Morgunblaðið - 16.07.1988, Blaðsíða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Hvað sögðu
þeir?
LogiBergmann
Eiðsson
skrifarfrá
A-Þýskalandi
Bogdan Kowalczyk:
„Nú átta menn sig kannski á
því hvers vegna við vorum svo
svartsýnir fyrir leikinn gegn
Sovétmönnum. Þeir eru ótrúlega
stórir og sterkir
og hafa mjög
breiðan hóp. Þeir
hafa því fleiri
leikmenn í hveija
stöðu og því skiptir hver maður
ekki jafn miklu máli. En úrslitin
í þessum leik réðust á síðustu
fímm mínútunum í fyrri hálfleik
og síðustu tíu mínútum leiksins.
Við þurfum meiri styrk áður en
við mætum þeim aftur og þeir
eru tvímælalaust komnir lengra
en við. Þó okkur hefði tekist að
stöðva Wasilew þá hefði bara
losnað um annan mann. Það
hafði líka mikið að segja að
Kristján Arason er meiddur og
þvi losnaði aðeins í vöminni.
Byijunin var mjög góð og þetta
var besti leikur islenska liðsins
i keppninni, þrátt fyrir tap."
Milatowic, adstoðarþjáifari
Sovátm:
„Þetta var erfiður leikur fyrir
okkur, en íslendingar komu okk-
ur ekki á óvart. Við vissum að
þeir hefðu æft vel, en þá skorti
kraft í síðari hálfleikinn. Það
voru fyrst og fremst eldri leik-
mennirnir í sovéska iiðinu sem
unnu þennan leik fyrir okkur.
Ég er mjög ánægður með sigur-
inn.“
Páll Ólafsson:
„Mér fannst við ekki leika nógu
vel í heild. Ég var ekki ánægður
með inná skiptingar og hvernig
við lékum í síðari hálfleik. Sókn-
imar vom of stuttar og vömin
og framarlega.
Sovétmenn em með besta lið
heims í dag, en hvemig þeir
verða á Ólympíuleikunum er
ekki gott að segja. Þeir gætu
þess vegna verið komnir of langt
og verið á niðurleið i Seoul, ég
vona það fyrir okkar hönd."
Þorglls Óttar Mathiesen:
„Fyrri hálfleikur var mjög vel
leikinn, markvarslan var mjög
góð og allt gekk upp í sókninni.
Vömin var hins vegar ekki nógu
góð og versnaði í síðari hálfleik.
Þá komu yfirburðir Sovétmanna
í ljós. Þegar við mætum Sovét-
mönnum verðum við að spila af
skynsemi allan tímann."
Krístján Arason:
„Við spiluðum í raun betur en
við eigum að geta í fyrri hálf-
ieik. Það gekk alit upp hjá okk-
ur og við máttum svo sem búast
við bakslagi. Þegar þeir svo tóku
við sér þá gerðum við allt of
mörg mistök."
Alfreð Gíslason:
„Það sem gerði gæfumuninn var
að okkur tókst ekki að halda
Wasilew niðri. Hann skoraði
mörk af iöngu færi og dró
vörnina út, þá opnaðist línan og
mörkin komu hvert á fætur
öðru. Við spiluðum ekki nógu
agað, sóknimar voru allt of
stuttar, en fyrri hálfleikurinn er
það besta sem við höfum sýnt
á mótinu."
Elnar Þorvar&arson:
„Við lékum góðan sóknarleik í
45 mfnútur en vömin var slök.
Við réðum ekki við þá það verð-
ur að segjast eins og er. Það
em mörg ár síðan við höfum
spilað svona leik þar sem bottn-
inn hefur gjörsamlega dottið úr
í lokin."
Alfreð Gíslason átti mjög 'góðan leik gegn Sovétmönnum.
Áhorfendur á
bandi íslendinga
Austur-þýsku áhorfendumir í íþróttahöllinni í Magdebiirg vom nær
allir á bandi íslendinga í gær. Þeir kvöttu liðið til dáða og þrátt
fyrir slæma kafla stóðu þeir með íslenska liðinu allan tímann.
Aður en leikurinn hófst dreifðu íslensku leikmennirnir myndum af lið-
inu meðal áhorfenda og fengu þá þannig á sitt vald. Þegar íslending-
ar skomðu var mikið fagnað, en þegar knötturinn hafnaði í íslenska
markinu heyrðist aðeins kurteisislejgt klapp.
