Morgunblaðið - 28.06.1988, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988
29
Najibullah hótar Pakistönum:
Hluti sovézka hersins kann
að verða eftir í Afganistan
Skæruliðar eyðilögðu 8 sovézkar orrustuþotur
London, Moskvu. Reuter.
NAJIBULLAH, forseti Afgan-
istans, sagði í viðtali við brezka
blaðið Daily Telegraph að
stjórnin í Moskvu gæti hætt við
Lundúnum, Reuter.
Ihaldsflokkurinn í Bretlandi
jók forskot sitt á Verkamanna-
flokkinn í síðasta mánuði, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem birt
var í breska dagblaðinu Obser-
verá sunnudag.
48 prósent þeirra sem afstöðu
tóku í skoðanakönnuninni sögðust
Farið fram á
náðun Rusts
Moskvu, Reuter
SOVÉSKT fréttatímarit birti í
gær bréf þar sem farið var fram
á að vestur-þýski flugmaðurinn
Mathias Rust yrði látinn laus.
að draga sovézka innrásarher-
inn heim frá Afganistan ef Pa-
kistanar héldu áfram stuðningi
við Mujahideen-skæruliða.
myndu greiða íhaldsflokknum at-
kvæði og 36 prósent Verkamanna-
flokknum. I síðasta mánuði fékk
íhaldsflokkurinn 44 prósent og
Verkamannaflokkurinn 41 pró-
sent.
Að sögn blaðsins bendir skoð-
anakönnunin til þess að Verka-
mannaflokkurinn hafi tapað fylgi
vegna óvissu um afstöðu Verka-
mannaflokksins til kjarnorkuaf-
vopnunar. Leiðtogi Verkamann-
flokksins Neil Kinnock sagðist í
síðustu viku standa fast við þá
stefnu flokksins að Bretar afsö-
luðu sér einhliða öllum kjamorku-
vopnum. Hálfum mánuði áður
hafði hann sagt að einhliða kjam-
orkuafvopnun ætti ekki við lengur.
Najibullah sagði að ef Pakistan-
ar virtu ekki friðarsamkomulagið
um Afganistan frá því í apríl kynni
svo að fara að hluti sovézka liðsins
yrði ekki kvaddur heim.
Viðtalið við Najibullah var birt
daginn eftir að vestrænir stjórnar-
erindrekar í Islamabad í Pakistan
skýrðu frá því að skæruliðar hefðu
eyðilagt átta sovézkar ormstuþot-
ur af gerðinni Sukhoy SU-25 í
árás á flugvöllinn í Kabúl sl.
fímmtudag. Er þar um að ræða
mesta tjón, sem skæruliðar hafa
valdið sovézka. innrásarliðinu í
einni árás, að sögn stjómarerind-
reka. Najibullah minntist ekki á
atburðinn í viðtalinu.
Málgagn sovézka kommúnista-
flokksins, Pravda, skýrði frá því í
fýrradag að skæruliðar hefðu tek-
ið borgina Maydan Shahr síðastlið-
inn föstudag eftir „blóðuga bar-
daga“. Stjórnarherinn hefði hins
vegar endurheimt yfirráð í borg-
inni eftir sólarhring. Að sögn Pröv-
du réðust um 2.000 skæruliðar á
borgina, sem er 50 km suðvestur
af Kabúl á föstudag. Beittu þeir
flugskeytum og stórskotavopnum.
Blaðið sagði að skæruliðar hefðu
látið flugskeytum rigna yfir borg-
ina er þeir hörfuðu til baka á laug-
ardag og við það hefði fjöldi
óbreyttra borgara týnt lífi.
Skoðanakönnun í Bretlandi:
Ihaldsflokkurinn
eykur forskotið
Reuter
Þumaljárn
Hér fyrr á öldum tíðkaðist að settar væru þumalskrúfur á meinta
sakamenn, en slíkar yfirheyrsluaðferðir hafa nú verið lagðar á
hilluna. Á myndinni að ofan má á hinn bóginn sjá Singapore-
búann Xu Zhi Gang reyna þumaljárn, sem kynnt voru á öryggis-
málasýningu þar í borg á dögunum. Þau eru sögð ætluð fyrir
lögregluþjóna, sem vilja ferðast með sem minnstan farangur. Þá
er nefnt að þau séu „handhægari" en hefðbundin handjárn, erfið-
ara sé og sársaukafyllra að sleppa úr þeim, og siðast en ekki
síst séu þau minna áberandi en forverar þeirra.
