Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
Loðnuveiðarnar:
Færeyskn skipín virð-
ast lítið hafa veitt
Morgunblaðið/Bjami
Færeyska loðnuskipið Háborg rétt fyrir norðan íslensku efnahagslög-
söguna sl. miðvikudag.
FÆREYSKU loðnuskipin virt-
ust vera létt og því lítið eða
ekkert hafa veitt þegar flugvél
Landhelgisgæslunnar, TF Syn,
fór í eftirlits- og ískönnunar-
flug sl. miðvikudag. Níu fær-
eysk loðnuskip voru þá við ísjað-
arinn rétt norðan við íslensku
efnahagslögsöguna. Tuttugu og
fimm norsk loðnuskip voru hins
vegar á leið á miðin.
Færeysku skipin níu fóru á
loðnuveiðar snemma í sl. viku að
sögn færeyska blaðsins Dagblaðið
en þau mega veiða 65.000 tonn
af loðnu í umboði Grænlendinga
og Evrópubandalagsins.
ísjaðarinn var á miðvikudaginn
25 sjómílur fyrir norðan Horn og
liggur þaðan í norður og svo norð-
austur. ísinn er meiri en í meðal-
lagi en bráðnar nú ört fyrir norðan
land því sjávarhitinn þar er um 6
gráður á Celsíus, að sögn Þórs
Jakobssonar deildarstjóra hafís-
rannsóknadeildar Veðurstofunnar.
I/EÐURHORFUR í DAG, 16. JÚLÍ 1988
YFIRLIT í GÆR:
Norðaustlæg átt vestanlands en suðaustlæg austan til, víðast
gola eða kaldi. Skúrir á víð og dreif einkum sunnan og austanlands
en bjart á milli. Hiti 10—15 stig.
SPÁ: Um 400 km vestsuðvestan af Reykjanesi er 992ja mb lægð
sem þokast austnorðaustur. Hiti verður víðast á bilinu 8—15 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAQA
HORFUR A SUNNUDAG OG MANUDAG: Hæg breytileg átt. Víðe
léttskýjað og 12—16 stiga hiti inn til landsins en víða skýjað en
þurrt og svalara við sjóinn.
TAKN:
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
10 Hitastig:
10 gráður á Cetsius
Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir
er 2 vindstig. y Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * / * •) Súld
Skýjað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * -f Skafrenningur
Alskýjað * # * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR I(ÍÐA UM HEIM
kl 12:00 í gær að ísl. tíma
httl veður
Akureyri 16 alskýjað
Reykjavik 11 rignmg
Bergen 16 rigning
Helsinki 27 skýjað
Kaupmannah. 18 skúr
Narssarssuaq 10 skýjað
Nuuk 5 skýjað
Ósló 17 rigning
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Þórshöfn 10 léttskýjað
Algarve 26 heiðskirt
Amsterdam 16 skúr
Barcelona 23 lóttskýjað
Chicago 25 alskýjað
Feneyjar 18 Feneyjar
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 19 skýjað
Las Palmas 26 heiðskírt
London 17 alskýjað
Los Angeles 19 alskýjað
Lúxemborg 14 skúr
Madríd 27 heiðskírt
Malaga 27 rikmlstur
Mallorca 24skýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 25 heiðskírt
Parfs 18 skur
Róm 26 hálfskýjað
San Diego 19 alskýjað
Winnipeg 18 hilfskýjað
Skipið á kortinu sýnir staðinn sem færeysku loðnuskipin voru á
þegar flugvél Landhelgisgæslunnar, TF Syn, flaug yfir þau í ískönn-
unar- og eftirlitsflugi sl. miðvikudag. Heila línan sýnir leiðina sem
TF Syn flaug og brotna linan mörk islensku efnahagslögsögunnar.
Punktarnir sýna hins vegar ísdreifar, krossarnir ís í myndun, strik-
in gisinn ís og hringarnir mjög gisinn ís.
Árás á lögregluþjón:
Neituðu að kalla
á lögregluaðstoð
STARFSMENN á bensínstöð
Shell við Vesturlandsveg neit-
uðu í fyrstu að kalla á aðstoð
til handa lögregluþjóninum,
sem átti í höggi við feðga úr
Mosfellsbæ. Eins og greint var
frá á baksíðu Morgunblaðsins í
gær var sonurinn, sem er sextán
ára og án ökuréttinda, gripinn
á ólöglegum hraða á Vestur-
landsveginum á vélhjóli föður
síns. Hringt var í föðurinn, sem
réðist á lögregluþjóninn.
Lögregluþjónninn var einn síns
liðs og bað um að hringt yrði eft-
ir aðstoð. Starfsmenn bensínstöðv-
arinnar létu það hins vegar sem
vind um eyrun þjóta og mun þar
hafa ráðið kunningsskapur þeirra
við soninn. Lögreglumanninum
barst þó aðstoð áður en yfir lauk
og voru feðgarnir teknir til yfir-
heyrslu og síðan sleppt. Vélhjólið
var hins vegar tekið í vörslu lög-
reglunnar.
Mál þetta hefur nú verið sent
til Rannsóknarlögreglunnar. Feð-
gamir hafa áður komið við sögu
lögreglunnar, þar sem hún hefur
margsinnis þurft að hafa afskipti
af syninum réttindalausum á ofsa-
hraða á hjóli föðurins. Starfsmenn
bensínstöðvarinnar hafa einnig
gerst brotlegir við lögin, þar sem
lögum samkvæmt ber mönnum að
aðstoða lögregluna sé þess krafist
og varðar við hegningarlög að
hindra lögregluna í starfi.
Túngata 2-4:
Ibúðarhús kemur
í stað bílastæða
HÖFUNDAR Kvosarskipulags,
arkitektarnir Dagný Helgadótt-
ir og Guðni Pálsson, hafa feng-
ið leyfi skipulagsnefndar
Reykjavíkurborgar til að hannr
fjögurra hæða íbúðarhús á lóð-
ina við Túngötu 2-4, gegnt Her-
kastalanum, en þar eru nú bíla-
stæði.
Húsið mun að sögn Guðna Páls-
sonar taka mið af eldri byggingum
í Kvosinni sem margar eru frá
árunum kringum aldamót. „Við
erum ekki byijuð að teikna hú-
sið,“ segir Guðni, „en það verður
steinhús með kvisti svo að rishæð
bætist ofan á fjórar hæðir. í hús-
inu verða níu íbúðir, sex þeirra
80-90 fermetrar og þriggja her-
bergja en þijár tveggja hæða þak-
íbúðir sem verða liðlega 100 fer-
metrar að flatarmáli hver."
Guðni Pálsson segir að húsið
verði í eigu einkaaðila og kveðst
ekki vita hvenær byijað verði að
selja íbúðimar. Hann vonist til að
að byggingarframkvæmdir heíjist
í sumar eða haust.
Aðspurður um hvort hann telji
veijandi að bílastæðum í mið-
borginni fækki fenn segir Guðni
að bílastæði hafí komið í stað allra
húsa sem horfíð hafi úr Kvosinni
að undanfömu. Raunar standi
bílastæðamál í miðborginni til
bóta. Gert sé ráð fyrir 300 bíla
stæði við Tryggvagötu og öðru
fyrir 400 bíla á homi Lækjargötu
og Tryggvagötu. Þá sé bíla-
geymsluhús á lóðina við Tjarnar-
götu 13 á teikniborðinu.