Morgunblaðið - 16.07.1988, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. JÚLÍ 1988
Dómnefndarálit um lektors-
í sljómmálafræði
stöðu
Morgunblaðið birtir hér á eftir
í heild álit dómnefndar um lekt-
orsstöðu i stjórnmálafræði við
félagsvisindadeild Háskóla ís-
lands, sem mjög hefur verið til
umræðu að undanförnu.
Dómnefndarálitið skiptist í þrjá
hluta: 1. Forsendur; gerð er grein
fyrir helstu forsendum álitsins. II.
Greinargerð; fjallað er um hvern
umsækjanda fyrir sig. III. Niður-
stöður; dregnar eru ályktanir um
hæfni hvers umsækjanda til að
gegna auglýstri stöðu lektors í
stjómmálafræði.
I. Forsendur
í áliti sínu leggur dómnefndin til
grundvallar samþykkt háskólaráðs
um framgangskerfi háskólakenn-
ara og auglýsingu um lektorsstöðu
í stjómmálafræði.
I samþykkt háskólaráðs segir
m.a.:
„Lekton Umsækjandi um lekt-
orsstöðu skal hafa lokið háskóla-
prófi, sem felur í sér minnst tveggja
ára visindalega þjálfun. Hann skal
einnig hafa sannað hæfni sína til
sjálfstæðra vísindalegra rannsókn-
arstarfa með framlögðum ritverk-
um og sýnt það með námsferli
sínum, rannsóknum og öðmm störf-
um, að hann sé hæfur til að gegna
stöðunni. Dómnefnd metur hæfið."
Auglýsing um stöðu lektors í
stjómmálafræði er þannig (Lög-
birtingablað nr. 26, 1987):
„Lektorsstaða í stjórnmálafræði
við félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands. Umsækjandi skal vera hæfur
til að annast kennslu í undirstöðu-
greinum í stjómmálafræði og
kennslu og rannsóknir á a.m.k. einu
af eftirfarandi sviðum íslenskra
stjómmála. 1. Ákvarðanaferli og
stofnanaþróun innan stjómkerfis-
ins. 2. Hegðun og viðhorf kjósenda.
3. Samanburðarstjórnmál.
Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri
skýrslu um rannsóknir og ritsmíð-
ar, svo og námsferil og störf, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 6.
april nk.“
Auglýsingin tilgreinir tvenns
konar hæfniskröfur:
í fyrsta lagi, um hæfni til að
annast kennslu í undirstöðugreinum
stjómmálafræði. Um stjómmál er
fjallað í ýmsum fræðigreinum fyrir
utan stjómmálafræði, svo sem
sagnfræði, lögfræði, félagsfræði,
heimspeki og h'agfræði. Hæfni til
kennslu í stjómmálafræði felst ekki
einungis í hæfni til að fy'alla fræði-
lega um stjómmál heldur krefst
þekkingar á helstu kenningum og
rannsóknaraðferðum í stjómmála-
fræði auk hæfni til að miðla þeirri
þekkingu.
I öðru lagi, um hæfni til að ann-
ast kennslu og rannsóknir á íslensk-
um stjómmálum innan þriggja sér-
sviða stjómmálafræði:
— ákvarðanaferli og stofnana-
þróun (public policy studies)
— hegðun og viðhorf kjósenda
(electoral behaviour)
— samanburðarstjórnmál (com-
parative govemment)
Hæfni í þessum greinum flest í
því að hafa á valdi sínu alla þætti
„empírískra" rannsókna: kenning-
ar, val rannsóknaraðferðar, gagna-
söfnun, úrvinnslu og greinargerð.
Umsækjandi verður því aðeins
dæmdur hæfur að hann uppfylli
skilyrði um hæfni til kennslu í und-
irstöðugreinum í stjómmálafræði,
auk hæfni til kennslu og rannsókna
á a.m.k. einu tilgreindu sérsviði.
