Morgunblaðið - 28.06.1988, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 28.06.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988 29 Najibullah hótar Pakistönum: Hluti sovézka hersins kann að verða eftir í Afganistan Skæruliðar eyðilögðu 8 sovézkar orrustuþotur London, Moskvu. Reuter. NAJIBULLAH, forseti Afgan- istans, sagði í viðtali við brezka blaðið Daily Telegraph að stjórnin í Moskvu gæti hætt við Lundúnum, Reuter. Ihaldsflokkurinn í Bretlandi jók forskot sitt á Verkamanna- flokkinn í síðasta mánuði, sam- kvæmt skoðanakönnun sem birt var í breska dagblaðinu Obser- verá sunnudag. 48 prósent þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnuninni sögðust Farið fram á náðun Rusts Moskvu, Reuter SOVÉSKT fréttatímarit birti í gær bréf þar sem farið var fram á að vestur-þýski flugmaðurinn Mathias Rust yrði látinn laus. að draga sovézka innrásarher- inn heim frá Afganistan ef Pa- kistanar héldu áfram stuðningi við Mujahideen-skæruliða. myndu greiða íhaldsflokknum at- kvæði og 36 prósent Verkamanna- flokknum. I síðasta mánuði fékk íhaldsflokkurinn 44 prósent og Verkamannaflokkurinn 41 pró- sent. Að sögn blaðsins bendir skoð- anakönnunin til þess að Verka- mannaflokkurinn hafi tapað fylgi vegna óvissu um afstöðu Verka- mannaflokksins til kjarnorkuaf- vopnunar. Leiðtogi Verkamann- flokksins Neil Kinnock sagðist í síðustu viku standa fast við þá stefnu flokksins að Bretar afsö- luðu sér einhliða öllum kjamorku- vopnum. Hálfum mánuði áður hafði hann sagt að einhliða kjam- orkuafvopnun ætti ekki við lengur. Najibullah sagði að ef Pakistan- ar virtu ekki friðarsamkomulagið um Afganistan frá því í apríl kynni svo að fara að hluti sovézka liðsins yrði ekki kvaddur heim. Viðtalið við Najibullah var birt daginn eftir að vestrænir stjórnar- erindrekar í Islamabad í Pakistan skýrðu frá því að skæruliðar hefðu eyðilagt átta sovézkar ormstuþot- ur af gerðinni Sukhoy SU-25 í árás á flugvöllinn í Kabúl sl. fímmtudag. Er þar um að ræða mesta tjón, sem skæruliðar hafa valdið sovézka. innrásarliðinu í einni árás, að sögn stjómarerind- reka. Najibullah minntist ekki á atburðinn í viðtalinu. Málgagn sovézka kommúnista- flokksins, Pravda, skýrði frá því í fýrradag að skæruliðar hefðu tek- ið borgina Maydan Shahr síðastlið- inn föstudag eftir „blóðuga bar- daga“. Stjórnarherinn hefði hins vegar endurheimt yfirráð í borg- inni eftir sólarhring. Að sögn Pröv- du réðust um 2.000 skæruliðar á borgina, sem er 50 km suðvestur af Kabúl á föstudag. Beittu þeir flugskeytum og stórskotavopnum. Blaðið sagði að skæruliðar hefðu látið flugskeytum rigna yfir borg- ina er þeir hörfuðu til baka á laug- ardag og við það hefði fjöldi óbreyttra borgara týnt lífi. Skoðanakönnun í Bretlandi: Ihaldsflokkurinn eykur forskotið Reuter Þumaljárn Hér fyrr á öldum tíðkaðist að settar væru þumalskrúfur á meinta sakamenn, en slíkar yfirheyrsluaðferðir hafa nú verið lagðar á hilluna. Á myndinni að ofan má á hinn bóginn sjá Singapore- búann Xu Zhi Gang reyna þumaljárn, sem kynnt voru á öryggis- málasýningu þar í borg á dögunum. Þau eru sögð ætluð