Morgunblaðið - 16.07.1988, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
3
Lékufótbolta
eftir bílveltu
Lagfæringar á Vesturíandsvegi
í Mosfellsbæ v S S •s * ' \
-* Hringtorg % \
v. Álafossveg * *“. *
*■»* _ ** ' > *•* *» ♦. *, * *. • / -V /» * *’■».** ■ Hlégarður ^ “ \ - ** -•* > A '72-2/ . - * w
^* | - ^egur
■**■•*' ■ív_ . * ^ *”■*> ■v , V- Undirgöng ' ■* *
_ 4 » * ,av • * v y 6b ■ * *♦ • . **v
' •— Hringtorg v. Langatanga " q L * • t ✓ • 500 m 1
Morgunblaóió/ GÓI
Mosfellsbær:
Hringtorg og undirgöng
undir Yesturlandsveg
„ÞETTA fór betur en á horfðist.
Það sem bjargaði mér frá því
að brotna saman var að við skild-
um leika eins og ekkert hefði í
skorist," sagði Þorgerður Sig-
urðardóttir leikmaður kvenna-
liðs Skallagríms i knattspyrnu.
Fimm stúlkur úr liðinu lentu i
bílveltu á leið til kappleiks síðast-
liðið fimmtudagskvöld. Þær létu
óhappið þó ekki aftra sér frá því
að hefja leikinn á réttum tíma.
Heimamenn á Hellissandi báru
sigur úr bítum, með tveimur
mörkum gegn einu. „Bílveltan
hefur sennilega haft einhver
áhrif á úrslitin,“ sagði Þorgerð-
ur. Bíllinn er gjörónýtur en stúlk-
urnar sluppu ómeiddar.
Stúlkumar úr Skallagrími höfðu
samflot á þremur bílum úr Borgar-
nesi. Þegar komið var á Fróðár-
heiðina dró sundur með fremsta
bílnum og þeim sem Þorgerður ók.
Óhappið varð með þeim hætti að
hún missti stjórn á bílnum í lausa-
möl. „Ég fékk ekki við neitt ráðið.
Hafnir:
Þriggja tonna
trilla sökk
BOGI KE, sem er þriggja tonna
plasthraðbátur notaður til hand-
færaveiða, sökk í höfninni í
Höfnum í hvassviðri sem gekk
yfir Suðurnes í gærdag.
Trillukarlar í Höfnum hafa löng-
um átt í erfiðleikum með báta sína
þegar hvessir skyndilega og gerir
mikið brim, því þá gengur linnu-
laust yfir hafnargarðinn. Ef ekki
tekst að forða bátunum úr höfninni
í var í vogi skammt frá, eru bátarn-
ir í mikilli hættu eins og nú gerð-
ist. Á seinna flóðinu í gær, rétt
fyrir kl. 19 kom mikið brot sem
sökkti trillunni. Eigandinn var í
gærkvöldi að reyna að bjarga trill-
unni með aðstoð krana, svo ekki lá
fyrir hversu illa hún hefði skemmst.
Kr. Ben.
Við vorum til allrar hamingju á
lítilli ferð og það greip mig engin
hræðsla á meðan þetta var að ger-
ast. Bíllinn fór út af veginum, valt
á hliðina og stöðvaðist þar. Mér var
brugðið og leið eflaust betur af því
að geta farið að spila,“ sagði hún.
Stúlkurnar stöðvuðu bíl á heið-
inni og fékk ein þeirra far með
honum til Ólafsvíkur. Þar náði hún
í vinafólk sitt sem ók stúlkunum
til Hellissands. Óhappið tafði þær
aðeins um hálftíma. Þetta var fyrsti
leikur Vesturlandsmótsins í
kvennaknattspyrnu. Skallagríms-
stúlkurnar taka ekki þátt í íslands-
mótinu að þessu sinni en heyja þess
í stað keppni við þijú lið af Snæ-
fellsnesi.
