Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 16
BARSETUSTOFA MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 í terroristahópum í Berlín, Madrid eða Los Angeles. Skáldsaga Lessing er mjög vel skrifuð og mögnuð lýsing á heimi, sem þjáist af því sem Milan Kund- era nefnir þann óbærilega léttleika tilverunnar, hið algjöra tóm, þar sem sjálfsununin ríkir. Þeir sem leitast við að forða sér geta ekki flúið þennan heim, hann kemur upp meðal þeirra sjálfra í sinni af- skræmilegustu mynd. Hvort sem hér er um að ræða dæmisögu um vamarleysi manna fyrir illum öfl- um, nakinni íllskunni eða blindgötu narsissismans, sjálfsununarinnar, þá virðist höfundur boða það, að enginn sé óhultur. Atlavík: UÍ A gengst fyrir Jóns- messuhátíð Egilsstöðum. JÓN SMESSUHÁTÍÐ verður haldin í Atlavík dagana 25.-26. júní. Hér er um fjölskyldu- og bindindishátíð að ræða sem Ung- menna- og íþróttasamband Aust- urlands gengst fyrir og verður boðið upp á fjölbreytta skemmti- dagskrá fyrir alla aldurshópa á laugardag og sunnudag. Dagskráin hefst kl. 18 á laugar- dag með sameiginlegri grillveislu en síðan verður dansleikur og varð- eldur á eftir með tilheyrandi söng og glens. A sunnudag hefst dagskráin með leik lúðrasveitar kl. 10. Einniggefst bömum kostur á að nýta sér ýmis- konar leiktæki og farið verður í leiki með þátttöku gesta. Kl. 14 hefst svo hátíðardagskrá með fjöl- breyttum skemmtiatriðum. Hátíð- inni lýkur kl. 17 á sunnudag. - Björn Kaupfélag Króksfjarðar; Rekstrar- hagnaður að upphæð 1,6 milljónir króna Miðhúsum AÐALFUNDUR Kaup- félags Króksfjarðar var haldinn laugardaginn 18. júní að JHótel Bjarkarlundi. Þar sem í lögum kaupfélagsins stendur að enginn megi sitja lengur en 3 kjörtímabil í einu, vék Þórður Jónsson, Arbæ, sæti og Reynir R. Reynisson sveitarstjóri í Reykhóla- hreppi var kosinn í hans stað. Ingi- björg Kristjánsdóttir, hjúkrfræðing- ur í Garfsdal var endurkjörin. Form- aður félagsins er Grímur Amórsson, Tindum, og kaupfélagsstjóri Sigurð- ur R. Bjamason. Rekstrartekjur kaupfélagsins námu um 136 milljónum króna og ágóði af rekstri var 1,6 milljónir. Meðal tillagna sem samþykktar vom á aðalfundinum var áskorun til þing- manna Vestfjarða og Vesturlands kjördæma um að beita sér fyrir því að vegagerð og brúarsmíð yfir Gils- fjörð, frá Kaldrana í Dalasýslu til Króksijarðarness, verði hmndið í framkvæmd og stefnt að því að verk- efninu verði lokið fyrir árið 1990. Kaupfélagið rekur nú þrjár versl- anir, í Króksfjarðarnesi, Reykhólum og Skálanesi í Gufudalssveit. Einnig á það stóran hlut í Hótel Bjarkar- lundi og í þörungaverksmiðjunni. Sveinn í skip og báta. SENDUM UM ALLT LAND iujíhiii Grandagarði 2. slml 28855. 101 Rvlk. í danssal er leikin ljúf, lifandi tónlist og í veitingasal er boðið upp á vandaðan smá- réttamatseðil til kl. 02.30. OPIÐ: Föstudaga og laugardaga kl. 18.00 - 03.00. Pantið borð tímanlega hjá veitingastjóra í síma 29098. Þægindin eru í fyrirrúmi í setustofu klúbbsins. Hér er hrein unun að setjast nið- ur og ræða málin í góðra vina hópi. Björgunar- búnaður Björgunarvesti Siglingagallar Árar Áragafflar Penna-neyðarbyssur Markúsarnet Flotgallar Línubyssur Handblys Svifblys og allar aðrar skoðunarvörur Fimmta barnið Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Doris Lessing: The Fifth Child. Jonathan Cape 1988. Harriet og David Lovatt vom ekki samstiga ríkjandi smekk og kunnu ekki við andrúmsloft sjöunda ára- tugarins í London. Samstarfsfólk þeirra taldi þau skera sig úr varð- andi ríkjandi tísku í samskiptum kynjanna, þau væm gamaldags og kröfuhörð og fylgdust ekki með. Eitthvað í þessa átt hefst nýjasta skáldsaga Doris Lessing. Fyrirtæk- ið, sem þau vinna við, heldur veislu, fólk dansar og Harriet og David horfa á, og þeim fínnst eins og bros samkomugesta gæti eins verið kvalafullar grettur, og blaðrið neyð- aróp. Höfundurinn mótar sviðið með' þessari lýsingu. Blautleg sjálfsunun er einkenni tímanna og þegar kem- ur fram á áttunda áratuginn hefst vandalisminn, jafnvel í friðsælli