Morgunblaðið - 16.07.1988, Page 33

Morgunblaðið - 16.07.1988, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988 33 I Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Ein af þeim dásemdum, sem sumarið hefur upp á að bjóða, er ferskt og nýsprot- tið grænmeti. í bernsku hlakkaði ég alltaf til að fá blaðsalat, gulrætur og rófur úr matjurtagarði foreldra minna, en þegar lengra leið á sumarið kom blómkál og hvítkál úr garðinum, en ég er ekki í nokkrum vafa um, að íslenskt hvítkál er besta hvítkál í heimi. Nú fæst ferskt innflutt grænmeti allt árið, en því miður í flestum eða öllum tilfellum bæði sprautað með skordýra- og rotvarnarefni. Minna er af slíku í íslensku grænmeti, og ef við ræktum grænmetið sjálf, þurfa engin slík aukaefni að vera í því, enda hlakka ég enn til að fá þetta heimaræktaða grænmeti, einkum blaðsalat, sem ég rækta mikið af, en margar vikur eru síðan ég fór að borða það. Til bragðbætis og til að auka hollustuna, nota ég bæði 'heimaræktaða steinselju, dill, graslauk og sítrónumelissu saman við salatið auk spánar- kerfíls og íslensks blóðbergs, já og fyrr í sumar notaði ég ung fíflablöð saman við. Þess- ar kryddjurtir mínar þrífast mjög vel og hinar kryddjurt- imar mínar lofa líka góðu, en ég rækta bæði mintu, salvíu, majoram og basilkum, sem er ein sú ljúfasta og besta krydd- jurt sem ég þekki, en því mið- ur stundum erfíð í ræktun. Margs konar salöt er hægt að búa til, en ég fylgi þó þeirri reglu að blanda aldrei mörgum tegundum saman. Annað ber að varast, og það er að hafa salatið rennandi blautt. Salat þarf alltaf að hrista til dæmis í sigti eða hreinum klút eða þá nota sérstaka körfu sem er ætluð til að þurrka salat í. Ef mikið vatn er á salatinu, þynnir það allt of mikið lög- inn, sem við setjum á salatið og hann verður bragðdaufur. Annars ættum við líka að gæta þess að hafa ekki of stóra bita af salatinu. Þð á að rífa niður í skálina, en ekki skera með hníf. Aftur á móti þurfum við að saxa kryddjurt- imar mjög vel eða klippa fínt með skærum. Graslauk ættum við t.d. alltaf að skera mjög smátt, annars verður hann í seigum renningum í salatinu. Ferskt íslenskt salat ættum við að borða á hvetjum degi yfír sumarið og jafnvel oft á dag. Salatblöð em einnig mjög góð undir álegg á brauðið. Uppáhalds hrásalatið mitt 15-20 falleg blaðsalatblöð, V2 lítil gúrka, örlítill hvítlaukur, safi úr '/2 sítrónu, V2 dl matarolía, 2 tsk. hunang, 5 dropar tabaskósósa, salt milli fingurgómanna, 10 blöð fersk sítrónumelissa. ' 1. Takið skál og nuddið hana að innan með afhýddum hvítlauksgeiranum. 2. Þvoið salatblöðin, þerrið vel. Rífíð salatblöðin og setjið í skálina. 3. Þvoið gúrkuna, skerið síðan í örþunnar sneiðar. Hægt er að nota ostaskera. Setjið með salat- inu í skálína. 4. Þvoið sítrónumelissuna, eða ' klippið steinseljuna, rífið blöðin örlítið í sundur og setjið með salatinu og gúrkunni. 5. Kreistið safann úr sítrónunni ■ og setjið í skál. 6. Setjið mataroliu út í sítrónus- afann, setjið síðan hunang, salt og tabaskósósu út í og þeytið saman með þeytara. 7. Hellið leginum jrfír salatið í skálinni, jafnið með salatskeið- um og tveimur göfflum. 8. Berið strax á borð. Athugið: Ef þið ætlið að geyma salatið eitthvað, þarf að setja disk eða plastfílmu yfír skálina og geyma í kæliskáp. C-vítamín er fljótt að ijúka úr salatinu, sé þetta ekki gert. Salat með fenniku og eggj- um 10-20 falleg salatblöð, V2 meðalstór fennika, 1 dós sýrður ijómi, xh msk. edik t.d. tarragonedik, örlítið salt og nýmalaður pipar, 3 harðsoðin egg. 1. Þvoið salatið, þerrið. 