Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 3^ María Þorsteins- dóttir, Njarðvíkum Fædd 3. júlí 1924 Dáin 5. júlí 1988 Okkur sóknarprestinum og mér varð litið út um kirkjugluggann í skrúðhúsinu rétt í því að guðsþjón- ustan átti að hefjast. „Sjáðu hver er að koma,“ sagði séra Þorvaldur, „þetta er María sem er á leiðinni, við skulum bíða þangað til að hún er komin.“ Hún hélt á tveimur pok- um, ég fór og tók á móti henni í kirkjudyrunum. María rétti mér pok- ana og sagði: „Ég kom með kaffi- sopa Helga mín, viltu vera svo góð og fara með þetta upp á söngloft til kórfólksins míns og bjóddu líka prestinum okkar hlýjan sopa.“ „Nú líður mér dásamlega að vera komin í kirkjuna blessaða," sagði hún. Maríu sagði að sér liði dásamlega, þrátt fyrir að hún væri fársjúk og ætti aðeins örfáa daga eftir lifað hér á jörðu. Þetta atvik lýsir vel lífsstíl Maríu, hvemig hún upplifði sjálfa sig, náungann og Guð. María skildi vel hvað það var að vera kristin manneskja. Allt hennar líf virtist hafa það markmið að keppa að hinu góða, umhyggjan fyrir ná- unganum var með ólíkindum. Það eru margir sem hafa leitað til Maríu um dagana og hún fengin til að biðja fyrir fólki í erfiðleikum. María þekkti leyndardóm bænarinnar og þann kraft sem bænin gefur. A þessum grunni veitti hún mörgum styrk og lífgaði upp veika hugi. María var fædd 3. júlí 1924 í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hennar voru Þorsteinn G. Sigurðsson ættaður frá Eyjafirði og Steinunn Guðbrandsdóttir ættuð úr Skáleyjum á Breiðafirði. Faðir Maríu var bama- kennari. Sjálf var ég svo heppin að kynn- ast Steinunni, en hún var elskuleg kona. Mér er minnisstætt hversu ljóð- elsk hún var og hagmælt. í foreldrahúsum naut María mikill- ar hlýju og kærleika, heimilið at- hafnasamt bæði til gagns og gam- ans, tónlist í hávegum höfð ásamt lestri góðra bóka. María lauk gagn- fræðaprófi, sem meira var metið þá en nú. En menntun er ævistarf, an- dans íþróttir stundaði María alla tíð og nú hin síðari ár nam hún við Tónlistarskóla Njarðvíkur. María kvæntist Hákoni Kristins- syni. Byrjuðu þau búskap í Keflavík árið 1947. Fluttu til Innri-Njarðvíkur árið 1950. Eiga þau fjögur börn á lífi. Hið dásamlega og einlæga sam- band innan fjölskyldunnar er að- dáunarvert. María talaði stundum um hversu heppin hún væri, hvað Hákon styddi vel við bakið á henni í kirkjustörfunum. Hann var reiðubú- inn að breyta fyrirhugaðri áætlun vegna kirkjuathafna. Á heimili þeirra komu oft gestir í tengslum við kirkju- störfin og Hákon tók svo vel á móti öllum. Þau hjónin hafa líka gefíð kirkjunni stórar gjafír eins og fána- stöng við Safnaðarheimilið, krossinn sem nú er á turni kirkjunnar. Maríu kynntist ég fyrst í gegnum kirkjustörfín. Kirkjumálin voru henni sérstaklega hjartfólgin. Hún gegndi margs konar trúnaðarstörfum í Innri-Njarðvíkursöfnuði til margra ára og vart hægt að meta og full- þakka störf hennar með orðum. Hún hafði starfað í kirkjukómum frá ár- inu 1950 og var formaður hans um árabil. Kosin í sóknarnefnd árið 1966 og formaður hennar næstu tíu árin, en þá gaf hún ekki kost á sér í nefnd- ina. María var ein af stofnendum Sys- trafélags Innri-Njarðvíkurkirkju og við konumar í félaginu tölum stund- um um að hún sé móðir systrafélags- ins. María var alltaf bindindissöm og var meðlimur í stúkunni Vík í Keflavík frá árjnu 1948. María var sterkur leiðtogi, hún var ákveðin, framkvæmdasöm og sérlega lagin að milda málin ef með þurfti. Hún var höfðingi heim að sækja. Eftir kaffisopa, kræsingar og úr- vinnslu ýmissa mála undirstrikaði hún oft árangurinn og heimsóknina með því að spila á pinaóið eitthvert uppbyggilegt lag einhverra snilling- anna. Uppbyggilegur tónlistaráhugi Maríu leiddi til kaupa á píanói fyrir starfsfólk kirkjunnar til notkunar í Safnaðarheimilinu. Þegar svo mikið er spunnið í eina maneskju og sú hin sama kappkostar að nýta hæfi- leikana til að bæta lífið, fer saman það hugarfar sem María bar og ég met mest í fari hennar. Við öll, starfsfólk kirkjunnar hvort heldur það er sóknarnefndin, kirkju- kórinn eða systrafélagið, erum svo þakklát fyrir allt hennar góða og göfuga framlagtil safnaðarstarfsins. Drottinn blessi og styrki eftirlif- andi eiginmann, börn og ijölskyldu. Minnumst orða Jesú: „Ég er upp- risan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi.“ Helga Óskarsdóttir, formaður sóknarnefndar Innri-Njarðvíkurkirkju. María Þorsteinsdóttir, Njarðvík- um, er dáin. Hún fæddist 3. júlí 1924 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Þorsteinn G. Sigurðsson kennari og Steinunn Guðbrandsdóttir úr Ská- leyjum á Breiðafírði. María giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Há- koni Kristinssyni, 1947. Frá 1950 bjuggu þau í Innri-Njarðvíkum. María var félagslynd kona, einkum voru tónlist og kirkjuleg málefni henni hjartfólgin. Um árabil var hún formaður sóknarnefndar í Innri- Njarðvík. En hún lagði fleiri málefn- um lið. 1948 gerðist María félagi í stúkunni Vík og starfaði þar af dugn- aði til dauðadags. Til marks um vin- semd hennar í garð bindindishreyf- ingarinnar má nefna það að hún mætti sárþjáð til guðsþjónustu er Stórstúkuþing var haldið í Keflavík í júní síðastliðnum. Margir munu þeir sem nú senda eiginmanni henn- ar og börnum þeirra samúðarkveðjur. Megi minningin um þessa hjarta- hlýju og góðu konu verða okkur leið- arljós. Hilmar Jónsson I dag er móðir okkar, María Þor- steinsdóttir, Njarðvíkurbraut 19, Innri Njarðvík til moldar borin frá Innri Njarðvíkurkirkju. María fædd- ist 3. júlí 1924 í Reykjavík og voru foreldrar hennar Þorsteinn G. Sig- urðsson, kennari frá Stijúgsá, og Steinunn Guðbrandsdóttir úr Ól- afsvík. María var næstelst fimm systkina, en þau eru Egill, tollvörður, fæddur 1920, en hann lést 1976, Guðbrand- ur, gjaldkeri, fæddur 1928, Guðný, húsmóðir, fædd 1934, og Sigurður, starfsmaður Fríhafnar, fæddur 1936. Heimili Þorsteins og Steinunnar var heimili hlýju og ástríkis, á kvöld- um var lesið fyrír bömin og las Þor- steinn þá oft danskan texta en þýddi jafnharðan svo vel að fullri athygli var haldið við söguna. Á þeim árum voru tengslin við Danmörku sterkari og danska lesin eins og íslenska, en með fullri aðgreiningu málanna. María varð því að fullu læs fímm ára og það var ein af bemskuminningum hennar að hún laumaðist til að lesa söguna Kapítólu fimm ára gömul, sem þótti ekki alveg við hæfi barna á þeim árum. María varð því elsk að bókum, og henni var ekkert sjálfsagðara en að endursegja heila sögu sem hún hafði lesið, oft á dönsku, með agaðri frá- sögn og fullri spennu fyrir áheyrand- ann. Þorsteinn, faðir hennar, hafði verið áhugamaður um leiklist og leik- ið töluvert á sviði í byrjun aldarinn- ar, og setti oft upp hin ýmsu gervi fyrir börnin og María hneigðist því til lista og tónlistar. En lítið var til af fé á þeim ámm og komst hún ekki til náms eins og hugur stóð til, lærði píanóleik í stuttan tíma og stundaði söng. María var stoð og stytta móður sinnar frá því fyrsta og bar aldrei skugga á það sam- band, þar var auk ástríkis móður og dóttur vinátta eins og milli þeirra sem njóta þess að vera samvista. Alla tíð hélt María stöðugu sam- bandi við systkini sín, og böm þeirra sem eldri em Iitu á að fara til Maju frænku eins og að fara á sitt annað heimili. Árið 1945 kynntist María eftirlif- andi eiginmanni sínum, Hákoni Kristinssyni, þá lögregluþjóni í Reykjavík. Hákon er sonur Stefaníu Ingimundardóttur frá Bæ í Króks- firði og Kristins Hákonarsonar síðar yfírlögregluþjóns í Hafnarfírði. Þau María og Hákon giftust 1946 og bjuggu fyrst í Keflavík. Þau María og Hákon eignuðust fimm börn, þar af dó eitt við fæðingu, elstur er Þor- steinn, fæddur 1947, kvæntur Kristínu Tryggvadóttur, Stefanía, fædd 1950, gift Sigurbimi