Ekki er skilyrði að hafa lokið há-
skólaprófi í stjómmálafræði, en sér-
stök skylda hvílir samt á þeim
umsækjendum sem ekki hafa lokið
slíku námi, að sanna hæfni sína
með ritverkum. Nám getur ekki
eitt og sér leitt til hæfnisdóms. í
öllum tilvikum er meginatriði í
starfi dómnefndar að meta þau rit-
verk umsækjenda sem falla undir
skilyrði áðurgreindrar auglýsingar
um lektorsstöðu í stjómmálafræði.
Sérstaklega skal undirstrikað að
verkefni dómnefndar er fyrst og
fremst að meta hæftii umsækjenda
til að gegna þessari tilteknu stöðu.
II. Greinargerð*
Björn S. Stefánsson
(f. 19.6.1937).
Umsækjandi varð stúdent 1956,
búfræðingur 1957, „Sivilagronom"
frá Norges Landsbmkhögskole
1961 og Dr. Scient. frá sama skóla
1968 með búnaðarhagfræði sem
aðalgrein. Hefur m.a. starfað sem
vísindalegur aðstoðarmaður við
Búnaðarháskóla Noregs 1965-
1968; deildarstjóri á Hagstofu ís-
lands 1968-1976; prófessor við
NORDPLAN janúar-júní 1978.
Hefur stundað rannsóknir, m.a.
með styrkjum frá Vísindasjóði, og
flutt fyrirlestra við margar háskóla-
og vísindastofnanir á Norðurlönd-
um.
Á ritaskrá em samtals 123
ritsmíðar „um þjóðfélagsmál —
fræðilegar og alþýðlegar", frá ámn-
um 1965-1987; einkum er um að
ræða verk á sérsviði höfundar um
málefni íslensks landbúnaðar. Um-
sækjandi hefur einnig skrifað tals-
vert um stjómmál. Slík verk hans
em einkum tvenns konar:
1. Umfjöllun um atkvæðasjóði
og atkvæðagreiðslur. Meginhug-
myndir umsækjanda koma fram í
grein sem birtist árið 1974 í Scand-
inavian Political Studies sem er við-
urkennt tímarit stjómmálafræðinga
á Norðurlöndum. I lokakafla hennar
segir m.a.: „This dissertation is sci-
ence fiction. It deals with að con-
stmcted process and how it produc-
es (generates) the organization of
decisions and social forms on the
whole. It will then be a special task
to explain how PVF can be
introduced." (bls. 72). PVF hafði
áður verið tilgreint sem „public
choice through vote funds" (bls.
52). í greininni „Gmppevalg mellem
tre eller flere altemativ" (Tidsskrift
for samfunnsforskning 1981) gerir
umsækjandi grein fyrir kosningaað-
ferð til að velja á milli þriggja eða
fleiri kosta. Röksemdafærslan er
skilmerkileg og framsetning prýði-
leg.
Hugmyndir umsækjanda um at-
kvæðasjóði em mjög athyglisverðar
en hafa enn sem komið er ekki
verið nýttar af honum til að skoða
fræðilega einhveija þætti íslensks
stjómkerfis og falla því utan þeirra
marka sem í auglýsingu um lektors-
stöðu í stjómmálafræði em sett um
sérsvið.
2. Umfjöllun um íslenskar sveit-
arstjómir. Meginverk Bjöms um
þetta efni em tvær greinar: „Hvord-
an sma kommuner fungerer"
(1982) og „Kommunestmktur og
reformforsök i Island" (1985). Ifyrri
greinin flallar um hluta íslenskra
sveitarstjóma, hreppana. Þama er
um mjög áhugavert og lítt rannsak-
að svið að ræða. Margar athuga-
semdir umsækjanda em fróðlegar
en í heild er greinin fremur kynning
á mikilvægu rannsóknarefni heldur
en fræðileg rannsókn. Frá sjónar-
hóli stjómmálafræði em ýmsir end-
ar lausir: aðferðafræðin er óljós;
ekki er til að mynda ljóst á hvaða
gmnni þau sveitarfélög, sem sér-
staklega em skoðuð (sbr. bls.
