Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
Sveinn Stefáns-
son — Minning
Kjúklinga-
Ævintýri!
* 439.0 (
Heitur matur í hádeginu.
Hamborgarar
með brauði 40 °°Pr stk-
Fjölskyldupakkning
Kjúklingar í gríllpakka
tilbúnir á grillið!
Gríllaðir kjúklingar
alla eítirmiðdaga!
GRILLKOL
SANITAS
KYNNING:
Pepsi • Appelsín • 7up
2 lítrar
á AÐEINS
119»3^129
00
Fæddur 20. júlí 1986
Dáinn 13. júní 1988
Fimmtudaginn 23. júní er lagður
til hinstu hvílu eftir mikil veikindi
elsku litla ömmubamið okkar,
Sveinn Stefánsson, sonur bama
okkar ' Stefáns Sveinssonar og
Díönu Sigurðardóttur. Þó Sveinn
ætti ekki langa ævi skilur hann
eftir stórt skarð í hjörtum okkar.
Svo fátækur er nú hann faðir þinn,
hann finnur ei nokkurt blóm
að kveðja með einkasoninn sinn,
er senn á að ieggjast í moldu.
Svo hrollir við hörðum dóm.
Hún móðir þín gengur með grátna kinn
og getur ei yndi fest.
Svo döpur kyssir hún drenginn sinn,
sem dó burt með vonir svo margar,
og ætíð unni hún mest
Nú fagni þér guð og geymi þig vel
pg gefi sér blómin sín.
I Drottins hendur minn dýrgrip ég fel.
Hann deyfi eggjamar sára.
Svo lif þú þars lífið ei dvín.
(Hannes Hafstein)
Alla amma og Rúna arnma.
Hví fóinar jurtin fríða
og feliir bióm svo skjótt?
Hví sveipar bamið blíða
svo brátt hin dimma nótt?
Hví verður von og yndi
svo varpað niður í gröf?
Hví berst svo burt í skyndi
hin lífsins besta gjöf?
Svo spyijum vér en vonum
þó vísdóms Drottins á
og hugsum sæl hjá honum
vor hjartkær bömin smá.
EINSTAKT
EFNl TIL
RAKAVARNAR
polp
last
Byggingaplastið með rauðu
röndinni
• Þolir raka, loft og hita margfalt á við önnur sam-
bærileg efni.
• Þróað í samvinnu við Rannóknastofnun
byggingariðnaðarins.
• Tíföld ending.
Þolplast frá Plastprenti -
þar sem rakavarnar er þörf.
|
S
■S
£
!
£
(A
iS
3.
£
%•
£
!
£
I
£
f
£
V)
I
£
t Plastprent hf.
^ Fosshálsi T7-25,sími 685600
Þótt hrelling herði að brjósti
. vér huggumst við þá trú
í bestu fóðurfóstri
þau falin séu nú.
Það friði og firri harmi
þá foreldra sem hér
sér barma á grafar barmi
er bamið dáið er,
og fyrirheit vors Herra
þeim hjartans græði sár,
það heit að hann mun þerra
á himnum öll vor tár.
Já, sefist sorg og tregi
þér saknendur við gröf,
því týnd er yður eigi
hin yndislega gjöf.
Hún hvarf frá synd og heimi
til himins - fagnið því
svo hana Guð þar geymi
og gefi fegri á ný.
(Bjöm Halldórsson frá Laufási)
Sendum ykkur okkar dýpstu
samúðarkveðjur, elsku Díana, Stef-
án, Aðalbjörg og Sandra.
Föðursystkini og fjölskyldur.
í dag verður elsku litli Svenni
okkar borinn til hinstu hvíldar.
Sveinn var sonur hjónanna Díönu
Sigurðardóttur og Stefáns Sveins-
sonar. Hann var yngstur þriggja
bama og eini sonurinn.
Þegar Sveinn var á áttunda mán-
uði fór að bera á veikindum sem
fóru vaxandi eftir því sem hann
eltist. Þurfti hann eftir það að verja
tímanum mikið á sjúkrahúsi. Þessi
bjarteygði snáði varð því að reyna
mikið á sinni stuttu ævi. Nú hefur
Svenni litli fengið sína hvíld en
hann skilur eftir bjarta minningu
sem mun lifa í hjörtum okkar.