Halls- syni, Bryndís, fædd 1955, gift Guð- mundi Pálmasyni, og Steinunn, fædd 1961, gift Elvari Ágústssyni. Þau Hákon og María fluttust í Klett í Innri Njarðvík 1950, og bjuggu þar síðan, þar til þau byggðu sér hús á Njarðvíkurbraut 19 í Innri Njarðvík. María trúði heitt á guð og guðlega forsjón, hún gekk til liðs við söfnuð- inn í Innri Njarðvík og söng í kirkju- kórnum og sat í safnaðamefnd um tíma sem formaður. Innri Njarðvík- urkirkja og safnaðarstarfíð vom hennar hjartans mál og gekkst hún fyrir stofnun systrafélags Innri Njarðvíkurkirkju og studdi dyggilega byggingu safnaðarheimilis í Innri Njarðvík. María var kona sátta og málamiðlunar milli fólks kæmu deilu- mál upp og lét engan fara halloka ef hún fékk því ráðið. Þar sem áður var sterkur kjami dyggra safnaðarbarna í Innri Njarðvík þegar María kom þangað, varð hann sterkari með henni. Var mikil vinátta með þessu fólki, innan kirkju og utan. Það má til dæmis nefna um lundarfar Maríu, að börn þurftu að bíða eftir skólabíl, oft í misjöfnum veðmm og engin vom biðskýlin á þeim ámm. Vom þá börnin tekin inn í hlýjuna og lát- in bíða þar, alla skólagöngu sumra barnanna. Hákon og bræður hans áttu og Vélsmiðju Njarðvíkur lengi, því fylgdi á fyrstu ámm Maríu að hafa fæði fyrir nokkurn fjölda starfs- manna, húsið Klettur var byggt fyrir þá bræður og fjölskyldur þeirra, en í húsnæðisleysi þeirra ára vom her- bergi fyrir framan íbúðimar fyrir starfsmenn vélsmiðjunnar og á stundum ijölskyldur þeirra. Það var mannmargt í Kletti á þeim ámm og gekk áfallalítið. Stefanía móðir Há- konar flutti í Klett og bjó þar ásamt veikum syni sínum, Halldóri, síðar er Steinunn, móðir Maríu, brá búi flutti hún og til Maríu. Það var því stór fjölskylda sem bjó í Kletti á þeim ámm, þijár kynslóðir saman. Það rofnaði ekki á milli kynslóðanna eins og algengt er orðið, um þurfti ekki að ræða, þau María og Hákon sinntu sínum. Þegar til stóð að byggja húsið á Njarðvíkurbraut 19, þá var fyrst hugað að herbergjum fyrir hvern og einn, en dæturnar eltust og giftust svo húsið nýttist ekki sem ætlað var, en hugsunin var söm. Bama- bömin vom yndi Maríu og vom þau öll elsk að ömmu sinni, áttu þar sitt annað heimili, og er söknuður þeirra mikill. Böm Þorsteins em Tryggvi, Há- kon oe María. Böm Stefaniu em Karlotta og Linda, dóttir Bryndísar er María og böm Steinunnar em Elva Björk og Ágúst Rúnar. Bama- börnin missa nú mikils við fráfall ömmu. Það er svo haustið 1979 að María eftir nokkurn lasleika verður þess vör að hnúður hefur myndast á hálsi hennar og var það greint og reyndist vera krabbamein. María barðist hetjulega við sjúkdóminn í níu ár, tók hverri aðgerð og meðferð á eftir annarri með von og trú, en aldrei tókst að komast fyrir sjúkdóminn. En með styrk trúarinnar þraukaði hún svo erfiðan sjúkdóm lengur en ella. Var hún nokkuð hress á milli meðferða og sýndi af sér mikla lífsgleði og styrk með þennan vonda sjúkdóm hangandi yfír sér. En það var svo á 64. afmælis- deginum hennar þann 3. júlí að hún átti ekki lengur styrk, var hún þá'' flutt í Borgarspítalann þar sem hún lést þann 5. júlí. Það er tregt að skrifa minningar- grein um móður sína og lýsa lífi hennar í fáum orðum öðrum til af- spumar, ást móður okkar á okkur systkinunum, mikil og heit, verður ekki skrifuð letri. Fráfall hennar er harmur okkar og föður okkar sem hún var stoð og stytta alla tíð. Við þökkum fyrir það að henni skyldi endast aldur til þess að bama- börnin mættu kynnast henni við eins alvarlegan sjúkdóm og hún gekk með. Við þökkum læknum sem stund- uðu móður okkar og við þökkum starfsfólki Borgarspítalans sérstak-, lega fyrir að gera allt sem hægt var fyrir móður okkar. Við systkinin þökkum móður okk- ar allt sem hún gerði fyrir okkur og lét í té þegar við kveðjum hana nú hinsta sinni í þessu lífí. Þorsteinn Hákonarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.