Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 45 : Ann Sanborn um borð í Texas Clipper við Sundahöfn i Reykjavik. Morgunblaðið/Einar Falur ANN SANBORN „Alltaf verið heilluð af skipum“ T/S Texas Clipper. Bandaríkin Heilsuspillandi sjónvarpsgláp Ann Sanbom er nýbakaður skip- stjóri á skólaskipinu T/S Tex- as Clipper, sem er 10.000 tonn. Hún er fyrsti kvenskipstjórinn í Bandaríkjunum á skipi af þessari stærð. Það lá nýlega við festar í Sundahöfn og fékk blaðamaður þá tækifæri til að ræða við Sanbom. Hún var beðin um að segja aðeins frá sjálfri sér og skipinu, en þetta er fyrsta ferð hennar sem skipstjóri á Texas Clipper. „Skipið var smíðað árið 1944 og er því orðið 44 ára. Það var upphaf- lega notað til að flytja hersveitir heim frá Suður-Kyrrahafinu í heimsstyrjöldinni síðari. Síðan var því breytt og það notað í siglingum með farþega og farm yfir Atlands- hafið, frá New York til Miðjarðar- hafsins. Þá var komið fyrir loftkæl- ingakerfi í skipinu og var það fyrsta skipið með slíkan útbúnað. Þegar flugferðir yfir Atlandshafið urðu reglulegar 1959, var ekki lengur grundvöllur fyrir farþegaflutning- um á þessari leið. Skipinu var þá lagt í nokkur ár eða þar til háskól- inn okkar, Texas A&M, fékk það afhent til eignar og gaf því nafnið Texas Clipper." Hverskonar nám stunda nemend- umir um borð? „Þetta em allt nemendur frá Texas A&M Universisty, þar sem kenndar eru greinar tengdar sigl- ingum og sjóflutningum, s.s. far- mennska, haffræði og sjávarlíf- fræði. Samhliða þessum greinum eru í gangi námskeið varðandi ýmis réttindi um borð í farskipum, eins og skipstjómaréttindi, stýri- mannaréttindi og vélstjóraréttindi. Almennar greinar eins og enska og stærðfræði em einnig kenndar. Nemendur þurfa því að ljúka ólík- um áföngum, bæði bóklegum og verklegum, áður en þau útskrifast. Einn þeirra er að fara í 2 1/2 mán- aðar siglingu með Texas Clipper á hvetju sumri á þriggja ára námstímabili. Við fömm á nýja staði og til ólíkra heimshluta, á hveiju sumri. Það er gert svo nem- endur kynnist ólíkum aðstæðum og fái sem víðtækasta reynslu. Þegar þeir hafa lokið skólanum væntum við þess að þeir séu tilbún- ir til að taka til starfa á flutninga- skipum. Þetta námsfyrirkomulag er að míriu mati, mjög gott, en strangt. Ég ætti að vera dómbær á það, þar sem ég stundaði sjálf nám við Texas A&M og lauk prófi þaðan árið 1979. Það sama er að segja um alla yfirmennina um borð utan einn. Það er eiginlega nokk- urskonar hefð að gamlir nemendur snúi aftur eftir að námi líkur. Ég tel það mjög jákvætt, enda sýnir það tryggð þeirra við skólann." Komstu aftur til Texas A&M til að að taka við stjórn skipsins eða hefurðu fengist við einhver fleiri störf þar? „Ég kenndi við skólann í tæpt ár, bæði skipsstjórnun og sjó- mennsku. Ég hafði mikla ánægju af kennslunni, en sneri mén þó engu að síður að öðrum störfum. En ástæðan fyrir því að ég er komin aftur er sú að mér bauðst skip- stjómarstaðan á Texas Clipper." Er það rétt að nemendur sjái alveg um stjórnun skipsins, en yfir- mennirnir séu einskonar umsjónar- menn? „Já, það er hárrétt. Við erum með sjö yfirmehn og vélstjóra, en nemendurnir vinna öll störfin. Yfir- mennimir eru til að fylgjast með og grípa fram í þegar mistök eiga sér stað. En nemendum leyfist að gera mistök til að þeir læri af þeim. Það er þó ekki gengið svo langt að neinum sé stofnað í hættu, því gripið er í taumana áður en slíkt gerist. En þau læra meira af því að fá að gera mistök og átta sig á því hvaða afleyðingar það getur haft í för með sér. Það er mikill munur á því eða þegar einhver seg- ir, „Nei. þú ættir ekki að gera þetta svona." Nemendur bera því mikla ábyrgð og eru óspart hvattir áfram.