Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
Evrópuþingið:
Tillaga um nýtt kvennaár
Brussel, frá Kristófer M. Krístinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞINGMENN á þingi Evrópubandalagsins í Strassborg hafa skorað
á framkvæmdastjórn bandalagsins að beita sér fyrir því i samvinnu
við Evrópuráðið og OECD, að árið 1989 verði helgað baráttu fyrir
auknu jafnrétti karla og kvenna í menntun og starfsþjálfun. Jafn-
framt setti þingið fram tillögur sem fjalla bæði um þetta efni og
eins um rétt barnshafandi kvenna.
í ályktuninni er lögð áhersla á
að árið verði notað til að vekja at-
hygli á slæmri stöðu kvenna í
menntun og starfsþjálfun um
bandalagið með ráðstefnuhaldi,
fundum og sýningum. Rétt sé að
ná sem víðtækastri samstöðu um
þetta efni m.a. er því beint til fram-
kvæmdastjómarinnar að setja sér-
stakan lið inn á flárlög bandalags-
ins til að standa straum af kostnaði
við ráðstefnu og námskeið.
Þingmennimir töldu ástandið í
þessum efnum alls óviðunandi,
freista yrði þess að bijóta á bak
aftur hefðbundin, úrelt viðhorf til
Noregur:
Prófessor viðriðinn
bamaklámshneyksli
Ósló, frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
í ÓSLÓ er nú uppi fótur og fit
vegna barnaklámshneykslis. Höf-
uðpaurarnir eru 41 árs gamall
prófessor við Óslóháskóla og 47
ára gamail upplýsingafulltrúi
stórs iðnfyrirtækis. Mennirnir
tveir sitja nú inni ásamt manni frá
norður-Noregi, sem talinn er hafa
verið í félagi við þá. Mennimir
eru grunaðir um ósæmilega at-
hæfi i návist barna og dreifingu
á bamaklámi.
Þegar er búið að leggja hald á nær
30 myndbandsspólur, en að sögn lög-
reglunnar má á þeim sjá böm undir
fjórtán ára aldri og sum e.t.v. ekki
nema Qögurra til fimm ára gömul.
Bömin eru bæði norsk og thaílensk,
en það segja yfirvöld leiða glögglega
í ljós að myndböndin hafi verið tekin
upp bæði í Noregi og Thaílandi. Vit-
að er að prófessorinn og upplýsinga-
fulltrúinn hafa hvað eftir annað farið
saman í sumarleyfí til Thaflands.
Upp komst um athæfi mannanna
þegar þriðji maðurinn, sem áður er
nefndur, sendi kunningja sínum
myndbandsspólu og íjölda mynda,
en viðtakandinn sat þá inni í UU-
ersmo-fangelsi skammt utan við
Ósló. Þegar pakkinn kom til fangels-
ins var innihald hans athugað og
samband haft við rannsóknarlög-
reglu þegar (jóst var hvers kyns var.
Fyrir einu misseri höfðu bandarísk
yfirvöld samband við Norðmenn og
tjáðu þeim að til Bandaríkjanna væri
smyglað bamaklámi frá Noregi.
Norsk tollyfírvöld könnuðu málið og
komust að þeirri niðurstöðu að svo
gæti ekki verið.
Hneyksli það, sem upp er komið
í Noregi nú, hefur á hinn bóginn
orðið til þess að norsk yfirvöld úti-
loka ekki þann möguleika að þar í
landi sé framleitt bamaklám til út-
flutnings.
Á myndböndum má sjá Óslóbúana
tvo eiga mök við lítil böm. Lögreglan
reiknar með því að spólumar dugi
sem sönnunargögn til sakfellingar.