fyrir lögregluþjóna, sem vilja ferðast með sem minnstan farangur. Þá er nefnt að þau séu „handhægari" en hefðbundin handjárn, erfið- ara sé og sársaukafyllra að sleppa úr þeim, og siðast en ekki síst séu þau minna áberandi en forverar þeirra. Mathias Rust var handtekinn eft- T ÍhniUHl! ir að lítil flugvél hans lenti á Rauða torginu í Moskvu í maí á síðasta ári. Áður óþekkt sovésk vináttu- samtök fóru fram á að Rust yrði náðaður í bréfi sem birtist í sovéska tímaritinu Nýir tímar í gær. í bréf- inu er forsætisnefnd Æðsta ráðsins beðin um að náða Rust í nafni „kær- leika, mannúðar, miskunnsemi og góðra samskipta milli þjóða.“ í bréf- inu sagði að Rust hefði viljað stuðla að friði með flugi sínu og að eins árs vist hans í þrælkunarbúðum dygði til að fæla aðra frá að leika sama leik. Skæruliðar Arafats gefast upp fyrir skæruliðum Abu Musa Átökum hætt í Shatila-búðunum ERLENT Beirút, Reuter. Palestínskir skæruliðar, sem hliðhollir eru Yasser Arafat, gáf- ust upp fyrir skæruliðum sem njóta stuðnings Sýrlendinga í Shatila-flóttamannabúðunum í Beirút í gær. Barist hefur verið um yfirráð í flóttamannabúðum í borginni látlaust síðustu þijá mánuðina. Búðirnar eru rústir einar eftir átökin. Sjónarvottar segja að skæruliðar Abu Musa, sem studdir eru af Sýr- lendingum, hafi náð yfirráðum í Shatila-búðunum eftir hörð átök. Talsmaður Abu Musa sagði að um sextíu skæruliðar sem hliðhollir eru Yasser Arafat, yfirmanni Frelsis- sveita Palestínu (PLO), hefðu gefíst upp í dögun í gær. Ekki er vitað hversu margir féllu í lokaátökunum í Shatila-búðunum, en 90 manns hafa látið lífið í átökum þar og í Bouij al-Barajneh búðunum undan- fama mánuði. Sýrlendingar, sem stutt hafa Abu Musa síðan í uppreisninni gegn Arafat árið 1983, gerðu enga til- raun til að binda enda á átökin í Beirút þrátt fyrir að sýrlenskar hersveitir hafi umkringt búðirnar á síðasta ári. Sýrlendingar og Arafat sættust eftir fimm ára óvináttu í aprílmán- uði síðastliðnum fyrir milligöngu Muammars Gaddafís, Líbýuleið- toga. Líbanskur stjórnmálamaður sagði í samtali við Reuíers-frétta- Bandaríkin: Svíar taldir standa fremst í jafnréttismálum í heiminum Island komst ekki á blað í könnun um réttindi kvenna SVÍÞJÓÐ og Finnland eru talin vera fremst þjóða í kvenrétt- indamálum, samkvæmt rann- sókn, sem „Population Crisis Council“ hefur gert um heim allan. Niðurstöður ráðsins eru birtar í Washington Post í gær. Það mun vekja athygli og ef til vill undrun margra, að ís- land kemst ekki á blað í þess- ari rannsókn. Frú Sharon L. Camp, sem er varaforseti nefnds ráðs og stjóm- aði rannsókninni, var spurð að því hvernig á því stæði, að ísland væri ekki nefnt í þessari rann- sókn. Hvort það þætti ekki í frá- sögur færandi, í þessu sambandi, að ísland væri vafalaust eina landið í heiminum þar sem 10 prósent af kosnum þingfulltrúum landsins eru konur. Frú Camp svaraði því til, að ástæðan fyrir því að Island er ekki talið með væri, að ráðinu hefði ekki tekist að fá nægjanlegar og ábyggilegar upplýsingar frá íslandi um jafn- rétti kvenna. í niðurstöðum ráðsins var tekið tillit til