Blundar þú vinur, í síðasta sinn
sat ég við hvíluna þína.
Strauk ég um höfuð þitt, kvöld var þín kinn
kringum þig elskaði drengurinn minn
breiddi ég_ bænina mína.
(Guðrún Ámadóttir frá Oddsstöðum)
Elsku Díana, Stefán, Aðalbjörg
og Sandra Dögg, megi góður guð
geyma litla drenginn ykkar og
styrkja ykkur og styðja í sorg ykk-
ar.
Soffía og Jón
Hví var þessi beður búinn,
bamið kæra þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(Bjöm Halldórsson
Elsku Díana, Stefán, Aðalbjörg
og Sandra Dögg, megi Guð styrkja
ykkur gegnum sorgina.
Blessuð sé minning Sveins litla.
Guð geymi hann.
Starfsfólkið Álfalandi 6.
Minning:
Sigurður Gísla-
son hótelstfóri
Vinur minn, Sigurður Svavar
Gíslason, fyrrverandi hótelstjóri á
Hótel Borg, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag. Kynni okkar
Sigurðar hófust þegar ég byijaði
sem vikadrengur á Hótel Borg, 12
ára gamall. Hann var þá yfírþjónn
á hótelinu og þegar ég þremur árum
síðar fór að læra til þjóns á Hótel
Borg varð hann yfirmaður minn og
lærifaðir. Það var hjá Sigurði sem
ég fékk mína eldskírn sem fram-
reiðslumaður og hef ég búið að því
alla tíð síðan. A þessum árum var
Hótel Borg glæsilegasti og virðu-
legasti veitingastaður borgarinnar.
Þar voru allar opinberar veislur
haldnar svo og veislur fyrir erlenda
þjóðhöfðingja. Sigurður hafði veg
og vanda af þessum veislum og var
mjög lærdómsríkt að starfa undir
hans stjóm við þessi tækifæri.
Mörgum árum síðar, þegar ég
tók við rekstri Hótel Borgar, var
Sigurður þar enn við störf, og hafði
þá verið hótelstjóri þar um margra
ára skeið. Samstarf okkar hófst þá
aftur og á síðustu árum hafði Sig-
urður yfírumsjón með ráðherrabú-
staðnum við Tjamargötu, sem um
áratuga skeið hefur verið hluti af
rekstri Hótel Borgar. Með þessum
fátæklegu orðum langar mig til að
kveðja þennan ágæta samstarfs-
mann hinstu kveðju og þakka hon-
um samfylgdina á meðan hann lifði.
Um leið og ég votta minningu Sig-
urðar virðingu mína votta ég hans
nánustu samúð mina við fráfall
^anS' Ólafur Laufdal
Okkur setti hljóð sunnudaginn 12.
júní síðastliðinn er við fréttum að
vinur okkar og samstarfsmaður Sig-
urður Gislason hefði látist kvöldinu
áður.
Sigurður, eða Siggi Gísla eins og
við kölluðum hann alltaf, var í okkar
huga einn virtasti starfsmaður Hót-
els Borgar og gátum við alltaf leitað
til hans með öil okkar vandamál sem
upp komu, enda hafði hann áratuga
reynslu í veitinga- og hótelrekstri.
Sagt er að maður komi í manns stað
en við sem vorum þeirrar ánægju
aðnjótandi að starfa með honum eig-
um erfítt með að trúa því. Hann átti
engan sinn líka.
Sigurður starfaði á Hótel Borg
allt til dauðadags og stundaði hann
sína vinnu ávallt með sóma. Það er
svo margs að minnast en orðin
megna svo lítils á slíkum sorgar-
stundum.
Nú er Sigurður horfínn handan
við móðuna miklu og viljum við trúa
því að honum líði vel þar.
Við viljum biðja góðan guð að
styrkja sambýliskonu Sigurðar, Ól-
öfu Runólfsdóttur, og fjölskyldu í
þessari miklu sorg. Guð blessi ykkur.
Starfsfólk Hótels Borgar