180-181), em valin. í upphafi minn-
ist umsækjandi á hugmyndir Ottars
Brox um „nærdemokrati og gode
deltagingsvilkar" en kannar síðan
lítt sem ekkert þátttöku eða ákvarð-
anatöku í íslenskum sveitarfélögum
eins og nauðsynlegt er til að geta
dregið einhvetjar ályktanir. Þar af
leiðandi verður niðurstaðan harla
lítil, aðeins nokkrar setningar í lok-
in (bls. 189-190).
Kommunestmktur og reform-
forsök i Island er yfirlit yfir þróun
sveitarstjóma á íslandi og segir þar
sérstaklega frá hugmyndum um
sameiningu sveitarfélaga, sem ekki
hafa komið til framkvæmda nema
í örfáum sveitarfélögum. Á grein-
inni er að finna svipaða vankanta
og hinni fyrri. Aðferðafræðin er
óljós; ákaflega litlu verið safnað af
gögnum á skipulegan hátt; kenn-
ingagmnnur er ekki í neinum
tengslum við það sérsvið í stjóm-
málafræði sem ú'allar um ákvarð-
anaferil og stofnanaþróun.
Einnig má nefna ritgerð umsækj-
anda um „Islandsk distriktspolitik"
(1984) sem er lýsing á byggða-
stefnu á íslandi. Einungis em til-
greindar þrjár heimildir: tvö verk
eftir umsækjanda sem hvomgt fyall-
ar beinlínis um ísland og eitt um
Noreg. Almennt er óljóst hvert er
nákvæmlega viðfangsefni ritgerð-
arinnar; hið sama gildir um fræði-
legar kenningar, rannsóknarað-
ferðir og niðurstöður. Þannig er á
einum stað (bls. 95) minnst á viðtöl
sem tekin hafa verið án þess að
gerð sé nánari grein fyrir úrtaki
eða úrvinnslu. Á öðmm stað er
minnst á tengsl reglna um atkvæða-
greiðslur og ákvarðanatöku (bls.
99-101) en ekki er unnið úr þeim
hugmyndum samkvæmt rannsókn-
arhefðum í stjómmálafræði.
Gunnar Helgi Kristinsson
(f. 19.3.1958).
Umsækjandi varð stúdent 1978,
lauk BA-prófi (stjómmálafræði) frá
HÍ 1981 og M.Sc. í stjómmálafræði
(Politics) frá London School of Ec-
onomics and Political Science 1982.
Þetta nám skiptist í þijú námskeið
(„Revolutions and Social Move-
ments“, „Political Behaviour",
„Theories and Concepts of Political
Sociology"), sem lokið var með
skriflegum prófum, auk sérstakrar
M.Sc.-ritgerðar. Umsækjandi hóf
1982 doktorsnám (Govemment) við
háskólann í Essex og hefur einnig
stundað rannsóknir við Gautaborg-
arháskóla; hann starfaði við fé-
lagsvísindadeild HÍ 1982-1983
(Kosningarannsókn 1983). Frá
hausti 1986 hefur umsækjandi
kennt í nokkmm námskeiðum við
félagsvísindadeild, einkum í stjóm-
málafræði en einnig félagsfræði.
Gunnar Helgi leggur fram eftir-
talin ritverk:
1. Inngang og niðurstöður úr
BA-ritgerð frá HI 1981, Viðreisn-
arstjórnin 1959-1971 (81 bls.) og
MA-ritgerð, London School of Ec-
onomics 1982, Political Instability
in Iceland (78 bls.).
2. ísland og Evrópubandalag-
ið, Öryggismálanefnd 1987 (125
bls.). Erindi, „Iceland, Responses
to Vulnerability“, flutt á norrænni
ráðstefnu í Reykjavík 3.-4. apríl
1987, er byggt á þessari ritgerð.
