Morgunblaðið - 16.07.1988, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
17
Danmörk
5,2% i
Norðurlönd f
BandaríkinN
Evrópu-
bandalagið*
9,8%
Danmörk^
9,0%
Norðurlöndi
Bandaríkin
Evrópu-
bandalagið*
Stofnríki
9,8% , ,. *
Önnúr lönd bandalagsins*
6,0%
Önnurlönd
* Lönd sem gengu f EB eftir 1.1.1973
Útflutningur Færeyinga með funmtán ára millibili skiptist sem sjá má að ofan.
Stoforíki
Evröpu-
bandalagsins*
Morgunblafiiö / AM
eyskt frystihús hófu nú frystingu
ár“:
Enn segir: „Coldwater er í dag
eitt af stærstu fyrirtækjum sinnar
tegundar í Bandaríkjunum. Það er
ekki eingöngu bundið því að selja
físk frá Islandi og Færeyjum undir
vörumerkinu „Icelandic Brand",
heldur kaupir það einnig inn frá
Evrópu, Suður-Ameríku og
Kanada.
Fyrir Coldwater hefur það þýð-
ingu að fá færeyskan fisk til sölu-
meðferðar. Það styrkir stöðu fyrir-
tækisins á markaðnum. Coldwater
kemur sérstaklega vel að fá ýsuflök
frá Færeyjum, sem og þorskflök
og fleira."
Að lokum segir í kaflanum um
FFS og Coldwater:
„Fiskasöla telur, að með sam-
starfínu við Coldwater hafi hinn
fjarlægi markaður í Bandaríkjunum
verið bezt ræktaður. Aðra hvora
viku fara farmar af frystum fisk-
flökum frá Færeyjum í fiskmóttök-
ur Coldwater í EJverett í Boston."
Forustumenn
Hinir hæfustu menn hafa verið
í forystu fyrirtækisins frá upphafi.
Fyrsti stjómarformaðurinn var Leif
Waagstein frá Þórshöfn. Núverandi
formaður er Aksel Hansen frá Þors-
höfn. Fyrsti forstjóri Fiskasölu var
Jens Christian Johannesen, lög-
fræðingur, en hann hafði áður
starfað sem fjármála- og sölustjóri
hjá dönskum dagblöðum. Hann var
mikill athafnamaður og lét mikið
að sér kveða í Færeyjum meðan
honum entist aldur. Jens Chr. Jo-
hannesen lézt fyrir aldur fram árið
1958, aðeins 51 árs að aldri.
Núverandi forstjóri er Birgir
Daníelsen, verkfræðingur, en hann
hefur gegnt því starfi frá árinu
1969. Forveri hans var Dánjal
Niclasen, sem tók við Fiskasölu við
fráfall Jens Chr. Johannesen. Dánj-
al var virtur athafnamaður, sem
hafði tekið virkan þátt í útgerð og
fískvinnslu í áratugi áður en hann
tók að sér Fiskasölu árið 1958.
L/F Föroya Fiskasöla hefur nú
starfað í 40 ár í þágu Færeyinga
að útflutningi sjávarafurða. Á þess-
um tíma hafa þrír forstjórar veitt
fyrirtækinu forstöðu. Þar af hefur
Birgir Danielsen verið forstjóri þess
í tæp tuttugu ár. Segir það sína
sögu um árangursríkt starf. Áður
hafði Birgir gegnt ábyrgðarmiklu
starfí hjá hinu heimsþekkta fyrir-
tæki, Nestlé, sem hefur aðalstöðvar
sínar í Sviss. Árið 1969 var hann
kallaður heim til Færeyja til að taka
við forstjórastarfínu.
L/F Föroya Fiskasöla er um-
fangsmikið og virt fyrirtæki. Það
hefur aukið hróður Færeyja víða
um heim og skilað Færeyingum
dijúgum tekjum með sölu færeyskr-
ar gæðavöru á helztu fískmörkuð-
um heims.
Færeyingum er óskað heilla með
L/F Föroya Fiskasölu á fertugsaf-
mæli fyrirtækisins.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Sjáifstæðisflokk í Reykjavík.
Að firra sjálfan sig ábyrgð
Formaður Verkamannasam-
bandsins sendir mér undarlega
kveðju í Morgunblaðinu sl. fímmtu-
dag. Þar kennir hann mér um reikn-
ismistök við ákvörðun rauða striks-
ins 1. júlí og sé það mln sök að
verðlag hafi ekki farið yfír rauða
strikið. Vegna þessa er óhjákvæmi-
legt að gera eftirfarandi athuga-
semdir:
1. Rauða strikið í Akureyrarsamn-
ingunum var ákveðið út frá
rauða strikinu í samningi Verka-
mannasambandsins og það er
því rauða strikið í þeim samn-
ingi sem formaður Verkamanna-
sambandsins telur mig. hafa
reiknað rangt.
2. Samkvæmt útreikningslíkönum
hagdeilda ASÍ og VSÍ leit út
fyrir að framfærsluvísitala 1.
júlí yrði um 160 stig miðað við
að kaup hækkaði almennt í sam-
ræmi við samning Verkamanna-
sambandsins. Sú tala var í góðu
samræmi við mat annarra hag-
fræðinga og stofnana á þeim
tíma.
