Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
45
Forg'öngnmaður um minnismerki
hrapaðra o g drukknaðra í
minningu Páls Oddgeirssonar
eftir Einar J.
Gíslason
Minningarorð, flutt á sjó-
mannadag, 5. júní 1988, við minn-
isvarða drukknaðra og hrapaðra
og þeirra er farist hafa í flugslys-
um við Eyjar.
Frumkvöðull minnisvarðans,
Páll Oddgeirsson, á 100 ára fræð-
ingardag 5. júní 1988. Hann
fæddist í Kálfholti í Rangárvalla-
sýslu, en þar bjuggu foreldrar
hans þá, hjónin Oddgeir Guð-
mundsson sóknarprestur og kona
hans, Anna Guðmundsdóttir. 29
ágúst, á höfuðdag 1889, var séra
Oddgeiri veitt Ofanleitispre-
stakall, sem hann þjónaði við mik-
inn orðstír í 35 ár. Páll flutti því
með foreldrum sínum til Eyja lið-
lega ársgamall og lifði hér öll sín
bemsku- og manndómsár. Hér
kvæntist hann Matthildi ísleifs-
dóttur frá Kirkjubæ, mikilhæfri
og fallegri konu. Heimiii þeirra
stóð lengst af í Miðgarði við Vest-
mannabraut. Þeim var fímm
bama auðið, er öll lifa foreldra
sína. Þau eru Richard, ísleifur og
Oddgeir og systumar Anna
Regína og Bergljót. Em þeim
systkinum öllum sendar kveðjur
héðan á 100 ára fæðingarhátíð
föður þeirra á sjómannadeginum
í Vestmannaeyjum.
Páll var með glæsilegri mönn-
um að vallarsýn, hár, grannur og
sterkur. Góður ræðumaður, sem
Oddgeir faðir hans. Kristján í
Klöpp Ingimundarson var hringj-
ari við Landakirkju í 40 ár, í tíð
Páll Oddgeirsson
fjögurra presta. Taldi hann séra
Oddgeir þeirra fremstan sem
ræðumaður. Páll var mikill hug-
sjónamaður og í mörgu langt á
undan sinni samtíð. Hann byrjaði
ræktun á Heimaey, með túni, fyr-
ir ofan kirkjugarðinn, síðar Odd-
geirshóla, þar á eftir Breiða-
bakka, suður í Klauf. Hann byggði
verslunarstórhýsi við Bámgötu.
Þar rak hann verslun um árabil.
Svo mætti lengi telja. Ekkert
mannlegt var Páli óviðkomandi.
Hann rak útgerð um árabil og
hafði dugnaðar formenn, sem
öfluðu mikið, Kristin Magnússon
Ljósmyndir Sigurgeir í Eyjum
Minnismerki Guðmundar frá Miðdal um hrapaða og drukknaða
I Vestmannaeyj um.
frá Sólvangi er stýrði Herjólfí, og
Guðna Jóhannsson er stýrði
Heimakletti.
Eg var 12 ára gamall drengur
á þjóðhátíð í Heijólfsdal 11. ágúst
1935, sá dagur bar upp á afmæli
séra Oddgeirs, en hann var fædd-
ur 11. ágúst 1849. Ég hafði þá
næmi fyrir flutningi hins talaða
orðs. Hlustaði alltaf með athygli
á séra Jes Gíslason og Pál Odd-
geirsson. Þennan dag stofnaði
Páll sjóð, sem átti að kosta og
reisa minnismerki um dmkknaða
sjómenn og hrapaða í björgum.
Páll var að tala fyrir minni um
þá er gista hina vatu gröf. Síðar
var þeim bætt við er farist hafa
í flugslysum.
í mikilli kreppu og fátækt al-
mennings lifði hugsjón Páls. Hann
stóð í fylkingarbijósti og bar mikl-
ar byrðar einn, en studdur af
Þorsteini í Laufási, Runólfí Jó-
hannssyni, Kristjáni Linnet, Gísla
Wíum og Kristofer Guðjónssyni,
ásamt flölda Eyjabúa. Heil 16 ár
tók að koma þessari hugsjón Páls
í framkvæmd, með þrotlausri bar-
áttu og streði. Páll stóð alltaf í
fylkingarbijósti. Hann efndi til
hlutaveltu og fékk til liðs við sig
Jóhannes Kjarval, sem gaf vandað
málverk til happdrættis. Vinning-
inn fékk kona búsett í Eyjum.