eftirfarandi fimm atriða: heilsufars kvenna, eftirlits með bamsfæðingum, aðstöðu til menntunar og lagalegrar stöðu kvenna. Hæst voru gefin 20 stig fyrir hvert atriði. Svíþjóð hlaut 87 stig af 100 mögulegum. Finn- land kom næst og þá Bandaríkin með 82,5 stig. Bangladesh var neðst á listanum með 21,5 stig. Bilið milli ríkra og fátækra Frú Camp sagði, að aðaltil- gangur rannsóknarinnar hefði verið að kanna hver væri mismun- urinn á lífí og stöðu kvenna með- al fátækra og ríkra þjóða og í hveiju mismunurinn fælist. Rann- sakendur notuðu fjóra stuðla, sem reiknaðir voru út á stærðfræðileg- an hátt. Til dæmis var stuðullinn fyrir heilsufar kvenna reiknaður út frá dánartölu mæðra og barna við fæðingu, dánartölu þungaðra kvenna, meðalaldri, og mismunin- um á meðalaldri kvenna og karla. Finnland var eina landið sem fékk 20 stig fyrir heilsufar. Ýmsar at- hyglisverðar upplýsingar komu fram f rannsókninni, eins og t.d. að um allan heim er það konan, sem sér fyrst og fremst um heimil- ið og heimilisstörfín, þótt hún vinni utan heimilisins. Ekkjur og fráskildar konur eiga erfíðara með að framfleita sér en karlar í sömu aðstöðu. Konur lifa að jafnaði sjö árum lengur en karlar í iðnaðar- löndunum, en í þróunarlöndunum er meðaltalið tvö ár. Frú Camp sagði, að hún myndi gjaman taka á móti upplýsingum um stöðu kvenna á íslandi, og birta þær, en hagtölumar mættu ekki vera eldri en frá 1974. stofuna að Arafat hefði viljað þvinga skæruliða Abu Musa til að ganga til liðs við Fatah-hreyfinguna sem hann stjómar. „Arafat ræður yfír búðum í Suður-Líbanon en Abu Musa í norðri þannig að Beirút var síðasta vígið og Sýrlendingar vildu ekki færa Arafat borgina á silfur- fati,“ sagði líbanski stjómmálamað- urinn. Hann sagði einnig að líklega yrði komið upp friðarsveitum milli búðanna tveggja, Shatila og Bouij al-Barajneh. „Sýrlendingar munu ekki grípa inn í nema Arafat biðji þá um það,“ sagði stjórmálamaður- inn og bætti við að ef Arafat gerði það væri hann að viðurkenna ítök Sýrlendinga í Líbanon og áhrif þeirra á Palestínumenn. Opinbera fréttastofan í Líbýu, JANA, sagði í gær að stuðnings- menn Arafats hefðu átt fund með yfirmönnum líbýska hersins í Trípólí fyrir uppgjöfina í gær til að ræða á hvern hátt væri mögulegt að binda enda á átökin. Snemma í gærmorgun fóru um tuttugu líbý- skir hermenn inn í Shatila-búðimar til að reyna að koma í veg fyrir frekari átök. Þeim var tekið með skothríð og gijótkasti. Einn þeirra varð fyrir skoti leyniskyttu og var fluttur særður á brott. Palestínskur heimildarmaður Reuíers-fréttastofunnar sagði aug- ljóst að Sýrlendingar og Líbýumenn sem vildu gera allt til þess að auka áhrif sín í Líbanon fyrir forseta- kosningar sem fram fara í landinu í september, vildu báðir eigna sér heiðurinn af uppgjöfinni. Þeim bæri ekki saman um á hvem hátt átökum hefði lokið í búðunum í gær. „Líbýu- menn vilja að Syrlendingar kalli hersveitir sínar heim en Sýrlending- ar harðneita að hverfa á brott,“ sagði heimildarmaðurinn. Um 25.000 manna herlið Sýrlendinga er nú í Líbanon.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.