3. Fulltrúar samningsaðila komu
sér saman um að hækka töluna
úr 160 í 161 stig. Um síðustu
mánaðamót vantaði hálft stig
upp á að framfærsluyísitalan
færi yfír strikið. Hækkunin um
eitt stig á sínum tíma þýddi þar
með að talan fór ekki yfír strikið.
4. Þar sem fotmaður Verkamanna-
sambandsins var því beinlínis
andsnúinn kom ég lítið að um-
ræðum í samningunum í febrúar
sem voru undir hans stjóm, enda
hafði hann annan hagfræðing
sem hann treysti betur sér við
hlið sem ætti að vera jafn hæfur
mér að meta þessar stærðir. Ég
vil þó taka fram að viðmiðunar-
talan 161 fyrir rautt strik var
borin undir mig og hafði ég ekk-
ert við töluna að athuga. Það
er ljóst að rauða strikið getur
aldrei verið einhlítt verðbólgu-
mat heldur öryggisviðmiðun
gagnvart verðbólgunni sem ætl-
Bæjarráð Siglufjarðar hefur
samþykkt ályktun þess efnis að
nauðsyn beri til að Vegagerð
ríkisins lagfæri Siglufjarðarveg
að Lambanesi í Fljótum og end-
urbæti slitlag í Strákagöngum.
Umdæmisverkfræðingur Vega-
gerðarinnar, Jónas Snæbjörnsson,
sat fund bæjarráðs á fimmtudag-
inn, en rætt var um að slétta yfir
holur í Strákagöngum og lagfæra
vegarkafla skammt undan þeim að
sögn Axels Axelssonar, bæjarfull-
trúa á Siglufirði. Axel segir að
Strákagöng þarfnist í raun lagfær-
inga á veg, nýrrar veggklæðningar
og hurðar vestanmegin. Þessar
framkvæmdir gætu kostað tuttugu
til þrjátíu milljónir króna.
að er að tryggja að umsaminn
kaupmáttur haldist. Þá er einnig
ljóst að töluverð ónákvæmni
hlýtur alltaf að vera f áætlunum
af þessu tagi.
Ég viðurkenndi fyrstur manna
að verðbólguspár í ár hafa ekki
reynst nákvæm vísindi, enda
hafa ýmsar forsendur sem miðað
var við í febrúar ekki staðist,
en um það ætla ég ekki að hafa
fleiri orð. En mér þykir það koma
úr hörðustu átt þegar sá sem
hafði forystu í samningum
Verkamannasambandsins af-
neitar með öllu ábyrgðinni af
eigin ákvörðunum og reynir að
koma henni yfír á aðila sem
hann hélt utan við alla ákvarð-
anatöku.
Höfundur er hagfræðingur ASÍ
Mikill leir er í Strákagöngum að
sögn bæjarstjórans á Siglufirði, ís-
aks Ólafssonar, og vegur þar illa
farinn með djúpum hjólförum og
holum með hvössum brúnum. Segir
ísak að fjöldi tjónakrafna á hendur
Vegagerð ríkisins hafi borist fógeta
af þessum sökum. Björgunarsveitin
Strákar muni reyndar hreinsa
göngin af mesta leirnum nú um
helgina.
Þá segir ísak að bæjarráð telji
þörf á að hefla veginn frá Stráka-
göngum að Reykjarhóli þar sem
bundið slitlag taki við. Jafnframt
sé verulegt jarðsig á Siglufjarðar-
vegi við Mánárskriður, hann hafí
brotnað upp og nauðsyn sé að aka
efni þar í.
Fjöldi kæra vegna veg-
aríns í Strákagöngum
Göngin þarfnast mikilla lagfæringa
Þakkarorð frá Steini Stefánssyni
Hugheilar þakkir og árnaÖaróskir fœri ég öllum
þeim, er geröu mér gleÖi og heiÖur meÖ vinar-
oröum, góÖum gjöfum og hlýjum kveÖjum á
áttrœÖisafmœli mínu.
GuÖ blessi ykkuY öll.
Steinn Stefánsson.
DRA TTARVELAR
Mest seldar í V-Evrópu
G/obusn
LÁGMÚLA 5. S. 631555.
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Þar sem fyrirtækið Völundarsmíði hf., (áður Völ-
undur hf.) er hætt störfum eru til sölu allar vélar
og áhöld verksmiðjunnar.
M.a. tækitillökkunar, kílvélar, spónlímingapressa,
vélartilskerpinga, vagnar, loftverkfæri, sagir,
heflar, lyftarar, verkfæri, reiknivélar, ritvélar, skrif-
borð, Ijósritunarvélar o. fl.
Til sýnis og sölu í Skeifunni 19 latigardag og
sunnudag 16. og 17. júlí.
Sérblað
á miðvikudögum
Myndasögur, þrautir og efni
frá börnum.
Auglýsingar í barnablaðið
þurfa að hafa borist
auglýsingadeild fyrir
kl. 17.00. á föstudögum.
Jfarcgpitttlrifofrifr
- blað allra landsmanna