Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Kópavogsvöllur
í kvöld23. júní
kl. 20.00
BREIÐABLIK
ÍBV
Zenith tölvur
BYKO
SAMEÍND^s
umbro
Worthy í stuði
þegar Lakers
tryggði
meistaratitilinn
Liðin
Kareem Abdul-Jabbar sagði eftir leikinn að hann myndi
spila næsta keppnistímabil, en það verður þó hans síðasta.
Bæði lið léku fyrri hálfleik vel og
leikurinn hélst jafn. Detroit hafði
23:21 forystu eftir fyrsta leikhluta
og í hálfleik hafði liðið náð fimm
stiga forystu 52:47. James Worthy
hélt Lakers á floti í þessum hálfleik
með frábærum leik og skoraði 20
stig fyrir hlé.
Lakers á skrið
í upphafi þriðja leiknluta tók Los
Angeles mikla rispu og tíu fyrstu
skot liðsins rötuðu í körfuna. Detro-
it-liðið átti ekkert svar við hraða-
upphlaupum Lakers og eftir þrjá
leikhluta hafði Los Angeles náð tú
stiga forystu 83:73. Liðið byijaði
síðasta leikhlutann vel og náði mest
15 stiga forystu.
Detroit tekur við sér
Um miðjan fjórða leikhlutann tóku
leikmenn Detroit loksins við sér svo
um munaði og með frábærri vöm
tókst þeim að minnka forystu La-
kers í 98:96 þegar nær þrjár mínút-
ur voru eftir. Það sem eftir lifði
leiksins reyndu þeir allt hvað þeir
gátu til að jafna, en gerðu nokkrar
slæmar skyssur í sókninni þegar
mest lá við. Á þessum leikkafla kom
vel í ljós hin mikla reynsla leik-
manna Lakers og liðið hékk á for-
ystunni það sem eftir var leiksins.
Lokatölumar urðu 108:105 fyrir
Los Angeles.
Hjá Los Angeles var James Worthy
atkvæðamestur með 36 stig, 16
fráköst og 10 stoðsendingar. Átti
Detroit ekkert svar við stórleik hans
að þessu sinni og Worthy var kos-
inn leikmaður úrslitakeppninnar af
blaðamönnum eftir leikinn. „Magic"
Johnson var traustur að venju með
19 stig og Scott skoraði 21 stig.
Annars var lykillinn að sigri Lakers
í tveimur síðustu leikjunum sá að
varamenn liðsins stóðu sig mun
betur en í fimm fyrstu leikjunum
milli liðanna, einkum nafnarnir Mic-
hael Cooper og Michael Thompson.
Detroit spilaði þennan leik vel þrátt
fyrir tapið. Reynsluleysi yngri þeik-
Pat Rlley hafði lofað því eftir sigur
liðsins í fyrra að liðinu myndi takast
að endurheimta titilinn nú í ár og stóð
við bað.
Jabbar með næsta tímabil
Kareem Abdul-Jabbar sagði eftir
leikinn að hann myndi spila næsta
keppnistímabil, en það verður þó
hans síðasta. Hvort liðinu tekst að
vinna titilinn aftur næsta ár er er-
fitt að spá um. NBA-deildin er
ávallt að verða jafnari og þrisvar
sinnum þurfti Lakers-liðið sjö leiki
til að slá út andstæðinga sína í
þessari úrslitakeppni.
Leikmenn Detroit geta verið
hreyknir af frammistöðu sinni. í
síðustu tveimur leikjunum vantaði
aðeins herslumuninn að liðinu tæ-
kist að vinna titilinn. Búast má við
liðinu enn sterkara næsta vetur,
enda leikmenn reynslunni ríkari
eftir baráttuna við Boston og Los
Angeles.
James Worthy var atkvæða-
mestur hjá Lakers með 36 stig,
16 fráköst og 10 stoðsendingar
og hefur sjaldan leikið betur.
Lakers tókst það sem engu öðru liði hafði tekist
í 19 ár, að vinna NBA-titilinn tvö ár í röð
manna liðsins kom því í koll á lok-
amínútunum í tveimur síðustu leikj-
unum. Thomas sýndi mikla forystu-
hæfileika með því að leika meiddur
og skoraði 10 stig, öll í fyrri hálf-
leik. Joe Dumars var þó besti leik-
maður liðsins í þessum leik með 25
stig, Dantley var með 16 (þar af 11
í fyrri hálfleik) og ungu leikmennir-
inir, þeir Dennis Rodman (15 stig)
og John Salley (17 stig), stóðu sig
einnig vel.
Langt tímabil
Þetta var langt og erfitt keppn-
istímabil fyrir Los Angeles. Leikur-
inn á þriðjudag var 115. leikur liðs-
ins á tímabilinu sem staðið hefur
síðan í byrjun nóvember. Að auki
setti Riley mikla pressu á leikmenn
með því að lofa því að liðinu myndi
takast að vinna titilinn tvö ár í röð.
Leikmönnum liðsins tóks þó að
standa við loforðin og fímmti meist-
aratitillinn á þessum áratug er í
höfn.
LEIKMENN Los Angeles Lakers lyftu þungu fargi af þjálfara
sínum, Pat Riley, þegarliðið sigraði Detroit Pistons 108:105 í
úrslitaleiknum um meistaratitilinn á þriðjudagskvöld í Los Ange-
les. Riley hafði lofað því eftir sigur liðsins í fyrra að liðinu myndi
takast að endurheimta titilinn nú í ár og eftir hvern tapleik í
úrslitakeppninni varð hann að mæta efasemdum um að þetta
myndi takast. En Lakers tókst það sem engu öðru liði hafði tekist
í 19 ár, að vinna NBA-titilinn tvö ár í röð.
Bæði lið höfðu unnið þijá leiki
í þessum lokaúrslitum og leik-
ur liðanna var því hreinn úrslitaleik-
ur um titilinn. Ifyrir leikinn var alls
óvíst að Isiah Thom-
as myndi leika með
Detroit, þar sem
hann hafði verið á
hækjum í tvo daga
eftir meiðsl á ökkla í leik liðanna á
sunnudag. Þrátt fyrir að hann hefði
ekki stigið í fótinn frá síðasta leik
liðanna lék hann mikið með, en
sýnilegt var að meiðslin háðu hon-
um nokkuð í leiknum.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar
Worthy óstöðvandi