Morgunblaðið - 16.07.1988, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
31'
Sjallinn 25 ára:
Skemmtanir og uppá-
komur alla vikuna
VIKUNA 19.-24. júlí heldur
Sjallinn upp á 25 ára afmæli
sitt með skemmtidagskrá og
dansleikjum öll kvöld vikunnar.
Húsið verður opnað kl. 19.00
fyrir matargesti alla dagana og
hefjast skemmtiatriðin um kl.
21.00. Opið er til kl. 1.00 virka
daga og til kl. 3.00 um helgar,
eins og venjulega.
Að sögn Ingu Hafsteinsdóttur,
framkvæmdastjóra Sjallans, kenn-
ir ýmissa grasa á afmælishátinni.
Nýjasta spútnikhijómsveit Reyk-
víkinga, Langi Seli og Skuggarnir,
kemur fram auk Bjartmars Guð-
laugssonar, Hljómsveitarinnar
Pass, Stuðkompanísins, Upplyft-
ingar og Hljómsveitar Ingimars
Eydal. Einnig munu Örvarseplin
koma fram í fyrsta skipti í Sjallan-
um, en Örvarseplin skipa hinn
kunni harmoníkuleikari Örvar
Kristjánsson og synir hans, Grét-
ar, Karl og Atli. Sýnd verða atriði
úr stórsýningunni „Stjömur Ingi-
mars Eydal í 25 ár“, sem var af-
mælissýning Sjallans í vetur og
einnig verða teknar nokkrar léttar
rokksveiflur úr sýningunni „Rokk-
skór og bítlahár", sem Þorsteinn
Eggertsson setti saman með norð-
lenskum skemmtikröftum. í Kjall-
aranum mun jazzsveiflan hinsveg-
ar ráða ríkjum öll kvöld afmælisvi-
kunnar.
Sjallinn og Sana ætla sameigin-
lega að standa fyrir uppákomu í
Big Country kemur ekki
göngugötunni dagana 22. og 23.
júlí, en ekki vildi Inga greina frá
henni í smáatriðum enda ætti hún
að koma vegfarendum á óvart.
Líklega yrði þó byijað kl. 15.00 á
föstudeginum og kl. 14.00 á laug-
ardeginum. Miðvikudaginn 20. júlí
frá kl. 16.00 til 19.00 býður Sjall-
inn eldri bæjarbúum upp á kaffi
og kökur og dansleik á eftir og
daginn eftir, fimmtudaginn 21.
júlí verður þroskaheftum börnum
boðið upp á annað eins.
Hljómsveit Ingimars Eydal verður að sjálfsögðu í stóru hlutverki á
25 ára afmælishátíð Sjallans.
Franskur organisti
leikur í kirkjum
FRANSKI orgelleikarinn Susan
Landale heldur tónleika í Akur-
eyrarkirkju sunnudaginn 17. júlí
kl. 17.00 og í Húsavíkurkirkju
mánudaginn 18. júlí kl. 20.30. í
Reykjahlíðarkirkju á þriðjudags-
kvöld leika þeir Wolfgang Knuth
og Michael Hillenstedt saman á
orgel og gítar og hefjast tónleik-
arnir kl. 20.30.
Tónleikarnir eru liður í sumartón-
leikaröð, sem nokkrir norðlenskir
tónlistarmenn standa fyrir. Góð
aðsókn hefur verið á þá tónleika,
sem haldnir hafa verið til þessa,
að sögn Bjöms Steinars Sólbergs-
sonar organista í Akureyrarkirkju,
en Landale var einmitt kennari
hans á námsárunum í Frakklandi.
Susan Landale er fædd í Skotlandi,
þar sem hún byrjaði tónlistamám
sitt. Hún lauk BS-prófi frá Edin-
borgarháskóla. Eftir framhaldsnám
í London gerðist hún nemandi
André Marchals í Frakklandi. Þar
var hún organisti við ensku kirkjuna
um árabil. Hún sérhæfir sig í
síðrómantískri tónlist og einnig
nútímaverkum. Landale er mjög
þekkt fyrir túlkun sína á verkum
frönsku tónskáldanna O. Messia-
ens, Jean Langlais og tékkneska
tónskáldsins Petr Ebens, sem hún
hefur jafnframt unnið með.
Landale er kunn sem orgelleikari
víða um heim. Hljómplötur hennar
frá frönskum og þýskum útgáfufyr-
irtækjum hafa verið lofaðar og hef-
ur hún oftsinnis komið fram í út-
varpi báðum megin Atlantshafsins.
Tvívegis hefur hún fengið fyrstu
verðlaun í orgelkeppnum og frá
árinu 1977 hefur hún verið aðstoð-
arorgelkennari við Tónlistarháskól-
ann í Rueil Malmaison og aðstoðar-
organisti við Saint-Lois-des-Invali-
des kirkjuna í París.
Fjör hf. og umboðsmaður Big
Country í Englandi tóku þá sam-
eiginlegu ákvörðun á fimmtu-
dag að fresta um óákveðinn
tíma komu hljómsveitarinnar
Big Country til íslands, þó svc
að samningur hafi legið fyrir
um tónleika þeirra á útihátí-
ðinni Fjör '88 í Eyjafirði um
Verslunarmannahelgi, segir í
frétt frá Fjöri hf.
í fréttinni segir ennfremur:
„Ástæðan er sú að þann 12.
júlí bárust nýjar kröfur frá hljóm-
sveitinni varðandi tækjabúnað
þann sem hún telur nauðsynlegan.
