Morgunblaðið - 23.06.1988, Síða 67

Morgunblaðið - 23.06.1988, Síða 67
„ qrnimrrwnmSifTTCjrtlOI OIÖAiavrfmflOM MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1988 ■ VALDIMAR Grímsson, landsliðsmaður í handknattleik, var aftur skorinn upp vegna ristarbrots í fyrradag. Valdimar ristarbrotnaði á síðastliðnum vetri, en var farinn að æfa aftur. Meiðslin tóku sig upp á ný á æfingu fyrir nokkrum dögum og varð hann að fara í uppskurð. Að sögn Gunnars Þórs Jónssonar, læknis, getur Valdimar farið að æfa þrek að nýju fljótlega — en verður væntanlega kominn á fulla ferð að nýju eftir fjórar vikur. ■ ÞORGILS Óttar Mathiesen og Einar Þorvarðarson hafa einn- ig átt við meiðsli að stríða. Einar er farinn að æfa aftur og Þorgils, sem snéri sig á ökkla á æfingu í fyrradag, byijar aftur nú í vikunni. I HILMAR Björnsson og Viðar Símonarson, handknattleiksþjálf- arar fara í ágúst til Nígeríu og Tanzaníu á vegum Handknatt- leikssambands Islands, þar sem þeir halda þjálfaranámskeið fyrir þjálfara frá Afríkulöndum. Talið er að þjálfarar frá um 20 löndum mæti á námskeiðin. ■ FJÓRIR landsliðsmanna ís- lands í handknattleik starfa við það í sumar á vegum HSÍ að safna auglýsingum í blað sem kemur út fyrir Flugleiðamótið í ágúst. Þetta eru þeir Kristján Arason, Einar Þorvarðarson, Sigurður Sveins- son og Júlíus Jónasson. I RAMON Mendosa, forseti Real Madrid hefur verið rekinn frá spænska knattspymusambandinu, sem varaforseti þess. Mendosa var ekki neitt yfír sig hrifinn af gengi spánska landsliðsins í Evrópu- keppninni og átti hann að hafa gagnrýnt Miguel Munoz, þjálfara liðsins, heldur ótæpilega f útvarps- viðtali eftir að Spánveijar höfðu tapað fyrir V-Þjóðveijum og Itölum. Forseti sambandsins, Jose Luis Roca, sagði að Mendosa hefði hagað sér dónalega og að knatt- spymusambandið gæti alveg verið án hans starfskrafta. ■ ROBERT Walters, knatt- þrautarsnillingurínn mikli, mun leika listir sínar í hálfleik í kvöld á Kópavogsvelli, þar sem Breiða- blik mun mæta IBV. ■ ANDRI Marteinsson, leik- maður VOdngsliðsins í knatt- spymu, mun ekki leikið sfðustu leiki liðsins í 1. deildarkeppninni. Andri heldur til Alabama f Bandaríkjun- um í sumar. Þar mun hann stunda nám í fjölmiðlafræði. ■ NERY Pumpido, landsliðs- markvörður Argentínu, sem lék með heimsmeistaraliði landsins í Mexikó, hefur gengið til liðs við spænska féiagið Real Betis. Fyrir ellefu mánuðum var útlitið ekki bjart hjá Pumpido, sem missti fing- ur á æfingu hjá félagi sínu River Plate. Læknar náðu að græða fing- urinn aftur á. Pumpido, er 31 ára, kostaði Betis 13.5 millj. ísl. kr. ■ MEISTARAMÓT Islands í hoiukeppni í golfi fer fram á Hólm- svelli í Leiru dagana 24. júní til 26. júní. Þátttökurétt hafa kylfing- ar með 7 högg eða færri í forgjöf og hefst mótið á 18 holu höggleik til röðunar í 16 sæti. Skráningu í keppnina lýkur klukkan 20 í kvöld. FRJÁLSÍÞRÓTTIR / KRINGLUKAST Wolfgang Schmidt setti v-þýskt met og Vésteinn jafnadi íslandsmetið .. _ * KÖRFUKNATTLEIKUR Fimm félög búin að ráða þjálfara Um helgina gengu tvö félög í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik frá ráðningu þjálfara fyrir næsta keppnistímabil. Það voru IBK og Haukar, en nú eru fimm félag af tíu búin að ráða sér þjálfara. Lee Nober skrifaði undir samning við ÍBK og Einar Bollason tók við Haukum að nýju. Þá eru fimm félög deildarinnar búin að ráða sér þjálfara. Laszlo Nemeth, landsliðsþjálfarí, mun þjálfa KR, Torfi Magnússon hefur tekið við Valsmönnum og Valdimar Guðlaugsson mun þjálfa lið nýliða ÍS. Það eru því fimm félög sem enn eru þjálfara- iaus, Njarðvík, Grindavík, ÍR, Þór ogTindastóll. WoHgang Schmldt sést hér f mstkastl sinu. Hann ar fyrstl frjólsíþróttamaAurlnn tll að ná baaði a-þýsku og v-þýsku matl. Vésteinn náði Olympíulágmarki öðru sinni en Eggert vantaði herzlumuninn „ÉG náði að útfœra köstin vel í