Morgunblaðið - 23.06.1988, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
ísleifur — ísarnus
%
Andrésar-kirkjan í Borgnnd í Noregi.
eftirKolbein
Þorleifsson
I biskupsdæminu Paderbom var
til foma borgin Herfurða. Þar var
á 11. öld klaustur nokkurt, sem
stýrt var af abbadís af saxnesku
konungsættinni, Godestiu að nafni.
Klaustur þetta rak bamaskóla
fyrir höfðingjasyni í Saxlandi og
stunduðu þar nám væntanleg stór-
menni keisaradæmisins, biskupar,
og jafnvel Hinrik annar keisari.
Snemma á 11. öld kom þangað til
náms ísleifur Gizurarson, sem
síðar varð biskup í Skálholti í Bisk-
upstungum.
Hvernig hefur nafn hans verið
skilið í skóla þessum? Líklega get-
um við fundið það út með því að
lesa nokkrar helgisögur úr
samtíma ísleifs.
Þar vil ég helst nefna til helgi-
söguna um Guðleifu í Flæmingjal-
andi og helgisöguna af ísami ábóta
í Marseille, en_ þau voru bæði
samtímamenn ísleifs Skálholts-
biskups.
Samkvæmt helgisögunni af
Guðleifu helgu var hún drepin af
norrænum bónda sínum, sem tal-
inn var af ættum Skýta, er bjuggu
í fenjum Flæmingjalands. Hún var
myrt árið 1060, er þjóðflokkur
Skýta í Flæmingjalandi var ennþá
heiðinn. Samkvæmt helgisögunni
merkir nafn Guðleifar „Elskuð af
Guði“, og er það augljóst að þarna
liggur þýska orðið Gottlieb til
„Hvað þá með sögnna
af Hrafna-Flóka? Auð-
vitað hafna ég henni,
en það þýðir ekki það
sama og að ég hafni því
að ís sé klaki. Heldur
er það miklu fremur
meiningin, að orðið ís
hefur fengið nafn sitt
af krafti og birtu“
gmndvallar. Þá má spyija hvað
nafn frú Marie Isleif ballerínu við
konunglegu ópemna í Hannover
um síðustu andamót hafí merkt.
Kannski „Sú sem elskuð er af Is“.
Við Islendingar læmm á hinn bóg-
inn að rekja orðið til stofnsins að
lifa „sá sem lifír fyrir ís“ eða „sá
sem er sverð Guðs“.
Einnig vil ég nefna ísamus
ábóta í Sankti Viktors-klaustrinu
í Marseille í Frakklandi, sem dó
1048. Þegar nafn hans er skýrt í
sögu hans, sést karlmennskumerk-
ingin í ís-hugtakinu „því að hinir
lærðu menn segja að ís sé hebr-
eskt orð, sem þýðir Vir á latínu
(þ.e. karlmaður), en Arnus merk-
ir á móðurmálinu skarpur og þýð-
ir því nafnið skarpur karlmaður".
ísamus ábóti var fædddur í borg-
inni Toulouse. Litlu síðar, um
1070, er vitað af biskupi í Roulo-
use, sem Isarnus hét. Þess má
geta að fyrmefndur ísamus ábóti
var einu sinni sendur til samninga
við víkinga á Spáni. Þeir sigldu á
drómundi, eins og sagt er í lat-
neska textanum. (Sbr. nafnið Þor-
steinn drómundur í Grettis sögu.)
Ef nafn ísleifs er borið saman
við þessar tvær helgisögur frá 11.
öld, ætti því nafn Isleifs biskups
að merkja: Elskaður af karlmanni,
húsbónda, herra, drottni.
írland þýðir Járnland
ísam er, eins og íslendingar eiga
að vita, annað nafn á jámi, og
hefur verið notað þannig í íslensk-
um skáldskap allt fram á okkar
öld. í huga okkar em því nöfn
þessara ísama í Suður-Frakklandi
önnur nöfn á járni.