2. Þvoið fennikuna, skerið af henni fíaðrirnar og geymið, sem skerið sjálfa fennikuna í ör- þunnar sneiðar. 3. Setjið sýrðan ijóma í skál ásamt ediki, salti og pipar. Hræ- rið vel saman. 4. Rífíð salatblöðin í sundur, setjið í skál ásamt fennikunni. 5. Hellið sósunni yfir og bland- ið saman með tveimur göfflum. 6. Harðsjóðið eggin, takið af þeim skumina. Saxið síðan fínt. Setjið í eggjaskera fyrst langsum en síðan þversum. Stráið yfir salatið í skálinni. 7. Klippið fjaðrirnar af fennik- unni smátt og stráið yfir. Hreðkusalat með ávöxtum 10 radísur eða xh meðalstór kínahreðka, 2 tsk. salt, 1 stór epli, V2 gúrka, xh appelsína í sneiðum, en safi úr hinum helmingnum. V2 msk. sítrónusafí, V2 dós jógúrt án bragðefna, 1 tsk. hunang, örlítill, nýmalaður pipar. 1. Þvoið hreðkurnar (kína- hreðkuna, afhýðið hana). 2. Skerið hreðkumar (kína- hreðkuna) í örþunnar sneiðar. 3. Stráið salti á hreðkurnar (kínahreðkuna) látið renna vel af þeim. 5. Þvoið gúrkuna, skerið í ör- þunnar sneiðar. 6. Takið börkinn af hálfri app- elsínu og skerið í örþunnar sneið- ar, takið steina úr. 7. Blandið saman júgúrt, app- elsínusafa, sítrónusafa og hun- angi. Hrærið vel saman. 8. Setjið ávexti og grænmeti í skál. Hellið sósunni yfír og jaf- nið saman. 9. Malið pipar yfir. Salat með blómkáli og sveppum 10-20 salatblöð, V2 lítill blómkálshaus, 100 g ferskir sveppir, ferskt dill, V2 dl matarolía, 3 msk. edik, nýmalaður pipar, salt milli fingurgómanna, 5 dropjir tabaskósósa. 1. Þvoið salatblöðin, rífíð niður og setjið í skál. 2. Þvoið blómkálið, skiptið í litlar hríslur og skerið leggi frá. (Þá má sjóða og nota í annað.) Setjið í skálina. 3. Þerrið sveppina vel með eldhúspappír, þvoið ekki. Skerið síðan í sneiðar. Setjið í skálina. 4. Setjið matarolíu, edik, pip- ar, salt og tabaskósósu í skál. Þeytið vel saman. 5. Klippið dillið (notið ekki leggina) og setjið saman við lög- inn. 6. Hellið leginum yfír græn- metið í skálinni. Blandið vel sam- an með tveimur göfflum. Hvítkálssalat með gulrótum og papríku 250 g hvítkál, 2 stórar gulrætur, 1 meðalstór græn papríka, 1 dós sýrður ijómi, 1 msk. olíusósa (mayonnaise), 5 dropar tabaskósósa, salt milli fíngurgómanna, nýmalaður pipar. 1. Þvoið káiið, saxið síðan mjög fínt. Setjið í skál. 2. Þvoið gulræturnar, skafíð síðan og rífið síðan fínt. 3. Þvoið papríkuna, takið úr henni steina og skerið í litla bita. 4. Setjið sýrðan ijóma, olíus- ósu, tabaskósósu, salt og pipar í skál. Hrærið vel saman. 5. Setjið allt grænmetið í aðra skál. Hellið sósunni jrfír og blandið saman með tveimur göfflum. Athugið: Ef þið ætlið að geyma salatið, þaif að setja það í kæliskáp og setja disk eða plastfílmu jrfír skálina. Salat með jógúrt og graslauk Kínakál eða hvítkál, V2gúrka, nokkur graslaukstrá, 1 dós jógúrt án bragðefna, 1 tsk. karrý, 8 dropar tabaskósósa. 1. Setjið jógúrt, karrý og tab- askósósu í skál. Hrærið vel sam- an. 2. Þvoið kálið og skerið fínt (kínakál á ekki að rífa, en skerið allta þvert á kalið). 3. Þvoið gúrkuna, kljúfið hana langsum. Skerið siðan í þunnar sneiðar með ostaskera. 4. Klippið graslaukinn fínt. 5. Setjið kál, gúrku og gras- lauk í skál. Hellið sósunni yfir. Blandið saman með salatskeið- um eða tveimur göfflum. 6. Berið salatið strax á borð eða breiðið yfír skálina og gey- mið I kæliskáp. Athugið: Þetta er mjög gott með físki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.