Páll leitaði til Guðmundar Einars-
sonar frá Miðdal og fékk hann til
að teikna minnismerkið. Guð-
mundur er eins og kunnugt er
faðir Errós, hins heimsfræga
listamanns. Páll var höfðingi og
sókndjarfur og gerði það, sem
enginn annar gat gert.
Mikið var rætt um staðarval
minnismerkisins. Páll hafði ávallt
augastað á þessum stað, studdur
af Ólafí Kristjánssyni þáverandi
bæjarstjóra og sóknamefnd
Landakirkju.
Sunnudagurinn 21. október
1951 rann upp bjartur og fagur.
Halldór Kolbeins, sóknarprestur-
inn í Landakirkju, prédikaði og
minntist sjómanna. Kikjukórinn
söng. Kirkjan var setin til
þrengsla. Eftir lok guðsþjón-
ustunnar safnaðist fólk saman við
minnisvarðann. Þórdís Guðjóns-
dóttir frá Svanhól er misst hafði
4 bræður sína í sjóinn, sjálf gift
sjómanni, valmenninu Sigurði
Bjamasyni formanni frá Svanhóli,
afhjúpaði minnismerkið, sem blas-
ir við öllum Eyjabúum. Páll Odd-
geirsson hélt vígsluræðuna. Hélt
hann sér við efnið og kom víða
við. Var ræða hans flutt af inni-
leik og skörungsskap. Ræðan og
það, sem snertir vígsluna, er
prentað í minningarritinu, sem
Páll gaf út. Það var prentað í
Prentsmiðjunni Eyrún í Vest-
mannaeyjum árið 1952. Þetta
stórmerka rit er nú í fárra eigu
og ófáanlegt með öliu. Sjómanna-
samtök Eyja ættu að endurprenta
ritið og gefa það út, til heiðurs
við_ höfundinn Pál Oddgeirsson.
í upphafí ræðu sinnar fór Páll
með versið:
,Þú Guð míns lífs, ég loka augum mínum.
I líknarmildum föðurörmum þínum.
Og hvíli sætt, þótt hverfi sólin bjarta,
ég halla mér að þínu fóður hjarta."
Eftir að Páll hafði vígt minnis-
merkið talaði Ólafur Kristjánsson
þáverandi bæjarstjóri, þar á eftir
talaði Steingrímur Benediktsson
skólakennari og sóknarnefndar-
maður Landakirkju. Eftir afhjúp-
un, söng og ræðuhöld voru lagðir
blómsveigar að fótstalli minnis-
merkisins og hefir svo verið gert
í 37 ár.
Hér í dag blessum við þetta
framtak Páls Oddgeirssonar og
heiðrum minningu hans og send-
um kveðjur héðan á sjómannadeg-
inum til barna hans og eftirlifandi
ástvina.
J, t\ 1 i
^2 5 i\r \A & F
y \á cte ■jz
V3 rr &± oa L5' i£x EJ 57
nV | o r*® ijjf I ,\a » »
Y~ j* e Bjj r—i pí ba; K
\s a? r* ■
_ \ jts Fí kcv sr
r □ Lgjg n yC
rz |vS ðs
■r.r.rc [n rz JÖ
t ; Uj 5] pn
j I
II ■ B fl ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ m ■ ■ ■ m ■ ■ Ifll
mTwmyTmwywrwwrwwmnmi
i t i i l n l «1 t
VIII
N óa íí irji % . Í3b<! )
□r
[©JPerstorpForm
JES) V£3 J~* ^jVJ
Staður fyrir hvern hlut og
hver hlutur á sínum stað
HANDHÆGAR OG MEÐFÆRILEGAR
PLASTSKÚFFUR FYRIR
LAGER/NN, BÍLSKÚRINN, GEYMSLUNA,
SKRIFSTOFUNA OGALLA HINA STAÐINA.
MASMIUJUI
HÁTEIGSVEGI 7,105 R. S. 21220