Morgunblaðið - 23.06.1988, Page 42

Morgunblaðið - 23.06.1988, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 Opna Austurlandsmótið: Polgarsystumar eínokuðu sigursætin 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 vinningar 1. Z. Polgar X V2 V2 V2 1 1 0 1 1 (1) 5V2 2. J. Polgar V2 X V2 1 1/2 V2 1 1/2 1 (1) 51/2 3. Karl Þorsteins V2 V2 X 0 1 1 V2 1 V2 5 4. Hannes H. Stefánss. V2 0 1 X 0 1 1 1 V2 5 5. Þröstur Þórhallss. 0 V2 0 1 X V2 V2 1 1 V2 4'/2 6. Björgvin Jónsson 0 V2 0 0 V2 X 1 V2 1 31/2 7. Sævar Bjamason 1 0 V2 0 V2 0 X 0 V2 21/2 8. J. Plaskett 0 V2 0 0 0 V2 I X V2 21/2 9. Mark Orr 0 0 V2 V2 0 0 1/2 V2 X V2 2 10. Helgi Ólafsson (0) (0) P/2) (1/2) 1 Skák Karl Þorsteins Polgar-systurnar snjöllu frá Ungveijalandi gerðu góða ferð á Opna Austurlandsmótið á Eg- ilsstöðum sem lauk fyrir helgi. í A-flokki urðu þær efstar og jafn- ar Zsusa Polgar og Judit Polgar. Þær hlutu 5'/2 vinning af átta mögulegum. Þriðja systirin, Zsofia Polgar, lét sitt ekki eftir Jjg'Sj3 °S sigraði með yfirburðum í B-flokki, hlaut 8V2 vinning af níu mögulegum. Gárungamir telja það nú víst fullsýnt að karlpeningurinn beri vart gæfu til að hreppa sigursætið á komandi mótum. Því þrátt fyrir að konur séu heldur fátíðir gestir í efstu sætum skákmóta með kepp- endum af báðum kynjum þá vill svo skemmtilega til að í bæði skiptjn sem Opna Austurlandsmótinu hefur verið haldið hefur kvenmaður skip- að efsta sætið. Í fyrra átti í hlut hin landflótta sovéska skákkona Anna Akhsharumova sem sigraði í A-flokki og nú bættu systumar um betur og sigruðu í báðum flokkun- um. Það þarf engum blöðum um það að fletta að sigur systranna var fyllilega sanngjam. Allar tefldu þær af miklum krafti og lögðu flesta andstæðinga sína án mikillar mót- stöðu. Já menn brostu einungis út í annað þegar andstæðingur hinnar ellefu ára gömlu Judit Polgar í fyrstu umferð rétti fram hendina, heldur sneypulegur til merkis um uppgjöf. Það átti þó eftir að koma á daginn að fleiri keppinautar henn- ar væm hrelldir. Það var skemmti- leg sjón að sjá andstæðinga hennar sífellt brúnaþyngri á meðan á skák- unum stóð, sitja andspænis stúlk- unni sem jafnan sat með sakleysis- legt bros og tefldi af miklum krafti. Vissulega hefur snilli þeirra systra borist um víðförla heimsbyggðina á síðustu ámm en fæstir áttu þó kannski von á því að andstæðing- amir gæfust hreinlega upp í um- vörpum fyrir þeim. Til marks um frábæran árangur Zsusu og Judit Polgar þá munar einungis hálfum vinningi að tilskild- um árangri til áfanga að stórmeist- aratitli væri náð. Þegar taflmennsk- an er skoðuð hlýtur sú hugsun raun- ar að koma í hugann hvort nokkur einstaklingur hafi áður náð jafn miklum þroska á skáksviðinu jafn ungur og Judit Polgar. Auðvitað em aðstæður þeirra að flestu leyti ákjósanlegar. Taflmennskan er þeirra lifibrauð og árið um kring er fjölskyldan í hringiðu skákmóta víða um veröld. En hæfíleikar þeirra og sérstaklega Judit em einstakir og var hreint undravert að fylgjast með stúlkunni eftir skákir, þegar hún var að sýna fómarlömbunum þá leiki sem hún hugleiddi meðan á skákunum stóð. Fórnarlömb Judit Polgar á Austurlandsmótinu þurfa a.m.k. ekkert að skammast sín fyr- ir framgönguna, því ljóst er að stúlkan sú, á eftir að kveða sér rækilega nafns í skákheiminum í framtíðinni. Aðrir