Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 65 EVRÓPUKEPPN Reuter Oleg Protaesow sést hér fagna marki sínu, 1:0, gegn ítölum. Paulo Maldini (8) kom engum vömum við. Öllum brögðum beitt! Áhorfendur á leilq'um í Evrópukeppni landsliða hafa ýmis ráð til að hvetja sína menn. Sové- skir áhorfendur hengdu m.a. upp myndir Karl Marx og Friedrich Eng- els, en ítalskur knatt- spymuáhugamaður steytir hnefann. Sovét- mönn höfðu betur í leiknum og mæta Hol- lendingum í úrslitaleik keppninnar á sunnu- dag. Reuter Sigur Hollendinga á V-Þjóðverjum: 22. júní verður ritað- ur með gylltu letri HOLLENDINGAR voru að vonum ánægðir með sigur sinn á knattspyrnuvellinum á þriðjudaginn er þelr sigruðu V-Þjóðverja 2-1 í undanúrslit- um Evrópukeppninnar. Hol- lenskir íþróttafréttamenn létu i það skína að loksins hefði tekist að hefna fyrir ósigurinn í úrslitaleik heims- meistarakeppninnar 1974, þegar Þjóðverjar báru sigur úr býtum. riðjudagurinn 22. júní 1988 verður ritaður með gylltu letri í dagbækur allra hollenskra knattspymuáhugamanna, sagði í hollenska dagblaðinu De Telegraf, og í Algemeen Dagblad sagði að leikurinn hefði verið „þýsk mar- tröð“. Önnur dgblöð slógu upp fyrirsögnum eins og „Hefnd að lokum" og „Loksins náðum við þeim“. I miðbæ Amsterdam var krökkt af fólki, sem í gleði sinni yfir sigr- inum, söng og þeytti bflflautur langt fram eftir morgni. Einn aðdáandi liðsins sagðist hafa beð- ið eftir þessum sigri í 14 ár, og annar, 40 ára gamall, sagði að það það hefði hríslast um sig vell- íðunartilfmning þegar leiknum lauk. Þrátt fyrir mikinn fögnuð manna á götum úti fór allt vel fram. 19 8 8 I LANDSLIÐA " Miklir yfirburðir Sovétmanna Mæta Hollendingum í úrslitum á Ólympíuleikvanginum í Munchen SOVÉTMENN tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í Evrópukeppni landsliða gegn Hollendingum. Sovétmenn unnu öruggan sig- ur á ítölum, léku af krafti og hið fríska lið Ítalíu, átti aldrei möguleika. Mörkin tvö sem réðu úrslitum komu þó bæði í síðari hálfleik — með þriggja mínútna millibili. Sovétmenn mættu til leiks fullir af sjálfstrausti og léku af krafti og öryggi. ítalir, sem hafa verið með eitt frískasta lið keppn- innar, voru hinsvegar ragir og sókn- armenn liðsins náðu sér ekki á strik gegn sterkri vöm Sovétmanna. Mörkin tvö komu þó ekki fyrr en fimmtán mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Gennady Litov- chenko skoraði -fyrra markið eftir að hafa komist einn í gegn. Skot hans fór í vamarmann, en Litov- chenko náði boltanum aftur og skoraði af öryggi. Þetta mark jók enn sjálfstraust Sovétmanna og þremur mínútum síðar mátti Walter Zenga hirða boltann aftur úr netinu. Þá skoraði Oleg Protasov annað markið, eftir sendingu frá Alexander Zavarov. Leikurinn var nokkuð harður og blautur völlurinn varð ekki til að draga úr Ijótum brotum. Sex leik- menn fengu gul spjöld, þrír í hvoru liði. Oleg Kuznetsov fékk gult spjald fyrir brot á Gianluca Vialli. Þar með er hann úr leik fyrir úrslitaleik- inn gegn Hollendingum því þetta var annað gula spjald hans í keppn- inni. „Besti leikur okkarí* „Þetta var besti leikur okkar í keppninni og við komum til að sigra. Við vorum mun betri en ítal- I TONI Schumacher, fyrrum landsliðsmarkvörður V-Þjóðverja, fór í mikla fýluferð þegar hann ætlaði að heilsa upp á vin sinn, sovézka markvörðinn Rinat Dassajev, í herbúðum Sovét- manna. Verðir stöðvuðu hann og sögðu honum, að Lobanovsky þjálfari sovézka iiðsins hefði lagt blátt bann við því að hleypa ein- hveijum óviðkomandi inn. Schum- acher brást reiður við og ias yfir þeim nokkur grundvallaratriði í umbótastefnu Gorbatsjovs en hvarf síðan á brott í fússi. Lobanov- sky er þekktur fyrir jámaga og það að segja sem minnst við blaða- menn. I MICEHL Vautrot frá Frakklandi mun dæma úrslitaleik- inn í EM. Línuverðir verða landar hans, Gerard Biguet og Rem Harrel. ■ STARFSMENN í verslunum í Hollandi hafa óskað eftir því að verslunum verði lokað á laugardag- inn, til að þeir geti farið heim til að sjá beina útsendingu frá úrslita- leiknum - leik Hollands og Sov- étríkjanna. ir í þessum leik,“ sagði Valery Lo- banovsky, þjálfari sovéska lands- liðsins, eftir leikmn. „Fram að þess- um leik höfðu ítalir pressað and- stæðinga sína og við ákváðum að beita þá sömu tækni.