hiutverka kynjanna. Vinna verði að
því að gera foreldrum og kennurum
ljósa þá möguleika sem opnir eru
stúlkum utan hinna hefðbundnu
kvennastarfa. Þannig verði í fram-
tíðinni að gera jafnrétti að'sérstöku
viðfangsefni í kennaramenntun inn-
an EB. Leggja verði af gamalgróin
viðhorf til karla og kvenna sem
m.a. birtist í kennsluefni í forskóla
og á fyrstu skólastigum. Samskon-
ar áherslur eigi að ríkja { líkams-
þjálfun stúlkna og pilta og sýna
eigi konur í mun ríkari mæli við
hefðbundin karlastörf. Jafnframt
þessari ályktun leggur Evrópuþing-
ið til að gerður verði innan EB sér-
stakur sáttmáli sem tryggi réttindi
bamshafandi kvenna. Stefna beri
að því að samræma lög og reglu-
gerðir þannig að réttindin verði
samræmd á við það sem best gerist
innan EB. Leggja eigi áherslu á að
tryggja að konur eigi einhverra
kosta völ bæði með fræðslu um
getnaðarvamir og eins upplýsing-
um um fóstureyðingar. Skapa verði
þeim konum sem vilja eiga böm sín
heima viðunandi aðstöðu til þess
og sömuleiðis að það sé í valdi kon-
unnar hvort hún hefur bamið á
bjósti.
’M
' m :
Páfi á stafkarls stíg?
Reuter
Jóhannes Páll páfi er nú í tíu daga sumarleyfi í Dólomítta-fjöllum
á Ítalíu, skammt frá austurrSsku landamærunum. Dvelst hann þar
S húsi er kirkjan á nálægt þorpinu Lorenzago. Nýlega lauk páfi
við skýrslu um stöðu og réttindi kvenna sem eru nú mikil hita-
mál innan kirkjunnar. Afstaða páfa er sú að staða konunnar sé
á heimilinu og henni beri að helga sig uppeldi barnanna. Hann
er andvígur öllum hugmyndum varðandi mögulega prestvigslu
kvenna S kaþólsku kirkjunni. Á myndinni sést páfi einn á göngu
S fjallaþoku Dólómittanna.
Afganistan:
Liimulítlar eldflauga-
árásir skæruliða á Kabúl
Moskvu, Reuter.
SKÆRULIÐAR skutu i gær
meira en 20 eldflaugum á Kab-
ÚI, höfuðborg Afganistans. Að
sögn sovésku fréttastofunnar
TASS létust 20 manns S árásun-
um og 34 særðust. í örstuttu
fréttaskeyti TASS, sem aðeins
var ein setning, voru ekki gefnar
frekari lýsingar á árásinni. Að
sögn vestrænna stjórnarerind-
reka S Islamabad, höfuðborg
Pakistans, kann hér að vera um
að ræða mestu einstöku eld-
flaugaárás skæruiiða um langt
skeið.
„Ég minnist þess ekki að gerð
hafí verið árás með 20 eldflaugum
áður,“ sagði einn þeirra. „Þeir hafa
e.t.v. skotið 20 eldflaugum á einum
og sama deginum áður, en ekki í
einni og sömu árásinni."
DOD
Afganskur skæruiiði með Stinger-flugskeyti reitt um öxl, en þau
eru sérstaklega notuð til þess að granda flugvélum.
Árásimar sigla í kjölfar fregna
af auknum hernaði skæruliða gegn
innrásarher Sovétmanna og her
leppstjómarinnar, en harðast sækja
Sovétríkin:
Verða verslunarforréttíndi
yfirstéttarinnar afnumin?
Moskva. Reuter.
LÍ'IT áberandi verslun I miðborg Moskvu, þar sem sovésk yfirstétt
hefur getað nálgast hvers kyns matvöru á meðan matarskortur
ríkir í landinu, mun brátt verða lokað. Bent hefur veríð á að aðgerð-
irnar kunni að boða afnóm forréttinda sovéskrar yfirstéttar.
Þegar talsmaðurReuter-frétta-
stofunnar kom við í versluninni á
fimmtudag vildi verslunarstjórinn
hvorki játa né neita því að loka
ætti búðinni, sagði einungis að svo
hefði viljað til að maður, sem ávallt
stæði vörð í búðinni, hefði veikst,
annara hefði fréttamanninum ekki
verið hleypt inn. Utan við búðina
spurði fréttamaðurinn tvo jakka-
klædda menn, sem báru brúna
böggla, að því hvort rétt væri að
loka ætti vereluninni en mennimir
vildu ekkert við hann ræða og hröð-
uðu sér á brott.