Skyndihjálp
fyrir verslun-
armannahelgi
Skyndihjálparnámskeið verð-
ur haldið á vegum Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands í til-
efni verslunarmannahelgar og
hefst það þann 20. júlí. Nám-
skeiðið verður haldið að Oldu-
götu 4 og er öllum 14 ára og
eldri heimil þáttaka. Fjöldi þátt-
takenda er takmarkaður. Kennt
verður námsefni sem Rauði
krossinn tók nýlega í notkun en
nokkuð er um nýjungar í því.
í frétt frá Reykjavíkurdeildinni
segir að aðaláherslan verði lögð á
fyrirbyggjandi aðgerðir. Kennt
verður hjartahnoð, fyrsta hjálp við
bruna, kali og eitrunum. Einnig
meðferð beinbrota og stöðvun blæð-
inga og fjallað um varnir gegn slys-
um í heimahúsum.
í fréttinni segir að æskilegt sé
talið að rifja upp skyndihjálpar-
riámskeið árlega og taka það annað
hvert ár. Námskeiðinu lýkur með
prófi sem hægt er að fá metið í
flestum framhladsskólum.
VEGAGERÐ ríkisins hefur aug-
lýst eftir tilboðum í gerð tveggja
hringtorga á Vesturlandsvegi í
Mosfellsbæ og tviskiptra undir-
ganga fyrir gangandi vegfarend-
ur og hestamenn við Brúarland.
Áætlaður kostnaður við verkið
er um 16 milljónir króna og á
því að vera lokið 1. október næst-
komandi.
Hringtorgin verða á Vesturlands-
í frétt frá flugmálastjóm segir
að hækkunin sé til að mæta for-
sendum fjárlaga um framkvæmdir
í flugmálum. Flugvallagjald vegna
millilandaflugs hefur verið óbreytt
frá 1. mars 1986, en gjald vegna
innanlandsflugs frá 1. júlí 1987.
Börn á aldrinum 2-12 ára greiða
vegi við Langatanga og við vega-
mótin að Álafossi. „Þetta verða
rúmlega helmingi minni hringtorg
en þau sem við eigum að venjast
og eru fyrst og fremst sett þarna
til að ná niður umferðarhraða,"
sagði Jón Helgason yfirverkfræð-
ingur á brautardeild. „Þessi torg
eru víða á Bretlandi og Norðurlönd-
in hafa verið að taka þau upp.“
Vegagerðin mun mæla hvaða
áhrif torgin hafa á umferðarhraða
hálft gjald, og yngri börn en 2 ára
gömul ekkert.
Magnús Oddsson sagði að þessi
stutti fyrirvari kæmi illa við erlenda
ferðamenn sem hefðu gengið frá
sínum ferðum miðað við það verð
sem væri í gildi í viðkomandi lönd-
um. Hið sama hefði verið uppi á
á þjóðvegum og sagði Jón að ef þau
kæmu ekki að gagni yrði gripið til
frekari ráðstafana. „Það er erfitt
að hafa áhrif á sálarlíf ökumanna
og þá sérstaklega íslenskra," sagði
hann.
Reynt verður að halda umferð-
inni sem mest á Vesturlandsvegi
meðan á framkvæmdum stendur
og verður henni beint meðfram
vinnusvæðunum.
teningnum þegar fimm dollara gjald
vegna Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar hefði verið sett upp í október í
fyrra. Hins vegar hefði verið rétt
að málum staðið þegar hækkun
flugvallargjalds úr 250 krónum í
750 krónur hefði verið tilkynnt á
sínum tíma, en það hefði verið gert
með sex mánaða fyrirvara.
„Það er sagt að nær fyrirvara-
laus verkföll hafi orðið til að skapa
vantraust á íslandi sem ferða-
mannalandi, en svo bætast þessar
tvær skattahækkanir á sama ferða-
mannatímabilinu með stuttum fyr-
irvara," sagði Magnús.
