Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
7
Saga Fróðár-
hrepps komin út
SAGA Fróðárhrepps, fyrri hluti, er komin út. Bókin ber nafnið Sjáv-
^hyggð undir jökli. Það er Átthagafélag Fróðhreppinga sem gefur
söguna út. Höfundar bókarinnar eru sagnfræðingarnir Eiríkur Guð-
mundsson, konrektor Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, Jón
Ami Friðjónsson, kennari í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki og
Olafur Ásgeirsson, þjóðskjalavörður.
Fróðárhreppur tekur til svæðisins
milli Ólafsvíkurennis og Búlands-
höfða á Snæfellsnesi og nefndist
áður Neshreppur innan Ennis. Að
sögn forsvarsmanna útgáfunnar
var héraðið allt frá miðöldum þétt-
býlt. Fróðársveit var hvort tveggja
öflugt landbúnaðarsvæði og dæmi-
gerð sjávarbyggð þar sem voldugir
aðijar tókust á um jarðeignir.
í bókinni, sem er um 500 blað-
síður og ríkulega myndskreytt, er
fjallað um landnám, þróun miðalda-
byggðar, myndun þéttbýlis og
helstu jarðeigendur fram um 1800.
Höfundar höfðu að eigin sögn að
markmiði að rannsaka sögu byggð-
arlagsins og gera um leið eins kon-
ar þversnið af sögu íslands þá eink-
um félags- og hagsögu.
Bókin skiptist í þijá meginhluta.
Sá fyrsti ijallar um þróun byggðar
til loka 18. aldar. Reynt er að rekja
byggðaþróun með því að styðjast
við hagsögulegar heimildir um jarð-
arafgjöld og fólksfjölda. Góðar
heimildir eru til um þetta þéttbýla
svæði á 18. öld en fram til þess
tíma eru heimildir færri og varð
því að notast við nokkurt brotasilfur
heimilda.
Höfundar leggja áherslu á að
lýsa stöðu allra þjóðfélagshópa. í
því skyni er gerð sérstök úttekt á
kjörum verkafólks á 18. öld. Leitast
er við að bregða upp þjóðlífsmynd-
um um hvert tímabii sögunnar og
könnuð áhrif harðinda á stöðu alm-
úga og bænda. í þessum hluta bók-
arinnar er einnig fjallað um viðhorf
almennings tjl embættismanna,
refsinga og réttlætis.
Annar hluti bókarinnar er versl-
unarsaga héraðsins og fjallað er
um þau áhrif sem verslunarstaður-
inn og verslunin hafði á hagi manna
allt til síðustu aldamóta.
Þriðji hluti ritsins hefur að geyma
örnefnalýsingar jarða i sveitinni og
eru þær teknar saman eftir bæði
rituðum og munnlegum heimildum.
Einnig er greint frá ýmsum tilgát-
um sem skýrt gætu örnefnin. Sér-
stök skrá ér um öll örnefni sem
fram koma í bókinni, litmyndir eru
til skýringa og ritinu fylgir örnefna-
kort.
Frá því fyrst var hafist handa
við rannsóknir á sögu Fróðárhrepps
eru liðin 14 ár. Ólafur Ásgeirsson
hóf rannsóknir sínar árið 1974 en
tveimur árum síðar kom Eiríkur
Guðmundsson að verkinu. Unnu
þeir saman að því til ársins 1982
Frá framkvæmdum á Völundarreit á horni Skúlagötu og Klapp-
arstígs.
Steintak hf.:
Sjö hæða bygging á
Völundarreit kynnt
Byggingafyrirtækið Steintak
hf., sem ætlar að reisa sjö hús á
svokölluðum Völundarreit á
horni Klapparstígs og Skúlagötu,
verður með kynningu á húsunum
í Holiday Inn á morgun, sunnu-
dag, svo og nk. mánudag og
þriðjudag. „Fyrstu sökklarnir að
húsunum eru tilbúnir og fyrstu
íbúðirnar verða afhentar eftir
eitt ár en að tveimur og hálfu
ári liðnu verður frágangi á Völ-
undarreit lokið,“ sagði Vignir
Benediktsson, framkvæmda-
stjóri Steintaks, í samtali við
Morgunblaðið.
„í húsunum verða samtals 109
íbúðir og 49 þeirra hafa nú hlotið
samþykki byggingamefndar og því
hægt að hefja sölu á þeim,“ sagði
Vignir. „íbúðimar verða tveggja til
fimm herbergja. Húsin verða
þriggja til ellefu hæða og á jarð-
hæðum þeirra verða að öllum líkind-
um smáverslanir, veitingastaður og
hárgreiðslustofa. Á Völundarreit
verða m.a. skjólgóðir garðar og
íþróttavöllur.
Lyftur verða í öllum húsunum
sjö og undir húsunum bílageymslur
með fullkomnu eldvarnarkerfi. Lóð-
in á milli Völundarreits og gamla
útvarpshússins við Skúlagötu er
ætluð undir stjómsýslubyggingu og
verður utanríkisráðuneytið að öllum
líkindum þar til húsa. Við Skúla-
götu austan Völundarreits verða
hins vegar eingöngu reist íbúðar-
hús,“ sagði Vignir.
Manuelaleik-
ur í Skálholti
MANUELA Wiesler, flautuleik-
ari, leikur á sumartónleikum í
Skálholti í dag og á morgun, kl.
15 báða dagana.
í fréttatilkynningu um sumartón-
leikana, sem birt var í Morgun-
blaðinu í gær, var sagt að Manuela
léki aðeins á tónleikum í dag, en
það er ekki rétt.
Mor^unblaðið/Einar Falur
Höfundar ásamt formanni Átthagafélagsins, talið frá vinstri: Jón Ami Friðjónsson, Olafur Kristjáns-
son, Ólafur Ásgeirsson og Eiríkur Guðmundsson.
er Jón Árni Friðjónsson bættist í
hópinn. Höfundar stunduðu rann-
sóknir í sameiningu en skiptu með
sér verkum við ritun og frágang
bókarinnar.
Að sögn höfunda hefur ekki áður
birst á prenti jafnýtarleg úttekt á
sjávarbyggð á íslandi. Vísindasjóð-
ur styrkti verkið í upphafi en síðustu
árin hefur útgáfan ekki notið
styrkja.
Formaður Átthagafélags Fróð-
hreppinga er Ólafur Kristjánsson,
verkstjóri í Ólafsvík, og geta áskrif-
endur að ritinu snúið sér til hans.
í tilefni dagsins seljum við allt
gos með allt að 20% afslætti.
Sanitas S
KJOTMIÐSTÖOIN
LAUGALÆK 2, S. 68651 1
Nú bendir
allt til þess
að Geysir í
Haukadal
g|ósi í dag,
laugardag