smáborginni, þar sem Harriet og David hafa búið um sig á sinn hátt. David er arkitekt og Harriet er heimavinnandi húsmóðir, því að þau taka þegar að eignast böm og stefna að því að eignast sem flest. Fjárhag þeirra er borgið, vegna þess að faðir Davids er vel auðugur og aðstoðar þau, þegar með þarf. Húsið er eftir þeirra smekk, stórt hús með garði. Og nú hefjast heim- boðin, atburðarásin er; heimboð, bamsfæðingar og sældarlíf í skauti hamingjusamrar fjölskyldu. Bama- lánið leikur við þau, þar til fimmta bamið fæðist. Meðgöngutíminn hafði verið Harriet mjög erfiður, hún var stöðugt kvalin og lifði í stöðugri skelfíngu. Bamið sem loks- ins fæddist, Ben, var eins og af annarri stjömu. Skyldmennin fjöl- menna ennþá í hin vinsælu jóla- og páskaboð, en þau em ekki slík unun og þau vom áður en Ben fæddist. Eftir því sem hann eldist fækkar heimsóknum og loks tekur fyrir þær. Systkini Bens óttast hann og þegar hann sýnir sig í því að drepa gæludýr heimilisins fara foreldrar hans að óttast um næst yngsta bamið, Pál, sem fer mjög varhluta af umönnun móður sinnar. Ben tek- ur allan tíma hennar. Ben mælir ekki orð frá vömm lengi vel, urrar og öskrar, er mjög sterkur og langt á undan sínum aldri um krafta og matarlyst. Hann hámar í sig allt sem að kjafti kemur, rífur m.a. í sig hráan kjúkling, beint úr frystin- um. Heimilislífíð er að leysast upp og til að bjarga því sem eftir er, er ákveðið að koma Ben fyrir á stofnun, sem tekur við afbrigðileg- um börnum, fábjánum og aumingj- um. Það verður hlé í nokkurn tíma, allir verða glaðir, en móður Bens er ekki rótt. Hún heimsækir hælið og þar bendir allt til þess að Ben hefði ekki lifað þar í margar vikur. Hann er lokaður inni í herbergi þar sem hann liggur á útataðri dýnu á gólfinu, matnum virðist hafa verið hent í hann. Harriet tekur hann með sér heim og upplausn fjölskyld- unnar blasir við. Ben er sendur í skóla, kennaramir segja að hann sé „á eftir“ en að öðru leyti „eðlileg- ur“. Hann getur ekkert lært og félagsfræðingar og sálfræðinga- BRAUTARHOLTI 20 - SÍMI 29098. mjMKnmMéM Nú er tækifærið fyrir alla þá sem lengi hafa ætlað sér að kynnast starf- semi Mánaklúbbsins, en hafa ekki enn látið verða af því. Allan júní-mán- uð er boðið upp á ókeypis aðgang að klúbbnum í kynningarskyni. Notið þetta einstaka tækifæri til að kynnast þessum umtalaða nýja valkosti í skemmtanalífínu. Innritun nýrra félaga á staðnum og í síma 29098. ‘\aar\ ^ RESTAURANT A LA CARTE ^ Hér er hægt að kynnast því besta í mat og drykk. Glæsilegur sérréttamat- seðill klúbbsins er mjög rómaður af þeim fjölmörgu sem reynt hafa. Góð þjónusta í þægilegu umhverfi. Metnaðarfullt starfsfólk klúbbsins leggur mikið á sig til að gera gestum kvöldið sem ánægjulegast. g skarinn gefur tilskildar skýrslur. Systkinin haldast ekki við heima og fara í heimavistarskóla, sem ekki var ætlunin. I skólanum kynnist Ben nokkrum einstaklingum álíka afbrigðilegum og hann er sjálfur og klíka mynd- ast. Sundum kemur hópur Bens heim og lýsingar Lessings á sálleys- ingjunum eru eftirminniiegar. Það tekur að bera á ránum, meiðingum, nauðgunum og þjófnaði í borginni og næsta nágrenni. Stundum kemur hópurinn með birgðir allskonar ómetis, pakkamat, vel kryddaðar pylsur, sætt gos og kókópuffs, sem liðið rífur í sig smjattandi og slafr- andi. Loks er tekið fyrir þessar heimsóknir og þá líða oft sólar- hringar án þess að Ben láti sjá sig. Hann er hættur í skólanum fyrir löngu. Tengslaleysi Bens við aðra er algjört, hann er í eigin heimi, nema hvað hann nær sambandi við at- vinnuleysingja nokkurn, sem dútlar um tíma í garði Lovatts-hjónanna. Þetta samband þeirra er líkast sam- bandi húsbónda og hunds. Eins og áður segir hefur Ben samskipti við sálleysingjana, en þar getur ekki verið um nein eiginleg tengsl að ræða nema sem tekur til aðgerða hópsins, vandalisma, rána og áts. I lokin gerir móðir Bens ráð fyr- ir að hann hverfi algjörlega, e.t.v. fréttir hún einhvem tíma af honum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.