keppendur í A-flokki féllu auðvitað í skuggann á frækilegri framgöngu þeirra systra. Baráttan var þó hörð og á heildina litið all skemmtileg. Barist var til þrautar í flestum skákanna og Hannes Hlífar og Karl Þorsteins komu í næstu sætum. Líklegast nægir þessi árangur Hannesar honum til lokaáfanga að alþjóðlegum meist- aratitli. Það bíður þings Fide í Þess- ólóniku í haust að fjalla um útnefn- ingu hans. Hann yrði yngsti al- þjóðlegi meistarinn sem Island hef- ur átt, ef af verður. Helstu úrslit má annars sjá á meðfylgjandi töflu. Helgi Ólafsson hætti af persónuleg- um ástæðum á mótinu 0g skákir hans á mótinu teljast af þeim sökum ekki með. í B-flokki voru 24 keppendur sem tefldu 9 umferðir eftir Monrad- kerfi. Zsofia Polgar sigraði þar ör- ugglega, eins og áður hefur komið fram, hlaut 8V2 vinning. Hún tefldi þar hins vegar einungis sem gestur þar sem Elo-skákstig hennar eru hærri en tilskilin voru í flokknum. Ivanovich kom næstur stúlkunni með 6V2 vinning og telst því vera sigurvegari í flokknum. Hann hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár og hlaut rúmar 80.000 kr. í verð- laun. Lokastaða efstu manna í B- flokki varð annars þessi: Vinn. af 9 mögul. 1. ZsofiaPolgar 8V2 2. Ivanovic 6V2 3. -4. Viðar Jónsson 6 3.-4. Sigurðaur Ragnarsson 6 5. Amar Ingólfsson 6*/2 Mótið var að mínu viti vel heppn- að. Aðstæður voru ágætar og veðr- ið lék auðvitað við keppendur. Það eina sem stakk í stúf var hversu fáir keppendur mættu til leiks og verður vonandi bragarbót þar á ef mótið verður haldið að ári. Hér kemur að lokum fjörleg skák frá mótinu. Hún var tefld í næst síðustu umferð og skipti sköpum um úrslit mótsins. Judit var hálfum vinningi fyrir ofan næsta keppanda og fyrir liðstjórnanda hvíta liðsafl- ans var nauðsynlegt að sigra til að eygja sigurvon á mótinu. Hvítt: Karl Þorsteins. Svart: Judit Polgar. 1. d4 - Rf6, 2. Rf3 - c5, 3. d5 - g6, 4. Rc3 - Bg7, 5. e4 - 0-0, 6. Be2 - d6, 7. 0-0 - Ra6. (Byijunarleikirnir eru allir vel þekktir og má finna í flestum byij- unarhandbókum. Almennt er staða hvíts talin heldur vænlegri. Það er annars athyglisvert við byijunar- taflmennsku Judit að hún beitir jafnan hvössum byijunarleikjum og tekur lítt mark á fordæmingu byij- unarfræðinga). 8. Bf4 - Rc7, 9. a4 - Bd7, 10. Dd2 - Hb8, 11. Hel - B5?! (Hvað er stúlkan að hugsa? var það fyrsta sem kom í hugskotið er peðinu var ýtt fram. Eðlilegra er að undirbúa framrásina með 11. a6. Staða hvíts er þó ákjósanlegri eftir t.d. 12. e5 — Re8 13. Re4). 12. axb5 - Bxb5, 13. e5! - Rh5, 14. Bh6 - Bxe2,15 Hxe2 - Hxb2, 16. g4! (Leikið samkvæmt orðatiltækinu Riddari á kanti líkist aumum fanti. Svarta staðan er nú mjög viðsjár- verð og krefst mikillar útsjónarsemi til að bjarga taflinu. í skíkum stöð- um nýtast á hinn bóginn taktískir hæfileikar Judit vel og setur hún fjölmörg vandamál upp fyrir and- stæðinginn sem átti einungis 25 mínútur til umráða fram að fertug- asta leik.) 16. - Dc8, 17. h3 - dxe5, 18, Rce5?! (Ekki 18. gxh5 Dxh3, 19. Bxg7 Dxf3 og svartur hefur a.m.k. jafn- NJÓTTU ÞESS TVISVAR Á DAG, EÐA OFTAR. Nýtt MACS tannkrem! Einstök flúorsamsetning nýja Macs tannkremsins verndar bæði tennur og tannhold. Og bragðið er . . . þú verður bara að prófa það. -n 8 cn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.