Morgunblaðið - 23.06.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
fclk í
fréttum
Feðgarnir Jón Helgi og Björn kunna greinilega réttu handtökin.
ÞINGEYJARSÝSLA
Það ber greinilega vel i veiði
hjá Birni bónda að Laxa- Systkynin, Halla Björns-
mýri. dóttir og Jón Helgi Björns-
son ánægð með góða veiði.
a*
Veiði hafin í Laxá í Aðaldal
Pann 10. júní síðastliðinn, hóf-
ust veiðar í Laxá í Aðaldal.
Að þessu sinni voru það bændur
sem höfðu ána fyrsta hálfa daginn
en það kallast að „opna“ ána.
Þama var veiðifjölskyldan frá
Laxamýri samankomin og gekk
veiðin vel. Þau voru mætt á stað-
inn klukkan 7 um morguninn og
aðeins stundarfjórðungi síðar var
fyrsti laxinn veiddur. Bjöm Jóns-
son bóndi að Laxamýri, sem rekur
Klakstöðina Norðurlax, sagði að
þessi lax hafi verið með skemmd
tálknbörð og það sé merki um að
þar sé eldislax á ferð. Því taldi
hann ekki undarlegt að laxinn
væri fljótur að bíta á, því að lax-
inn myndi þekkja sig og vildi
koma til sín aftur.
Björn Jónsson ásamt Höllu
dóttur sinni með enn einn
laxinn.
BANDARÍKIN
Gestur í heiðurskvöldverði
Birgitta Óskarsdóttir er 21 árs
Garðbæingur og stundar nám
við Kansasháskóla þar sem hún er
styrkþegi. Birgitta leggur stund á
listir og vísindi og gengur námið
mjög vel.
Þann 9. maí var Birgitta boðin til
heiðurskvöldverðar sem minningar-
sjóður Harry S. Trumans, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta, stóð fyrir.
Þetta í 36. sinn sem slíkur heiðurs-
kvöldverður er haldinn. Þangað er
boðið einum fulltrúa frá hveiju landi
og em þeir valdir úr hópi styrkþega
í bandarískum háskólum. Birgitta
var valin sem fulitrúi. íslands að
þessu sinni og mega Islendingar
vera ánægðir yfir að eiga svo verð-
ugan fulltrúa á erlendri grund.
Hér heilsar Birgitta, Paul A. Volcker, fyrrverandi forseta stjórnar
Seðlabanka Bandaríkjanna. Hann hlaut viðurkenningu úr minningar-
sjóði Harry Trumans að þessu sinni fyrir vel unnin störf í þágu
Bandaríkjanna.
— Halló, stjóri, það er hérna eldgömul júferta, sem þyk-
ist vera konan þín.