Gunnar hefur jafnframt aukið og
endurbætt erindið til útgáfu í nor-
rænu tímariti um alþjóðastjómmál
„Cooperation and Conflict" (No. 4,
1988) undir heitinu „Iceland:
Vulnerability in a Fish-Based
Economy“. Tímarit þetta er við-
urkennt timarit stjórnmálafræð-
inga á Norðurlöndum.
3. Uppkast að kafla 2 í doktors-
ritgerð um uppruna og þróun
bændaflokka á íslandi, í Noregi
og Svíþjóð, „The Formation of
Farmers’ Parties" (117 bls.), og
rannsóknarskýrslu frá Háskólanum
í Gautaborg, apríl 1986, „The
Adaptation of Farmers’ Parties
in Norway and Sweden" (95 bls.).
M.Sc.-ritgerðin er að mestu
kenningarleg umræða um hugtakið
„political stability" og hvemig
skýra skuli pólitískan stöðugleika
og óstöðugleika á íslandi. Ritgerðin
er ekki ýkja mikil að vöxtum en
sýnir samt þekkingu umsækjanda
í samanburðarstjómmálafræði og
gott vald hans á fræðilegri umfjöll-
un um íslenska stjórnmálaþróun.
Uppkast að kafla úr doktorsrit-
gerð og ritgerðin um ísland og
Evrópubandalagið em veigamestu
verk Gunnars. Síðarnefnd ritgerð
veitir mjög gott yfirlit yfir sam-
skipti íslands við Evrópubandalag-
ið, þróun og hlutverk bandalagsins,
umræður hér á íandi í upphafi sjö-
unda áratugar um aðild að banda-
laginu, aðdraganda að inngöngu í
EFTA 1970, fríverslunarsamning
við EB 1972, hvemig viðskipti ís-
lands og bandalagsins hafa þróast
síðustu árin og afstöðu stjómmála-
flokka og stjómvalda til samskipta
við EB. Efnislega em meginatriðin
í samskiptunum þau að ríflega
helmingur_ af útflutningi og inn-
flutningi íslands er við Evrópu-
bandalagsríkin. Tvennt hefur valdið
þeirri þróun, annars vegar fjölgun
bandalagsríkja^ hins vegar aukinn
útflutningur íslands til þeirra.
Hagsmunir Islands em fyrst og
fremst þeir að halda samkeppnisað-
stöðu sem gæti orðið vandamál
einkum ef Norðmenn gengju í
bandalagið. íslendingar hafa ekki
talið að þeir gætu farið fram á
aðild að bandalaginu vegna þess
hvers eðlis það er, m.a. fijálst flæði
vinnuafls og fjármagns auk hins
yfirþjóðlega eðlis bandalagsins.
Spumingin hefur verið um það
hvemig væri hægt að aðlagast
þessum aðstæðum. Tvær leiðir sem
rætt hefur verið um: EFTA-leiðin,
þ.e. að EFTA-ríkjunum takist í
sameiningu að laga sig að breyttum
aðstæðum, og tvíhliða samningar.
Það síðamefnda hefur strandað á
því að menn hafa talið að Evrópu-
ríkin krefðust réttinda innan fisk-
veiðilögsögunnar. Stefna íslands
hefur verið sú að fylgjast betur en
áður með þróun mála innan banda-
lagsins og efla samstarf við það,
m.a. með opnun skrifstofu í Bmssel
1987. Verkið er fyrst og fremst
lýsandi en gefur ágæta yfirsýn, er
gott að uppbyggingu og framsetn-
ing skýr.
Frá fræðilegu sjónarmiði er
greinilegt að uppkast að kafla úr
doktorsritgerð má líta á sem megin-
framlag Gunnars. í kaflanum rekur
hann uppmna bændaflokka á ís-
landi, Noregi og Svíþjóð út frá
þeirri tilgátu að uppmna þeirra
megi rekja til hagsmunamála kjós-
GARÐASTAL
Áratuga ending - margir litir
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
Kjörbók Landsbankans L
S Lapdsbanki
Sættu þiq ekki við lægri ávöxtun. íslands
1 -r Banki allra landsmanna