Forréttindi sovéskrar yfíretéttar
hafa löngum verið viðkvæmt mál
I Sovétríkjunum en fyrir stuttu
voru þessi mál reifuð á flokksráð-
stefnu sovéska kommúnistaflokks-
ins. Þar krafðist „flokksótemjan“
Bons Jeltsín þess að forréttindi
sovéskrar yfíretéttar yrðu afnumin.
Hann benti á að í 70 ára sögu
Sovétríkjanna hefði framboð á
matvælum aldrei verið nægi-
legt.„Mín skoðun er sú,“ sagði
Jeltsín m.a. „að skorti eitthvað 1
sósíalísku samfélagi þá eigi skort-
urinn að koma jafnt niður á öllum,
án undantekninga."
Hedrick Smith, sem var fréttarit-
ari bandaríska stórblaðsins The
New York Times í Moskvu árið
1970, hefur skrifað bók þar sem
hann tekur fyrir forréttindi sov-
éskrar yfirstéttar. Þar er meðal
annare talið upp það sem hinum
útvöldu hefur staðið til boða. Með-
al þess eru fbúðir á besta stað, ein-
býlishús við Svartahafið, bflstjórar
og lúxusbifreiðar, tískufatnaður frá
Vesturlöndum, séretakur flugvöll-
ur, fastamiðar í leikhús og sérstak-
ar matvöruverelanir. „Þar geta
þeir, sem eru innundir hjá stjórn-
völdum, nælt sér í kavíar, reyktan
lax, innflutt vodka, fágæt vín frá
Georgíu og Moldavíu, úrvals lqöt,
ferska ávexti og grænmeti yfir
vetrartímann, nokkuð sem er sára-
sjaldgæft að almenningi sé boðið
upp á,“segir meðal annars í bók
Smiths sem hann nefnir „Rússam-
ir“.
En hveijir eru það svo sem
mynda yfiretétt Sovétríkjanna? Það
eru háttsettir embættismenn S
kommúnistaflokknum, foringjar í
hemum, geimfarar, framúrskar-
andi vísindamenn og listamenn,
hliðhollir stjómvöldum. Margir
þeirra lifa lífi sem ekki er ólíklegt
að jafnvel velstæðir Vestur-
landabúar öfunduðu þá af.
skæraliðar í austurhluta landsins,
umhverfis Kabúl og hina suðlægu
borg Kandahar.
I síðustu viku létust 14 manns
af völdum sprengjutilræða og eld-
flaugaárása á Kabúl, að því er út-
varpsstöð leppstjómarinnar greindi
frá. í opinberam fréttum Afgana
hefur mannfalls hersins aldrei verið
getið, heldur aðeins skýrt frá mann-
tjóni allmennra borgara.
Fyrr í vikunni sagði TASS að
sérstök 25 manna sveit skæraliða
hefði verið gerð út af örkinni til
þess að sinna skemmdarverkum og
tilræðum í Kabúl.
TASS hefur ekki greint frá nein-
um átökum Rauða hereins við
skæraliða að undanförnu, en vitað
er að hann hefur orðið fyrir tals-
verðum skakkaföllum síðustu daga.
Sovétríkin hófu brottflutning
innrásarheija sinna hinn 15. mars
síðastliðinn og hafa heitið því að
allur herafli þeirra, sem er á bilinu
100.000-150.000 manns, verði á
brott fyrir næsta ár. Helmingur
þeirra á að vera farinn 15. ágúst.
Angóla:
Harðir
bardagar
Lissabon. Reuter.
SKÆRULIÐAR UNITA-hreyf-
ingarinnar, sem beijast gegn
marxistastjórninni í Angóla,
kváðust á föstudag hafa fellt 35
stjórnarhermenn i bardögum
undanfarna daga.
í fréttatilkynningu sem skæralið-
ar sendu frá sér í gær í Lissabon
f Portúgal sagði að 18 stjómar-
hermenn hefðu verið felldir á þriðju-
dag í Bie-héraði í landinu miðju.
Daginn eftir hefðu sveitir skæraliða
gert árás á bæinn Camacupa í áður-
nefndu héraði og hefðu 17 hermenn
fallið í þeim bardaga. UNITA-
hreyfíngin kvaðst hafa misst sex