Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 Gróðursett í Fossvogi ALLT að 600 tré verða gróður- sett í Fossvogsdal, f landi Kópa- vogs kl. 17:30 í dag, fimmtudag. Það eru fyrirtœki og félagasam- tök f Kópavogi, sem gefa trén og er tilgangurinn með gróður- setningunni meðal annars að efla samstöðu um dalinn, sem útivistarsvæði, segir i frétt frá bæjarstjórn Kópavogs og undir- búningsnefndar að samtökum um lff f Fossvogsdal. f fréttinni kemur fram að Foss- vogsdalur hafí um nokkurra ára skeið verið bitbein bæjaryfirvalda í Kópavogi og Reykjavík, þar sem þeir fyrmefndu hafa lagt áherslu á útivistarsvæði í dalnum en borg- aryfirvöld vilji leggja þar hrað- braut. í undirbúningi er stofnun íbúa- samtaka um líf í Fossvogsdal og hafa á þriðja hundrað manns skráð sig til þátttöku en það er undirbún- ingsnefndin og bæjarstjóm Kópa- vogs sem standa að gróðursetning- unni. Gróðursetningur.ni verður stjómað frá Snælandsskóla og eru þeir, sem áhuga hafa beðnir um að koma þangað. Verkfæri verða á staðnum. Forsvarsmenn frystihúsa um verðlækkunina vestra: Tekjurnar minnka þó tilkostnaðurinn aukist VEÐUR FORSVARSMÖNNUM frystihúsa, sem Morgunblaðið ræddi við, ber saman um að nýasta verðlækkunin á þorskflökum á Bandaríkjamarkaði sé mjög alvarleg tíðindi, þar sem verð á afurðum lækki stöðugt en allur kostnaður innanlands farið hækkandi. Enn væri ekki séð fyrir endan á verðlækkuninni og því gæti ástandið enn átt eftir að versna og hár fjármagnskostnaður innanlands væri að buga fyrirtækin. Á mánudag féllst Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna á 30 senta verðlækkun á þorskflökum til veitingahúsakeðjurnar Long John Silver’s. framkvæmdastjóri Fiskiðjusam- lagsins á Húsavík. „Hér er um að ræða verulegan hluta af flaká- sölunni á Bandaríkjamarkaði, kannski of stóran, sem hefur sín áhrif.“ I máli Tryggva kemur fram að þessi verðlækkun gildi fyrir þriðja ársfjórðung þessa árs, sem nú er nýhafmn, og reiknar hann með að þetta lága verð haldist út árið. „Við erum með stóran hluta okk- ar þorskframleiðslu á Bandaríkja- markað og þessi verðþróun gerir það að verkum að við verðum að breyta framleiðsluáætlunum okk- ar.“ segir Tryggvi. „Það bætir held- ur ekki úr skák að staða frystingar- innar almennt var mjög erfið fyrir sem veldur því að hún er verr en ella i stakk búin að mæta þessu.“ Tryggvi Finnsson Húsavík: Alvarlegt áfall „ÞETTA er að sjálfsögðu alvar- legt áfall fyrir okkur einkum þegar haft er í huga að á sama tíma og þessi verðlækkun verður er verðbólgan á uppleið hér inn- anlands.“ segir Tryggvi Finnsson fjárfestinga innan lands, sem ekki tengjast á nokkurn hátt útflutningi og krefjast jafnvel aukins innflutn- ings, en við, sem öflum gjaldeyris- ins fáum ekki erlend lán nema með miklum eftirgangsmunum og þá með 6% skatti. Við þurfum semsagt að borga ríkinu skatt af þeim gjald- eyri, sem við öflum. Þetta er auðvit- að forkastanlegt og getur ekki átt nokkum rétt á sér,“ sagði Finnbogi. Gísli Jónatans- son Fáskrúðsfirði: Máttum ekki við þessu „Það er Ijóst að lækkunin á flök- unum hefur afgerandi þýðingu fyrir rekstur okkar og raunar má segja að miðað við stöðuna í dag máttum við alls ekki við þessu.“ segir Gísli Jónatansson kaupfélagsstjóri á Fáskrúðsfirði í samtali við Morgunblaðið. „Okkar framleiðsla er að stórum hluta á Bandaríkjamarkað og því komum við verr út úr dæminu VEÐURHORFUR / DAG, 23. JUNl 1988 YFIRLIT í QÆR: Yfir landinu vestanverðu er 990 mb lægð á norö- austurieið og önnur álíka djúp um 600 km suösuövestur af Hvarfi einnig á noröausturleiö. SPÁ: Þann 23. júní veröur suðlæg átt á landinu, viðast kaldi, súld eða rigning sunnan- og vestanlands en bjart veöur norðan- og austanlands fram eftir degi en þykknar þá upp þar. Hiti 8—16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUOAG OG LAUGARDAG: Suð- og suðvestlægar áttir meö rigningu eða skúrum- sunnan og vestanlands en að mestu þurrt á Norðausturlandi. Hiti 8—15 stig. x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / / * / * Slydda / * / # * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius \J Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða Súld 9 OO Mistur _Skafrenningur Í7 Þrumuveður w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti v*Sur Akureyri 11 skýjaó Reykiavík 8 skúr á sti. klst Björvin 12 skýjað Halsinki 18 léttskýjað Jan Mayen 3 súld Kaupmannah. 