Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 5

Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 5 Morgunblaðið/BAR Það var kátt á hjalla hjá leikhópnum Perlunni, sem brátt er á förum í leikför til Noregs. Efri röð f.v.: Ingveldur Ólöf Ragnarsdóttir, Sigfús Svanbergsson, Þorbjörg Guðlaugsdóttir, Sigríður Eyþórsdóttir, leikstjóri, Hildur Davíðsdóttir, Ingibjörg Árnadóttir, og Pétur Johnson. Neðri röð f.v.: Jóhanna Sigrún Guðmundsdóttir, Birgitta Harðardóttir, Gunnar Guðbjörnsson og Hildur Óskarsdóttir. Fyrsta alfræðiorða- bókin á íslensku BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg- ur hefur undanfarið ár unnið að gerð alfræðiorðabókar. Stefnt er að þvi að gefa bókina út í byijun árs 1990 og er hún byggð á alfræðiorðabókinni Fakta, sem kom út hjá útgáfunni Gyldendal f Danmörku í maí á þessu ári. Bókaútgáfan Örn og Órlygur hefur fengið leyfi Gyld- endals til að þýða og staðfæra efni dönsku bókarinnar. Al- fræðiorðabókin verður sú fyrsta sinnar tegundar á íslensku. Birg- ir ísleifur Gunnarsson mennta- málaráðherra kynnti sér útgáfu bókarinnar á miðvikudag. Undirbúningur að útgáfunni hófst í júní árið 1987. Ritstjórar bókarinnar eru þær Dóra Haf- steinsdóttir og Sigríður Harðar- dóttir en aðstoðarritsjórar Aðal- steinn Eyþórsson, Hálfdan Ómar Hálfdanarson og Sigmundur Ein- arsson. Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra kynnti sér útgáfuna í boði ritstjómar 13. þessa mánaðar. Að sögn annars ritstjórans, Sigríðar Harðardóttur, sýndi ráðherra bókinni mikinn áhuga og sagði hann útgáfuna þarft framtak. Ritstjómin fékk handrit frá Gyldendal þar sem efni er raðað í 241 efnisflokk. Efnisflokkunum var síðan dreift til nær 80 sérfræð- inga sem vinna að því að þýða og endurskoða verkið. Sérdanskt efni er um 30 af hundraði dönsku útgáf- unnar. Það verður fellt niður og í stað þess kemur séríslenskt efni. íslenskt efni verður nokkru ítar- legra en annað í bókinni. Sigríður sagði að í bókinni yrði orðum raðað í stafrófsröð og við hvert orð skýring. Stundum væri vísað í önnur orð þar sem nánari upplýsingar er að finna. Stefnt er að því að bókin komi út í tveimur bindum, sem verða allsf um 1500 síður. Mikið verður af skýringar- myndum, töflum og kortum í bók- inni. Nú þegar hafa sérfræðingar skil- •að inn um þriðjungi efnis og rit- stjóm les handrit yfir, samræmir og býr til prentunar. Áætlað er að frumunnið handrit verði tilbúið í lok ársins. Auk ritstjómarinnar starfa tölvusérfræðingur, setjarar og prófarkalesarar við útgáfuna en kostnaður er áætlaður um 70 milljónir. Perlan sýnir á kvenna- ráðstefnunni í Osló LEIKHÓPURINN Perlan, sem í eru nemendur úr Þjálfunarskóla ríkisins, er á förum til Noregs, þar sem hann ætlar sýna tvo leik- þætti á Norrænu kvennaráð- stefnunni í Osló þann 2. ágúst. Þetta er fyrsta utanlandsferð leikhópsins og hefur hann verið önnum kafinn við æfingar und- anfarnar vikur. Leikhópurinn heldur utan 29. júlí og sýnir í „Friðartjaldi“ ráð- stefnunnar. Sýndir verða tveir stuttir leikþættir, „Sólin og vindur- inn“ og „Síðasta blómið". „Sólin og vindurinn" er fyrsta verkefni hóps- ins þar sem leikaramir þurfa að glíma við texta, en þeir hafa aðal- lega fengist við látbragðsleik. „Síðasta blómið" er aftur á móti látbragðsleikur, fluttur við sam- nefnt ljóð James Thurbers í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar. Tónlistin sem flutt verður í þeim þætti, er eftir Eyþór Arnalds og er hún sérs- taklega samin fyrir þessa sýningu. Anna Birgis sá um að hanna bún- inga, en hún er í hópi kvenna er kalla sig „Perluvini". Áhugamál þeirra er að liðsinna leikhópnum og hefur stuðningur þeirra verið ómet- anlegur, að sögn Sigríðar Eyþórs- dóttur, leikstjóra. Þegar blaðamaður hitti hópinn á æfíngastað hans í Bjarkarási var greinilegt að margir voru farnir að undirbúa sig fyrir ferðina, enda lá spenna og tilhlökkun í loftinu. Dval- ið verður 12 daga í Osló, en auk þess að leika ætlar hópurinn að nota tækifærið og fylgjast með störfum ráðstefnunnar. I ferðina fara tíu leikarar ásamt leikstjóra, foreldri og tveimur kennurum. Nokkrir aðilar hafa styrkt þau til fararinnar, sagði Sigríður, en þó ekki svo að þau hafi upp í allan kostnað. Utanlandsferð kom fyrst til tals hjá Perlunni