Mathias Rust var handtekinn eft- T ÍhniUHl!
ir að lítil flugvél hans lenti á Rauða
torginu í Moskvu í maí á síðasta
ári. Áður óþekkt sovésk vináttu-
samtök fóru fram á að Rust yrði
náðaður í bréfi sem birtist í sovéska
tímaritinu Nýir tímar í gær. í bréf-
inu er forsætisnefnd Æðsta ráðsins
beðin um að náða Rust í nafni „kær-
leika, mannúðar, miskunnsemi og
góðra samskipta milli þjóða.“ í bréf-
inu sagði að Rust hefði viljað stuðla
að friði með flugi sínu og að eins
árs vist hans í þrælkunarbúðum
dygði til að fæla aðra frá að leika
sama leik.
Skæruliðar Arafats gefast upp
fyrir skæruliðum Abu Musa
Átökum hætt í Shatila-búðunum
ERLENT
Beirút, Reuter.
Palestínskir skæruliðar, sem
hliðhollir eru Yasser Arafat, gáf-
ust upp fyrir skæruliðum sem
njóta stuðnings Sýrlendinga í
Shatila-flóttamannabúðunum í
Beirút í gær. Barist hefur verið
um yfirráð í flóttamannabúðum
í borginni látlaust síðustu þijá
mánuðina. Búðirnar eru rústir
einar eftir átökin.
Sjónarvottar segja að skæruliðar
Abu Musa, sem studdir eru af Sýr-
lendingum, hafi náð yfirráðum í
Shatila-búðunum eftir hörð átök.
Talsmaður Abu Musa sagði að um
sextíu skæruliðar sem hliðhollir eru
Yasser Arafat, yfirmanni Frelsis-
sveita Palestínu (PLO), hefðu gefíst
upp í dögun í gær. Ekki er vitað
hversu margir féllu í lokaátökunum
í Shatila-búðunum, en 90 manns
hafa látið lífið í átökum þar og í
Bouij al-Barajneh búðunum undan-
fama mánuði.
Sýrlendingar, sem stutt hafa Abu
Musa síðan í uppreisninni gegn
Arafat árið 1983, gerðu enga til-
raun til að binda enda á átökin í
Beirút þrátt fyrir að sýrlenskar
hersveitir hafi umkringt búðirnar á
síðasta ári.
Sýrlendingar og Arafat sættust
eftir fimm ára óvináttu í aprílmán-
uði síðastliðnum fyrir milligöngu
Muammars Gaddafís, Líbýuleið-
toga. Líbanskur stjórnmálamaður
sagði í samtali við Reuíers-frétta-
Bandaríkin:
Svíar taldir standa fremst í
jafnréttismálum í heiminum
Island komst ekki á blað í könnun um réttindi kvenna
SVÍÞJÓÐ og Finnland eru talin
vera fremst þjóða í kvenrétt-
indamálum, samkvæmt rann-
sókn, sem „Population Crisis
Council“ hefur gert um heim
allan. Niðurstöður ráðsins eru
birtar í Washington Post í gær.
Það mun vekja athygli og ef
til vill undrun margra, að ís-
land kemst ekki á blað í þess-
ari rannsókn.
Frú Sharon L. Camp, sem er
varaforseti nefnds ráðs og stjóm-
aði rannsókninni, var spurð að því
hvernig á því stæði, að ísland
væri ekki nefnt í þessari rann-
sókn. Hvort það þætti ekki í frá-
sögur færandi, í þessu sambandi,
að ísland væri vafalaust eina
landið í heiminum þar sem 10
prósent af kosnum þingfulltrúum
landsins eru konur. Frú Camp
svaraði því til, að ástæðan fyrir
því að Island er ekki talið með
væri, að ráðinu hefði ekki tekist
að fá nægjanlegar og ábyggilegar
upplýsingar frá íslandi um jafn-
rétti kvenna.
