Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
Framkvæmdir við f lug-
völlinn spilla fyrir varpi
Flóðin í vor eyðilögðu hreiður fugla í hólmunum nema æðar
VARP allra fugla í hólmunum sunnan Akureyrarflugvallar að æðarkoll-
unni undanskilinni hefur að likindum spillst í flóðunum í Eyjafjarðará
fyrr í þessum mánuði. Að óbreyttu munu framkvæmdir við breikkun
öryggissvæða í kringum flugbrautina þó valda enn meiri usla. Við þær
gætu 60% allra hreiðurstæða á svæðinu eyðilagst. Nauðsynlegt er að
bregðast við þessu með því að friða hólmana, að sögn Sverris Thor-
steinssonar sem hefur stundað rannsóknir á fuglalifinu af hálfu Nátt-
úrufræðistofnunar.
Sverrir hefur undanfarin sjö ár
fylgst með æðarvarpi á flugvallar-
svæðinu og hefur hann merkt 400
kollur á þessum tíma. Undanfarin tvö
ár hefur hann ásamt Ævari Petersen
fuglafræðingi kortlagt hreiðurstæði
á svæðinu. I fyrra voru gerð kort
af svæðinu vestan Eyjaflarðarár, inn-
an girðingar, en í vor var hólmunum
austan og norðan gömlu brúnna
bætt við. „Æðarvarp á svæðinu er í
mikilli aukningu. Okkur telst til að
það séu um 500 hreiður innan girð-
ingarinnar og í hólmunum,“ sagði
Sverrir. í flugvallargirðingunni er
jafnframt stærsta varp stormmávs á
íslandi, um 70 hreiður. Þessi tegund
hefur aðeins verpt hér á landi síðan
á sjötta áratugnum og er alfriðuð.
„Áhrif flóðanna þurfa ekki að vera
svo alvarleg fyrir fuglalífíð ef þau
endurtaka sig ekki mörg ár í röð.
Sovéska sendinefndin ásamt fulltrúum Álafoss og bæjarstjórnar.
Taldir frá vinstri Þorleifur Jónsson, starfsmaður atvinnumálanefnd-
ar, Valgarður Baldvinsson, bæjarritari, Sigfús Jónsson, bæjarstjóri,
Alexander S. Kolesov, Jón Sigurðsson, forstjóri Álafoss, Yuri A.
Kudinov, verslunarfulltrúi Sovétríkjanna á íslandi og Kolbeinn Sigur-
björnsson, markaðsfulltrúi Álafoss.
Sovéskur viðskiptafulltrúi í bæjarheimsókn:
Fjórðungnr útflutnings til
Sovétríkjanna frá Akureyri
AKUREYRINGAR flytja á þessu ári út vörur að verðmæti 700 milljón-
ir króna til Sovétríkjanna, en það er um fjórðungur heildarútflutnings
landsmanna til þeirra. Umbótastefna stjórnvalda eystra hefur valdið
miklnm breytingum á utanríkisviðskiptum Sovétmanna og í framti-
ðinni verður horfið frá miðstýringu. Þá gera Sovétmenn auknar kröf-
ur um vörugæði og áreiðanleika viðskiptamanna sinna, en íslendingar
hafa stöku sinnum ekki staðið við gerða samninga. Þetta kom fram í
máli verslunarfulltrúa Sovétríkjanna á íslandi á fundi með fréttamönn-
um, fulltrúum Alafoss og bæjaryfirvalda í Laxdalshúsi í gær.
Viðskiptafulltrúinn, Júrí A. Kudinov kom ásamt aðstoðarmanni sínum
Alexander S. Kolesov til Akureyrar sem margar mikilvægar ákvarðanir
í gær og dvelst í bænum fram á föstu-
dag. Hann óskaði eftir því að hitta
sem flesta forráðamenn fyrirtækja í
bænum en einnig væntanlega neyt-
endur sovéskra vara.