“ Geturðu sagt mér eitthvað meira frá sjálfri þér? „Ég útskrifaðist frá skólanum ’79 með skipstjómarréttindi og gráðu í haffræði. Ég byijaði að vinna sem stýrimaður og tel mig vera mjög heppna að hafa fengið tækifæri til nota þessi réttindi mín. Ég var önnur konan í Bandaríkjun- um sem fékk réttindi til að stjóma farskipum af hvaða stærð sem er og hef verið skipstjóri á minni skip- um. Ég fékk mín réttindi reyndar aðeins þremur vikum á eftir hinni konunni. Ég er mjög ánægð með að hafa fengið tækifæri til að stjóma þessu skipi, enda er ég búin að stefha að þessu síðan náminu lauk. Samstarf mitt við undirmenn mína hefur ver- ið mjög gott, enda þarf ég að læra það sama og karlmenn með sömu réttindi. Svo þegar þessu takmarki er náð þá vita þeir að þú hlýtur að kunna eitthvað. Kosturinn við þetta starf er líka sá að starfssvið hvers og eins er greinilega afmarkað. Það gerir konum aðeins auðveldara að gegna störfum skipstjóra, held ég.“ Hvers vegna valdirðu þetta starf? „Ég var alin upp við bryggju- sporðinn, ef svo má segja. Faðir minn var skipstjóri á herskipi og alveg síðan ég var smábam hef ég búið nálægt skipum og ég hef alltaf heillast af þeim. Ég er viss um að ég hefði alltaf endaði í einhveiju starfi tengdu skipum. Ef ég hefði ekki haft tæki- færi til að leggja þetta starf fyrir mig hefði ég bara endað sem skrif- stofumaður hjá skipafélagi. Ég er því mjög þakklát fyrir að vera að gera það sem mig hefur alltaf lang- að til.“ að eru margar hættur sem fylgja því að glápa of mikið á sjónvarp. Það á þó sérstaklega við í þeim löndum þar sem sjónvarpað er allan sólarhringinn frá mörgum sjónvarpsstöðvum. Það er fyrst og fremst óhollt að sitja lengi og fá enga hreyfingu og einnig er talið að það hafi ekki heldur sérlega góð áhrif á sálarlífið. Nýlega var gerð könnun á 11 þúsund bömum í Boston í Banda- ríkjunum og þá kom í ljós að hægt er að tengja offitu barna við of mik- ið sjónvarpsgláp. í Bretlandi hafa kannanir einnig leitt í ljós að börn og unglingar sitja frekar fyrir fram- an sjónvarpið heldur en að fara út og leika sér og auka þar með líkurn- ar á því að fá hjartaáfall um fimm- tugt. Þau verða feit og þung á sér og hreyfa sig sífellt minna. Bandaríski sérfræðingurinn David Handler hefur skrifað bók um offitu bama. Hann segir að það sé ekki nóg að draga úr sjónvarpsglápi barn- anna heldur verður líka að fylgjast með því hvaða þætti þau horfa á. David telur að vissir sjónvarps- þættir hafi góð áhrif en aðrir slæm. Hann tekur sem dæmi að það geti verið gott að horfa á „Húsið á slétt- unni“ og „Prúðu leikarana". Það geti jafnvel hjálpað bömum að losna við nokkur aukakíló að horfa á þessa þætti. Aðalleikararnir séu sífellt að gera eitthvað spennandi eða Linda Gray í hlutverki sínu sem Sue Ellen í Dallas-þáttunum gef- ur ekki rétta mynd af dæmigerð- um alkóhólista. skemmtilegt en sjáist sjaldan fá sér að borða. Hann telur hinsvegar að bandarískar sápuóperur eins og Dallas og Dynasty séu af hinu illa. „Lítið bara á Alexis í Dynasty- þáttunum sem Joan Collins leikur. segir hann „Hún borðar oftast tvær girnilegar máltíðir í hveijum þætti, á veitingahúsum eða í veislum en er alltaf jafn grönn og spengileg. Svangur sjónvarpsáhorfandi hugsar með sér að hann hljóti að geta gert það sama.“ David er heldur ekki hrifinn af Sue Ellen í Dallas-þáttunum sem Linda Gray leikur. Hann segir, „Sue Ellen drekkur heila flösku af sterku víni og verður varla sjúskuð fyrir vikið eins og ætla mætti með venju- legt fólk. Augnháraliturinn hennar rennur aðeins til en hún er alltaf í jafn góðu formi eftir sem áður.“ David hefur þijú ráð handa þeim sem geta alls ekki sleppt því að horfa mikið á sjónvarp. I fyrsta lagi ætti viðkomandi að skammta sér mat sem hann ætlar að borða á meðan hann horfír á sjón- varpið. Sumir verða svo spenntir fyrir framan sjónvarpið að þeir háma í sig án þess að gera sér grein fyrir því. I öðru lagi ætti enginn að hafa sjónvarpið inni í eldhúsi og í þriðja lagi er gott að horfa á fræðslu- myndaþætti um fituvandamál. Sekt- arkenndin heldur aftur af þeim gráðugustu. Joan Collins i gervi Alexis í Dynasty-þáttunum skapar ekki gott fordæmi fyrir svanga sjón- varpsáhorfendur. COSPER Mamma, sjáðu, Gísli meiddi mig. MEO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.