á síðasta ári, en þær áætlanir urðu ekki að veruleika fyrr en þeim barst boð um að koma fram fýrir Islands hönd í dagskrá í þágu friðar á Norrænu kvennaráð- stefnunni. Þá hefur þeim einnig, sagði Sigríður, verið boðið að koma til Bandaríkjanna á næsta ári og taka þátt í Listahátíð fatlaðara, sem haldin verður í Washington D.C. Bréfaskriftir eru nú í gangi milli Perlunnar og forsvarsmanna hátíð- arinnar, sem er hópur er kallar sig Very special art. Leikhópurinn Perlan var stofnað- ur árið 1982 og hefur Sigríður Eyþórsdóttir verið leikstjóri og leið- beinandi hópsins frá upphafi. Hún kennir jafnframt leikræna tjáningu við Þjálfunarskólann, en kjarni þeirra nemenda er í Perlunni. Mark- mið leikhópsins er að sýna leikrit á sviði og í sjónvarpi. Þau er öll mikl- ir áhugamenn um leikhús og farj Olíuverðshækkunin: MorgunblaðiO/ BAK Birgir ísleifur Gunnarsson skoðar handrit bókarinnar ásamt Örlygi Hálfdanarsyni útgefanda og öðrum ritsjóranum, Sigríði Harðardóttur. Á bak við má sjá einn af aðstoðarritstjórunum, Hálfdan Ó. Hálfdanarson. oft saman að sjá sýningar. Draum- urinn er auðvitað að eignast eigið leikhús. Áhuginn á viðfangsefninu leynir sér a.m.k. ekki, eins og blaða- maður Morgunblaðsins fékk að sannreyna er hann var viðstaddur æfingu hjá hópnum. Á döfinni hjá þeim er að gefa út leiklistarblað, einskonar fréttablað, með myndum og greinum eftir þau sjálf. Hermenn í „Síðasta blóminu". Verðlagsstofnun er stímpill fyrir olíufélögin segir Kristján Ragnarsson „ÞESSAR hækkanir á olíunni þýða 50 til 60 milljóna beina út- gjaldaaukningu hjá útgerðinni. Gasolíuhækkunin skiptir okkur mestu máli, en hækkunin á svart- olíu snertir okkur einnig óbeint gagnvart loðnuverksmiðjunum. Hún gerir þær vanhæfari til þess að borga okkur hærra loðnu- verð,“ sagði Kristján Ragnars- son, framkvæmdastjóri Lands- sambands íslenskra útvegs- manna, þegar hann var spurður um áhrif hækkunar á olíu. „Verð- lagsstofnun er bara stimpill fyrir olíufélögin að þessu leyti því með hliðsjón af innkaupsverði var til- efni til þess að lækka olíverðið um 10 aura, en ekki hæl'ka það.“ Eins og kunnugt er heimilaði Verðlagsráð á fundi sínum á mið- vikudag hækkun á gasolíu um 3,4% og svartolíu um 6,8%. Olíufélögin fóru hins vegar fram á 10% hækkun á gasolíu og 9% á svartolíu og rök- studdu Bfeiðni sína með kostnaðar- hækkunum innanlands. Olíufélögin fengu verulega hækkun í fyrra, eða 28%. Þau höfðu 1,70 kr. í álagningu á hivern lítra af gasolíu en hafa núna 2,39 kr. eða 41% hærri álagningu. Að mínu mati væru miklu æskilegra að olíu- verð yrði gefið fijálst og að það myndaðist einhver samkeppni," sagði Kristján. „Það sem mér finnst sérstaklega einkennilegt við þetta er að fulltrúi ríkisstjórnarinar í Verðlagsráði beitir sér fyrir þessari hækkun álagningar, sem er langt umfram verðbólgu. Svo verða menn voða- lega hissa á því að það séu erfiðleik- ar og það er talað um að sjávarút- „Það hefur ekki verið tekinn afstaða til þess ennþá, en vafa- laust verður sótt um gjaldskrár- hækkun innan skamms tíma. Við hækkuðum gjaldskrá okkar síðast 26. apríl um 13%, en síðan hafa náttúrulega orðið ýmsar breytingar og auðvitað bætir þessi hækkun í sarpinn," sagði Guðmundur Einarsson, forstjóri Ríkisskipa, þegar hann var innt- ur eftir því hvort fyrirtækið hygðist sækja um gjaldskrár- hækkun í framhaldi af hækkun vegurinn sé illa rekinn þegar á hon- um dynja endalausar hækkanir og stjómvöld standa fyrir því. Okkur þykir hart að greiða 9,20 kr. fyrir gasolíuna hér á sama tíma og hún kostar okkur 5,50 bæði í Bretlandi og Þýskalandi. En forsvarsmenn Verðlagsstofnunar vilja að svona sé þetta og það verður þá að hafa, en það er ekki með okkar sam- þykki," sagði Kristján. á olíuverði. „Það hefur þótt rétt að dragast ekki aftur úr vöruflutningabifreið- um með gjaldskrárhækkanir og við munum fylgjast með þeim. Stjórn- arfundur verður hjá fyrirtækinu í lok þessa mánaðar og þá verður sjálfsagt fjallað um það,“ sagði Guðmundur. Ríkisskip kaupir nær alla sína olíu hérlendis og segir Guðmundur það ekki vera oft sem skip þeirra eigi erindi út fyrir landsteinana þar sem ódýrari olíu er að fá. Ríkisskip: Vafalaust sótt um hækkun fljótlega

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.