Morgunblaðið - 23.06.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988
Ekkert einsdæmi
Islensku-
kennsla
42 ára indveiji skrifaði Velvak-
anda. í bréfinu kom fram að hann
vildi gjarnan læra íslensku og bað
um að fá einhveijar upplýsingar þar
að lútandi. Enn fremur kvaðst hann
hafa áhuga á að þýða íslenskar
bækur yfir á móðurmál sitt að námi
loknu.
Þeir sem geta gefið honum upp-
lýsingar skrifi til:
Mr. A. N. Krishna Murthy,
35, Vanivilas Road,
Bangalore - 560 004,
INDIA
Kæri Velvakandi!
Ég má til með að senda þér
þetta bréf eftir að ég heyrði aug-
lýsta gefins kettlinga á útvarps-
stöðinni Bylgjunni. Fréttamaður-
inn gat þess að fjórir mánaða
gamlir kettlingar fengjust gefins
og hægt væri að fá upplýsingar
um þá í símanúmeri hér í
Reykjavík. Síðan sagði hann eitt-
hvað á þá leið að ef enginn vitjaði
þeirra yrðu þeir svæfðir „litlu grey-
in“, svo notuð séu orð fréttamanns-
ins.
Þessi saga er ekkert einsdæmi
um dýrahald í borginni. Nánast á
hveijum degi birtast auglýsingar í
dagblöðum þar sem óskað er eftir
fólki til að taka að sér þessi kisu-
börn. Annars er bara farið með
þau til næsta dýralæknis sem
stingur þau á hol með sprautu sem
drepur nánast samstundis.
Hvers vegna gerir fólk slíkt?
Það hefur yndi ai' þessum litlu
greyjum á meðan þau eru lítil og
ósjálfbjarga en um leið og þau
stækka og lífsfjörið drífur þau upp
um húsgögn og gluggatjöld og þau
hendast í gleði og leik um öll gólf,
þá eru þau orðin fólki ofraun og
hreint út sagt drepin, eða þeim
lógað, svo notað sé fínna orðalag.
Hvers vegna í ósköpunum lógar
fólk ekki þessu litla lífi fyrr, áður
en lífsfjörið og lífsviljinn ræður
ríkjum? Hvers konar skepnuskapur
ríkir í húsdýrahaldi í borginni?
Þetta er vægast sagt kvikindis-
háttur og miskunnarleysi. Fólk má
ekki gera slíkt. Hvers vegna gerir
Kattavinafélagið ekki stórátak í
þessu máli? Sjálfur hef ég orðið
vitni af þessum slátrunum og því
ofbýður mér stefnan í dýrahaldi í
Reykjavík sem og í bæjum og
kauptúnum úti á landi hvað ketti
varðar. Að sjá litla kettlinga, lítil
kattabörn svæfð svefninum langa,
einmitt þegar lífsgleðin er að vakna
og er hve mest.
Ég vil beina þeim orðum til
kattaeigenda að láta lóga þessum
litlu greyjum, ef á annað borð á
að gera það, sem fyrst, áður en
lífsviljinn og gleðin yfir að lifa og
leika sér nær yfirráðum hjá þessum
elskulegu litlu krílum.
Einar Ingvi Magnússon
Engan bjór
Til Velvakanda.
Eng-an bjór, ekkert
alkóhól
Bjórvín bætir ekkert úr,
eykur bara vandann.
Spilling, morð og gripdeildir
flæða yfir landann.
Embættismenn hér sök munu eiga,
forseti kann þar nærri að koma.
Vonandi til að afstýra slysi
og þagga niður í alkohóli.
Ó.P.
Margt er skrýtið
í kýrhausnum
Til Velvakanda.
Þessa dagana er pexað út af
því að fjármálaráðherra neitar að
afhenda það fé sem í ríkiskassann
hefur komið vegna söluskatts á
búvörum. Fyrir þetta er ráðher-
rann yfírlýstur svikari, þar eð tveir
af stjórnarflokkunum segjast hafa
samþykkt söluskatt á búvörur með
því skilyrði að hann yrði afhentur
þeim til úthlutunar. Málið gengur
sem sagt þannig fyrir sig að kaup-
menn eru skyldaðir til að kreíja
viðskiptavini sina um þennan mat-
arskatt. Ríkissjóður innheimtir
skattinn af kaupmönnum og á svo
að afhenda hann landsfeðrum til
útdeilingar. Ríkissjóður á svo að
bera kostnaðinn vegna vinnunnar
við millifærsluna. Enda ekki telj-
andi eftir þar sem þetta er ein-
göngu gert til hagsbóta fyrir neyt-
endur. En neytendur erum við öll,
hvaða atvinnu sem við stundum.
Vanþakklætið er víða og er það
ekki grátlegt að þegar ríkisstjórn-
in hefur eftir marga fundi og mikl-
ar vangaveltur fundið svona
snjalla lausn að þá skuli vera til
ruglukollar eins og ég sem eru að
veita því fyrir sér hvort það að
leggja engan matarskatt á búvör-
ur sé ekki bara fullt eins hag-
kvæmt fyrir neytendur og ríkissjóð
eins og kjötskattshringekja okkar
vísu ríkisstjómar? M.J.
4
Þakkir
A. G. hringdi:
„Ég vil koma á framfæri kæru
þakklæti til starfsfólks Akra-
nesspítala. Ég dvaldi þar í einn
dag fyrir skömmu og hef aldrei
fyrr fengið jafn frábæra þjónustu
og mér var veitt þar.
Karlmannsarmband
Karlmannsarmband úr gulli
tapaðist í miðbænum fyrir ca. 10
dögum. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 641300. Fundarlaun-
um- heitið.
0 * ^ **
Ofremdarástand í Old-
uselsskóla
Foreldri barna í Ölduseis-
skóla hringdi:
„Mér þykir umræðan um stöðu-
veitingarnar til skólastjóra komin
út í öfgar. Á sama tíma og kennar-
ar skólans em að tala um hið
góða starf sem fer fram innan
veggja hans eru þeir að rífa það
niður og bitnar það fyrst og
fremst á nemendunum sjálfum.
Hvað eru kennarar að fara með
því að beija sér á bijóst og segj-
ast hugsa um hag nemenda þegar
þeir koma fram í sömu andrá og
segjast ætla að leggja skólastarfið
í rúst vegna þess að þeim fellur
ekki í geð sá sem tekur við stöð-
unni?“
„Foreldrum í hverfinu er farið
að þykja nóg um og viljum við
skora á kennara að koma fram
af heilindum og fara eftir því sem
þeir hafa ávallt sagst hafa að leið-
arljósi, þ.e. að bera fyrst og fremst
hag barnanna fyrir bijósti."
„Komdu níSur'Kóbert. MuncLu ouð
þci ert bÓKhdld.arL."
Ef þú selur mannskepn-
unni þessa uppfinningu, er
tilveru okkar hreinlega
ógnað ...
Með
morgimkaffinu
HÖGNI HREKKVlSI
/-VISTIN ER BlLUÐ