Kudinov lagði ríka áherslu á þær
breytingar sem væru að verða í Sov-
étrflq'unum fyrir tilstilli „perestijoku"
eða umbótastefnu Gorbatsjovs Sov-
étleiðtoga. Hann sagði að verið væri
að afnema miðstýringu í utanríki-
sviðskiptum og endurskipuleggja þau
frá grunni. „Aður sá eitt ráðuneyti
um alla samninga við erlend ríki en
í dag eru það minnst 75 aðilar og
nýir spretta upp eins og gorkúlur,"
sagði Kudunov. „Hver mikilvægur
atburðurinn rekur annan í landi okk-
ar á stjórmálasviðinu og í efna-
hagslífínu. Eftir tæpa viku hefst
flokksráðstefna okkar í Moskvu þar
fyrir framtíð umbótastefnunnar
verða teknar."
Kudunov sagði að viðskipti íslands
og Sovétríkjanna næmu um flórum
milljörðum króna á þessu ári. Miðað
við höfðatölu ættu íslendingar þrisv-
ar eða flórum sinnum meiri viðskipti
við Sovétríkin en önnur Evrópulönd.
Þó gerði hann sig ekki ánægðan með
hlutfall Sovétmanna í innflutning
hérlendis.
„íslenskar vörur eru ekki meðal
þeirra ódýrustu og við þurfum eins
og aðrir að taka tillit til þess að
aðrir geta boðið lægra. Það hafa
komið upp vandamál varðandi út-
flutning íslenskra fyrirtækja til Sov-
étríkjanna. Ég vil ekki tala um neinn
harmleik í þessu sambandi en þeir
sem hér eru inni vita hvað ég á við,“
sagði Kudunov. „í næsta mánuði
verður minnst 35 ára afmælis við-
skiptasamnings íslands og Sovétríkj-
anna. Núverandi samningur gildir til
ársins 1990, þannig að það gefst
nægur jtími til þess að endurskoða
hann. Ég hef þó þá trú að slíkur
samningur auki stöðugleika og verði
nauðsynlegur um mörg ókomin ár.“
Kudunov benti á að nú væri verið
að kaupa ull frá Akureyri til full-
vinnslu I sovéskum verksmiðjum.
Hráefniskaup gætu hæglega aukist
og einnig hefðu Sovétmenn mikinn
áhuga á að kaupa hugvit af íslend-
ingum, til dæmis varðandi sútun og
skinnaframleiðslu. Nýlega hefðu ver-
ið keyptar hausskurðarvélar af fyrir-
tækinu Kvikk og samvinna væri haf-
in við fyrirtæki vegna hörpudisk-
framleiðslu. Sovétmenn hefðu mikinn
hug á að nýta sér tækniþekkingu
íslendinga sem væri á háu stigi.
„Það á allt eftir að breytast, hvað
varðar eðli viðskiptanna og þær kröf-
ur sem gerðar eru,“ sagði hann.
Jón _ Sigurðarson framkvæmda-
stjóri Álafoss sagði að það blandað-
ist engum hugur um mikilvægi við-
skipta Akureyringa við Sovétmenn.
Það hlytu allir að fylgjast af athygli
með þeim breytingum sem væru að
verða í Sovétríkjunum. Eitt af því
sem ætti eftir að setja mikinn svip
á efnahagslíf heimsins væri aukinn
útflutningur Sovétmanna á neyslu-
vörum, samkeppnisfærum við það
sem best gerðist. „Fjölmiðlar hafa
tilhneigingu til þess að gera mikið
úr árstíðabundnum vandamálum sem
upp koma í samningum við Sovét-
menn. Staðreyndin er sú að á þeim
30 árum sem viðskiptasamningur
okkar við Sovétmenn um ullarvið-
skipti hefur verið í gildi hefur í 28
skipti verið staðið við samkomulag-
ið.“
Getum hefur verið leitt að því að
nýja brúin hleypi ekki nægu vatni í
gegn og ég hef trú á því að það
þurfí að gera ræsi undir veginn við
bensínstöðina," sagði Sverrir. „Þegar
framkvæmdir við flugbrautina hefj-
ast er brýnt að skapa fuglinum skil-
yrði til að verpa í hólmunum. Miðað
við áætlanir eyðileggjast um 60%
hreiðurstæða á svæðinu við breikkun
brautarinnar. Besta ráðið er að friða
hólmana algjörlega og bægja þaðan
mannaferðum á varptímanum."
