Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 20
YDDA F5.25/SIA
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
SKORAÐU
KÖRFU
FYRIR
ÍSLAND!
Höldum landinu hreinu!
Það var ekki tilviljun að við völdum full-
komnar dósir, með áföstum upptakara, fyrir
Egils drykkina; þær hafa í för með sér mun
minni umhverfismengun.
Nú er komið þér. Sýndu hæfni þína;
hentu tómu Egils dósinni þinni í ruslakörfuna
og skoraðu körfu fyrir ísland.
- áskorun um bætta umgengni!
HF.ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON
Týról-alparós — Rhododendronhirsutum
Týról-alparós
Rhododendron hirsutum
— og skrá um Blóm vikunnar frá áramótum
Hinar stórvöxnu kynblön-
duðu alparósir, sem ýmsir hafa
verið að glíma við að rækta hér
á landi, hafa reynst sumum
erfiður ljár í þúfu og oftlega
lognast út af með harmkvælum
—jafnvel þrátt fyrir margskon-
ar dekur og ómældar tilfæring-
ar við að skýla þeim á ýmsa
vegu.
Týról-alparósin er ekkert dek-
urbarn. Þetta er villitegund úr
austanverðum Aplafjöllum (Týról)
þar sem hún vex allt upp í 2600
m hæð og er eina alparósategund-
in sem getur vaxið í kalkbornum
jarðvegi, þ.e.a.s. henni þarf ekki
að velja sérstakan súran jarðveg
eins og öðrum systrum hennar.
Henni má næstum stinga niður
hvar sem er þar sem ekki er of
þurrt. Vetrarskýli þarf hún ekk-
ert.
Þetta er lítill runni — oft rækt-
aður í steinbeðum — 30—40 sm.
á hæð, en getur orðið töluvert
meiri um sig. Blöðin eru dökk-
græn og gljáandi, en Ijósgræn á
neðra borði, með hærðar blað-
rendur. Blómin eru ljósrauð. Til
er einnig afbrigði með hvítum
blómum. Blómstrar í júlí.
Vissulega er Týról-aplarósin
ekki eins skrautleg og mikilfeng-
Tölus.: Fyrirsögn:
81 Áramótarabb
82 Drekadré
83 Geislablaðka
84 (83) Stofuaskur
85 (84) Stofuhortensía
86 Lárviðarrós
87 Moldarblöndun o.fl. I
88 Moldarblöndun II
89 Sáning sumarblóma
90 Sumarmálarabb
91 (90) Kryddjurtir I
92 (91) Kryddjurtir II
93 (92) Roðamaur eða Mítlar
94 (93) Snæstjörnur
95 Fjallablaðka I
96 Pjallablaðka II
97 Smærur
98 Um rósir I
99 Um rósir II
100 Um rósir III
101 Skrá frá áramótum
Týról-alparós
leg og hinar stórvöxnu systur
hennar og blendingar þeirra, en
hún hefur meðfæddan þokka eða
„karakter", sem gerir hana að
aufúsugesti í hveijum garði, gesti
sem tekur lífinu með ró og sem
ekki þarf mikið fyrir að hafa.
Olafur B. Guðmundsson
Enn hafa orðið nokkur mistök á
tölusetningu á „Blómi vikunnar“
sem að ósk lesenda verður nú leið-
rétt með því að birta skrá yfir
greinamar á yfirstandandi ári. í
fremri dálkinum er rétta tölusetn-
ingin en sú ranga aftan við í sviga:
Höfundur: Birt:
Sigr.Hjartar 13.2.
Óli ValurHansson 20.2.
Óli Valur Hansson 27.2.
Óli Valur Hansson 5.3.
Óli ValurHansson 12.3.
Lára H. Jóhannesd. 19.3.
Hafsteinn Hafliðason 26.3,
Hafsteinn Hafliðason 9.4.
Sigr. Hjártar 16.4.
Sigr. Hjartar 23.4.
Einar I. Sigurgeirsson 30.4.
Kristín Gestsdóttir 7.5.
Bjarni E. Guðleifsson 14.5.
Kristinn Guðsteinsson 21.5.
Ól. B. Guðmundsson 29.5.
Ól. B. Guðmundsson 4.6.
Ól. B. Guðmundsson 11.6.
Kristján Jóhannesson 25.6.
Kristján Jóhannesson 9.7.
Kristján Jóhannesson 9.7.
Umsj. m. ÁB.
Ól. B. Guðmundsson 16.7.
Umsj.m.
Utvegsmannafélag Suðurnesja:
Aðferð við sljórmm á út-
flutningi ísf isks mótmælt
STJÓRN Útvegsmannafélag Suðurnesja hefur samþykkt mótmæli
vegna takmörkunar á útflutningi á ísuðum þorski og ýsu næstu
mánuði. I samþykkt félagsins segir að í þeirri leið, sem ákveðin
hafi verið, felist mismunun, sem menn sætti sig ekki við. Hins vegar
sé félagið sammála nauðsyn þess að koma verði í veg fyrir verðfall
á erlendum fiskmörkuðum, en það megi gera með öðrum hætti án
ákveðið hafi verið.
Samþykkt félagsins hefur verið
send utanríkisráðherra og afrit til
sjávarútvegsráðherra og fjölmiðla.
Samþykktin fer hér á eftir ásamt
meðfylgjandi greinargerð:
„Vegna fréttatilkynningar frá
utanríkisráðuneytinu dags. 1 júlí
1988 um takmörkun á útflutningi
á ísuðum þorski og ýsu í júlí til
september, samþykkti stjórn Út-
vegsmannafélags Suðurnesja sam-
hljóða eftirfarandi:
Stjórn Útvegsmannafélags Suð-
urnesja mótmælir harðlega þeirri
mismunun milli einstakra skipa,
sem felst í þeirri aðferð sem boðuð