Morgunblaðið - 23.06.1988, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
49
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Tveir af eigendum Stags hf., Agnar Pétursson og Guðmundur Sig-
urðsson.
Ný veiðihús Veiði-
f élags Flóamanna
Unnið að því að auka fisksrenefd á svæðinu
Selfossi. O O
VEIÐI hefur gengið vel á vatna-
svæði Veiðifélags Flóamanna þar
sem veiði hófst fyrir nokkrum
dögum. Menn hafa fengið þar
6—10 fiska á dag á helstu svæð-
unum. Nýlega voru sett upp tvö
ný veiðihús á vatnasvæðinu.
Fyrirtækið Stag hf. sem hefur
svæðið á leigu tók í notkun tvö ný
veiðihús þegar veiði hófst. Húsin
eru við Vola og við Baugstaðaós.
Stag hf. hefur svæðið á leigu til
næstu tíu ára.
Fyrirtækið ætlar að leigja svæðið
út til stangveiði, með góðri aðstöðu
og eru nýju veiðihúsin upphafið að
þeirri fyrirætlan. Einnig er áformað
að stunda hafbeit á laxi úr Baug-
staðaósi. Þá er fyrirhugað að loka
af ákveðin svæði og sleppa þar ein-
hvetju magni af silungi og selja
síðan aðgang að þessum svæðum.
Þetta hugsa eigendur Stags hf. sem
fjölskyldusvæði.
í fyrra var sleppt sjö þúsund sjó-
birtingsseiðum á vatnasvæðinu og
er ætlunin að halda áfram að sleppa
seiðum og auka þannig fiskgengd
á svæðinu. Á hverju ári veiðist
nokkur fjöldi laxa á veiðisvæðinu.
í fyrra veiddust 30 laxar en flestir
hafa þeir orðið 80, árið 1982. Eig-
endur Stags hf. gæla við þá hug-
mynd að kalla Volalækinn Laxá í
Flóa svo hann fái eitt nafn. Lækur-
inn ber mörg nöfn allt eftir því
hvaða jarðir liggja að honum. Veiði-
leyrfi að vatnasvæðinu hafa alltaf
verið eftirsótt af stangveiðimönnum
hvaðanæva að. Leyfin eru nú seld
í versluninni Veiðisporti á Selfossi.
— Sig. Jóns.
Nýja veiðihúsið við gömlu Volabrúna.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
TOSHIBA
örbylgjuofnarnir
10GERÐIR
Verð við allra hæfí
Einar Farestvert&Co.hf.
örugglega og áreynslulaust. Auðveld stjórnun,
ekkert vindgnauð og hámarksnýting eldsneytis.
Vísindi snúast um vistfræði. Innréttingar og
búnaður bera þess merki að hér hefur fagmann-
lega verið að verki staðið. Það sem er staðalbúnað-
ur í Topaz kalla margir aðrir, aukahluti. Topaz er
rúmgóður og þægilegur og allt er gert til að tryggja
öryggi farþeganna.
Topas, tilvalinn bíll fyrir íslenskar aðstæður.
MERCURY TOPAZ GS, FRAMHJÓLADRIF
1.059.000 KR.
MERCURY TOPAZ AWD M/ALDRIFI
1.195.000 KR. Gengi í júní'88.
MEROJEY
TOPAZ
með drifi á öllum
Mercury Topaz er ekta amerískur lúxusbíll;
Kraftmikil vél, sjálfskipting, vökvastýri, aflhemlar
og framhjóladrif.
En Topaz kemur á óvart. Þú setur í aldrif með
því að ýta á einn hnapp. í regni, snjó, eða aur-
bleytu heldur hann sínu striki, án þess að neinu
sé fórnað af þægindum eða öryggi.
Straumlínulaga bygging hefur líka sitt að segja
um góða aksturseiginleika. Þú líður áfram hratt,
Leið 4 stoppar við dymar
FORD í FRAMTlÐ VIÐ SKEIFUNA SÍMAR 689633 & 685100.