Þegar best lét í fyrri hálfleik og Islendingar vom með fimm marka
forskot var engu líkara en liðið væri að leika í Laugardalshöllinni,
slík vom viðbrögð áhorfenda.
Jafntef li nægir
Leikið gegn V-Þjóðverjum um þriðja sætið
ÍSLENDINGAR mæta Vestur-
Þjóðverjum í dag í Dassau í
síðasta leik mótsins. Bæði liðin
töpuðu ígær, en íslendingum
nægir jafntefli þar sem liðið
hefur hagstæðara markahluta-
fall.
Vestur-Þjóðveijar töpuðu í gær
fyrir Austur-Þjóðveijum,
18:23 og það verða því heimamenn
sem mæta Sovétmönum í úrslita-
leiknum í dag.
íslendingar og Vestur-Þjóðveijar
léku fyrir viku síðan í Hamborg og
þá tókst Vestur-Þjóðveijum að
tryggja sér sigur með marki á
síðustu sekúndunum. Íslendingar
ætla sér að hefna ófaranna í dag
°g tryggja sér þriðja sætið í mótinu.
„Við verðum að vinna Vestur-
Þjóðveija til þess að geta verið sátt-
ir við frammistöðu okkar í mótinu.
Við áttum að vinna þá í Hamborg
og ég tel að við eigum að vinna þá
núna og hef ekki trú á öðru en það
verði íslendingar sem hljóti brons-
verðlaunin," sagði Þorgils Óttar
Mathiesen, fyrirliðið íslenska liðs-
ins.
Úthaldið brást
Islendingartöpuðu fyrir Sovétmönnum í undanúrslitum eftirfrábæra byrjun
ÍSLENSKA landsliðið náði ekki
að fylgja eftir frábærri byrjun í
leik sínum gegn Sovétmönnum
í undanúrslitum á 19. austur-
þýska handknattleiksmótinu í
gærkvöldi. Byrjunin var vissu-
lega glæsileg og um tíma hafði
íslenska liðið fimm marka for-
skot. En í síðari hálfleik brást
úthaldið og Sovétmenn sigu
framúrog sigruðu, 28:24. Leið-
inlegur endir á annars mjög
góðum leik íslenska liðsins.
Logi Bergmann
Eiðsson
skrifarfrá
A-Þýskalandi
Leikurinn var jafn fystu mínú-
tumar. íslendingar léku að
skynsemi gegn sovésku vörninni og
biðu eftir góðum færum. I vöminni
var svo vel tekið á
móti rúmlega
tveggja metra sókn-
armönnum Sovét-
manna og í markinu
varði Einar Þorvarðarson eins og
berserkur.
Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður
var staðan 5:6 Sovétmönnum í vil.
Þá tók íslenska liðið við sér, skor-
aði fimm mörk í röð og breytti stöð-
unni í 10:6. Frábær kafli það sem
allt gekk upp í sókninni og vörnin
var þétt.
íslendingar juku muninn í fimm
mörk 12:7 og rétt fyrir leikhlé var
Kristjáni Arassyni vikið af leikvelli.
Sovétmenn nýttu sér að vera einum
leikmanni fleirri og skomðu fjögur
síðustu mörkin í fyrri hálfleik, en í
leikhléi var staðan 12:11.
Frábærfyrri háKtoikur
Ifyrri hálfleikurinn var með því
besta sem sést hefur til íslenska
liðsins. Vömin var ótrúlega sterk
og hreyfanleg og í sókninni stjórn-
aði Páll Ólafsson leik liðsins, en
hann átti frábæran leik í fyrri hálf-
leik, skoraði 4 mörk og fiskaði þijú
vítaköst. Hann sannaði að tækni
og snerpa getur vegið þyngra en
stærð og kraftur og lék sovésku
vömina oft grátt. Einar Þorvarðar-
son varði mjög vel, einnkum fyrstu
mínúturnar er hann bókstaflega'
lokaði markinu. Þá var Alfreð Gísla-
son fastur fyrir í vörninni og skor-
aði mikilvæg mörk.
HræAllegur kafli
íslendingar byijuðu síðari hálfleik-
inn vel og vom einum til tveimur
mörkum yfir allt þar til um miðjan
síðari hálfleik. Þá tók við hræðileg-
ur kafli mistaka og óheppni og sov-
étmenn genu á lagið. Þeir skomðu
hvert markið á fætur öðm, eftir
slæm mistök íslendinga og vom
eldsnöggir i hraðaupphlaupum.
