Morgunblaðið - 23.06.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
33
Kanada:
Sautján sovéskum sendi-
mönnum vísað úr landi
Toronto, Moskvu. Reuter.
KANADASTJÓRN hefur vísað
sautján sovéskum sendimönnum,
sem grunaðir eru um iðnaðar-
njósnir, úr landi. Brian Mul-
roney, forsætisráðherra Kanada
tilkynnti þetta á þriðjudag. Sov-
étmenn hafa gefið í skyn að þeir
hyggist svara í sömu mynt og
vísa kanadískum sendimönnum
úr landi.
Mulroney staðfesti að mennirnir
sautján hefðu verið ákærðir fyrir
njósnir, en gaf engar frekari upplýs-
ingar á blaðamannafundi sem hann
hélt í lok fundar sjö helstu iðnríkja
heims í Toronto. „Ég get staðfest
að við gripum ril aðgerða í síðustu
viku,“ sagði Mulroney og bætti við
að síðar í þessari viku yrði greint
nánar frá málavöxtum. Mulroney
gagmýndi ekki sovésk yfirvöld en
sagði að vestrænar þjóðir yrðu að
vera á varðbergi.
Tveir Sovétmannanna eru starfs-
menn sendiráðs Sovétríkjanna í
Ottawa og sex störfuðu fyrir sov-
éska sendiráðið í Montreal, að sögn
starfsmanns kanadísku stjórnarinn-
ar. Níu sovéskum sendimönnum,
sem fóru frá Kanada fyrir
skemmstu, hefur verið tilkynnt að
þeir fái ekki að koma inn í landið.
Sovéskum sendimönnum var síðast
vísað úr landi í Kanada árið 1984.
Sovéskum yfirvöldum var til-
kynnt um brottvísunina í síðustu
viku. Gennadíj Gerasímov, talsmað-
ur sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði á blaðamannafundi í Moskvu
að aðgerðum Kanadastjórnar yrði
svarað. „Líklega verður kanadísk-
um sendimönnum vísað úr landi,
það verða að teljast eðlileg viðbrögð
við þessari ögrun,“ sagði Ger-
asímov. Hann las upp yfirlýsingu á
blaðamannafundinum þar sem að-
gerðum Kanadastjórnar var mót-
mælt og staðhæft að ákærur á
hendur sendimönnundm væru ekki
á rökum reistar. Gerasímov vildi
ekki segja til um hversu mörgum
kanadískum sendimönnum yrði
vísað úr landi. Sovésk stjórnvöld
höfðu ekki haft samband við sendi-
ráð Kanada í Moskvu í gær.
Kína:
Þriðjungur verkamanna
aðgerðarlaus á vinnustað
Peking, Reuter.
í fyrsta sinn í fjörutíu ár viður-
kenna kinversk stjórnvöld að at-
vinnuleysi sé vandamál í Kina.
Talið er að þriðjungur verka-
manna í borgum landsins séu
verklausir daglangt vegna of
mikils fjölda starfsfólks.
Dagblað alþýðunnar í Kína
greindi frá því fyrir viku að allt að
30 milljónir manna sætu á vinnu-
stöðum daglangt án þess að gera
handtak. Þessir æviráðnu iðjuleys-
ingjar eyða vinnudeginum í spila-
mennsku og sjónvarpsgláp. „Of-
mönnun leiðir til lítils aga, lélegra
launa og er að gera Kínverja að
letingjum," sagði í blaðinu.
Fyrr í þessum mánuði sagði Zhao
Ziyang, formaður kínverska komm-
únistaflokksins, erlendum sendi-
mönnum að einn af hveijum þrem
verkamönnum í borgum landsins
hefði ekkert við að vera í vinnunni.
Ziyang sagði að fimmtungur ríkis-
fyrirtækja töpuðu miklu fé vegna
þessa og þyrfti að loka þeim.
