Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
Sti örnu- riADDÍ |D DDinC
M • dRIDS
Umsjón: Gunniaugur
Guðmundsson
Hœfileikar Ljónsins
í dag ætla ég að fjalla um
hæfileika hins dæmigerða
Ljðnsmerkis (23: júlí til 23.
ágúst). Athygli er vakin á því
að hér er talað um þá mögu-
ieika sem merkið býr yfir,
hæfileika sem eru til staðar
en verður eigi að síður að hlúa
að og rækta.
Síjórnun
Ljónið er að upplagi ráðríkt
og stjómsamt merki og hefur
þvi hæfileika á stjómunar-
sviði. Það hefur til að bera
þá vissu að það hafi rétt fyrir
sér og hefur því sjálfstraust
sem er nauðsynlegt í stjórnun.
Auk þess ber Ljónið ágætt
skynbragð á það hvaða hæfi-
leika hver og einn maður hef-
ur og á því auðvelt með að
fá hveijum og einum starf við
hæfi.
Skipulagshcefileikar
Það sem gerir Ljóninu einnig
kleyft að stjóma eru skipu-
lagshæfileikar. Þetta er ekki
algiit með Ljón en mörg þeirra
búa yfir ágætum skipuiags-
hæfiieikum.
Sviösmaöur
Meðal hæfileika Ljónsins er
geta til að koma fram og vera
f sviðsijósinu. Ljón eru því oft
ágætir skemmtikraftar, taka
sig vel út við kynningar- og
sýningarstörf á skemmtun-
um, eða fást við störf tengd
leikhúsmálum. Auk þess á
Ljónið auðvelt með að auglýsa
eða kynna nýja stefnu því það
á auðvelt með að ná athygli.
Það býr til fallega umgjörð
og er stórtækt og áberandi.
FjölmiÖlun
Ljónið er að upplagi hresst
og jákvætt í skapi, er hlýlegt
og glaðlegt í viðmóti gagnvart
fólki. Það getur því notið sín
þar sem fólk kemur saman til
að skemmta sér og einnig á
sviði fjölmiðlunar þar sem já-
kvæð og ákveðin framkoma
er talin æskileg.
Sköpun
Ljónið getur tekið sjálfstæðar
ákvarðanir og er auk þess
hugmyndaríkt. Það hefur því
hæfiieika á skapandi sviðum.
Það táknar ekki einungis list-
ræn svið, heldur getur Ljónið
einnig verið skapandi í at-
vinnulífi. Nýsköpun atvinnu-
veganna höfðar því til Ljóna
sem starfa á þeim vettvangi.
Skapandi sjáifstjáning er eitt
af lykilorðum fyrir Ljónið. Það
þarf alltaf að ieggja eitthvað
af mörkum frá sjálfu sér f þau
störf sem það fæst við. Það
vill breyta og bæta.
Risandi merki
Þó við tölum um Ljónið al-
mennt megum við ekki
gleyma því að hver maður á
sér nokkur stjömumerki. Ljón
sem hefur Sporðdreka Rísandi
(Rísandi er persónulegur stfll,
fas og framkoma) fær
kannski á sig dulara ytra yfir-
bragð og vili ekki sjálfúr
standa á sviði, þó skapandi
hæfiieikar séu eigi að síður
fyrir hendi. Ljón Rfsandi
Sporðdreki vill taka á dýpri
málum, sem og Plútóljón. Ljón
sem aftur á móti hefiir önnur
merki opnari er líklegra til að
sýna hina opnu Ljónseigin-
leika út á við.
TungliÖ
Það að vera Ljón er ekki ein-
ungis það að hafa Sólina í
Ljóni og vera fæddur í ágúst.
Þeir sem hafa Ljón Rísandi
virðast oft meiri Ljón út á við
heldur en þeir sem eru ekta,
ef svo má að orði komast.
Tungl í Ljóni getur einnig
gefið sterka Ljónseiginleika.
5EIPHOMAM HAFÐI'A R.É7TU AÐ
STANDA ■ pESS/te SPfíUN<3UH
&eru ghafib unoah g&tsmlla -
KASTALA íSARBSKJÁLFTA
ÉGUEHBADAT-
HU6A HUOeTBG
GET LOKAE>
IOM
CJNEKg
MEÞ &&\rr/ G&1S&ÍLL4 K
G£TUK ríuse SEA1
ae LETST HVAB
SEAT !