Þetta leiðir hugann að Irlandi,
ættlandi Meginúlfs trúboða í Vest-
falen, eins og um það er talað í
helgisögu frá kanúka-klaustrinu í
Padervom, en þar er sagt, að
Meginúlfur hafi komið frá Yri-
land, sem þýði ferrea terra. Þetta
merkir á íslensku Jámland. Nýlega
hefur sú hugmynd verið sett fram
í sænsku málfræðiriti, að ísland
sé ísams-land, og er vísað til helgi-
sögunnar af hinum írska Brendan
í því sambandi.
Annar Svíi, prófessor Dag
Strömbáck skrifaði árið 1928 rit-
gerð sem nefndist „Att helga land“
(og hefur Haraldur Ólafsson dós-
ent bent mér á hana). Þarna fjall-
ar próf. Strömbáck um þá siði
norrænna manna að fara um landið
eldi og festa land með stáli svo
ekki sykki. Um hið fyrra em mörg
dæmi í Landnámu og öðmm
íslenskum ritum. Um hið síðara
er sterkasta dæmið sjálf landnáms-
saga Gotlands, sem varðveitt er í
texta frá því um,'1200. Þar segir
frá Þéttvari, sem tókst að festa
landið með stáli, svo það bifaðist
ekki, en áður hafði það haft fyrir
sið að sökkva í sæ á daginn, en
rísa úr hafinu á nóttunni. — Ifyrir
hálfri öld þýddu Theodóra Thor-
oddsen og Jens Benediktsson
norksu þjóðsöguna: Skurfarnir frá
Útröst". Þar segir frá „Huldur-
landi“, sem aldrei hefur verið fest
með stáli. Þangað fór fiskimaður-
inn ísak úr Veri og gisti höfðingja
eyjarinnar. Skarfamir vom synir
höfðingjans.
Annars er líka til heimild frá
Lofóten á 16. öld, þar sem geti er
um hættuleg áhrif stáls á fyla, svo
þeir verði áttaviHtir. Fýlar heita
Stormfuglar og ís-fuglar á ná-
grannamálunum, einkum heitir fs-
fugl sá sem býr á Helgolandi við
Frísland.
ísleifur og Andrés
í frægri íslenskri jólavísu er
sagt frá því að átta jólasveinar
hafí hitt mann nokkum utangátta.
Ekki em menn sammála um, hvort
maðurinn hét Andrés eða ísleifur,
enda verður niðurstaðan sú sama
miðað við áðurnefndar upplýsingar
frá lærdómsmönnum 11. aldar. Því
að Andrés er gríska og þýðir karl-
mannlegur og kann að vera þýð-
ing á hebreska orðinu ís, sem í
hebresku biblíunni er notað 2160
sinnum í merkingunni karlmaður.
Síðan er það þýtt með orðinu aner
á grísku og loks vir á latínu, og
em öll þessi orð af einni og sömu
merkingar-rótinni: ís sem breytist
í as og ír, vas og vís (samanber
Vísi-goti). Orðið Vir átti sér að
öðm leyti merkilega sögu árið
1185, þegar Þingeyrarmunkar
"Veiðivörur við allra hæfi
Sértu að hugleiða að bæta við eða
endurnýja veiðibúnað þinn, skaltu
kynna þér hið góða úrval Abu Garcia
veiðivara. Það ætti að tryggja að þú
finnir búnað sem hæfir þér.
Abu Garcia hefur í áratugi verið
leiðandi í tækniþróun veiðibúnaðar.
Það kemur meðal annars fram í
aukinni notkun á sérlega sterkum
en fisléttum efnum eins og t.d. grafiti í
veiðihjól. Þetta, ásamt góðri hönnun
^ Abu
Garcia
og útfærslu í smæstu atriðum gerir
Abu Garcia að eftirsóttum veiðivör-
um, enda einstaklega öruggar og
þægilegar í notkun.
1940
Hafnarstræti 5, símar 16760 og 14800