Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 11 þetta heil gullnáma fyrir mótlistar- menn og ekki síður málara. Ekki svo að skilja, að ég álíti, að þeir eigi að gera hér nákvæmar eft- irlíkingar, því er nú síður, en hér tel ég, að séu falin og samankom- in þau form, mótanir og litir sem íslenzkir myndlistarmenn eigi helst að sækja tii hugmyndir í list- sköpun sinni. Og gera það á hinn fjölþættasta hátt. Ég tel t.d., að íslenzkir nemend- ur í mótlist hafi mun meira að sækja til hinna ýmsu fyrirbæra íslenzkrar náttúru en útlendra kennara og kenningasmiða og þá ekki síður til hins óhlutlæga og innsæa en landslagsins og hlut- veruleikans. Fræðilega get ég ekki fjallað um sýninguna sem slíka, en hins vegar hef ég skoðað steinasöfn víða um heim og tel mig hafa hér nokkurn samanburð. Slík söfn eru með því skemmtilegasta, sem ég heimsæki í útlandinu, enda fjöl- breytnin gríðarleg. Sumt er un- drasmíð náttúrunnar, sem hefur tekið hana milljónir ára að móta. I steinunum höfum við því fyrir augunum orð Einars Benedikts- sonar: „Eilífðin sjálf, hún er alein til. / Vor eigin tími er villa og draumur." (Einræður Starkaðar.) Margt í íslenzkum steinum er sérstætt og einstakt og hefur mótast af veðráttu og sérstökum aðstæðum, sem hvergi eru til nema hér. Hér eru falin verðmæti, sem eru með því dýrmætasta sem við eig- um og ber að fara vel með ekki síður en viðkvæman gróðurinn og vernda fyrir of mikilli ásókn. Á sýningunni er mikill fjöldi steinategunda og sérkennilegra formana, en er því miður frekar óskipulega hrúgað í glerkassa. Með færri steinum, betra skipulagi og fagmannlegri uppsetningu hefði sýningin orðið margfalt áhrifameiri. En eiginlega þurfa sýnishorn af hinum ýmsu steina- og bergtegundum að vera sem víðast til sýnis og með tæmandi skýringum um efnasambönd, fundarstaði, aldursgreiningu o.s.frv. En mestu máli varðar þó, að hér er um merkilegt og nytsamt framtak að ræða, sem vert er fyllstu athygli.. . bíothec Prentarar Skipholti 9. Símar 24255 og 622455. DRÁTTARVÉLIN COLT OG LANCER NÝTT ÚTUT — NÝ TÆKNi BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG Wk KOMIO OQ KÆLIÐ \K YKKUR MEÐ EMMESS U KLAKA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.