir,
Jóhanna Jónsdóttir,
Guömundur Jónsson
og barnabörn.
t
Útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUÐRÍÐAR SIGURJÓNSDÓTTUR,
H vassaleiti 51,
fer fram frá Dómkirkjunni miövikudaginn 25. maí kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Sigurjón Guðmundsson,
Guðmundur Guömundsson,
Halldór Guðmundsson,
Ólafur Helgi Guðmundsson.
+
Útför móöur okkar,
VILBORGAR JÓRUNNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
frá Hraunl f Dýrafirðl,
fer fram frá Fríkirkjunni i Reykjavík þriðjudaginn 24. mai kl. 13.30.
Jarösett veröur í. Fossvogskirkjugaröi.
F.h. aðstandenda,
Auður Krlstjánsdóttlr,
Sigurjón Kristjánsson,
Mlkael Hrelðarsson.
+
Móðir okkar, amma og langamma,
SIGURLAUG FRIÐJÓNSDÓTTIR,
Langholtsvagi 99,
veröur jarösungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 25. mai kl.
15.00.
Kristjana Jónsdóttir,
Eria Jónsdóttir,
Sigurbjörg Jónsdóttlr,
Elisabet Sveinsdóttir,
Slgurlaug E. Hauksdóttir,
Jón Þór Hauksson,
María Hauksdóttir,
Svelnn Þrastarson
+
Hjartkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og systir,
BINNA BERNDSEN MANN,
sem andaöist 16. þ.m. á heimili sínu í Needham, Mass., Banda-
ríkjunum, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miöviku-
daginn 25. maí nk. kl. 1.30 e.h.
Frederic S. Mann,
William Hendrik og Mary Ann,
Lawrence Bemdsen og Gail,
Steinunn og Björg Berndsen.
+
Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát
og útför
GUÐJÓNS GfSLASONAR.
Karen Gfslason og fjölskylda.
+
Útför stjúpdóttur minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu,
NÍELSÍNU HELGU HÁKONARDÓTTUR,
áður til heimilis á Hofteigi 6,
fer fram frá Fossvogskirkju þríðjudaginn 24. maí kl. 13.30.
Petrfna Narfadóttir,
Þóra Magnúsdóttir, Guðbrandur Valdimarsson,
Hákon Magnússon, Svanhlldur Sigurðardóttir,
Ásbjörg Magnúsdóttir, Bjöm Einarsson,
barnabörn og barnabamaböm.
+
Ástkær móðir okkar, dóttir, tengdamóðir og tengdadóttir,
KOLBRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Skjólbraut 1,
Kópavogi,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. maí kl.
15.00.
Fyrir hönd annarra aöstandenda,
Anna Und Borgþórsdóttir, Birgir R. Ólafsson,
Sigurður R. Borgþórsson, Berglind Borgþórsdóttir,
Anna Gunnlaugsdóttir, Kristján Elfasson,
Kristfn Jóhannsdóttlr.
+
Útför bróöur okkar,
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR
frá Kaldbak,
Ránargötu 6, Reykjavfk,
verður gerö frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 24. maí kl. 13.30.
Amþrúður Jónsdóttir,
Hólmfrfður Jónsdóttir,
Snjólaug Guðrún Jónsdóttir,
Kristfn Friðrika Jónsdóttir,
Egill Jónsson,
Jón Frfmann Jónsson,
Þórhalla Jónsdóttir,
Sigurveig Jónsdóttir Austford.
Eiginmaöur minn, faöir og afi,
VILHJÁLMUR GUÐMUNDSSON
frá Stóra-Nýjabæ,
Krfsuvfk,
veröur jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarfirði þriöjudaginn 24.
mai kl. 15.00.
Ragnhelður Sigurðardóttir,
Sigurður Kristinn Vilhjálmsson, Gunnar Vilhjálmsson,
Ásta Vilhjálmsdóttir
og bamabörn.
+
Bálför föður okkar, fósturfööur, afa og stjúpfööur,
SVEINBJARNAR FRIÐFINNSSONAR,
sem lóst 16. maí, veröur gerð fró Fossvogskirkju þriöjudaginn
24. maí kl. 10.30. Blóm og kransar afþökkuö.
Fyrir hönd aöstandenda,
Þórunn Sveinbjamardóttir,
Guðmundur B. Sveinbjamarson,
Guðrún Guömundsdóttir,
Bima Garðarsdóttlr,
Birglr Óttóssson.
+
Sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KRISTBJÖRG BJARNADÓTTIR,
Austurbrún 6,
Reykjavfk,
verður jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 25. maí kl.
13.30.
Hjalti Einarsson,
indriði E. Baldvinsson, Karólfna Ingólfsdóttir,
Dfana Sjöfn Garðarsdóttir, Sigurður Jónsson,
Steinunn Garðarsdóttir, Guðmundur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúö og vinóttu viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR ÞORMÓÐSDÓTTUR.
Pétur Haraldsson, Halldóra Hermannsdóttir,
Guðbjörg Haraldsdóttir Bay, Axel Bay,
Þormóður Haraldsson, Agústa Jónsdóttir,
barnabörn og bamabarnabörn.