Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
31
Þróunaraðstoð:
Framlög austantjalds-
ríkjanna tíu sinnum
minni en Vesturlanda
Brussel, frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMKVÆMT skýrslu Efnahagsmálanefndar Atlantshafsbandalags-
ins voru framlög ríkja Varsjárbandalagsins til rikja þriðja heimsins
árið 1986 tíu sinnum lægri en framlög ríkja á Vesturlöndum. Var-
sjárbandalagsríkin veittu það ár rúmlega 206 milljörðum islenskra
króna í þróunaraðstoð fyrst og fremst til kommúnistaríkja en fram-
lag Vesturlanda það ár voru tæplega 1.900 milljarðar íslenskra
króna.
Þróunaraðstoð Varsjárbanda-
lagsríkjanna er að mestu greidd
samkvæmt tvíhliðasamningum við
einstök lönd en ekki í gegnum
stofnanir sem sinna fjölda ríkja líkt
og tíðkast á Vesturlöndum. Um
80% þróunaraðstoðar aðildarríkja
Varsjárbandalagsins fóru til ríkja
sem stjómað er af kommúnistum.
Efnahagsaðstoð við þau ríki var
yfirleitt hærri en hemaðaraðstoðin
gagnstætt því sem gilti um framlög
til ríkja sem ekki er stjómað af
kommúnistum. Þetta ár fóru 0,3%
af þróunaraðstoð Austantjaldsríkj-
anna í gegnum stofnanir Samein-
uðu þjóðanna. Niðurgreidd lán frá
ríkjum Varsjárbandalagsins vom
tæpur fjórðungur þeirrar upphæðar
sem vestræn ríki iánuðu á þeim
kjörum.
Ljóst þykir að í Sovétríkjunum
verði aðaláherslan áfram á vopna-
sölu en ýmislegt bendir til að hún
verði erfiðleikum bundin m.a.
vegna greiðsluerfíðleika OPEC-
landanna. Eins og annað er stefna
Sovétríkjanna í þessum efnum í
endurskoðun en niðurstöður hennar
eru engan veginn ljósar.
Færeyjar:
Islendingaf élagið
ræðst í húsbyggingn
ÞórshSfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
íslendingafélagið í Færeyjum viðtali við færeyska dagblaðið Dim-
hyggst hefjast handa um bygg-
ingu félagsheimilis á vori kom-
anda. Bæjarstjóm Þórshafnar
hefur lofað félaginu ókeypis lóð
í Hoyvikshaganum í útjaðri bæjar-
ins, og er stefnt að því, að húsið
verði fullbúið á árinu 1990.
„Við erum mjög ánægð og þökkum
þann velvilja, sem bæjarstjómin hef-
ur sýnt okkur," sagði Bjami Péturs-
son, formaður íslendingafélagsins, í
malætting.
Félagið hefur unnið að undirbún-
ingi húsbyggingarinnar síðastliðin
þijú ár. Húsið verður rúmgott og er
m.a. ætlunin að halda þar þorrablót
og aðrar samkomur á vegum félags-
ins. í kaffistofu hússjns, sem opin
verður daglega, geta íslendingar og
Færeyingar komið saman, rabbað
saman, lesið íslensk blöð og haft það
notalegt.
Pólland:
Vagnsljórar endur-
ráðnir eftir verkfall
Varsjá. Reuter.
VAGNSTJÓRAR í baltnesku hafn-
arborginni Stéttin lögðu niður
vinnu í gær tíl þess að mótmæla
brottrekstri tveggja starfsbræðra
sinna, að sögn heimUda úr röðum
stjórnarandstæðinga.
Vagnstjóramir kröfðust þess að
starfsbræður þeirra fengju fyrra
starf aftur og var gengið að kröfum
þeirra eftir þriggja klukkustunda
verkfall.
Mönnunum tveimur, Romuald Zi-
olkowski og Jozef Ignor, höfðu verið
reknir fyrir meint agabrot. Var þeim
gefið að sök að hafa staðið á bak
við og skipulagt vagnstjóraverkfall í
borginni 5. maí sl. Það stóð yfir dag-
langt og lágu allar almenningssam-
göngur niðri. Efnt var til verkfallsins
til að sýna samstöðu með verkfalls-
mönnum í Lenín-skipasmíðastöðinni
í Gdansk, sem lögðu niður vinnu í
níu daga til þess að krefjast þess að
Samstaða, óháðu verkalýðssamtökin,
fengi viðurkenningu hins opinbera.
VINNINGSNÚMER
í Happdrætti
Krabbameinsfélagsins
—————————- Dregið 17. júní 1988 —
SAAB 9000 TURBO: 74301
HONDA CIVIC GL: 24708 179849
BIFREIÐ AÐ EIGIN VALI FYRIR 500.000 KR.
5948 120483 135049
VÖRUR AÐ EIGIN VALI FYRIR 50.000 KR.
378 18765 41533 68829 87881 109310 121342 144215 159404
3121 20115 44803 70262 90749 109621 122330 147043 163011
3557 20733 50919 70449 91293 110205 122486 147277 163898
5406 22453 55131 70570 95588 112056 123742 148673 164682
8489 23954 60258 71777 96686 114898 124844 151601 165927
8708 26915 60322 78806 97127 114901 125431 152185 166275
11289 27001 60864 80696 98971 116402 128380 152266 168742
12058 31096 63995 80947 99249 116588 130683 .153428 175137
15755 36358 65148 82415 106023 119735 135934 153826 178168
16570 39643 66505 86167 106134 120173 142397 154252 181254
16914 39853 67057 87269 108218 121208 142892 158426 182675 183107
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim 1
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíö 8, sími 621414. | J
g Krabbameinsfélagið
Krabbameinsfélagið
þakkar landsmönnum
veittan stuðning.
Það ^dptir ddd máli
hvortþig vantar stól eða ekki, þvíAPPOLLO leðurstóllinn er
svo þægilegurogá svogóðu verði, að maður hreinlega verður
aðkaupahann.
húsgagnfrhöilin
REYKJAVÍK
M0BLER