Sá fugl sem býr í næsta nágrenni
flugvallarins veldur ekki miklum usla
í flugumferð að mati Sverris. „Fugl-
inn sem sest á flugbrautimar er aðal-
lega stór mávur sem lifir ekki á svæð-
inu. Þetta eru ungir fuglar á þvæl-
ingi að æfa sig að fljúga. Æðurin
og vaðfuglamir óttast ekki flugvél-
amar og fljúga ekki í veg fyrir þær,“
sagði hann.
Elstu æðarkollumar hafa búið um
sig í hólmunum og krikanum við
flugstöðina, en þær yngri þurfa að
búa sér hreiður á vorin austan og
norðan við flugbrautina. Þær byrja
því seinna að verpa, eiga færri egg
og eru áberandi styggari en þær
eldri. Innan girðingar flugvallarins
verpa 400 kollur, þar eru einnig um
60 andarhreiður, 70 hreiður
stormmáva og flöldi vaðfugla. Aust-
an flugvallarins og í hólmunum verpa
hundrað æðarkollur, um 400 hett-
umávar, 36 grágæsir, annað eins af
öndum og vaðfuglar.
Leiðréttingar
VILLA slæddist inn í frétt á
Akureyrarsíðu í gær. Þar sagði
að heiðargæsin í andapollinum
við sundlaugina hefði tekið sam-
an við aliönd, en að sjálfsögðu
er um gæs að ræða eins og sjá
mátti á meðfylgjandi mynd.
Blaðið einnig velvirðingar á villu
í myndatexta á síðunni síðastliðinn
mánudag þar sem sýndir voru sig-
urvegarar í unglingaflokki-B á
móti hestamanna á Melgerðismel-
um. Hesturinn Geisli er ekki lengst
til vinstri á myndinni heldur
Hrímnir frá Gilsá.
Ferðafólk
á Akureyri
Verzlun okkar er við göngugötuna
* í þessu fallega húsi (gömlu París).
Við seljum fatnað á unga sem aidna
og margt fleira áhugavert.
Ferðafólk hefur stundum ekki ratað
til okkar.þvíbendum
viðágömlu París, þar
erumviðtil húsa.
Verið öll velkomin.
HAFNARSTRÆTI 96 SIMI 96*24423 AKUREYRI
Þorsteinn Davíðsson.
Sólstöðuganga:
Frá sólstöðugöngunni.
Morgunblaðið/Rúnar Þðr
Elsti göngumaðurinn 89 ára
UM áttatiu manns tóku þátt i
Sólstöðugöngu á Akureyri á
þriðjudagskvöld. Helmingur
þeirra gekk alla leið og i þeim
hópi var Þorsteinn Davíðsson
sem er 89 ára að aldri og átta
ára gamall snáði, Stefán Hr.
Guðmundsson. Göngugarpar
nutu og leiðsagnar fjölfróðra
manna sem kunnu margt að
segja um sögu bæjarins og ná-
grenni hans. Leiðin sem gengin
var er um 12 km löng.
Lagt var upp frá Ráðhústorgi á
sjötta tímanum í gærdag. Gangan
hélt sem leið lá eftir fjörunni þar
sem Finnur Birgisson rakti sögu
húsa og byggingarstíl og Haraldur
Sigurðsson fy'allaði um Kfíð á Akur-
eyri forðum daga.
Áð var í Kjama en þar tók Hall-
grímur Indriðason framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga
á móti göngumönnum og kynnti
þeim útivistarsvæðið. Einnig fengu
þeir í nesti fróðleiksmoia Halldórs
Péturssonar og Elínar Péturssonar
um gróður á svæðinu. Næst var
gengið norður að Miðhúsaklöppum
þar sem bíll beið með svaladrykki.
Gangan endaði við Glerá og á
Krossanesklöppum nutu göngu-
menn miðnætursólarinnar. Stræt-
isvagnar komu til móts við þátttak-
endur með svaladrykki meðferðis
og fluttu þá í bæinn aftur.