“ Igor Belanov lék ekki með sovéska liðinu: „Hann var tilbúinn fyrir leik- inn, en við höfum það fyrir reglu að nota aðeins fullfríska leikmenn," sagði Lobanovsky. Þjálfari ítalska liðsins, Azeglio Vic- ini, játaði sig sigraðan eftir leikinn: „Við vorum hræddir um að þetta yrði erfiður leikur. Sovétmenn leika sem ein sterk heild og eru mjög sterkir líkamlega. Þetta voru sann- gjöm úrslit, en ef við hefðum nýtt þessi þijú færi sem við fengum þá hefði leikurinn getað endað á annan veg.“ Urslitaleikurinn, milli Sovétríkj- anna og Hollands, fer fram á laug- ardaginn á Ólympíuleikvanginum í Miinchen. Sovétríkin- Ítalía 2 : 0 Evrópukeppni landsliða í knattspymu, Neckar leikvangurinn í Stuttgart, mið- vikudaginn 22. júní 1988. Mörk Sovétríkjanna: Gennady Litov- chenko (60.), Oleg Protasov (63.) Dómarí: Alexis Ponnet frá Belgíu. Gul spjöld: Oleg Kuznetsov, Vladimar Bessonov, Sergei Gotsmanov, Sov- étrílgunum. Franco Baresi, Femando de Napoli, Riccardo Ferri, frá Ítalíu. Áhorfendur: 70.000. Lið Sovétríkjanna: Rinat Dassajev, Vagiz Khidiatullin, Vladimir Bessonov (Anatoly Demjanenko 36. mín.), Oleg Kuznetsov, Gennady Litovchenko, Ser- gei Gotsmanov, Alexei Mikhailioc- henko, Sergei Aleininkov, Alexander Zavarov, Vasily Rats, Oleg Protasov. Lið Ítalíu: Walter Zenga, Franco Bar- esi, Giuseppe Bergomi, Riccardo Ferri, Paolo Maldini (Luigi De Agostini 65. mín.), Roberto Donadoni, Femando de Napoli, Carlo Ancelotti, Giuseppe Giannini, Roberto Mancini (Alessandro Altobelli 46. mín.), Gianluca Vialli. H ÞÝZKU blöðin viðurkenna að Hollendingar hefðu einfaldlega verið betri í leiknum við V-Þjóð- verja og að Þjóðveijamir hefðu dregið sig of mikið aftur eftir að hafa skorað. „Hollendingarnir voru skemmtilegri, tæknilega betri og leiknari", sagði þjálfarinn heims- kunni, Udo Lattek og margir aðrir knattspymusérfræðingar tóku í sama streng. Þó eru flestir á þeirri skoðun, að Þjóðveijarnir hefðu unnið, ef þeir hefðu ekki fengið á sig vítaspymuna umdeildu. ■ FRANZ Beckenbauer þjálf- ari v-þýzka landsliðsins var sveittur og taugaóstyrkur á blaðamanna- fundi eftir leik liðsins við Hollend- ■IHBI inga. „Við vorum FráJóni betri aðilinn en dóm- Halidóri arinn eyðilagði allt“, Garðarsynii sagði Beckenbauer V-Þýskalandi & ... en fair vom sam- mála honum. ■ MATTHIAS Herget sleit vöðvaþráð í nára í leiknum og verð- ur sex vikur frá keppni. ■ PIERRE Littbarski var í byijunarliði því, sem Beckenbauer hafði gefið upp fyrir leikinn gegn Hollendingum, en var síðan uppálagt að segjast hafa maga- kveisu til þess að Frank Mill gæti leikið í hans stað. Með þessu vildi Beckenbauer koma Hollending- unum í opna skjöldu og hefur mörg- um , meðal annars Rinus Michels þjálfara þeirra, þótt þetta óþverra- bragð af hans hálfu. Frank MUl hefur viðurkennt, að þegar á mánu- dag hafi verið ákveðið, að hann ætti að leika en Littbarski varð ákaflega óhress með að fá ekki að vera í byijunarliðinu. ■ VICINI, þjálfari ítalska liðs- ins, segir að ef hann talaði jafnlítið við blaðamenn og Lobanovsky þjálfari Sovétmanna, yrði ekki tek- ið neitt mark á honum og álitið að hann hefði ekkert vit á knatt- spymu. Þess vegna kysi hann að hafa sem mesta samvinnu við blaða- menn. ■ TACCONI, varamarkvörður ítalska landsliðsins, flaug í skyndi til Ítalíu í kjölfar þess að brotist var inn á heimili hans og stolið fyr- ir um eina og hálfa milljón ísl. kr. Tacconi mætti síðan aftur til V- Þýskalands, fyrir leikinn gegn Sovétmönnum. Námskeið í ræðumennsku, fundarsköpum og hópstarfi íþróttabandalag Reykjavíkur heldur námskeið um ræðumennsku, fundar- sköp og hópstarf fyrir leiðtoga og leið- beinendur íþróttafélaganna í Reykjavík. Námskeiðið verður haldið í húsakynn- um Í.B.R., íþróttamiðstöðinni í Laugar- dal, dagana 27. og 30. júní frá kl. 18.00 til 22.00. Þátttökugjald er ekkert. Tilkynna ber þátttöku til skrifstofu Í.B.R. í síma 35850.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.