Kröfur þessar voru þvert ofan í
kröfur sem bárust Fjör hf. í lok
júní. Þegar höfðu verið gerðar
ráðstafanir til að útvega þann
tækjabúnað sem áður hafði verið
farið fram á, m.a. leigð tæki frá
London alls um tvö og hálft tonn.
Sá tækjabúnaður sem Big Country
var boðið að nota var einn sá
mesti og fullkomnasti sem settur
hefur verið upp á íslandi en hinar
nýju kröfur hljómsveitarinnar
hljóða upp á allt að tvöföldun á
tækjabúnaði. Þrátt fyrir ítrekaðar
• •
Oxarfjörður:
Þurrkur veldur landspjöllum
Morgunblaðið/Sigurvin Elfasson
Vindgeil í rofabörðum. Algeng sjón á uppblásturssvæðum.
öxarfirði.
MIKIL þurrkatíð hefur verið
víða á norðausturhorninu i vor
og sumar svo vikum skiptir.
Gróður á túnum og í úthaga
hefur liðið fyrir þurrkana.
Rykmistur og sandfok hefur
fylgt þessum þurrkum og sums
staðar orðið landspjöll. Ekki eru
slíkir þurrkar þó einsdæmi hér.
Segja má að varla hafi komið
dropi úr lofti að gagni í 8-9 vikur.
Seinkaði það gróðri og hafa þurr
tún orðið illa úti víða og sviðnað.
Sandfok hefur verið mikið á upp-
blásturssvæðum, einkum í Mý-
vatnssveit og á Hólsfjöllum og
raunar víðar, og landeyðing í gangi.
Dimmt rykmistur hefur oft verið í
lofti yfir sveitum við Öxarfjörð svo
að skyggt hefur á sól.
Að sögn Sveins Þórarinssonar í
Krossdal í kelduhverfi, land-
græðsluvarðar í Þingeyjarsýslum,
hefur hann séð hvað mesta lan-
deyðingu f svokallaðri Grænulág á
NorðurQöllum í Mývatnssveit. Þar
hefur blásið upp tunga til norðurs
um 2,7 km að lengd og 1 km að
breidd og breyst í örfoka grjótmel.
Roftungan hefði færst um 300
metra til norðurs frá því september
í fyrra.
Sveinn kvað uppblástur oft byija
sem smáblett á grónu landi, sem
síðan stækkaði ár frá ári, éinkum
í þurrkatíð, þar til stór roftunga
hefði myndast sem breikkaði og
færðist norður á bóginn, allt upp
í 2-300 metra rof á ári við vondar
aðstæður. Á 5 árum gæti myndast
1-lVz km langt uppblástursflag,
og iðulega mörg hlið við hlið, og
endaði sem örfoka svæði.
Ekki sagðist hann hafa séð að
sandstormamir hefðu gert skaða í
girtum landgræðsluhólfum þar sem
melur, loðvíðir og annar gróður
væru í góðu lagi.
Síðustu daga hefur Páll Sveins-
son, flugvél landgræðslunnar, sáð
í ógróið land hér í Þingeyjarsýslum.
- Sigurvin
tilraunir Fjörs hf. og umboðs-
manna hljómsveitarinnar til að fá
hljómsveitina til að slá af kröfum
sínum hefur því ekki verið sinnt.
Fjör hf. harmar mjög þessa niður-
stöðu en því miður er með öllu
ómögulegt að útvega þau tæki sem
farið er fram á þar sem aðeins eru
tvær vikur þar til tónleikamir eiga
að fara fram.“
Hnífastympingar
framanviðBSO
TIL stympinga kom fyrir fram-
an Bifreiðastöð Oddeyrar á
Akureyri aðfaranótt laugar-
dags fyrir viku. Annar aðilinn
dró þar upp hníf og ógnaði hin-
um. í átökum, sem varð þeirra
á milli, skarst sá hníflausi á
Þýskur kór
norðanlands
FIMMTÁN manna þýskur kór,
Vokalensemble Heidelberg,
heldur tónleika í Grenjaðastað-
arkirkju annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 21.00. Kórinr
syngur miðvikudagskvöldið 20.
júlí kl. 20.30 í Grenivíkurkirkju
og á fimmtudaginn 21. júlí kl.
20.30 í Hríseyjarkirkju.
Á efnisskránni eru meðal ann-
ars þýsk kórverk og þýsk þjóðlög.
Einnig verður flutt tónlist fyrir
blokkflautu og gítar. Stjómandi
er Klaus Brecht.
vinstri framhandlegg þannig að
sauma þurfti á honum saman
fjóra skurði.
Að sögn Daníels Snorrasonar,
rannsóknarlögreglumanns, er ljóst
að báðir aðilar vom ofurölvi. Ekki
er þó enn ljóst hvort hnífurinn var
notaður eingöngu til að veijast eða
ekki. Málið er í rannsókn.
Bifreiðastjórar:
Hafið bílbænina í bílnum
og orð hennar hugföst
þegar þið akið.
Drottmn Guó. veit mér
vernd þina, og lát mig
minnast ábyrgöar minnar
er ég ek þessari bifreiö.
I Jesú nafni. Amen.
Fæst í Kirkjuhúsinu,
Klapparstíg 27, í verslun-
inni Jötu, Hátúni 2,
Reykjavík og í Hljómveri,
Akureyri.
Verð kr. 50.-
Orð dagsins, Akureyri.
Til sölu
Toyota Celica Supra 3.01
árgerð 1988
Svartur, metallakk. Beinskiptur. 205 hestöfl með öllum
hugsanlegum búnaði. Til greina koma skipti upp í fasteign
á Stór-Reykjavíkursvæðinu með góðum greiðslum.
Upplýsingar í síma 96-27176.