kvöld, tæknin var eins og hún var þegar ég var upp á mitt bezta fyrir áratug," sagði Wolf- gang Schmidt, í samtali við Morgunblaðið eftir að hafa skrifað nýtt blað í íþróttasög- unni og sett nýtt vestur-þýzk met í kringlukasti, 68,22 metra, á Burkna-mótinu í Hafnarfirði í gær. Á mótinu náðist mjög góður árangur og jafnaði Vé- steinn Hafsteinsson, HSK, ís- landsmet sitt, kastaði 65,60 metra. Það var ánægjulegt að slá met Hein-Direck Neu, sem var 68.08 metrar. Takmarkið var að kasta yfir 68 metra í ár. Þar sem því marki er nú náð verð ég að endurskoða áætlanir mínar og setja mér nýtt mark því mikið er eftir Vésteinn Hafstelnsson sést hér kasta og jafna íslands- met sitt. af keppnistímabilinu. Nú verð ég að stefna á 70 metrana," sagði Schmidt, sem setti heimsmet, 71,16 metra, í Austur-Berlín 9. ágúst 1978, eða fyrir áratug. Schmidt dansaði af gleði Metkastið kom í fjórðu umferð á Burkna-mótinu og dansaði Schmidt af gleði á kastvellinum í Kaplakrika að því settu. Fyrsta kastið mældist 60,44, næsta kast 67,48 en hið þriðja var ógilt. í fimmtu og sjöttu umferð kastaði hann 67,00 og 65,62 metra. * Schmidt á líklega mikið inni í kringlukastinu þar sem hann er ekki nema 34 ára gamall. Þetta er fyrsta keppnistímabil hans frá 1981 þar sem hann féll f ónáð í heima- landi sínu Austur-Þýskalandi og var fangelsaður á annað ár fyrir að hafa aðrar skoðanir á lífinu og til- verunni en lejrfilegar eru þar í landi. Hann fékk að flytjast til Vestur- Þýskalands í fyrrahaust og tók þá að nýju til við æfingar og keppni. Vésteinn náði ÓL-lágmarkinu öðnislnni „Þetta er leiðinleg tala,“ sagði Vé- steinn Hafsteinsson eftir að hafa jafnað íslandsmet sitt. Skemmti- legra hefði honum þótt að bæta met sitt, en hann virðist í æfingu til þess. Metkastið kom í þriðju umferð en einnig átti Vésteinn 62,40, 62,00 og 61,96 metra kösL Með afreki sínu náði hann Ólympíu- lágmarki öðru sinni og tryggði því þátttökurétt sinn í Seoul. Aðrir náðu góðum árangri á Burkna-mótinu. Norðmaðurinn Olav Jensen kastaði 64,08 og Eg- gert Bogason 62,64. Er það bezti árangur þeirra í ár og vantaði Eg-, rt aðeins herslumuninn til að ná lympíulágmarkinu, sem er 63,00 metrar. Hann kastaði 63,18 á Burknamótinu í fyrrasumar. Næst- lengsta kast Eggerts mældist 62,38 metrar. Svíin Göran Svensson kast- aði 66-68 metra í upphitun en ætl- aði sér um of í keppninni, var of kappsfullur í hringnum og kastaði lengst 60,68 metra. Daninn Claus Bahrc kastaði 51,86 metra. Wolfgang Schmidt kom hingað til lands í boði FRÍ og keppti á Flug- leiðamótinu í fyrrakvöld. Á laugar- daginn keppir hann sem gestur á Meistaramóti íslands í Laugardal. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Morgunblaöié/Einar Falur Landslidsmonnirnlr taka hraustlega til matar síns á Sprengisandi. Landsliðið snæðir á Sprengisandi Landsliðið í handknattleik æfir af miklum krafti þessa dagana og ger- ir það alveg fram í september, er það fer á Ólympíuleikana í Seoul. Liðið æfir tvisvar á dag kl. 10.00 og kl. 18.00. í hádeginu snæðir lands- liðshópurinn alltaf á veitingastaðnum Sprengisandi, en GGS hf., sem rek- ur Sprengisand, ákvað að styrkja HSÍ með þeim hætti að bjóða hópnum í mat á hveijum degi á meðan á æfingatímabilinu stendur. Landsliðsmenn- imir Iuku lofsorði á matinn, er blaðamenn litu við hjá þeim í hádeginu í fyrradag. Sögðu hann fjölbreyttan og góðan. Steinar J. Lúðvíksson, vara- formaður HSI, sagði sambandið mjög þakklátt fyrir þennan stuðning. „Ég vil, fyrir hönd HSÍ, þakka Sprengisandi fyrir þetta höfðinglega framtak til landsliðsins okkar. Þetta er enn meira virði en krónutalan sýnir, því þetta sparar HSÍ heilmikla fyrirhöfn," sagði Steinar á blaðamannafupdi á Sprengisandi. Talið er að andvirði styrks GGS hf. til HSÍ sé á bilinu átta hundrað þúsund til ein milljón króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.