Verkamenn í verksmiðjum í Kína
hafa til þessa verið dekurbörn
kínverskra stjómvalda. Þeim hefur
verið tryggð æviráðning og þjón-
usta frá vöggu til grafar. Vestrænn
sendimaður í Kína sagði í samtali
fyrir skömmu að kínverskir leið-
togar hefðu komist að þeirri niður-
stöðu að ríkisrekin fyrirtæki gætu
ekki skilað arði ef ekkert yrði að
gert varðandi yfirmönnun þeirra.
„Ef þessu á að breyta verða kínver-
skir frammámenn að vinna bug á
jafnréttisstefnunni sem verið hefur
við lýði í Kína í marga áratugi.
Kínveijar líta svo á að allir hafi
jafnan rétt til að fá vinnu og allir
eigi að fá sömu laun,“ sagði sendi-
maðurinn.
Fyrirtæki í Kína hafa leyfi til að
segja upp starfsmönnum. Mörg
þeirra óttast að ef gripið verður til
þess að segja upp starfsmönnum
leiði það til verkfalla og uppþota.
Því hafa þau reynt að grípa til ann-
arra ráða líkt og námufyrirtæki í
Kousseya, Egyptalandi, Reuter.
47 EGYPSKIR pílagrímar létu
lífið í eldsvoða við gamalt
klaustur aðfaranótt miðviku-
dags. Meðal hinna látnu voru
27 böbn. Fólkið var gestkom-
andi í klaustrinu vegna trúar-
hátíðar og bjó í tjöldum. Flestir
dóu í svefni af völdum eldsins
eða tróðust undir þegar óttas-
legið fólkið reyndi að flýja.
Eldurinn kviknaði eftir mið-
nætti og tók 7 tíma að ráða niður-
lögum hans. Talið er að kæruleysi
grennd við Shanghai, sem tók það
til bragðs að láta letingjana vinna
til þess að halda starfi sínu hjá fyrir-
tækinu. Fimmtíu og sex starfsmenn
sem höfðu ekki gert annað í langan
tíma en horfa á félaga sína vinna
voru sendir í „endurhæfingu“. Laun
þeirra voru lækkuð og þeim fengin
verkefni svo sem eins og hreingem-
ingar og reiðhjólaþrif eða lestur
góðra bóka. Þeir fimm sem stóðu
sig best fengu að hverfa til sinna
fyrri starfa en fimm letingjar voru
látnir { „endurhæfingu" og svo koll
af kolli.
einhverra af þeim 2000 gestum
sem dvöldu í klaustrinu hafí valdið
því að neistar frá rafali kveiktu í
bensíngeymi en þaðan breiddist
eldurinn út um tjaldsvæði þar sem
fólkið svaf. 15 manns slösuðust
en munkarnir 50 sem í klaustrinu
voru, sluppu allir ómeiddir.
Kousseya er um 350 kílómetra
sunnan við Kaíró og talið er að
Jesús Kristur, María og Jóséf hafí
haft þar viðdvöl þegar þau flúðu
undan ofsóknum Heródesar fyrir
tæpum 2000 ámm.
Egyptaland:
47 létu lífið í eldsvoða
þá höfum við
það að leiðarljósi í 20 ár að
enga rétti úr úrvals hráefnum
fyrir lágt verð. Af því tilefni kynnum við nú
réttina og verðið í hádeginu á næstu vikum.
Auk hins hefðbundna dagseðils, sem inniheldur
7-10 rétti daglega, þá minnum við jafnframt á
aðahnatseðilinn, sem hefur að geyma 50 rétti.
Blandaðurfiskur
áteiniVerðkr.
Hreindýra-
smásteik Verð kr.
Nautasneið
Verðkr.
Bjarni Ágústsson og
starfsfólk hótelsins býður
ykkur velkomin.
Hjá okkur er, og hefur
verið, opið allan daginn,
alla daga, allt árið um
kring.
SÍMI 25700
ARÐASTAL
Aratuga ending - margir litir
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
Vý'.< CO
23 Sitfni 688650