FlugvaUagjald hækkar um 20%
Samgönguráðuneytið hefur heimilað hækkun flugvallagjalds um
20% þann 1. ágúst næstkomandi, úr 750 krónum í 900 fyrir farþega
sem fara frá Islandi og úr 100 krónum í 120 fyrir farþega innan-
lands og til Grænlands og Færeyja. „íslendingar hrökkva kannski
ekki upp við skattahækkun um 150 krónur, en það nálgast það að
vera dónaskapur gagnvart erlendum ferðamönnum að tilkynna þetta
með aðeins hálfs mánaðar fyrirvara," sagði Magnús Oddsson, mark-
aðsstjóri hjá Arnarflugi.
Rokkað á Miklatúni gegn
aðskilnaðarstef nunni
Ljósmynd/BS
Sykurmolarnir í reykjarkófi. Þeir munu leika á Miklatúni til stuðn-
ings frelsunar Nelsons Mandela sjötugum.
„FRELSUM Mandela sjötug-
an“, er yfirskrift útihátíðar
sem efnt verður til á Miklatúni
á morgun. Hátiðin hefst með
blandaðri dagskrá kl. 13.00, en
kl. 14.30 hefjast tónleikar undir
heitinu „Rokk gegn apartheid"
þar sem margir af þekktustu
popptónlistamönnum landsins
munu koma fram. Bein útsend-
ing verður frá tónleikunum í
Sjónvarpinu og jafnframt á Rás
2.
Það eru samtök er nefnast
Suður-Afríkusamtökin gegn
apartheid sem efna til þessarar
hátíðar. Tilefni hennar er það að
næstkomandi mánudag verður
Nelson Mandela sjötugur, en hann
hefur setið í fangelsi í Suður-
Afríku í rúm 26 ár. Hefur mikilli
alþjóðlegri herferð verið hrint af
stað í tilefni þess sem miðar að
því að fá hann lausan á sjötugsaf-
mælinu. Liður í þeirri herferð voru
meðal annars tónleikarnir á Wem-
bley 11. júní sem að hluta var
sjónvarpað beint til íslands.
Hátíðin hefst með blandaðri
dagskrá kl. 13.00, eins og áður
sagði, þar sem fram koma m.a.
Bjartmar Guðlaugsson og Laddi,
auk þess sem sem Guðrún Helga-
dóttir mun lesa út bókum sínum
og brúðuleikhús verður á staðn-
um. Einnig verður Sveinbjörn
Beinteinsson alsheijargoði með
gjörning. Á myndtjaldi verða sýnd
myndbönd frá Suður-Afríku og
um ævi Nelsons Mandela.
Tónleikarnir „Rokk gegn apart-
heid“ heíjast svo um 14.30 og
mun fjöldi þekktra rokktónlista-
manna koma þar fram. Þeirra á
meðal eru Megas, Bubbi Mortens,
Egill Ólafsson, Bjarni Tryggva og
hljómsveitirnar Sykurmolarnir,
Langi Seli og Skuggarnir, Síðan
skein sól, Frakkarnir og Gildran.
Kynnir á tónleikunum verður
Sjón. Eins og áður sagði verður
bæði útvarpað og sjónvarpað frá
tónleikunum.
Allir þeir sem fram koma á
þessari útihátíð munu gefa vinnu-
framlag sitt. Þann ágóða sem
verða mun af skemmtuninni
hyggjast Suður-Afríkusamtökin
verja til aðstoðar börnum og ungl-
ingum sem fangelsuð hafa verið
og pyntuð af stjórnvöldum í Suð-
ur-Áfríku.
í tengslum við hátíðina hefur
verið gefinn út bæklingur um
málefni Suður-Afríku og verður
honum dreift á útihátíðinni. For-
sala á vegabréfum er veita aðgang
að hátíðinni verður í dag í Kringl-
unni, á Lækjartorgi og á skrif-
stofu Suður-Áfríkusamtakanna á
Klapparstíg. Þá verða vegabréf
seld á staðnum á morgun og er
verð þeirra 500 krónur fyrir full-
orðna en ókeypis fyrir böm yngri
en tólf ára.
_