20. hálfskýjað Narssarssuaq 10 úrkoma í gr. Nuuk 9 helðskírt Ósló 24 léttskýjað Stokkhólmur 22 hálfskýjað Þórshöfn 10 léttskýjað Algarve 22 téttskýjað Amsterdam 17 rigning Aþena vantar Barcelona 23 mistur Chicago vantar Feneyjar 21 skýjað Frankfurt 21 skýjað Glasgow 13 skýjað Hamborg 18 léttskýjað Las Palmas vantar London 21 mlstur Los Angeles 19 heiðskfrt Lúxemborg 19 hálfskýjað Madrid 21 skúr Malaga vantar Mallorca 26 heiðskfrt Montreal 26 skýjað New York 32 mistur Parfs 24 skýjað Róm 23 lóttskýjað San Diego 21 heiðskírt Winnipeg 30 léttskýjað Finnbogi Jónsson, Neskaupstað: Eigum ekkert til mögru áranna „DÆMIÐ lítur einfaldlega hroðaiega út. Verð á afurðunum lækkar stöðugt, en allur kostnað- ur innan lands hækkar. Fjár- magnskostnaðurinn er að buga okkur, við fáum ekki að taka erlend lán, sem eru mun hag- stæðari en innlend. 5% hækkun lánskjaravísitölunnar um mán- aðamótin hækkar skuldir okkar um 20 milljónir króna á einum mánuði. Svona getur þetta ekki gengið,“ sagði Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnsl- unnar í Neskaupstað. Finnbogi sagði, að með síðustu verðlækkunum væri hagurinn af gengislækkununum rokinn út í veð- ur og vind. Því hlyti heimildin til 3% gengissigs að verða notuð á næstunni, helzt strax. Þó hún væri lítil munaði um hana og bið eftir henni bætti stöðuna sannarlega ekki. Vegna lækkunar dollarsins meðan afurðaverðið hefið haldizt sem hæst, hefði ávinningur af því orðið nánast enginn og ekkert væri nú til til mögru áranna. Tap af frystingu væri umtalsvert, en salt- fiskverkun stæði í járnum. Lítil teikn væru um bætta stöðu, allur kostnaður innan lands hækkaði og fiskvinnslunni væri neitað um hag- stæð, erlend lán. „Við fáum ekki að færa innlendu lánin yfir í erlenda mynt,“ sagði Finnbogi. „Það er okkur mun hag- stæðara og í raun og veru er það furðulegt að fyrirtæki í útflutningi skuli ekki fá að taka erlend lán í samræmi við útflutning. Heimilt hefur verið að taka erlend lán til en margir aðrir.“ í máli Gísla kemur fram að fryst- ingin hjá þeim hafí verið rekin með umtalsverðu tapi að undanfömu og hafi þessi þróun mála síst bætt þá stöðu. „Maður sér ekki fram á hvemig fyrirtækin geta bætt sér þetta tap upp. Ekki er möguleiki að ná niður xostnaði hér innanlands énda er hann bundinn hvað varðar hráefhis- verð og vinnulaun og tapreksturinn gefur okkur lítið sem ekkert svigr- úm til að draga saman á öðram sviðum." segir Gísli. Jón Páll Halldórs- son, ísafirði: Váleg tíðindi „ÞESSI verðlækkun er váleg tiðindi fyrir alla, sem að fryst- ingu flaka fyrir Long John Sil- ver’s standa. Hið háa verð, sem við lýði var, er nú að koma okk- ur í koll. Markaðsaðstæður neyddu okkur til að hækka verð- ið, en sú hækkun hélt ekki,“ sagði Jón Páll Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Norðurtangans á ísafirði. Jón Páll sagði ennfremur, að það versta við þessa þróun væri, að enn væri ekki séð fyrir endann á henni. Blokkin væri nú seld héðan á 1,50 dollara, en Kanadamenn byðu hana á 1,35. Menn teldu sig vera að fram- leiða vöra fyrir ákveðið markaðs- verð, en þegar að sölu kæmi gæti það verð hafa lækkað. Því væri erfítt að gera sér grein fyrir því hve mikið tapið væri af tekjum frystingarinnar, en það væri um- talsvert. Auk verðlækkana, stig- magnaðist allur framleiðslukostn- aður heima fyrir í vaxandi verð- bólgu og vaxtabyrðin væri nær óbærileg. Á sama tíma stæðu tekj- urnar í bezta falli í stað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.