1If l ll MIV ó ™ 1 LHWÍhijJU/f«\\ Mr !/, > Ui u
r.: GRETTIR
TOMMI OG JENNI
UOSKA
jA,STAHFSUÐl£>
'ET? HARE>-
PUGLE'GT
rCDIMRI A ft i r\
rcHullMAND
::::::::::::::::::: !!!!!!!!!!!!!l!!!}!?!!!?!?!:??1 :::::::::::::::::::::::::::::: :::::::::::::::::::::::::::::: :::: ::::: iU;SlliiI!;ljjlljfjjlljjllglIIIIIijHl?iljgllilIHIIi=i;illiIfi SMÁPÓLK
TME ONE WHO WA5
RUNNIN6 AROUNP TELLIN6
EVERVEOPV THE 5KV
LUA5 FALLIN6?
T00K HER AWATHUH?
LOCKEP HER UP,HUH?
Var það?
Þennan sem æddi um og Fóru með hann, ha? Lok- Frábært!
sagði að himinninn væri uðu hann inni, ha?
að hrynja?
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Gamalkunnir kappar munu
skipa landslið Bandaríkjanna á
ólympíumótinu, sem fram fer í
Feneyjum f október nk. Að
vanda var útsláttarkeppni látin
ráða og sigruðu þeir Hamman,
Wolff, Meckstroth, Rodwell,
Jakoby og Deutsch eftir hörku
úrslitaleik við Martel, Stansby,
Pender, Robinson, Boyd og
Ross. Þegar upp var staðið
skildu aðeins 16 IMPar sveitim-
ar að, og má segja að þetta spil
úr sfðustu umferð hafi ráðið
úrslitum:
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ Á42
♦ Á74
♦ Á9872
+ K9
Vestur Austur
♦ G10873 ... +KD65
VG98 imil +653
♦ G6 ♦ D1054
♦ Á73 +G2
Suður
♦ 9
VKD102
♦ K3
♦ D108654
Á öðru borðinu lenti sigur-
sveitin í þremur gröndum á spil
NS. Ljótur samningur sem virt-
ist ætla að fá réttláta niðurstöðu
þegar vestur spilaði út spaðasjö-
unni, flórða hæsta. Austur fékk
að eiga fyrsta slaginn á spaða-
drottningu og skipti síðan yfir í
hjarta?! Hélt að makker væri að
koma út frá stuttlit. Sagnhafi
fékk því 11 slagi í staðinn fyrir 8.
Sagnir voru hressilegri á hinu
borðinu:
Vestur Norður Austur Suður
— 1 tfgull Pass 2 lauf
Pass 2 grönd Pass 3 lyörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 hjörtu
Pass 4 spaðar Pass 5 hjörtu
Pass 7 lyörtu Pass Pass
Dobl Pass Pass Pass
Vestur lagði niður laufásinn
og sá sem skýrði spilið fyrir
áhorfendum f sýningarsal sagði
útspiiið öryggisventil gegn hugs-
anlegum litarsvikum síðar!
NS voru ósammála um merk-
ingu flögurra spaða sagnar
norðurs. Sögnin var meint sem
ásaspuming, en suður túlkaði
hana svo að makker ætti fyrir-
stöðu í spaða og vildi spila hjarta
sem tromp. Hann taldi sig því
vera að slá af með fimm hjörtum.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlega mótinu í Wijk aai
Zee í Hollandi f janúar kom þess
staða upp f viðureign stórmeistar
anna John Van der Wiel, Hol
landi, og Kiril Georgiev, Búlg
aríu, sem hafði svart og átti leik
Hvftur lék síðast 22. Bcl-e3?
22. - bxc3! 23. Bxb6 - Dh4
(Hótar bæði máti í öðrum með
24. — Dxh2+ og einnig biskupn-
um á a4)
24. f4 - Dxf4 25. Bxc7 - Dxh2+
26. Kfl - Dhl+ 27. Kf2 -
Dh4+ 28. Kfl
(Ekki 28. Kgl? - Bc5+)
28. - Bc4 29. Bb3 - Bxb3 30.
Bxd6 - Bc4 31. Bxf8 - Df4+
32. Kgl - Bxe2
og hvítur gafst upp. Eftir 33.
Hxe2 - c2! 34. Heel - Kxf8 vinn-
ur svartur auðveldlega á um-
frampeðunum.