Á nokkmm mínútum sném Sovét-
menn leiknum sér í hag, skomðu
Ísland-Sovétr.
24:28 (12:11)
íþróttahöllin í Magdebiirg, 19 austur-
þýska handknattleiksmótid, föstudag-
inn 15. júlí 1988.
Gangur leiksins: 0:1, 2:3, 4:3, 5:6,
10:6, 10:7, 12:7, 12:11, 13:11, 15:13,
16:16, 18:17, 18:21, 19:24, 20:25,
22:25, 22:28, 24:28.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 7/3,
Páll Ólafsson 4, Þorgils Óttar Mathies-
en 3, Kristján Arason 2, Karl Þráins-
son 2, Atli Hilmarsson 2, Sigurður
Sveinsson 2/2, Guðmundur Guðmunds-
son 1 og Geir Sveinsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 8 og
Brynjar Kvaran 1/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Sovétríkjanna: Wasilew 7,
Atawin 7/2, Schepkin 4, Gorin 3,
Tsthetsow 3, Hesderow 2, Tutschkin 2.
Varin skot: Tschömak 7.
Utan vallar: 8 mínútur.
Áhorfendur: 500.
Dómarar: Peter Rauchfuss og Rudolf
Buchda frá Austur-Þýskalandi og
dæmdu ágætlega.
sjö mörk gegn einu og staðan þá
19:24.
íslendingar náðu að klóra í bakkann
og minnka muninn í 3 mörk, 22:25,
en Sovétmenn skomðu þijú síðustu
mörkin og tryggðu sér nokkuð ör-
uggan sigur.
Ágætur leikur
í heild var leikurinn mjög góður,
ef undan em skyldar nokkrar
mínútur í síðari hálfleik. íslenska
liðið lék að skynsemi framan af og
sýndi mikla baráttu, en smá saman
dróg máttinn úr þeim. Sóknirnar
vom of stuttar og vörnin of framar-
lega og greinilegt að íslensku leik-
mennimir vom þreyttir. Sovétmenn
þurfa hins vegar ekki að hafa
áhyggjur af úthaldi. Þeir léku af
fullum krafti og nýttu sér slæmu
kaflana hjá íslendingum.
Páll Ólafsson og Alfreð Gíslason
vom bestir í liði Islendinga og þeir
Guðmundur Guðmundsson og Þorg-
ils Óttar áttu einnig góðan leik, auk
Einars Þorvarðarsonar sem varði
mjög vel í fyrri hálfleik.
Sovétmenn eru ekki ósigrandi
Mikið hefur verið rætt um sovéska
liðið hér og margir telja það besta
lið heims og jafnvel eitt besta hand-
knattleikslið sem komið hefur fram
lengi. Þeir em nú komnir langt á
undan öðmm þjóðum í undirbún-
ingi, en þegar líður að Ólympíuleik-
unum ætti munurinn ekki að vera
jafn mikill.
Þrátt fyrir tapið í þessum leik er
það greinilegt að sovéska liðið er
ekki ósigrandi og það verða íslensku
leikmennimir að hafa í huga þegar
haldið verður til Seoul í haust.
KNATTSPYRN / 2. DEILD
Tindastóll sigraði
Tindastóll kom sér af mesta fyrir opnu marki og skoraði ömgg-
hættusvæðinu í 2. deild með lega.
Frá
Bimi
Bjömssyni
á Sauðárkróki
því að vinna Breiðablik, 2:0, á Sauð-
árkróki í gærkvöldi. Heimamenn
byijuðu vel og skor-
uðu fyrsta markið
eftir aðeins sex
mínútur. Þar var að
verki Ólafur Adólfs-
son. Hann skoraði úr þvögu glæsi-
legt mark upp í markhornið og
þannig var staðan í hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik bættu
heimamenn við öðm marki. Guð-
brandur Guðbrandsson braust upp
að endamörkum og gaf fyrir á Jón
Gunnar Traustason sem var einn
Blikar sóttu stíft síðustu mínúturn-
ar, en tókst þó ekki að skapa sér
hættuleg marktækifæri.
Tindastóll-UBK
2:0 (1:0)
Mörk Tindastóls: ólafur Adólfsson (6.
mín), Jón Gunnar Traustason (60.
mín.).
Maður lciksins: Ólafur Adólfsson,
Tindastól.