í niðurstöðum ráðsins var tekið
tillit til eftirfarandi fimm atriða:
heilsufars kvenna, eftirlits með
bamsfæðingum, aðstöðu til
menntunar og lagalegrar stöðu
kvenna. Hæst voru gefin 20 stig
fyrir hvert atriði. Svíþjóð hlaut
87 stig af 100 mögulegum. Finn-
land kom næst og þá Bandaríkin
með 82,5 stig. Bangladesh var
neðst á listanum með 21,5 stig.
Bilið milli ríkra
og fátækra
Frú Camp sagði, að aðaltil-
gangur rannsóknarinnar hefði
verið að kanna hver væri mismun-
urinn á lífí og stöðu kvenna með-
al fátækra og ríkra þjóða og í
hveiju mismunurinn fælist. Rann-
sakendur notuðu fjóra stuðla, sem
reiknaðir voru út á stærðfræðileg-
an hátt. Til dæmis var stuðullinn
fyrir heilsufar kvenna reiknaður
út frá dánartölu mæðra og barna
við fæðingu, dánartölu þungaðra
kvenna, meðalaldri, og mismunin-
um á meðalaldri kvenna og karla.
Finnland var eina landið sem fékk
20 stig fyrir heilsufar. Ýmsar at-
hyglisverðar upplýsingar komu
fram f rannsókninni, eins og t.d.
að um allan heim er það konan,
sem sér fyrst og fremst um heimil-
ið og heimilisstörfín, þótt hún
vinni utan heimilisins. Ekkjur og
fráskildar konur eiga erfíðara með
að framfleita sér en karlar í sömu
aðstöðu. Konur lifa að jafnaði sjö
árum lengur en karlar í iðnaðar-
löndunum, en í þróunarlöndunum
er meðaltalið tvö ár.
Frú Camp sagði, að hún myndi
gjaman taka á móti upplýsingum
um stöðu kvenna á íslandi, og
birta þær, en hagtölumar mættu
ekki vera eldri en frá 1974.
stofuna að Arafat hefði viljað
þvinga skæruliða Abu Musa til að
ganga til liðs við Fatah-hreyfinguna
sem hann stjómar. „Arafat ræður
yfír búðum í Suður-Líbanon en Abu
Musa í norðri þannig að Beirút var
síðasta vígið og Sýrlendingar vildu
ekki færa Arafat borgina á silfur-
fati,“ sagði líbanski stjómmálamað-
urinn. Hann sagði einnig að líklega
yrði komið upp friðarsveitum milli
búðanna tveggja, Shatila og Bouij
al-Barajneh. „Sýrlendingar munu
ekki grípa inn í nema Arafat biðji
þá um það,“ sagði stjórmálamaður-
inn og bætti við að ef Arafat gerði
það væri hann að viðurkenna ítök
Sýrlendinga í Líbanon og áhrif
þeirra á Palestínumenn.
Opinbera fréttastofan í Líbýu,
JANA, sagði í gær að stuðnings-
menn Arafats hefðu átt fund með
yfirmönnum líbýska hersins í
Trípólí fyrir uppgjöfina í gær til að
ræða á hvern hátt væri mögulegt
að binda enda á átökin. Snemma í
gærmorgun fóru um tuttugu líbý-
skir hermenn inn í Shatila-búðimar
til að reyna að koma í veg fyrir
frekari átök. Þeim var tekið með
skothríð og gijótkasti. Einn þeirra
varð fyrir skoti leyniskyttu og var
fluttur særður á brott.
Palestínskur heimildarmaður
Reuíers-fréttastofunnar sagði aug-
ljóst að Sýrlendingar og Líbýumenn
sem vildu gera allt til þess að auka
áhrif sín í Líbanon fyrir forseta-
kosningar sem fram fara í landinu
í september, vildu báðir eigna sér
heiðurinn af uppgjöfinni. Þeim bæri
ekki saman um á hvem hátt átökum
hefði lokið í búðunum í gær. „Líbýu-
menn vilja að Syrlendingar kalli
hersveitir sínar heim en Sýrlending-
ar harðneita að hverfa á brott,“
sagði heimildarmaðurinn. Um
25.000 manna herlið Sýrlendinga
er nú í Líbanon.